Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 Nýja flugstöðin; Samið við íslensk tölvufyrirtæki Stefnt að vígslu 18. apríl STEFNT er að því að taka nýju flugstöðina í Keflavík í notkun 18. apríl nk. Að und- anfömu hafa verið undirritað- ir samningar um gerð eftirlits-, hljóð- og tölvukerfa, við íslensk fyrirtæki, fyrir um 70 milljónir króna. Jón Böðvarsson, fram- kvæmdastjóri byggingamefndar, sagði að stærsti samningurinn væri við fyrirtækið Rafís um gerð hátalarakerfis fyrir flugstöðina sem mun kosta 25 milljónir króna. Hátækni tók að sér að hanna og setja upp tölvustýrt „hússtjómarkerfi“ sem mun fylgjast með ástandi flugstöðvar- innar og hafa stjóm á ýmsum þáttum svo sem birtu, hita, loft- ræstingu og rakastigi í húsinu. Allur hugbúnaður kerfísins verð- ur unninn hér á landi. Hússtjóm- arkerfið kostar 14,5 milljónir króna. Örtölvutækni hreppti samning upp á 15 milljónir króna um gerð „flugupplýsingakerfis“ sem mun m.a. gefa farþegum upplýsingar um komu og brott- farartíma flugvélanna. Einnig voru gerðir tveir samningar við Radíóstofuna um sjónvarps- gæslukerfi, upp á 6 milljónir króna, og aðgangskortakerfi, upp á 8,5 milljónir króna. A næstunni verður gengið frá samningum um eldhústæki, vogir og færibönd. H.G. heildverslun kemur til með að selja tæki í eld- hús flugstöðvarinnar, en Vogir hf. munu í samvinnu við hol- lenska fyrirtækið Rapistan setja upp færiböndin. Hvor þessara samninga er upp á um 25 milljón- ir króna. Þá voru nýlega opnuð tilboð, frá 16 aðilum, í öll hús- gögn innanhúss. Jón sagði að meirihluti tilboðanna hefði verið frá innlendum framleiðendum og umboðsaðilum. Gengið verður til samninga innan tíðar. Allar framkvæmdir við flug- stöðina ganga snurðulaust og eftir áætlun, að sögn Jóns. Að- eins er eftir að bjóða út einn verkþátt sem er kaup og uppsetn- ing á gróðri í flugstöðinni. VEÐURHORFUR f DAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Á vestanverðu Grænlandshafi er 973 millibara djúp lægð á hreyfingu norður, en hæðarhryggur yfir Bret- landseyjum. SPÁ: Fremur hæg suðlæg átt og hiti víðast 2 til 4 stig. Siydduél á vesturlandi en skúrir á suðurlandi. Þurrt fyrir norðan. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Suðlæg átt og hlýtt. Skýjað og víða súld eða rigning á sunnanveröu landinu en víöast þurrt fyrir norðan. TAKN: x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- *| Q° Hitastig: 10 gráður á Celsius stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. * V Él Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka / / / — Þokumóða Hálfskýjað * / * 5 5 5 Súld Skýjað / * / # Slydda / * / oo Mistur * * * 4 Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma hlti veóur Akureyri 5 skýjað Reykjavík S skúr Bergen -0 rigning Helsinki -28 skýjað Jan Mayen 0 alskýjað Kaupmannah. -2 renningur Narssarssuaq 0 snjókoma Nuuk -9 snjókoma Osló -12 skýjað Stokkhólmur -16 snjólkoma Þórshöfn S alskýjað Algarve 12 súld Amsterdam 0 súld Aþena 13 skýjað Barcelona 8 lóttskýjað Berlin -7 þokumóða Chicago -2 alskýjað Glasgow -3 reykur Feneyjar 0 heiðskírt Frankfurt -4 skýjað Hamborg -4 snjókoma Las Palmas 21 skýjað London -1 þoka LosAngeles 7 heiðskírt Lúxomborg -5 skýjað Madríd 4 léttskýjað Malaga 16 skýjað Mallorca 11 skýjað Miami 18 léttskýjað Montreal -9 skýjað NewYork 1 léttskýjað Parfs 0 þokumóða Róm S léttskýjað Vín -7 snjókoma Washington 4 skýjað Winnlpeg -13 skýjað Frakkamir Michel Aubert og Yves Sillard ásamt Vilhjálmi Lúðvíks- syni framkvæmdastjóra Rannsóknaráðs ríkisins á fundi í Borgartúni. Taka Islendingar þátt í verkefni um fiski- skip 9. áratugarins? ISLENDINGAR geta tekið þátt í verkefni um fiskiskip 9. áratug- arins í samvinnu við Frakka og Spánveija. Verkefnið er unnið innan evrópska vísindasam- starfsins EUREKA, sem íslend- ingar urðu aðilar að s.l. sumar. Undanfama daga hafa fulltrúar frá Haftæknistofnun Frakklands dvalið hér á landi og kynnt sér starf- semi þeirra íslensku fyrirtækja sem koma til með að vinna við þetta verkefni ef af þessu samstarfi verð- ur. Islensku fyrirtækin þurfa að leggja fram tillögur fyrir lok mars- mánaðar ef þau ætla að vera með í þessu samstarfi. Frakkarnir hafa m.a. heimsótt Slippstöðina á Akureyri, Plastein- angrun, Odda, Sæplast, Pólstækni h.f., Hampiðjuna og Traust h.f. Þá fóru þeir á fund háskólamanna sem unnið hafa að hugbúnaðarverkefn- um í tengslum við sjávarútveg. Þeir héldu opinn fund í Borgartúni 6 í gær þar sem þeir gerðu grein fyrir EUREKA vísindasamstarfinu og þeim verkefnum sem unnin eru í Frakklandi nú í dag á vegum þess. Á fundinum kom fram að 62 verkefni eru nú í gangi á vegum EUROKA í Frakklandi af 109 sem samþykkt hafa verið og eru Bretar, Italir og Þjóðverjar tíðustu sam- starfsaðilar þeirra. Verkefnin eru unnin á vegum 65 fyrirtækja. Frakkar leggja talsvert fjármagn í EUREKA verkefni, þeir stefna að því að veija um 900 milljónum franka á ári til evrópska vísinda- samstarfsins, en veija í dag 600 milljónum til þessa samstarfs. Gausdal: Fyrsta umferð svæða- mótsins tefld í dag FYRSTA umferð svæðamótsins í Gausdal verður tefld í dag. Is- lendingar senda fjögurra manna sveit til keppninar, skipaða stór- meisturunum Jóhanni Hjartar- syni, Jóni L. Arnasyni og Guðmundi Siguijónssyni auk Sævars Bjarnasonar. Níu um- ferðir verða tefldar eftir Monrad-kerfi, og lýkur mótinu 19. þessa mánaðar. „Það er þétt skipað lið á þessu móti og bera allir keppendumir utan tveir titla. Keppnin ætti því að geta orðið hörð og spennandi," sagði Jóhann Hjartarson í samtali við blaðið í gær. Auk íslensku stórmeistaranna bera þrír keppendur þann tit.il, þeir Agdestein frá Noregi, Karlson frá Svíþjóð og Rantanen frá Finnlandi. Aðrir keppendur eru: Ögaard, Tiller og Östenstad, frá Noregi, Emst, Hector og Hellers frá Svíþjóð, Ytjolá frá Finnlandi, Hansen frá Færeyjum og þrír Danir, Morthens- en, Kristiansen og Höi. Margeir Pétursson með lakari biðskák SKAK Margeirs Péturssonar og Gufeld í 9. umferð á alþjóðlega skákmótinu í Hastings fór í bið í gær og er Margeir með heldur lakari stöðu. Larsen vann skák sína við Large og er einn í efsta sæti á mótinu með 6,5 vinninga. Chiburdanidze, heimsmeistari kvenna, vann Plaskett og Mest- el vann Conquest. Jafntefli varð í skákum Chandlers og Speelman og Lputjan og Adoij- an. I samtali við Morgunblaðið í gær taldi Margeir ekki útilokað að bjarga biðskákinni í jafntefli, en sagði að hann ætti við rammann reip að draga. Hann sagði að skák- in hefði verið fjörug. Gufeld hefði fórnað hrók og hann í framhaldinu orðið að gefa drottninguna fyrir annan hrók. Tíunda umferð verður tefld í dag og teflir Margeir þá við Chiburdan- idze. Forseti sameinaðs þings á Kýpur FORSETI sameinaðs Alþingis, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, kemur í dag til Kýpur þar sem hann mun dvelja næstu viku í boði forseta þjóðþingsins, dr. Vassus Lesarites. Að sögn Friðriks Ólafssonar, skrifstofustjóra Alþingis, er þetta fyrsti vísirinn að sambandi milli þjóðþinga íslands og Kýpur. Á meðan á heimsókninni stendur mun Þorvaldur Garðar ræða við alla æðstu ráðamenn landsins og kynn- ast þingstörfum. Með honum í för er Olafur Ólafsson frá skrifstofu Alþingjs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.