Morgunblaðið - 09.01.1987, Page 12

Morgunblaðið - 09.01.1987, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 Hvað hafði Karpov í huga? Skák Margeir Pétursson FYRIR rúmri hálfri öld voru uppi háværar raddir um að það þyrfti að gera mannganginn í skák flóknari, þar sem meistar- amir væru langt komnir að tæma þá möguleika sem taflið byði upp á. Síðan þá hafa marg- ir stórkostlegir meistarar komið fram á sjónarsviðið, en þrátt fyrir það kemur engum til hugar að það þurfi að breyta reglunum. Það virðast engin takmörk fyrir því hversu mörg ný afbrigði og stef er hægt að finna upp. Þetta sést hvað bezt á þróun í byrjanateoríu, þar virðist endalaust vera hægt að finna nýjar hugmyndir og end- urbætur, jafnvel í stöðum sem byijanasérfræðingar hafa af- greitt fyrir löngu. Eitt af flóknustu byijanaaf- brigðum sem eru í tízku í dag er hið alræmda drekaafbrigði í Sikil- eyjarvöm. Það leiðir til gífurlegra snarpra sviptinga, ef hvítur velur hvössustu leiðina. Drekinn hefur fengið á sig mörg hvöss spjótalög, en ávallt staðið þau af sér og af- brigðið hefur sjaldan eða aldrei verið vinsælla en nú. Tveir ný- justu áhangendumir em ekki ófrægari stórmeistarar en Júgó- slavinn Ljubojevic og V-Þjóðveij- inn Hubner. Síðustu 15 árin er það Anatoly Karpov, fyrmrn heimsmeistari, sem hefur verið hættulegasti óvin- ur drekaafbrigðisins. Hann hafði ávallt haft sigur gegn því og þó mætt mestu sérfræðingunum. Nægir þar að nefna Viktor Korc- hnoi, Hollendinginn Sosonko og Tony Miles. Á Ólympíumótinu í Dubai um daginn kom Karpov með nýja og hættulega endurbót gegn hinum búlgarska stórmeistara Kiril Ge- orgiev: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Kiril Georgiev I. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 - Rf6, 4. Rc3 - cxd4, 5. Rxd4 - g6, 6. Be3 - Bg7, 7. f3 - Rc6, 8. Dd2 - 0-0, 9. Bc4 - Bd7, 10. h4 - h5 Tony Miles hefur gert þessa vamaraðferð vinsæla. Afbrigðin 10. - Da5 og 10. - Hc8, 11. Bb3 - Re5, 12. h5 - Rxh5 em hins vegar ekki lengur í tízku. II. 0-0-0 - Re5, 12. Bb3 - Hc8,13. Bg5! - Hc5,14. Kbl!? Nýlega hefur fundist vöm gegn hinni hættulegu árás: 14. g4 — hxg4, 15. h5 eða 15. f4. Nýjung Karpovs felst i því að hann blæs ekki til sóknar á kóngsvæng fyrr en eftir að leikjunum 14. Kbl — b5 hefur verið skotið inn í. Þessi lítilfjörlega breyting virðist bæta stöðu hvíts vemlega. 14. - b5, 15. g4 15. - a5! Það þarf hraustmenni til að leika slíkum leik, sem virðir að vettugi sóknaraðgerðir hvíts á kóngsvæng. Líklega hefur Karpov aðeins búist við 15. — hxg4, a.m. k. fær hann ekki góða stöðu: 16. Bxf6 - Bxf6, 17. a3?! - hxg4, 18. f4 — Rc4, 19. Dd3 — Dc8!, 20. Rd5 - Hxd5!, 21. exd5 - Bf5, 22. Rxf5 - Dxf5 Svartur hefur leyst öll sín vandamál með skiptamunsfóm, sem er dæmigerð fyrir drekaaf- brigðið. 23. Bxc4 — bxc4, 24. Dxc4? má nú svara með 24. — Hb8, 25. b3 - Hc8, 26. Dd3 - Dxf4. Hvítur er kominn í krappa vöm, en Karpov slapp með jafn- tefli: 23. c3 - Re3, 24. Dxf5 - gxf5, 25. Hd2 - a4, 26. Ba2 - Hc8, 27. h5 - Rc4, 28. He2 - Hc5, 29. Hdl - Kg7, 30. Kcl - Rb6, 31. Hd3 - Kh6, 32. Hh2 - Rc4, 33. Kdl - Hc8, 34. Kcl - Hc5, 35. Kbl - Hc8, 36. Kal - Hc5, 37. Hhl - Rb6, 38. Hddl - Rc4, 39. Hd3 - Rb6, 40. Hh2 - Rc4, 41. Hhl — Rxa3!? Stórkostleg fóm, sem því miður dugar ekki til vinnings. Þá hefði skákin orðið ódauðleg! 42. bxa3 — Hxc3, 43. Hxc3 — Bxc3+, 44. Kbl - Bd4, 45. Hdl - Bf2, 46. Kb2! - g3, 47. Bbl - g2, 48. Bxf5 - gl=D, 49. Hxgl — Bxgl, 50. Bd7 — Kxh5, 51. Kc3 - Bc5, 52. Bxb5 - Kg4, 53. Bxa4 - Bxa3, 54. Be8. Jafntefli, því vegna mislitu bisku- panna getur svartur ekki unnið. Þessi skák var mikið áfall fyrir Karpov, þar eð þetta mun vera í fyrsta sinn sem honum tekst ekkj að vinna gegn drekaafbrigðinu. í síðustu umferð Ólympíumótsins fékk hann aftur að tefla gegn drekaafbrigðinu og beitti þá sömu leikaðferð: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Sznapik (Pólland) Ifyrstu 15 leikimir em þeir sömu og í Karpov—Georgiev.) 15. — hxg4 Að sjálfsögðu hefur Sznapik vitað að Karpov lumaði á endur- bót við skák sína gegn Georgiev. Hann velur því hefðbundnari leið, en þá er Karpov vel með á nótun- um: 16. h5 - Rxh5,17. Rd5 - He8 18. Hxh5! Þegar drekinn er tefldur þýðir ekki að láta efnishyggjuna ráða. Reyndar lék aðstoðarmaður Karpovs, stórmeistarinn Igor Za- itsev, hér 18. Dg2 árið 1983. Það er athyglisvert að þegar meistarar undirbúa sig fyrir tafl við Karpov, borgar það sig oft að skoða skák- ir Zaitsevs. Hann prófar oft hugmyndir sem Karpov notar síðar meir, er nokkurs konar til- raunadýr. 18. - gxh5, 19. Dh2 - Hc4? 19. — Hxd5 er vafalaust betra, en í úrslitum brezka meistara- mótsins hálfum mánuði síðar vann Chandler Mestel eftir 19. — Hxd5, 20. Bxd5 — Db6, 21. Dxh5 — e6, 22. Bb3 - Dc5, 23. Bh6 - Bf6, 24. f4, en ennþá sterkara var 24. Be3! 20. Bxc4 — bxc4, 21. Dxh5 — f6, 22. f4! - Rf7, 23. Bh4 - Db8, 24. Hhl - c3, 25. b3 - Db7, 26. f5 - Re5, 27. Re6 og svartur gafst upp. í annarri umferð alþjóðlega skákmótsins í Hastings, sem nú stendur yfir, mætti ég enska stór- meistaranum Murray Chandler með svörtu. Ég vissi ekki að hann hefði aðeins tveimur vikum áður unnið Mestel með hugmynd Karpovs og beitti því drekaaf- brigðinu óhræddur. En eftir að Chandler hafði leik- ið fyrstu leikjunum afar hratt og ég sá hvert stefndi, fóru að renna á mig tvær grímur. Fyrst Karpov tefldi afbrigðið aftur gegn Sznap- ik, hlaut hann að hafa endurbót á reiðum höndum, og Chandler hafði vafalaust fundið hana líka. En það varð ekki aftur snúið og yflr borðinu þóttist ég sjá mjög hættulega leið fyrir Chandler. Mér létti talsvert er hann lék öðru, en rannsóknir með öðrum þátttak- endum í mótinu um kvöldið bentu til þess að ég hefði haft rétt fyrir mér. Þetta var siðan sannað í skák sem tefld var síðar á mót- inu. Hún birtist hér í Mbl. ein- hvem næstu daga, en þangað til geta lesendur spreytt sig á því hvemig hægt sé að endurbæta taflmennsku hvíts. Hvítt: Murray Chandler Svart: Margeir Pétursson (Fyrstu 16 leikirnir eru eins og hjá Karpov og Georgiev.) 17. gxh5! Nú tapar hvítur manni, en fær í staðinn hættuleg sóknarfæri á kóngsvæng. 17. — a4, 18. hxg6 — axb3, 19. Rxb3 — Hxc3!, 20. gxf7+ — Kxf7, 21. Dxc3 Nú andaði ég léttar, þó hvítur hafí 3 peð og hrók fyrir biskupa- parið, hefur svartur virka stöðu og kóngur hans era úr hættu í bili. 21. - Rc4, 22. Rd4 - Db6, 23. Dd3 23. f4 mátti svara með 23. — Bg4! 23. — Dxd4!, 24. Dxd4 — Bxd4, 25. Hxd4 - Kg6, 26. a4?! Svartur hlaut að vinna eitt peð- anna til baka og hefur þá virka stöðu, en nú hefði ég getað leikið 26. — Re5! og haft vinningsmögu- leika. 26. - e5?, 27. Hd3 - bxa4, 28. Kcl - Ha8, 29. Hgl+ - Kh6, 30. Hg5 - Ha6, 31. Hg8 - Be6, 32. Hd8 - a3!, 33. bxa3 - Kg6, 34. He8 - Bf7, 35. Hc8 - Rxa3, 36. Kd2. Jafntefli. Um fastráðningarsamn- inga fiskvinnslufólks Kolbeinn Bjarnason flauturleikari og Dagný Björgvinsdóttir píanó- leikari. Tónleikar Tónlistar- félags Kristskirkju eftir Ævar Inga Agnarsson Aðilar vinnumarkaðarins töldu sig vera að stíga stórt skref, þegar nýju fastráðningarsamningamir tóku gildi. Það sem forráðamenn Alþýðusambandsins náðu fyrir sína umbjóðendur var: A. Fjögurra vikna uppsagnarfrest- ur. B. Réttur til þess að sækja starfs- fræðslunámskeið fiskvinnslufólks, sem að námskeiðum loknum gæfu tveggja launaflokka hækkun, að viðbættum einum flokki við undir- skrift, væri skrifað undir fyrir 31.12. ’86. Þetta gerði tæplega átta prósent launahækkun. Það sem samningamenn vinnu- veitenda töldu sína umbjóðendur hafa út úr fastráðningarsamningn- um var: A. Tryggara og stöðugra vinnuafl. B. Eftir námskeiðin: betra vinnuafl. C. Fleiri starfsmenn en ella myndu leita eftir fastráðningu, vegna launaflokkanna þriggja, og vegna þess að þeir einir sem fastráðningu hefðu, gætu fengið atvinnuleysis- bætur. D. Tryggari og ánægðari starfs- menn. Þetta leit allt saman vel út, og nú var það bara að hrinda stærstu endurmenntunarherferð í sögu landsins í framkvæmd. Það er öllum mönnum Ijóst að slíkt fyrirtæki kostar mikla peninga. Námskeiðin fóra af stað, þó ekki væri á áætl- un, og ég held að allir séu sammála um ágæti þeirra sem slíkra. Gallinn Ævar Ingi Agnarsson „Ábyrgðina bera þeir sem sitja við samninga- borðið og ekki annar aðilinn frekar en hinn, heldur er þetta sameig- inlegur árangur beggja.“ er bara sá að höfuðforsendumar era allar brostnar. A. í dag eiga allir sem á annað borð hafa tíma á bak við sig, rétt á atvinnuleysisbótum, og breytir engu hvort viðkomandi er með und- irritaðan fastráðningarsamning eða ekki. B. Að loknum námskeiðum getur starfsmaður sagt upp sínum samn- ingi og verið lausráðinn, en heldur samt sínum þremur launaflokkum, verður sem sagt með sömu laun og þeir sem kjósa að vera fastráðnir áfram. C. í nýafstöðnum kjarasamningum var líka gengið á launaflokkana þijá, og eftir standa tæpir tveir. D. Við ákvörðun lágmarkslauna var allt sléttað út, án tillits til starfsald- urs, en starfsaldurshækkanir verða að vera, því þær stuðla að stöðugra vinnuafli. Hér skal stöðvað við þessa upp- talningu, en fleira er hægt að tína til. Ég er sannfærður um, að nefnd sú er skipuð var 15. júní ’85 til þess að ræða stöðu flskvinnslu- fólks, gekk gott eitt til, og ekki við hana að sakast þó þetta stærsta endurmenntunarátak sé gjörsam- lega rannið út í sandinn, eða öllu heldur forsendumar fyrir nám- skeiðunum. Ábyrgðina bera þeir sem sitja við samningaborðið og ekki annar aðil- inn frekar en hinn, heldur er þetta sameiginlegur árangur beggja. Þetta er sorgleg staðreynd, því hugmyndin var góð og framsækin. Niðurstaða mín er því sú að þessi tilraun til að lyfta fiskvinnslunni á örlítið hærra plan hefur mistekist. Höfundur er framleiðslustjóri Hraðfrystihúss Fáskríiðsfjarðar. FYRSTU tónleikar Tónlistarfé- lags Kristskirkju á nýbyrjuðu ári verða i Safnaðarheimilinu Há- vallagötu 16 nk. sunnudag kl. 17.00. Þar munu koma fram þrír ungir tónlistarmenn, Kolbeinn Bjarnason flautuleikari, Dagný Björgvinsdóttir píanóleikari og Guðni Franzson Idarinettleikari. Þau flytja verk frá 18., 19. og 20. öld, eftir C.F.E. Bach, Schu- mann, Sjostakóvíts, Hindemith, Fukushima og Martino. Tvö síðast- töldu tónskáldin eru lítið sem ekkert þekkt hér á landi, en þeir era frá Japan og Bandaríkjunum og teljast í fremstu röð tónlistarmanna í þeim heimshlutum. Er flutningur verka þeirra liður í þeim áformum félags- ins að framflytja sem mest af erlendum og innlendum tónverkum. Aðrir tónleikar félagsins verða svo í febrúar, en þá munu Simon Kuran konsertmeistari, Sigurður I. Snorrason klarinettleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari flytja verk eftir Beethoven, Leif Þórarinsson og tékknesk nútíma- tónskáld, en síðan era áformaðir tónleikar með íslenskum nútíma- verkum í aprfl. Að auki munu verða a.m.k. þrennir tónleikar í Krists- kirkju á vegum félagsins og mun t.d. Helga Ingólfsdóttir leikar þar verk frá barrokktímanum um páskaleytið. ( Á tónleikunum á sunnudaginn leikur Kolbeinn Bjamason í öllum verkunum. Þau era rejmdar öll með flautuna í forgranni og eitt þeirra, Quodlibets (1980) eftir Donald Martino, er meðal erfiðustu ein- leiksflautuverkum sem samin hafa verið á okkar tímum. Dagný Björg- vinsdóttir leikur með á píanó í hinum verkunum, en Guðni Franz- son leikur á klarinett í 4 völsum eftir Sjostakóvíts. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.