Morgunblaðið - 09.01.1987, Page 35

Morgunblaðið - 09.01.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 Minning: Steinn Einarsson Yndislegur vinur er látinn. Þótt höndin væri hnýtt af áratuga þræl- dómi var handtakið alltaf jafn hlýlegt og viðmótið uppörvandi. Við sóttum hestaþing áratugum saman og glöddumst yfir fögrum gæðing- um og góðum reiðmönnum. Steinn var mikill unnandi íslenska hestins og sonur hans Skúli fangavörður og fjallkóngur með bestu hesta- mönnum landsins. Mikið var stoltið hjá þeim Steini og Gróu á Murneyr- um þegar Skúli vann til verðlauna eða á Hellu og Þingvöllum. Stund- um átti hann líka alla efstu hestana í alhliða flokknum og það leika ekki margir eftir á íslandi. Ég kynntist þeim Steini og Gróu fyrst, þegar þau áttu heima í Vatna- garði á Eyrarbakka og þá í pólitísku sprangi mínu fyrir Alþýðuflokkinn. Einlægari og tryggari jafnaðar- menn finnast ekki. Síðustu árin bjuggu þau í Hveragerði og eru bara nokkrir dagar síðan ég hitti þau síðast og þá enn í erindagjörð- um pólitíkurinnar. Erlingur Ævar sonur þeirra, út- gerðarmaður og skipstjóri í Þor- lákshöfn og hetja jafnaðarmanna í héraði, sagði mér, að gamli maður- inn hefði verið sérstaklega hress daginn áður en hann lést, en enginn má sköpum renna. Fyrir ári hafði hann gengið undir mikla aðgerð á hálsi og var þá vart hugað líf. Hann kom'st þó aftur heim til sinnar ein- stöku konu og aðstoðaði hana við heimilið, en Gróa hefur verið mikill sjúklingur undanfarið. Bregður nú mörgum í brún, því fá heimili hafa verið lítilmagnanum á íslandi meira skjól en heimili þeirra Steins og Gróu. Steinn starfaði um árabil sem fangavörður á Litla-Hrauni og þar kennir fyrst mannkostanna að standa sem stólpi og máttarstoð fyrir þá, sem lífið hefur hafnað. Gróa mín, hvort sem við lifum eða deyjum, þá erum við Drottins. Ég sendi þér og öllum bömunum, ástvinum, vinnufélögunum og frændfólki mínar dýpstu samúðar- kveðjur og bið um huggun. Algóður Guð geymi kæran vin. Guðlaugur Tryggvi Karlsson Þegar æviröðull rennur rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi hel er fortjald hinum megin birtan er. Höndin sem þig hingað leiddi himins til þig aftur ber. Drottinn elskar — Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson) Genginn er góður maður. A að- fangadagskvöld jóla andaðist tengdafaðir minn á heimili sínu, Reykjamörk 15 í Hveragerði. I hugann koma ótal minningar frá 30 ára tengdum. Fyrstu kynni mín af honum vom við plægingar á kartöflugörðum Eyrbekkinga. Var hann þá með nokkra hesta og hvíldi þá vel en alltaf var sami maðurinn sem stýrði plógnum og yfirleitt dugaði önnur höndin. Þessi þjónusta var veitt á kvöldin og um helgar. Steinn Einarsson fæddist á Ás- mundarstöðum, sonur Einars Gíslasonar á Húsum í Holtum og Kristínar Vilhjálmsdóttur úr Þykkvabæ. Hann flyst með móður sinni til Eyrarbakka 5 ára gamall og elst upp hjá henni og síðan manni henn- ar Þorbimi Guðmundssyni á Blómsturvöllum. Hann giftist eftirlifandi eigin- konu sinni Gróu Jakobsdóttur, ættaðri frá Borgarfirði eystra, árið 1938 og dugmikilli konu. Saman eignast þau 3 böm og gekk hann í föðurstað 4 bömum hennar frá fyrra hjónabandi. Síðar ganga þau 4 bömum til viðbótar í móður- og föðurstað og ala upp allan stóra bamahópinn sinn af miklum mynd- arskap. Fyrir átti hann dóttur, Guðnýju, sem fædd er og uppalin í Vestmannaeyjum. Eins og algengt var með unga menn í þá daga stundaði hann sjó- róðra á vertíðum, lengst af með aflaklónni Binna í Gröf, sem hann minntist ætíð með hlýhug. Hóf hann störf hjá Vinnuhælinu á Litla- Hrauni sem bílstjóri í nokkur ár, þar til eigin rekstur vörubíls tók við. Flutningamir vom af ýmsu tagi, mest pússningasandur sem var handmokað úr fjömnni. Fjárflutn- ingar og fiskur eða að boddíið var sett á og fólk keyrt á samkomur. 1956 gerist hann starfsmaður á Litla-Hrauni sem fangavörður og síðar varðstjóri, þar til hann hætti störfum 1981. Alla tíð ráku þau hjónin búskap með 3-5 kýr, 20-30 kindur og hesta sem vom hans yndi fram á síðasta dag, en þá átti hann 12 hesta. Er ég lít yfír líf og ævistarf þessa duglega manns koma mér í hug þessi orð úr bókinni um Veginn, er þar segir: „Góður hermaður vinnur sigur, en nemur þó staðar og kúgar ekki. Hann berst, en stærir sig ekki af því og hrósar ekki happi. Hann berst því aðeins, að brýna nauðsyn beri til. Hann berst en valdagimi er honum fjarri." Þess vegna starfar hinn vitri, en krefst einskis handa sjálfum sér. Hann framkvæmir sín góðu verk, en telur sér það ekki til gildis. Hann óskar ekki að sýnast öðmm fremri. Ég kveð tengdaföður minn og þakka góða samfylgd og fagna að margir af hans góðu eiginleikum koma fram í bömum mínum. Ég bið Guð að styrkja tengdamóður mína í hennar mikla missi. Guð blessi minningu hans. Fari hann í friði. Óli Karló Olsen Það er ekki auðvelt að skýra frá sterkum augnablikum sem maður upplifir, þau verða að minningum — og þær geymast. Margar slíkar minningar eigum við um hann afa á Eyró og þær munum við geyma vel. Flestar eru frá þeim tíma sem afi og amma bjuggu í Vatnagarði á Eyrarbakka, og við bamabörnin vorum mörg á þeim aldri sem böm eru hvað fyrirferðarmest, full af forvitni og athafnaþrá. Og þá fór vel að eiga tíma hjá ömmu og afa á Eyró. Húsið var einhvem veginn svo stórt, háaloftið spennandi, garður- inn stórkostlegur, útihúsin vinaleg og stutt í fjöruna og kirkjugarðinn. Það var mikið um að vera í þessu umhverfi, fjölskyldan var stór, heimagangamir margir og skepn- umar vom stór þáttur í daglega lífinu. Afi var alla tíð með hesta og þar var hann vel heima. Afi var mjög vinnusamur og var í mörgu fyrir hann að snúast, en þrátt fyrir það áttum við krakkam- ir greiðan aðgang að honum. Við fengum að taka þátt í amstrinu þótt lítil yrðu afrek okkar. Það var alltaf stutt í glensið og gamansem- ina hjá afa, og hjartahlýr var hann með eindæmum. Þegar afí var að alast upp fór lífið ekki jafnmjúkum höndum um hann og okkur bama- bömin, en mýktinni er sennilega hnoðað betur um bömin eftir því sem kynslóðimar verða fleiri. Og þá er gott að eiga veganesti frá þeim sem greiddu götuna og gengu hana til góðs. Það gerði hann afi svo sannarlega og nú er lífsgöngu hans lokið. Við kveðjum hann með hlýhug og þökk fyrir allt. Afabörn úr Hlaðbænum Minningarhátíðin um fæðingu fi-elsarans var hafin, með gjöfum, góðum mat og jólaljósin lýstu upp skammdegið jafnt úti sem inni. Þá barst harmafregnin. Elskulegur faðir okkar hafði orðið bráðkvadd- ur. Þá varð fátt um orð en minning- amar hrönnuðust upp. Steinn Einarsson fæddist á Ás- mundarstöðum í Holtum 11. apríl 1914. Foreldrar hans vom Kristín Vilhjálmsdóttir og Einar Gíslason frá Húsum í Holtum. Pabbi ólst upp hjá móður sinni, fyrstu sjö árin á Ásmundarstöðum og síðan fluttust þau að. Einkofa á Eyrarbakka en þangað hafði móðir hans ráðið sig sem ráðskonu hjá Þorbimi Guð- mundssyni. Síðar giftist hún Þorbimi og fluttu þau að Blómstur- völlum á Eyrarbakka. Þau hjónin eignuðust fjögur böm, fyrst dreng sem dó ungur og þtjár dætur. Einn- ig átti hann fjögur hálfsystkini frá föður sínum. Pabbi bytjaði ungur að vinna þau störf sem buðust á þeim tímum. Var t.d. í sveit á sumrin, stundaði hestagæslu fyrir bændur sem komu úr sveitum Suðurlands þeirra erinda að versla í dönsku einokunarversl- uninni á Eyrarbakka og einnig var hann kúskur í vegavinnu þegar hestvagninn var aðalflutningatæk- ið. Þessir þættir í uppvextinum, að umgangast hestinn, hafa eflaust haft þau áhrif að alla tíð var hann hestamaður af lífi og sál. Snemma lá leiðin til sjós, sjó- mennskan stunduð bæði á bátum og togurum. Hann var á togaranum Ólafi, en var svo lánsamur að segja upp plássinu í síðustu veiðiferðinni áður en togarinn fórst. Á vertíð í Vestmannaeyjum var hann með hinum kunna aflamanni Binna i Gröf á mb. Gulltoppi VE 321. í Vestmannaeyjum á hann dóttur frá dvöl sinni þar, bamaböm og bama- bamaböm. Steinn giftist eftirlifandi eigin- konu sinni, Gróu J. Jakobsdóttur, 26. mars 1938. Fyrst bjuggu þau á nokkmm stöðum á Eyrarbakka, en festu fljótlega kaup á Vatna- garði sem í tvígang var endur- byggður og stækkaður. Steinn tók að sér fjögur börn Gróu frá fyrra hjónabandi. Okkur, þessum fósturbömum sínum, sýndi hann alla tíð einstaka nærgætni, ást og alúð svo aldrei bar þar á hinn minnsta skugga. Brátt stækkaði systkinahópurinn í Vatnagarði, þijú bættust við, og vomm við þá orðin sjö. Þrátt fyrir stóran bamahóp tóku foreldrar okk- ar að sér fjögur böm sem ekki nutu foreldra sinna. Þar með vom bömin ellefu talsins sem þau ólu upp með einstökum dugnaði og ósérhlífni. Lengst af starfaði pabbi sem vömbílstjóri, fyrst sem bflstjóri við vinnuhælið á Litla-Hrauni en síðan á eigin vömbíl. Með akstrinum stundaði hann nokkum búskap. Búskapurinn kom sér vel því heimil- ið var stórt og það var hans metnaðarmál að heimilið liði ekki skort. Og það tókst honum alla tíð, alltaf var til nægur oggóður matur. Á þessum ámm átti pabbi alltaf góða og fjölhæfa reiðhesta. Oft var farið á fjall til smalamennsku og var það hans yndi, þurfti ekki að kvíða því að hans hlutur eftir lægi. Ekki einskorðaðist hestaeignin við reiðhesta eingöngu, heldur vom einnig til duglegir dráttarhestar sem beitt var fyrir sláttuvélar, plóga o.fl., og komu þeir í góðar þarfir á þeim tímum. Þá kom það ósjaldan fyrir, þó búið væri að ljúka ströng- um vinnudegi, að kunningjunum væri rétt hjálparhönd þyrftu þeir þess með, því ekki áttu allir þjálf- aða dráttarhesta. Ekki var talið eftir sér að slá fyrir þá væna skák á engjum, túnum eða plægja kart- öflugarða. Þar sannaðist oft hjálp- semi hans við náungann. Faðir okkar var alla tíð jafnaðar- maður og var trúr hugsjón sinni, sem skjöldur þeirra sem minna máttu sín. Hann var fómfús, ósér- hlífínn aflsmaður og skemmtilegur, hafði góðan frásagnarhæfileika, var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann lét aldrei bugast þó á móti blési, heldur efldist við hveija raun. Pabbi hafði lengi atvinnu hjá Almenna byggingarfélaginu og þar naut hann góðrar frammistöðu sinnar, því fljótur var hann í ferð- um, óragur og skjótráður. Beitti hann farartækinu óspart ef svo bar undir. Um það leyti sem við fómm að heiman og stofnuðum okkar eigin heimili þurfti pabbi að hætta akstri að mestu leyti vegna liðagigtar. Þessi sjúkdómur var búinn að þjaka hann um árabil og það var undra- vert hversu lengi hann harkaði af sér. Þrátt fyrir þessa erfiðleika var ~ hann ævinlega glaðvær og skemmtilegur. Þegar svona var komið réð hann sig sem fangavörð að Litla-Hrauni og var þar varð- stjóri, þar til hann varð að hætta störfum vegna veikinda. Hafði hann þá lengstan starfsaldur allra starfs- manna á Litla-Hrauni, að þeim ámm meðtöldum er hann byijaði þar fyrst sem vikapiltur og bflstjóri. Pabbi og mamma fluttust frá Eyrarbakka seint á árinu 1979 og seldu þá V atnagarð. Festu þau kaup á þægilegu húsi í Reykjamörk 15 í Hveragerði, sem varð þeirra heim- ili upp frá því. Það kom á óvart fráfall hans á . aðfangadagskvöld, því hann var svo frísklegur við undirbúninginn að jólahátíðinni. Jólaljósin vom komin á sinn stað úti sem inni og allt til reiðu. Hátíðin gengin í garð, búið að snæða jólamatinn og skiptast á gjöfum. Var hann þá hress, þakk- látur og glaður að vanda. Þannig kvaddi hann er hann lagði í sína hinstu för. Blessuð sé minning hans. Hafi hann þökk fyrir allt og guð blessi hann. Börnin Góðan daginn! Dömur og herrar: Nu drífið þið ykkur í leikfimi! Tímarviðallrahæfi 5 vikna námskeið byrjar 12. janúar Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hressandi. mýkjandi. styrkj- andi ásamt megrandi æfingum. Nýtt! Bjóðum einnig eldhressa eróbikktima Karlmenn Hinir vinsælu herratímar eru í hádeginu. Þarftu að missa 15 kíló? Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Frábær aðstaða Ljósalampar, nýinnréttuð gufuböð og sturtur. KafTi og sjónvarp í heimilislegri setu- stofu. Söáral k1957-1987( Brautryðjendur Júdódeild Ánnanns, sem verður 30 ára á þessu ári, er brautryðjandi í frúarleikfimi. Mörg hundruð, ef ekki þús- undir kvenna, hafa tekið þátt í starfi okkar-viltu ekki slást í hópinn? Fyrsti prufutíminn ókeypis. Innrítun og frekari upplýsingar alla virka daga frá kl. 13-22 í síma 83295. JúdódeildÁrmanns Ármúla 32.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.