Morgunblaðið - 09.01.1987, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 09.01.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 SigríðurD. Karls- dóttir - Minning Fædd 14. janúar 1908 Dáin 28. desember 1986 Það er ætlun mín, með þessum fátæklegu línum sem hér fara á eftir, að leitast við að draga upp mynd af góðri og göfugri konu, sem ég hafði mest kynni af sem dreng- ur. Hér verður því um fremur einangraða mynd að ræða af öllu því góða, sem þessi kona lét af sér leiða á æviskeiði sínu og varðar fyrst og fremst samskipti okkar á þessum tíma. Hún var fædd 14. janúar 1908 og hefði því orðið 79 ára í þessum mánuði hefði hún lifað. Foreldrar hennar voru Guðbjörg Þorsteins- dóttir og Karl Þórðarson, sem bjuggu í Hlíð í Kollafirði á Strönd- um, áður en þau fluttust að bænum Búðardal á Skarðsströnd 1914, eða þegar Sigríður var aðeins 7 ára. Hún sagði mér oft frá þeim flutn- ingum vestur á Skarðsströnd, sem voru henni í barns minni. Þau Guð- björg og Karl keyptu jörðina af hjónunum Guðrúnu Blöndal og Jóni Andréssyni. Er óhætt að segja, að með eljusemi og dugnaði hafí þeim hjónum, með aðstoð bama sinna, tekist að gera þessa jörð að sann- kölluðu herrasetri, enda liðu aðeins 12 ár, þar til þau höfðu reist sér glæsilegt steinhús (árið 1926), sem enn 'stendur fyrir sínu. Með þessu átaki urðu þau fyrst íbúa í Skarðs- hreppi til þess að reisa sér steinhús. Móum og börðum breyttu þau í ræktað land með frumstæðum tækjabúnði, sem enginn mundi láta sér detta í hug að nota nú til dags. Systkinin voru fímm, fjórar systur og einn bróðir, þau Ragnheiður, Sigríður, Sigurborg, Guðbjörg og bróðirinn Þorsteinn, sem enn býr í Búðardal. Auk þess áttu þau einn hálfbróður, Herbert, son Guðbjarg- ar heitinnar. Mikill kærleikur hefur verið á milli þeirra systkina og gagnkvæm virðing, eins og best verður á kosið í góðum fjölskyldum. Rangheiður og Sigríður bjuggu saman á Þórsgötu 19 síðustu 20 árin. Sigríður eignaðist einn son, árið 1931, Karl Pétursson, sem hefur reist sér myndarlegt hús á Klifmýri á Skarðsströnd í landi Hvalgrafa. En óhætt að fullyrða, með fullri virðingu fýrir duglegu fólki í bændastétt, að fáir hafí tekið eins myndarlega til hendinni við ræktun lands og uppgræðslu, eins og sonur hennar, enda notið stuðnings konu sinnar, Eddu Hermannsdóttur, og fímm bama þeirra hjóna, sem era hvert öðra athafnasamara og áhugasamara fyrir búskap. Seinni árin hefí ég því miður lítið fylgst með lífí og tilvera Siggu pijónakonu, eins og hún var ævin- lega kölluð í Qölskyldu minni, en fagrar minningar á ég um þessa ágætu konu frá æskuáram mínum er ég var í sveit, eins og það var kallað, hjá Þorsteini Karlssyni, bróður hennar, og henni, á ungl- ingsáram mínum frá 7 til 13 ára aldurs. Sigríður gegndi, á þessum áram, hússtýrahlutverki á heimilinu og skilaði því starfí með mesta sóma, enda var hún víkingur dugleg og féll aldrei verk úr hendi. Auk þess gekk hún til allra útivinnu meðan heyannir stóðu yfír og er mér það, í orðsins fyllstu merkingu hulin ráðgáta hið mikla vinnuþrek, sem hún bjó yfír. Það var ekki óal- gengt, að húsmæður r sveit í þá daga hæfu vinnudag sinn kl. 5 á morgnana og gengju síðastar til náða á kvöldin. Störf þeirra vora erilsöm og erfíð, búskapahættir framstæðir og höfðu lítið breyst í aldaraðir, enda á tæknivæðing í sveitum landsins sér vart lengri sögu en ca. 40 ár. Pijónavél Siggu stóð í gömlu baðstofunni í Búðardal, sem var ennfremur svefnstaður heimilis- fólksins. Ekki var óalgengt að 6—8 manns svæfu þama í eina og sama þakherberginu. Sigga náði mikilli leikni á pijónavélina, sem mér fannst vera galdratæki hið mesta, og pijónaði hún skjólflíkur á heimil- isfólkið, og reyndar fyrir nágrann- ana líka, úr elsta iðanaðarhráefni íslendinga, ullinni. Sigríður var hafsjór af fróðleik, enda náttúragreind að eðlisfari og kunni skil á öllu mögulegu milli himins og jarðar, sem hver fræði- maður gæti verið stoltur af. Á þessum tíma virkaði hún á mig sem talandi alfræðiorðabók og var frá- sagnargáfa hennar lifandi, málfar vandað, enda hafði hún gott vald á íslenskri tungu og óþreytandi að leiðrétta málfar okkar sem yngri voram. „Það ungur nemur gamall tem- ur“, segir máltækið, en víst er, að þessi góða kona hafði djúpstæð áhrif á mig sem bam og vissulega hefur uppeldisáhrifa frá henni gætt hjá mér, þó þau séu ekki áþreifan- leg og reyndar ómælanleg. Það var eitt fagurt sumarkvöld í júlímán- uði, kl. var um 11 að kvöldi og höfðum við Sigga verið að rifja og raka allan daginn. A leið okkar heim að bænum segir Sigga allt í einu: Það er best að rifja þennan flekk áður en að við föram heim. Getum við ekki geymt það til morg- uns, svaraði ég, enda orðinn þreytt- ur. „Á morgun, segir sá lati“, svaraði Sigga sposk á svipinn og hélt áfram rakstrinum og ég auðvit- að líka, sneyptur á svipinn. Hver veit nema þessi góða kona hafí ein- mitt með hollum uppeldisáhrifum sem þessum kennt mér að vinna. Sigríður fluttist ásamt syni sínum, Karli Péturssyni, og móður sinni, Guðbjörgu, hingað suður árið 1947. Hún vann alla tíð fyrir sér með pijónastörfum, enda var hún bráðflink í höndunum og fljótlega eftirsótt pijónakona. Undarlegt fannst mér hvað þessi hægláta sveitakona var fljót að kynnast hin- um öra tískusveiflum í fatnaði 37 kvenna, enda gat hún orðið við flestra óskum í þeim efnum. Það var eitt fyrsta gæfuspor mitt í lífínu að kjmnast Siggu og reyndar hennar ágæta fólki, sem enn býr í Búðardal á Skarðsströnd. Samviskan hefur oft nagað mig í gegnum árin, að hafa ekki sýnt henni meiri artarsemi en raun ber vitni. Timaleysi er tískuorð þeirra, sem ekki sinna ástvinum sínum eða kæram vinum, og myndi ég hrein- lega skammast mín fyrir að taka mér slíkt orð í munn. Þó hef ég og fjölskylda mín átt þess kost að taka Siggu með okkur vestur á Skarðs- strönd, en þangað fór hún a.m.k. tvisvar á ári að heimsækja son sinn, tengdadóttur og bamaböm. Er ánægjulegt til þess að vita að flest þeirra virðast ætla að flengjast í sveitinni og setjast þar að. í þessum ferðum okkar var hún ævinlega* hinn besti leiðsögumaður, kunni skil á öllum bæjum, sem við keyrð- um framhjá, hverjir bjuggu þar eða hefðu búið og hvar þessi og þessi bardaginn hafði verið háður og getið er um í Islendingasögunum. Allt líf Siggu bar vott um dugn- að, sjálfsbjargarviðleitni, meðfædda fróðleiksfysn og umfram allt ráð- vendni og hógværð. Það hefði verið henni á móti skapi og í mótsögn við Iífsstfl hennar, að vera borin oflofí. í þessum fátæklegu línum er ekkert ofsagt um Sigríði Karls- dóttur, en sjálfsagt margt vansagt. Þeir sem þekktu hana betur geta fyllt upp í þá eyðu. Eitt er víst acP hún verður minnisstæð öllum þeim, sem áttu því láni að fagna að kynn- ast henni, en syni sínum og bamabömum góð fyrirmynd um- hyggjusamrar móður og ömmu. Blessuð sé minning Sigríðar Karlsdóttur. Reynir Jónasson Ingibjörg Jóns- dóttir - Miiming Að morgni jóladags, hinn 25. desember sl., lést á heimili sínu hér í borg gömul vinkona mín og skóla- systir, Ingibjörg Jónsdóttir, hús- móðir og rithöfundur. Útför hennar verður gerð í dag, föstudag 9. jan- úar, kl. 10.30 frá Fossvogskirkju. Ingibjörg fæddist í Reykjavík 14. nóvember 1933, dóttir hjónanna Jóns Sveinssonar útgerðarmanns og konu hans Magneu Jóhönnu Magnúsdóttur, sem enn er á lífí. Eg kynntist Ingibjörgu á þeim áram sem við voram samtíða í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Skólinn var þá undir stjóm Guðna Jónssonar, síðar prófessors við Há- skóla íslands. Skólinn hafði af- bragðs kennaraliði á að skipa og nefni ég hér aðeins þá dr. Björn Þorsteinsson, Sverri Kristjánsson, Sverri Amgrímsson, Óskar Magn- ússon frá Tungunesi og séra Árelíus Níelsson. Allir vora þessir kennarar frábærir á sína vísu og einkar góð- ir íslenskumenn, sama hvaða fag þeir annars kenndu, og aldrei man ég, að rætt væri þá um skóla- eða námsleiða. Ingibjörg vakti sem ungur náms- maður athygli fyrir fljúgandi greind, afbragðs námshæfíleika og snögg tilsvör. Mér er í minni á þess- um áram, löngu áður en við þekktum orð eins og „kvennabar- átta“, að ungar stúlkur í vesturbæn- um vora að reyna að bijótast út úr hefðbundnu uppeldismynstri og því er mér Ingibjörg minnisstæð að hún lét til sín taka, ekki aðeins í samræðum á pöllum og í stiga- göngum, heldur einnig á málfund- um skólans. Á þessum áram var ekki um að velja margar útvarps- eða sjónvarpsstöðvar til að auðga andann eða létta lund, en við áttum okkar litlu akademíu þar sem var Hressingarskálinn, langi ranghal- inn með rauðu sófunum, og þar hittust gjaman 2—3 kynslóðir rit- höfunda og annarra listamanna yfír endalausum kaffí- eða tebollum og ræddu nýjar stefnur í málaralist eða bókmenntum. Og þegar Skálanum var lokað, um klukkan hálftólf, tóku við langar gönguferðir, umhverfis Tjömina, vestur í Örfirisey eða út í Ánanaust og mér finnst í endur- minningunni að allir dagar hafi þá verið sólskinsdagar. Oftlega enduðu þessar gönguferðir í góðu kvisther- bergi eða kjallarastofu þar sem einhver átti handsnúinn grammófón og kynnti okkur töfra Beethoven, Hándel eða Bach. Þetta vora erfiðir tímar, rétt eft- ir síðari heimsstyijöld, lítið um tískufatnað og jafnvel erfítt að fá skó á stóra fætur. Þetta vora tímar skömmtunarseðla og fatabiðraða og þó okkur stykki kannski bros að vori yfír strákum í ökklasíðum buxum — hafði tognað úr þeim umfram áætlun yfír veturinn — þá voram við stúlkumar bragðvísari. Aðalklæðnaður okkar í skóla var fellingapils og blússur eða golftreyj- ur og þegar treyjan var farin að þynnast yfír bijóstin var henni bara snúið við, hneppt að aftan og þar með sköpuð ný tíska. En þetta var á morgni lífsins, þegar hver dagur kom til okkar fagnandi einS og óskrifað blað, sem við gátum fyllt út að vild eða málað í öllum regn- bogans litum, en aldrei grátt. Haustið 1953 giftist Ingibjörg unnusta sínum; Ingva Matthíasi Amasyni, syni Áma Kristjánssonar píanóleikara og-konu hans Önnu Steingrímsdóttur. Fyrsta heimili þeirra var á Reynimel í húsi for- eldra Ingibjargar. Ingvi og Ingi- björg höfðu orðið samstúdentar vorið 1953. Var mikið jafnræði með þeim, bæði stórglæsileg, vel gefín og miklir námsmenn. Á þessum árum þekktust hvorki námslán né húsnæðismálastjómarlán og var því þeim sem kusu að stofna snemma heimili nauðugur einn kostur að hverfa til starfa nema því meiri auður væri í garði. Ingvi Matthías varð fulltrúi hjá Eimskipafélagi ís- lands og starfaði siðar um margra ára skeið sem farg aldasérfræðing- ur hjá Flugfélagi Islands. Ekki lét Ingibjörg heldur sinn hlut eftir liggja og naut nú dugnaður hennar sín við húsmóðurstörfín og uppeldi bamanna en auk þess vann hún sem blaðamaður og við þýðingar og rit- störf, pijónaði og saumaði á bömin og varð síðar mikilvirkur rithöfund- ur. Ekki vildi Ingibjörg gera mikið úr eigin ritstörfum og man ég að hún kallaði bækur sínar „stein- steypulitteratúr" í blaðaviðtali eitt sinn, en þau hjón vora þá einmitt að koma yfír sig íbúð við Stigahlíð hér í borg. Erfiðleikar og mótlæti tóku ekki á sig krók framhjá heimili Ingi- bjargar og Ingva og sorgin gleymdi þeim ekki heldur. Á tæpu hálfu ári misstu þau tvo syni sína, Jón, fædd- ur 26. mars 1955, dó þann 18. júní 1980 í Kaupmannahöfn. Hann lét eftir sig konu, Fríðu Hrefnu, og fósturdótturina Emu Bimu. Þann 25. október sama ár dó Steingrím- ur, fæddur 30. desember 1953. Hann lét eftir sig unnustu, Önnu Lárasdóttur, og bömin Brynju og Kristján Frey. Má nærri geta hvf- líkur harmur þessi sonamissir hefur verið Ingibjörgu, en hún var þá þegar farin að missa heilsu. Eftir- lifandi böm Ingibjargar og Ingva Matthíasar era: Magnea Jóhanna, sem gift er Sigurði Guðjóni Sigurðs- syni háskólanema. Hún á frá fyrri hjónaböndum börnin Baldur og Líf; Ámi er kvæntur Björgu Jónu Sveinsdóttur, þau eiga bömin Emu Björt og Ingva Matthías, einnig á Ámi soninn Gísla frá fyrra hjóna- bandi; Dóttirin Hólmfríður er við háskólanám á Spáni og yngsti son- urinn, Ari, er við nám í Háskóla íslands og nýkvæntur Gígju Tryggvadóttur, bankastarfsmanni. Ekki má, í þessum fábrotnu minn- ingarorðum, gleyma þeim hlut, sem foreldrar Ingibjargar og Ingva áttu í uppeldi barnanna. Sú hjálp er þau veittu er ómetanleg og skal hér þökkuð. Þegar ég nú kveð mína látnu skólasystur, aðeins rúmum tveim mánuðum eftir að Kristín Anna Þórarinsdóttir, svilkona hennar og góð vinkona, var lögð til hinstu hvflu minnist ég einnig svo sorglega margra af okkar gömlu skólafélög- um, sem féllu ,frá langt um aldur fram eða fengú aldrei notið sín til fúlls eða uppfyllt þær glæstu vonir er við þá vora tengdar vegna brauð- strits eða hvunndagserfíðleika. Ég lýk þessum kveðjuorðum með brot- um úr ljóði Guðmundar Böðvarsson- ar, „Rauði steinninn": I vegarins ryki lá rauður steinn - við riðum þar hjá, eins og gengur, með hávænun þyt í þeysandi hóp. Þá var ég ungur'drengur. Og röðull skein þá hverri rós á brá. Við riðum þar hjá. Minn giitrandi steinn, hví greip ég þig ei úr götunni hðndum tveimur? Hvi bar mig þar fram um? Þar beið mín þó heill blikandi unaðarheimur. Eins og rúbínsteinn varst þú rauður og hreinn, eins og rúbínsteinn — Nú, þegar Ingibjörg Jónsdóttir er kvödd hinstu kveðju, vil ég votta móður hennar, eiginmanni og böm- um mína einlægu samúð og vona að Guð gefí þeim styrk til að standa saman á erfíðri stundu. Charlotta María Hjaltadóttir Minning: Ingibjörg Sigurðardóttir Nú er ég set þessar hugsanir mínar á blað, er móðir mín, Ingibjörg Sigurðardóttir, búin að lifa nærri öld. Þrátt fyrir erfiða ævi, entist henni líf svo lengi. Hún var fluggreind kona og sterk, líklega sannnur sporðdreki, en hafði taumhald á honum lengi framan af ævi sinni. Hún mun sjálf hafa haft mikla menntunarþrá, en þá voru aðstæður þannig að fáir, nema þeir sem áttu efnaða að, gátu veitt sér þann mun- að. Hún hvatti böm sín mjög til þess að afla sér einhverrar menntunar og flest þeirra nutu einhverrar skóla- göngu utan bamaskóla, sum töluvert mikillar. Móðir mín var hagsýn kona og er ég minnist æskuára minna undrast ég hvemig hún gat látið enda ná saman í heimilishaldinu við þær að- stæður sem við bjuggum við. Hún var orðvör og blandaði ekki geði við hvem sem var. Mun henni hafa fund- ist best að flíka ekki fátæktinni. Foreldrar mfnir bjuggu á Njálsstöð- um f Húnavatnssýslu f tuttugu ár, til 1934, en fluttu síðan til Reykjavík- ur með 10—11 ára viðdvöl á Blöndu- ósi. Var faðir minn þar við verkamannavinnu þegar heilsa leyfði, en það var mjög stopult. Hygg ég að bæði hafí séð eftir sveitinni sinni, einkum þó hún, en henni fannst sem hún væri, að ég held, í hálfgerðri útlegð eftir að hún þurfti að flytja burt frá Njálsstöðum. Hin sfðari ár var hún í skjóli bama sinna þriggja, fyrst hjá Þórhalli, síðan Þormóði og loks hjá Auði, uns hún fór á Hrafnistu er hún tók að eldast mjög og lasnast. Vil ég þakka þeim fyrir að veita henni skjól, sérstaklega Auði og manni hennar, Ágústi, fyrir ákaflega góða og mikla umönnun eftir að hún var orðin mjög farin að heilsu síðustu árín. Anna Maria Pálsdótdr -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.