Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 1

Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 10. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Jaruzelski á páfafundi AP/Símamynd Wojciech Jaruzelski, leiðtogi Póllands, kom í gær í páfagarð og átti þar fund með landa sinum, Jóhannesi Páli páfa II. Ræddu þeir um ástandið í Póllandi og lagði páfi áherslu á, að efnt yrði til „opinnar umræðu" og mannréttindi virt í landinu. Sagt er, að Jaruzelski hafi beðið um stuðning páfagarðs við að brjótast út úr þeirri stjórnmálalegu einangrun, sem pólska stjórnin hefur verið í síðan herlögin voru sett. Fór vel á með þeim leiðtogunum og skiptust þeir á góðum gjöfum. Páfi gaf Jaruzelski mikla bók um freskurnar í Sixtínsku kapellunni og þá á móti málverk af heimbæ sínum í Póllandi, Wadowice. McFarlane kyndir undir íranmálinu - segir Reagan hafa samþykkt vopnasöluna í ágúst 1985 Sovétmenn í Afganistan: Herinn burt á tveimur árum? Islamabad, AP, Reuter. EKKI er ólíklegt, að Sovétmenn bjóðist til að flytja herafla sinn burt frá Afganistan á tveimur árum og 50.000 manns á fyrstu þrem- ur mánuðunum. Er þetta haft eftir vestrænum sendimönnum, sem segja, að margt bendi til, að Sovétmenn vilji finna pólitíska lausn á Afganistan-málinu en þó þannig, að þeir hafi þar áfram bæði töglin og hagldirnar. Vestrænir sendimenn, sem ekki vildu láta nafna sinna getið, segja, að fréttir frá Kabúl, höfuðborg Afg- anistans, bendi til, að Sovétmenn séu áfram um að komast að sam- komulagi um að binda enda á átökin í landinu. Séu uppi hugmyndir um að flytja burt 50.000 hermenn á þremur mánuðum og síðan herafl- ann allan ef samkomulag næst. Sovétmenn hafa aldrei gefið upplýs- ingar um hve marga hermenn þeir hafa í landinu, en á Vesturlöndum er talið, að þeir séu um 115.000. Vestrænu sendimennimir tóku fram, að full ástæða væri til að gjalda varhug við þessum fréttum, þótt þær væru komnar frá Sovét- mönnum sjálfum. Mjög ólíklegt væri, að þeir féllust á nokkurt það samkomulag, sem kostaði yfírráð þeirra í Afganistan. Auk þess myndu skæruliðar og þær þjóðir, sem þær styðja, aldrei fallast á, að brottflutningurinn tæki heil tvö ár. Fréttir eru um mikla bardaga víða í Afganistan og er ekki að sjá, að vopnahléstilboð Kabúl-stjómar- innar hafí nokkur áhrif haft. Er það nú til umræðu á fundi leiðtoga skæruliðahreyfínganna í pakist- önsku landamæraborginni Pesh- awar. Ætla þeir að svara því formlega á laugardag. AP/Símamynd Washington, AP, Reuter. RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, varð í gær fyrir nýju áfalli í íranmálinu þegar fram komu fullyrðingar um að hann hefði samþykkt vopnasöluna í ágúst árið 1985, löngu áður en hann segist sjálfur hafa gert það. Talsmaður Hvíta hússins segir að ekki sé verið að reyna að koma sökinni á ísraelsstjórn þótt fram hafi komið að hún hafi átt uppástunguna um vopnasöluna. Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hafði það í gær eftir Robert McFarlane, fyrrum öryggisráð- gjafa, að Reagan hefði samþykkt vopnasöluna til Irans í ágúst 1985 og að hann, John Poindexter og Oliver North hefðu logið þegar þeir héldu því fram að Reagan hefði fyrst gefið samþykki sitt í janúar 1986. Kom þetta fram á blaðamannafundi, sem Reagan hélt 19. nóvember sl., en þá sagði hann einnig að ekkert þriðja ríki væri viðriðið málið. Síðar kom í ljós, að ísraelar höfðu haft milli- göngu í málinu. NBC sagði, að McFarlane væri þegar búinn að gefa einni þingnefndanna þessar upplýsingar. Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, sagði í gær að ekki væri verið að reyna að kenna ísraels- stjórn um vopnasöluna til írans þótt fram kæmi í skjölum, sem nú hafa verið gerð opinber, að ísraelar hefðu átt hugmyndina. „Það, sem máli skiptir, er að Bandaríkjastjórn ber ábyrgð á sínum ákvörðunum,“ sagði Speak- es, en margir ísraelskir stjóm- málamenn, t.d. Chaim Herzog, forseti, eru mjög óánægðir með þessar upplýsingar og telja að Bandaríkjastjórn sé að reyna að skella skuldinni á þá. Skömmu fyrir mannránið Frönskum fréttamanni og ljósmyndara, Roger Augue að nafni, var í gær rænt í Beirút. Var Augue að fylgjast með ferðum Terrys Waite, sendimanns ensku biskupakirkjunnar í Bretlandi, en hann hefur unnið mikið að því að fá gisla leysta úr haldi. Augue sést á myndinni vera að taka mynd af Waite, en skömmu síðar réðust á hann vopnaðir menn og höfðu á brott með sér. Eru nú 19 manns fangar mannræningja í Líbanon. Kuldarnir í Evrópu: Sovétmenn óttast neyðar- ástand vegna orkuskorts London, Moskvu og víðar. AP, Reuter. ENN herðir frostið tökin á Evrópu og í gær var víða kald- ara en áður hefur mælst. í Sovétríkjunum blasir við neyð- arástand í orkumálum vegna þess að lestarferðir hafa farið úr skorðum og því hefur ekki verið unnt að flytja olíu til orkuveranna. Allt frá Úralfjöll- um í austri til Atlantshafs í vestri og suður á Ítalíu hefur verið mikil snjókoma og margir bæir einangrast af þeim sökum. í gær var vitað um 100 manns, sem höfðu ýmist frosið í hel eða farist í snjóflóðum. í fyrrinótt fór frostið í 35 gráð- ur í Leningrad og hefur ekki mælst meira frá því reglulegar veðurathuganir hófust þar árið 1743. I Noregi var enn kaldara, 47 gráður á veðurathugunarstöð- inni í Drevsjö, sem er um 200 km fyrir norðan Ósló. Yfirmenn orkumála í Sovétríkj- unum hafa varað við yfirvofandi orkuskorti vegna þess hve erfið- lega gengur að flytja olíu til olíukyntra orkuvera. Var nokkur skortur fyrir vegna Chemobyl- slyssins en nú getur komið til neyðarástands nema tíðin batni. A því virðast þó engar horfur í bráð. Það er ekki aðeins í Norður- og Mið-Evrópu sem tíðin er köld, heldur einnig í Miðjarðarhafslönd- unum. Mikið hefur snjóað í Grikklandi, á Ítalíu og á Spáni og þar var víða 20 gráða frost í gær. Er spáð enn meiri kulda næstu daga. I Bretlandi eru miklir kuldar og snjórinn víða meiri en elstu menn muna. Hafa nokkur gamal- menni dáið úr kulda í íbúðum sínum, en ekki eru þó allir at- burðir jafn alvarlegir. I gær var t.d. hætt við fund skyggnra manna og forspárra þegar í ljós kom, að enginn þeirra hafði séð veðrið fyrir. Mesta frost, sem mælst hefur í Bretlandi, er 27,2 gráður og mátti lesa það af mæl- unum í Braemar í Skotlandi 10. janúar árið 1982. Nú standa veð- málin þannig í London, að þrír á móti hverjum einum veðja á, að kuldametið falli fyrir mánaðarlok. Sjá frétt á bls. 24.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.