Morgunblaðið - 14.01.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVÍKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
23
Ný kirkja í Reykholti
Kleppjámsreykjum.
REYKHOLTSSÖFNUÐUR hefur ákveðið að reisa nýja kirkju, sem
mun rúma flestar kirkjulegar athafnir safnaðarins. Reykhoit
hefur verið kirlgustaður frá því á 11. öld, og máldagi Reykholts-
kirkju er elsta íslenska handritið, sem varðveist hefur í frumriti.
Söguhelgi staðarins kallar á kirkju. Kirkjan er og verður máttug
stoð við uppeldis- og skólastarf í Reykholti.
Fyrirhugað er að reisa í tengsl-
um við kirkjuna sérstaka Snorra-
stofu, til heiðurs Snorra
Sturlusyni. Þess er vænst að
Snorrastofa efli Reykholt sem
menntasetur. í Snorrastofu verð-
ur fræðimannaíbúð, sem ásamt
lifandi bókasafni, fræðibrunni, er
ætlað að miðla þekkingu og rækja
þann arf, sem norræn menning
býr að og varðveist hefur meðal
annars í verkum Snorra.
Gesti sögufrægra staða þyrstir
í fróðleik um fyrri tíma. I nýrri
kirkju og Snorrastofu er fyrir-
hugað að sinna þessari fróðleiks-
þörf með yfirlitssýningum
sögulegra minja. Starfsemi bók-
hlöðunnar mun einnig stuðla að
því að veita slíkan fróðleik.
Lögð hefur verið áhersla á að
kirkjan verði krossbyggð í hefð-
bundnum stíl með hliðarskipum.
Húsin eru í þrennu lagi; sjálft
kirkjuskipið, tum með tengigangi
og Snorrastofa. Með þessu er
mótuð umgjörð utan um kirkju-
torgið. Hin bröttu þök munu setja
sterkan svip á húsin, svip sem
fellur vel að landslaginu umhverf-
is, jafnframt því sem slík þakgerð
er viðurkennd og hagkvæm við
aðstæður hérlendis. Húsin verða
einskonar hlið að Reykholtsstað.
í kirkjuskipi er gert ráð fyrir
sætum fyrir 140 til 160 manns.
Kór verður rúmgóður, en inn af
honum verða til hvorrar handar
skrúðhús og líkhús. í norðurstúku
verður orgel kirkjunnar og pallur
fyrir söngfólk, en í suðurstúku
verður lítil skímarkapella. Að því
er stefnt að hljómburður verði
góður í kirkjunni og að hún henti
sem best til tónlistarflutnings. í
forkirkju sem verður all stór, er
ætlunin að hafa yfirlitssýningu
um sögu Reykholts, þar verður
einnig komið fyrir sætum við fjöl-
sóttar athafnir.
í forsal er ætlunin að hafa sölu
á minjagripum svo og hluta af
yfirlitssýningu um sögu Reyk-
holts, í tengslum við sýninguna í
forkirkju. í vesturhluta kjallarans
verða rúmgóðar snyrtingar, sem
meðal annars eru ætlaðar ferða-
mönnum. í Snorrastofu verða
herbergi, sem kirkjan fær til af-
nota fyrir sóknarprest, sóknar-
nefnd og kirkjukór.
Byggingunni hefur verið valinn
staður sem næst hinu foma bæj-
arstæði, án þess þó að því sé
raskað. Kirkjan verður vestur af
kirkjugarði og gömlu kirkjunni.
Hún stendur því fremst í húsa-
þyrpingu Reykholtsstaðar og
fyrirhuguð kirkja, Snorrastofa,
prestssetur og kirkjugarður
mynda samfellda heild innan stað-
arins. Byggingin mun setja svip
á staðinn, einkum þegar að Reyk-
holti er komið úr vestri. Með
kirkju og bókhlöðu í öndvegi er
lögð áhersla á söguhelgi Reyk-
holts. Gefin hefur verið út bækl-
ingur á íslensku og norsku, hægt
er að fá bækling þennan hjá sókn-
arprestir, sóknamefnd og bygg-
ingamefhd. Sóknarpestur í
Reykholti er sr. Geir Waage.
Sóknamefnd skipa: Jónas Jónsson
skólastjóri Reykholti, Guðlaugur
Óskarsson skólastjóri Kleppjáms-
reykjum, Vaka Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræðingur Nesi, Krist-
fríður Bjömsdóttir húsfreyja
Hofsstöðum og Þórir Jónsson odd-
viti Reykholti. Byggingamefnd
skipa: Bjami Guðráðsson bóndi
Nesi, Ámi Theodórsson bóndi
Brennistöðum og Þórir Jónsson
oddviti Reykholti.
- Bemhard
Likan af kirkjunni og Snorrastofu.
Birgir Sigurðsson
Mál og menn-
ing gefur út
Dagur vonar
MÁL og menning hefur gefið út
leikritið Dagur vonar eftir Birgi
Sigurðsson. Verkið var frumsýnt
í Iðnó 11. janúar sl. á 90 ára
afmæli Leikfélags Reykjavíkur.
Af útgáfunni eru g$rð 200 inn-
bundin eintök, tölusett og árituð
af höfundi í tilefni afmælisins.
Samtímis þeirri útgáfu kemur verk-
ið líka út sem kilja.
Dagur vonar gerist á heimili
reykvískrar fjölskyldu á sjötta ára-
tugnum. Leikritið er í fjórum
þáttum. Persónur eru fáar, og sam-
skipti þeirra þrungin spennu og
sterkum tilfinningum, þar sem
spurt er um draumsýnir og vem-
leikamat á átakatímum. Þetta er
fimmta leikrit Birgis Sigurðssonar.
Dagur vonar er 118 bls. að
stærð, unnin í Prentsmiðjunni Odda
hf. Kápu gerði Anna Ágústsdóttir.
(Fréttatilkynning)
Sérstakt tækifæri!
Skrifstofuhúsnæði
Til sölu er skrifstofuhúsnæði í nýju vönduðu húsi í Skipholti. Er hér
um að ræða skrifstofuhúsnæði í eftirfarandi stærðum:
★ 2. hæð 275 fm.
★ 3. hæð 325 fm + 325 fm = 650 fm.
★ 4. hæð („penthouse") 533 fm.
Húsnæði þetta er nú í smíðum og verður fokhelt 30. apríl 1987, en
verður afhent 31. október 1987 í eftirfarandi ástandi:
★ Tilbúið að innan til innréttinga og málningar.
★ Með fullfrágenginni sameign og vönduðum frágangi eftir hönnun Sturlu Más
Jónssonar innanhússarkitekts.
★ Húsið verður fullfrágengið að utan með vönduðum frágangi á lóð eftir hönn-
un Guðmundar Sigurðssonar landslagsarkitekts.
Verð og greiðsluskilmálar:
★ Verð pr. fm er kr. 32.950 miðað við eina greiðslu og byggingavísitölu 1. jan-
úar 1987, 293 stig.
★ Gert er ráð fyrir ýmsum möguleikum á greisluskilmálum, sem allir verða reikn-
aðir til núvirðis miðað við ofangreint verð.
Hér er um sérstakt tækifæri að ræða m.a. vegna þess, hve staður er góður
og allur frágangur sérlega vandaður. Nánari upplýsingar verða veittar alla
virka daga milli kl. 9 og 14 í símum 31965 eða 82659.