Morgunblaðið - 14.01.1987, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
Herir Iraiia aðeins
10 km frá Basra?
Bagdað, AP. Reuter.
ÍRANIR lýstu nýjum landvinningum í Persaflóastríðinu og
sögðust vera í aðeins 10 kílómetra fjarlægð frá Basra síð-
degis í gær. írakar sögðust hins vegar hafa sigrað innrásar-
her írana 10 km frá Basra.
Útilokað var að henda reiður á
sannleiksgildi yfirlýsinga stríðsað-
ila en menn, sem málum eru
kunnugir, segja að gífurlega harð-
ar og mannskæðar orrustur hafi
verið háðar.
Gengi
gjaldmiðla
London, Reuter, AP.
BANDARÍKJADOLLAR lækkaði
enn í gær gagnvart flestum
helztu gjaldmiðlum heims þrátt
fyrir mikil dollarakaup japanska
seðlabankans í þeim tilgangi að
treysta stöðu dollarans. Er talið,
að bankinn hafi keypt 2,5 millj-
arða dollara í þessu skyni, en
samt hélt dollarinn áfram að
lækka.
Dollarinn er nú lægri en nokkru
sinni síðan 1980. Á undanförnum
fjóri'm vikum hefur hann lækkað
um 15 pfennig gagnvart vestur-
þýzka markinu og talið er, að hann
kunni að lækka niður í 1,75 mörk
innan mánaðar. Dollarinn komst
lægst gagnvart markinu í janúar
1980, er staða Carters, þáverandi
Bandaríkjaforseta, var hvað erfið-
ust vegna gíslamálsins í íran. Þá
var verðgildi dollarans 1,7062 vest-
ur-þýzk mörk.
Veik staða Bandaríkjadollara nú
er talin eitt helzta einkenni þess
ójafnvægis, sem nú ríkir í heims-
verzluninni. Sumir sérfræðingar
telja, að dollarinn verði enn að
lækka, því að með öðrum hætti
verði ekki unnt að draga úr hinum
óhagstæða viðskiptajöfnuði Banda-
ríkjamanna við Japani, Vestur-
Þjóðveija, Taiwan og Suður-Kóreu.
Dollarinn féll gagnvart brezka
pundinu í gær fimmta daginn í röð.
Kostaði það 1,4910 dollara síðdegis
í London (1,4895), en annars var
gengi dollarans þannig, að fyrir
hann fengust 1,88730 vestur-þýzk
mörk (1,89925), 1,5742 svissneskir
frankar (1,58825), 6,2725 franskir
frankar (6,3200), 2,1170 hollenzk
gyllini (2,1430), 1.334,00 ítalskar
lírur (1.344,75), 1,3673 kanadískir
dollarar (1,3682) og 155,90 jen
(158,05).
Verð á gulli lækkaði og var
408,80 dollarar únsan (410,50).
íranir hafa margsinnis reynt
að umkringja Basra og loka þjóð-
veginum til Bagdað en jafnan
orðið að hörfa. Séu yfírlýsingar
þeirra í gær um sóknina að borg-
inni á rökum reistar er um veru-
lega landvinninga í Irak að ræða.
írakar sögðu að íranir hefðu
skotið eldflaug á íbúðahverfí Bag-
dað, höfuðborgar Iraks, í gær-
morgun. Sjónarvottar sögðu
gífurlega sprengingu hafa kveðið
við er eldflaugin hæfði skotmark
sitt, en fregnir fóru ekki af afleið-
ingum sprengingarinnar.
Iranir héldu því einnig fram að
Irakar hefðu gert loftárásir á
borgir í íran og hefðu 170 óbreytt-
ir borgarar beðið bana þegar
íraskar þotur vörpuðu sprengjum
á borgimar Bakhtaran og Khorr-
amabad suðvestur af Teheran.
Borgimar eru fjarri helzta átaka-
svæðinu á syðst á landamærum
ríkjanna. Alþjóða Rauði krossinn
fordæmdi í gær írani og íraki og
sakaði þá um að gera engan grein-
armun á hernaðarlegum skot-
mörkum og vamarlausum og
mannmörgum íbúðahverfum.
AP/Símamynd
Á leið til sigvrs
„Stars & Stripes", skúta siglingaklúbbsins i San Diego í undanúr-
slitum um Ameríkubikarinn (America’s Cup) sést hér á leiðinni
í mark í gær í fyrstu af sjö lotum keppninnar. „Stars & Strip-
es“ kom í mark 1 mínútu og 19 sekúndum á undan skútunni
„Nýja Sjáland" (New Zealand), sem sést í baksýn
Nicaragua:
Skæruliðar
kynna stjórn-
arskrá
San Jose, Reuter.
SKÆRULIÐAR í Nicaragua
kynntu í gær sína útgáfu af
stjórnarskrá fyrir landið,
aðeins viku eftir að stjórn
sandinista birti nýja stjórn-
arkrá.
Alfonso Robelo skæruliðaleið-
togi kynnti stjómarskrá sinna
manna á blaðamannafundi og
sagði að á henni mundi lýðræði í
Nicaragua grundvallast þegar
fram í sækti. í henni er lögð
áherzla á nauðsyn pólitísks fjöl-
ræðis til þess að örva og tryggja
þátttöku íbúanna í uppbyggingu
pólitísks, efnahagslegs og félags-
legs lýðræðis þar sem réttur
þegnanna yrði jafn og óháður því
af hvaða ætt- eða trúflokki þeir
væru.
Robelo sagði að stjómarskráin
gerði ráð fyrir þingkosningum í
umsjá Samtaka Ameríkuríkja
(OAS) og að mynduð yrði meiri-
hlutastjóm á grundvelli úrslita
kosninganna. Her landsins og lög-
regla yrði lögð niður og stofnaður
nýr her og lögregla, sem lyti yfír-
stjóm óbreyttra.
Eintak af stjórnarskrá skæru-
liða hefur verið sent stjómum allra
ríkja í rómönsku Ameríku, Samein-
uðu þjóðunum og stjóm Banda-
ríkjanna og Kanada.
Veðurhörkurnar í Evrópu:
Dauðsföll og ringulreið
í kjölfar brunakuldans
London, Vín, Róm, Aþcnu, Moskvu og víðar.
TUGIR manna létu líflð af völd-
um frostgrimmdar, snjóbylja og
ofsaveðurs í Evrópu um helgina.
Óttast var, að matvælaskortur
vegna kuldanna færi að þrengja
að á sumum svæðum í Sovétríkj-
unum. Aldrað fólk fannst látið i
illa upphituðum íbúðum í Bret-
landi. Fimm manns fórust í
snjóbyl i Grikklandi og þriggja
AP og Reuter.
sjómanna er saknað á ítalíu.
Veðurhörkumar grúfa sig þvert
yfir meginlandið, frá Síberíu til
Atlantshafs, og er búist við svipuðu
áframhaldi næstu tvær vikumar að
minnsta kosti, að sögn breskra veð-
urfræðinga. „Það virðist ekkert lát
á þessu ískalda loftstreymi að aust-
an,“ sagði talsmaður veðurstofunn-
ar í London.
Heimsókn Nikolais Ryzhkov til Finnlands:
Forðaðist yfirlýsingar og
einbeitti sér að viðskiptum
Helsinki, frá Lars Lundsten fréttaritara Morgunblaðsins.
HEIMSÓKN Nikolais Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, til
Finnlands í síðustu viku einkenndist ekki af stóryrtum yfirlýsingum
um stöðu alþjóðamála. Forsætisráðherrann lagði megináherslu á
viðskipti ríkjanna tveggja. Á fréttamannafundi í Helsinki sagði
Ryzhkov að Finnar ættu þakkir skildar fyrir að hafa lagt sitt af
mörkum til endurbóta á utanríkisviðskiptum Sovétríkjanna.
Þar sem þetta var fyrsta heim-
sókn Ryzhkovs til vestræns ríkis
áttu menn von á að hann myndi
reynast óragur að tjá sig um stöðu
alþjóðamála. En Ryzhkov virtist
vera fullkomlega sáttur við að vera
efnahagssérfræðingur Sovétstjóm-
arinnar. Allt sem hann sagði um
öryggismál var sem bergmál af
orðum Mikhails S. Gorbachev, leið-
toga Sovétríkjanna. Ryzhkov neit-
aði að svara spumingum um
hvenær vænta mætti næsta fundar
Gorbachevs og Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta. „Það er ekki
tímabært að ræða hvenær þeir hitt-
ast næst að máli. í Reykjavík urðu
söguleg þáttaskil. Á þeim grunni
verðum við að vinna,“ sagði Ryzhk-
ov.
Viðræður Ryzhkovs og finnskra
embættismanna snemst einkum um
viðskipti ríkjanna. Samkomulag
náðist um stofnun finnsk-sovéskra
sameignarfyrirtækja og verða
Finnar þar með fyrstir til að stofna
slík fyrirtæki í samvinnu við Sovét-
menn. Kvaðst Ryzhkov telja vel við
hæfí að nágrannaríkið nði á vaðið.
Finnsk byggingarfyrirtæki hafa
tekið að sér nokkur verkefni í Sov-
étríkjunum. Þannig reistu fínnskir
verktakar verksmiðjur og íbúaðar-
húsnæði í borgunum Kostamus og
Svetogorsk. Nú vinna fínnsk fyrir-
tæki að hafnargerð í Tallinn. Telur
Sovétstjómin ráðlegt að þess konar
framkæmdir verði í höndum sam-
eignarfyrirtækj a.
Aðspurður um ástæður þessa
sagði Ryzhkov að engin þjóð byggi
yfír kunnáttu og getu á öllum svið-
um. Því gæti reynst hentugra að
kaupa þekkingu í stað þess að afla
hennar sjálfur.
Finnska flugfélagið Finnair hefur
þegar gengið til samstarfs við sov-
ésku ferðaskrifstofuna Intourist um
rekstur hótels í Moskvuborg. Finnar
annast alla sölu og þjónustu en
rekstur og viðhald byggingarinnar
er í höndum Sovétmanna.
Snjór og frostbitra héldu öllu í
heljargreipum um mestallt Bretland
um helgina. Tíu manns hafa látist
af völdum kuldans, þar af þrír aldr-
aðir einstaklingar í illa upphituðum
íbúðum. Miklar tmflanir hafa orðið
á lestarsamgöngum í þessu mesta
kuldakasti í aldarfjórðung.
Miklir samgönguerfiðleikar vom
í Austurríki og Austur-og Mið-
Evrópu í kjölfar þriggja daga
stanslausrar ofankomu og skaf-
rennings. Víða urðu tafir í lestar-
samgöngum og ferðir langferðabíla
lágu niðri. Mestum vandræðum ollu
bílar, sem fólk hafði orðið að yfír-
gefa í ófærðinni.
Langferðir lágu að mestu niðri í
Tékkóslóvakíu, þar sem tveggja
metra jafnfallinn snjór hindraði för
í sumum hémðum landsins. Pólska
fréttastofan PAP sagði, að þrír
hefðu frosið í hel í norðausturhluta
landsins. Ungverska útvarpið sagði,
að tvær jámbrautarlestir hefðu lent
í árekstri í nágrenni Búdapest. Báð-
ir Iestarstjóramir fómst og átta
farþegar slösuðust. Yfírgefa varð
5000 íbúðir í höfuðborginni, þegar
fjarhitunarkefi gaf sig.
Moskvusjónvarpið sagði frá mikl-
um erfíðleikum í matvæla- og
eldsneytisflutningum.þar sem þús-
undir flutningabíla hefðu stöðvast
af völdum frostanna. Sjónvarpið
sagði, að víða væri orðið þröngt í
búi, en ástandið færi heldur batn-
andi. Þetta skyndilega áhlaup hefði
leitt í ljós, að viðbúnaði væri víða
ábótavant hjá sovésku þjóðinni, sem
ætti þó að þekkja, hvaða afleiðingar
frosthörkur gætu haft í för með
sér. 48 manns hafa látist í eldsvoð-
um, sem orðið hafa vegna bilunar
í kynditækjum.
Mikil veðurhæð, rigning og snjó-
koma herjuðu á Ítalíu yfír helgina.
Mörgum flugvöllum var lokað og
samgöngur fóm úr skorðum.
Þriggja sjómanna er saknað.
Fimm manns fómst í ofsaveðri
og snjóbyl í Grikklandi um helgina.
Um 100 fjallaþorp einangmðust
gersamlega vegna fannfergis.
Á Costa del Sol á Spáni var
ströndin þakin pálmatijám, þak-
plötum og öðm braki, sem ofsaveðr-
ið hreif með sér, og fjallsskörð
lokuðust víða af völdum snjóa.
Sakharov
þáðiboð
til Ítalíu
SOVÉSKI andófsmaðurinn og
nóbelsverðlaunahafinn Andrei
D. Sakharov hefur þegið boð um
að fara til Ítalíu í maímánuði til
þess að sitja alþjóðlega ráðstefnu
um kjarnfræðileg málefni.
Að sögn blaðsins International
Herald Tribune sagði Sakharov,
sem leyft var að flytjast til Moskvu
úr útlegðinni í Gorkí í síðasta mán-
uði, að það væri undir vegabréfs-
áritun sovéskra yfirvalda komið,
hvort hann færi í þessa ferð.
Það var leiðtogi æskulýðssam-
taka ítalska Sósíalistaflokksins,
sem kom boðinu á framfæri. Sak-
harov sagðist hafa farið fram á það
við ítalina, að þeir sendu boðið
áfram til sovéskra stjómvalda, því
að hann mundi ekki snúa sér til
þeirra til að biðja um vegabréfsárit-
un.