Morgunblaðið - 14.01.1987, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
Neysla fisklýsis
dregfur úr hættu á
hjartasjúkdómum
.....
RANNSÓKNIR hafa sýnt fram
á, að ríkuleg neysla fisklýsis
dregur úr hœttu á hjartasjúk-
dómum, og hafa visindamenn nú
skipulagt fimm ára umfangs-
miklar tilraunir þar að lútandi,
að því er fram kemur í frétt
bandaríska blaðsins Internatio-
nal Herald Tribune nýlega.
„Vera kann að fisklýsi eigi eftir
að reynast mjög árangursríkt til að
draga úr hættu á hjartasjúkdómum,
auk þess sem það hefur jákvæð
áhrif á öðrum sviðum," sagði dr.
D. Craig Miller, prófessor á hjarta-
deild Stanfordháskóla í Kaliforníu,
í viðtali við UPI-fréttastofuna.
Búist er við, að þessar tilraunir
muni taka um fímm ár og verður
kostnaðurinn við þær 11,1 milljón
dollara. Fjárveiting fyrir þeirri upp-
hæð hefur fengist frá Heilbrigðis-
stofnun Bandaríkjanna, að sögn dr.
Millers.
Hann sagði, að efnið yrði í sam-
þjöppuðu formi á belgjum, og gæti
ekkert komið í stað þeirra annað
en mikil neysla kaldsjávarfísks eins
og tíðkast meðal grænlenskra frum-
byggja.
Rannsókn, sem gerð var á frum-
byggjum í Grænlandi árið 1977,
sýndi, að tíðni hjartasjúkdóma var
mjög lág á meðal þeirra, og var það
rakið til mikillar fískolíuneyslu.
Frekari rannsóknir leiddu í ljós, að
rengnika
/
I síáuíht
Sprenqivthi
Vðr potturinn
fimm
yniltióriir!
ttvat veríur
hánn mna?
getraunir
—leikur fyrir alla!
hætta á hjartasjúkdómum stóijókst
hjá þeim Grænlendingum, sem
fluttust til Danmerkur og skiptu
um mataræði.
Handtökur
að hefjast
— vegna hótelbrunans
San Juan; Puerto Rico, Reuter.
HANDTÓKUR vegna hótelbrun-
ans er varð 96 manns að bana í
höfuðborg Puerto Rico, San Ju-
an, á gamlárskvöld munu hefjast
innan skamms, að sögn Rafaels
Hernandez-Colon, landstjóra eyj-
arinnar.
Landstjórinn sem lét þessi orð
falla á blaðamannafundi, er óvænt
var haldinn í höfuðborginni gær,
vildi ekki segja hversu margir yrðu
handteknir né hveijir væru grunað-
ir um að vera valdir að eldinum.
Nefnd er rannsakað hefur upptök
eldsins í Dupont Plaza hótelinu,
telur að um vísvitandi íkveikju hafí
verið að ræða og Hemandez-Colon
hefur látið hafa það eftir sér, að
íkveikjan geti verið í tengslum við
deilur er staðið hafa yfir milli starfs-
manna hótelsins og eigenda þess.
Löggjafarþing eyjarinnar kom sam-
an til fundar í gær eftir jólaleyfí
og var fómarlamba branans minnst
í upphafí þingfundar.
Boðum Spámannsins fylgt
Shenaz Leghari athugar sljórntæki flugvélar sinnar fyrir flug-
tak. Samkvæmt boðum múhameðstrúarmanna hylur hún jafnan
andlit sitt og skiptir þá engu hvort hún er á jörðu niðri eða ofar
skýjum. Hún er ein fimm kvenna í Pakistan sem lokið hafa flug-
prófi.
Vestur-þýzka stjórnin fagn-
ar EMS-samkomulasrinu
Rnnn AP ^
Bonn, AP.
VESTUR-ÞÝZKA sljórnin hefur
fagnað samkomulagi því, sem
náðist um helgina um að hækka
gengi gjaldmiðla fjögurra aðild-
arlanda EMS (Evrópska peninga-
kerfisins) gagnvart gjaldmiðlum
hinna aðildarlandanna. Hafa þeir
Helmut Kohl kanslari, Martin
Bangemann efnahagsmálaráð-
herra og Gerhard Stoltenberg
fjármálaráðherra allir farið já-
kvæðum orðum um samkomulag-
ið.
Við annan tón kvað þó hjá Otto
Lambsdorf, fyrram efnahagsmála-
ráðherra. Sagði hann, að þessi
ákvörðun ætti eftir að gera vestur-
þýzkum útflutningi erfitt fyrir og
fþyngja honum . í mörg ár. Gerði
hann lítið úr jákvæðum ummælum
Stoltenbergs um samkomulagið og
sagði, að þau yrðu að skoðast „í
ljósi kosningabaráttunar í Sam-
bandslýðveldinu."
Lambsdorf sagði, að það væra
ekki sízt bændur í Vestur-Þýzka-
landi, sem ættu eftir að fara með
skarðan hlut frá borði vegna geng-
isbreytingarinnar. Ignaz Kiechle,
landbúnaðarráðherra, er hins vegar
á öndverðum meiði og hefur lýst
því yfír, að verð á landbúnaðrvöram
verði í aðalatriðum óbreytt.
Israel:
Gengi sikils-
ins var lækkað
Jerúsalem. Reuter.
GJALDMIÐILL ísraels, sikillinn,
var í dag, þriðjudag, lækkaður
um tíu prósent, gagnvart Banda-
ríkjadollar, og er nú 1.64 i stað
1.48. Lækkunin er þvi rösk níu
prósent. Þetta er fyrsta gengis-
ÍækkUD í Ísrael í átján mánuði
og segja stjórnvöld, sð þessi að-
gerð nú sé i hvívetna eðliieg Og
gerð til að styrkja ísraelskan
útflutning. Einnig verði gerðar
ýmsar hliðarráðstafanir til að
reyna að tryggja að gengislækk-
unin beri tilætlaðan árangur.
í tilkynningunni um lækkun sik-
ilsins er tekið fram, að sérstaklega
sé þörf á að styðja við bakið á iðn-
greinum hvers konar, í iðnaði beijist
mörg fyrirtæki í bökkum vegna
launagreiðslna. Þá verður á næst-
unni dregið úr ýmsum niðurgreiðsl-
um m.a. á matvælum. Samkvæmt
heimildum Reutersfréttastofunnar
verður reynt að draga úr útgjöldum
til vamarmála, en efamál hvort
samstaða verður um það í stjóm-
inni. Einnig era umræður um að
breyta tekjuskattsstiga og lækka
hann á éfstU ,aun ur 60 prósentum
í 45. Samtíma því að gTSlní var frá
þessu og sagt að ráðstafanimar i
heild yrðu kynntar fljótlega, var
tekið fram, að verðbólga í Israel á
8.1. ári hafí verið 20 prósent, en hún
var um 400 prósent um það bil, sem
núverandi stjómarflokkar tóku við
fyrir tæpum fjóram áram.
Kaupmaður
límdur við
búðarborðið
Manchester, Englandi. Reuter.
SJÚKRALIÐAR, lögreglumenn
og hjúkrunarkona stríddu við
það í tvær klukkustundir á
þriðjudagsmorgun að hjálpa
kaupmanni nokkrum, Derek
Ryan, sem hafði verið límdur á
höndum við búðarborðið. Þjóf-
ur kom askvaðandi inn í búð
Ryans, rétt eftir að hann opn-
aði í morgun. Segir Ryan að
þjófurinn hafi öskrað á sig og
hótað að skjóta sig niður. Síðan
sprautaði bófinn tröllatakslím-
inu á búðarborðið og skipaði
angistarfullum kaupmanninum
að leggja hendumar á borðið
Að svo búnu flýði þjófurinn af
vettvangi og hafði um 750 sterl-
ingspund upp úr krafsinu,
nærri 45.000 ísl. krónum.
Lögreglumenn sem komu á
vettvang gátu ekki losað kaup-
maniiísn °K var Þá kallað á
sjúkrabíl með þjaifjðú bði, en
ekki gekk það heldur. Loks kom
á staðinn hjúkranarkona með
sterkan uppleysivökva og tókst
henni að losa kaupmanninn úr
líminu.