Morgunblaðið - 14.01.1987, Page 27

Morgunblaðið - 14.01.1987, Page 27
Kína MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 27 'Where did we go wrong? ’ Hvar varð okkur á í messunni? Gaddafi hvet- ur til heilags stríðs í Chad London, AP. MUAMMAR Gaddafi, Líbýuleið- togi, hvatti í gær til heilags stríðs gegn Hissene Habre, forseta Chad. Hersveitir Habre eiga í stríði við uppreisnarmenn sem njóta stuðnings Líbýumanna. Gaddafi sagði að Habre hefði svikið fyrrum trúbræður sína og tekið kristna trú. Hann væri Gyð- ingur í þokkabót. „Hann leitar nú ásjár hjá kristnum mönnum og Gyðingum og það eru Frakkar, sem ráða nú í N’djamena. Það er engin stjórn heimamanna," sagði Gaddafi. Líbýumenn hafa aðeins viður- kennt að vera með nokkur hundruð hermenn í Chad, en Frakkar halda því fram að 8.000 líbýskir hermenn taki þátt í aðgerðum uppreisnar- manna þar í landi. Suður-Kórea: Framhjá- hald kvenna stóreykst Seul. Reuter ALGENGASTI glæpur sem kon- ur í Suður-Kóreu drýgðu á árinu 1986 var að halda framhjá eigin- mönum sinum. Við slíkum glæp liggur alltað tveggja ára fang- elsi. I ljós kom að framhjáhalds- glæpir suður-kóreanskra kvenna jukust í að vera um 16 prósent allra kvennaglæpa en prósenttal- an var 2 árið áður. Meðal annarra glæpa sem konur fengu dóma fyrir voru fjárhættu- spil og valdbeiting á heimilum og vinnustöðum. Mun nú mörgum þykja aðkallandi, að könnun verði gerð á þessu atferli kvennanna og hver skýringin gæti verið á skyndi- legri hegðunarbreytingu þeirra, að því er Reuter segir. Hugmyndirnar eru hættulegar en ekki námsmennirnir - segir Deng Xiaoping, leiðtogi kommúnistaflokksins Peking, Reuter. DENG XIAOPING, leiðtogi kinverska kommúnistaflokksins, sagði í gær að and-sósíalískar hugmyndir væru mun meiri ógn- un en mótmæli þúsunda náms- manna. Er þetta í fyrsta skipti sem Deng ræðir mótmæli og kröfugöngur kínverskra náms- manna á opinberum vettvangi. Deng ræddi í gær við Noboru Takeshita, aðalritara Fijálslynda lýðræðisflokksins í Japan, og lét þá þessi orð falla. Takeshita átti að eiga fund með Hu Yaobang, formanni kínverska kommúnista- flokksins, en honum var óvænt frestað. Vakti þetta nokkra athygli og skýrði japanska fréttastofan Kyodo frá því í gær að Deng hefði gagnrýnt Hu harðlega á neyðar- fundi, sem boðað var til 30. desember, vegna þess að honum hefði ekki tekist að koma í veg fyrir að mótmæii námsmanna breiddust út. Hu hefur ekki sést opinberlega frá 29. desember og hafa kínverskir embættismenn sagt hann vera veikan. Noburo Takeshita sagði að Deng hefði ekki haft miklar áhyggjur af mótmælum námsmanna. „Mótmæli nokkurra námsmanna munu ekki kollvarpa stjómkerfí Kína,“ mun Deng hafa sagt. Hins vegar hafði Deng sagt að óneitanlega væri við erfíðleika að glíma á sviði hug- myndafræðinnar. Deng lýsti þeirri skoðun sinni að ákveðin öfl innan og utan kommúnistaflokksins, sem væru fylgjandi vestrænni hug- myndafræði, hefðu hvatt náms- mennina til mótmæla. Deng sagði Takeshita að stjómvöld í Kína hefðu enga stefnubreytingu á prjónunum þó svo að hann væri sannfærður að námsmenn myndu áfram heillast af vestrænum hugmyndum um lýð- ræði og frelsi. Slíkt væri fylgifískur hinnar umburðarlyndu stefnu kínverskra ráðamanna. FJORH JOLADRIFINN . SKUTBÍLL FRA ALFA ROMEO UMSAGNIR BÍLASÉRFRÆÐINGA DAGBLAÐANNA UM ALFA ROMEO 33 HAFA ALLAR VERIÐ Á EINN VEG: HREINRÆKTAÐUR GÆÐINGUR ALFA 33 4x4 GIARDINETTA er allt I senn: SPORTBÍLL, sem veitir ökugleði og öryggi vegna aksturseiginleika og krafts. FJÖLSKYLDUBÍLL, með nægt rými fyrir alla meðlimi fjölskyld- unnar og farangur. TORFÆRUBÍLL, sem kemst leiðar sinnar I snjó og illfærð. Þennan draumabíl getur þú nú eignast, þvl við höfum náð ótrú- lega hagstæðum samningum og bjóðum þér ALFA ROMEO 33 4x4 skutbil á aðeins kr. 584.000.- INNIFALIÐ í VERÐI: Rafdrifnar rúður og læsingar, litað gler, fjar- stilltir útisþeglar, þokuljós framan og aftan, metalic lakk, þurrkur og sprautur á afturrúðu, þrýstisprautur á framljósum, digital klukka, veltistýri o.m.fl. 6 ára ryðvarnarábyrgð. JÖFUR HF NÝBYLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.