Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 33

Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 33 hefði hugsað næsta leik sinn, eftir að frumvarpið yrði að lögum. Hvað ætlar stjómin að gera ef sjómenn una ekki þessari niðurstöðu og af- munstra sig? spurði hann. Hvað verður þá um markaði okkar erlend- is og góðærið? Þingmaðurinn taldi ekki full- reynt, að hægt yrði að ná samning- um. Hann gagnrýndi tal um birgðaskort og sagði að hann teng- dist ekki sjómannadeilunni. Það væri ekki sök sjómanna að hag- stæðara verð fengist fyrir ferskan fisk í Evrópu en frystan í Banda- ríkjunum. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, tók aftur til máls og svaraði ýmsu í málfutningi stjómarandstæðinga. Hann sagðist þess fullviss, að ef ríkisstjómin hefði ekki gripið í taumana og neyð- arástand skapast á fiskmörkuðum í Bandaríkjunum hefði ríkisstjóm- inni verið kennt um það og sökuð um aðgerðaleysi. Hann kvaðst hafa rætt við ríkissáttasemjara og deilu- aðila á mánudag og þriðjudag og þar hefði ekkert komið fram er benti til þess að samningar væm í sjónmáli. Hins vegar kvaðst hann mundu fagna því ef aðilar gætu samið án þess að lagasetning Al- þingis kæmi til. Þingmennimir Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.) og Karvel Pálmason (A.-Vf.) komu á ný í ræðustól og áréttuðu fyrri ummæli sín og gerðu athugasemdir við ræðu forsætisráð- herra. Karvel las upp ályktun stjómar Farmanna- og fiskimanna- sambandsins, þar sem stungið er upp á því að þingið tilnefni þijá menn í sáttanefnd er starfi með sáttasemjara að lausn sjómanna- deilunnar og á meðan verði fmm- varpi ríkisstjómarinnar frestað. Spurði hann, hver væri afstaða ríkisstjómarinnar til þessarar álykt- unar. treystu sér til að semja væri engin ástæða til að ijúka í það að af- greiða fyrirliggjandi fmmvarp. Ný staða komin upp Jón Baldvin Hannibalsson (A.- Rvk.) sagði, að nú kvæði við annan tón og það benti til þess að undan- haldið væri hafið. Nú þyrfti að fá ríkisstjómina til að draga fmm- varpið til baka. Kjartan Jóhannsson (A.-Rn.) kvaddi sér hljóðs um þingsköp og sagði að með nýjustu yfirlýsingu sinni hefði ríkisstjómin viðurkennt að ekki væri ástæða til að leysa deiluna með lagasetningu á núver- andi forsendum. Yrði af lagasetn- ingu yrði það á öðmm forsendum. Fmmvarpið yrði því að draga til baka. Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.) tók í sama streng svo og Guðrún Agnarsdóttir (KI.-Rvk.), semósk- aði eftir að gert yrði hlé á fundi deildarinnar til að forseti og for- ménn þingflokka gætu rætt þá stöðu sem upp væri komin vegna ummæla Þorsteins Pálssonar. Nokkrir fleiri þingmenn kvöddu sér hljóðs um þingsköp, m.a. forsætis- ráðherra og Páll Pétursson, formaður þingflokks framsókn- armanna. Hinn síðamefndi sagði það gleðilegt hve sáttfúsir menn væm orðnir. Hann taldi rétt að ljúka 1. umræðu málsins og vísa því til nefndar. Ellert B. Schram (S.- Rvk.) lýsti því yfir að tilboð fjármálaráðherra um að reyna samningaleiðina til þrautar væri drengilegt og heiðarlegt. Um klukkan 18:40 var gert hlá á fundi neðri deildar og skotið á fundi formanna þingflokka og for- seta deildarinnar. Á þeim fundi var ákveðið, að fresta áframhaldandi umræðu og atkvæðagreiðslu um Undrandi Afstaða Þorsteins Pálssonar kom Steingrími Hermannssyni, forsætis- ráðherra, og öðrum þingmönnum Framsóknarflokksins mjög á óvart, en þeir sættu sig við hana. Hér ræða Steingrímur og Páll Pétursson um horfurnar framundan. Samningar ekki þraut- reyndir Á meðan Svavar Gestsson var í ræðustólnum birtist Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, í deildinni, en hann hafði verið í París og var ekki væntanlegur til landsins fyrr en á miðvikudag. Fjármálaráð- herra kvaddi sér hljóðs að ræðu Karvels lokinni. í upphafi ræddi hann upp þá alvarlegu stöðu sem kominn væri upp vegna sjómanna- verkfallsins og talaði um nauðsyn þess að leysa hana. Síðan sagði ráðherra, að það hlyti þó að vera meginregla að aðilar vinnudeilna leystu sín mál sjálfir. Hann kvaðst telja ástæðu til að freista þess að leysa núverandi deilu með sam- komulagi og án lagasetningar. Þorsteinn Pálsson sagðist hafa hitt hóp sjómanna, þegar hann kom í þinghúsið, og þeir hefðu fullyrt að vilji væri til þess og möguleiki á því, að leysa deiluna við samnings- borðið. Kvaðst hann vilja láta á það reyna, hvort þetta sjónarmið hefði við rök að styðjast. Ef báðir aðilar það, hvort frumvarpið færi til sjáv- arútvegsnefndar. Jafnframt var frestað atkvæðagreiðslu um fráví- sunartillögu Alþýðuflokksins. Þetta var tilkynnt á stuttum fundi í neðri deild, sem hófst um kl. 19:40 og stóð í fáeinar mínútur. Áður en fundinum lauk kvaddi Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra, sér hljóðs og taldi sig hafa heyrt ómaklega vegið að for- sætisráðherra. Hann bæri ekki ábyrgð á frumvarpinu, heldur ríkis- stjómin í heild. Tveir ráðherrar hefðu verið fjarverandi, þegar ák- vörðun var tekin um það að leggja það fram, en aðrir ráðherrar hefðu verið staðgenglar þeirra. Þess vegna bæri ríkisstjómin í heild ábyrgð á því, að frumvarpið væri komið fram. Þá upplýsti Albert, að hann hefði ekki vitað um ákvörðun Þorsteins Pálssonar að óska eftir að reyna samninga til þrautar fyrr en þegar ráðherrann kom í ræðu- stól í þinginu síðdegis. Að svo búnu var þingfundi slitið. Ekki liggur fyrir, hvenær næsti fundur verður á Alþingi, en það verður væntanlega ekki í dag. Sjómenn tóku sér stöðu við Alþingi Morgunblaðið/RAX Nú er lag til að leiðrétta skiptaprósentuna, sögðu Páll Guðmunds- son og Agúst Ingi Sigurðsson. LJÓSRAUÐIR sjóstakkar stungu i stúf við dökkgrátt Al- þingishúsið í gærdag meðan Alþingi fjallaði um lagafrum- varp sem gerði ráð fyrir að kjaradómur yrði skipaður í deilu sjómanna og útvegs- manna. I sjóstökkunum voru félagar i Sjómanna- og vél- stjóraí'élagi Grindavíkur fyrir utan aðaldyr þinghússins en á þingpöllum Alþingis fjöl- menntu félagar annara sjó- mannafélaga á meðan umræður um frumvarpið stóðu. Það fór ekki hjá því að stakka- klæddu mennirnir vektu talsverða athygli á Austurvellinum en áður höfðu þeir gengið' í hóp niður Laugaveginn. Ekki sammála lagasetningn „Við erum ekki sammála því að þingmenn séu að setja á okkur lög og við erum að mótmæla því að deilan fari inn í þetta hús. Það var alls ekki búið að reyna samn- ingaleiðina til þrautar," sagði Gunnar Sigurðsson, einn úr hópi Grindvíkinganna í spjalli við Morgunblaðið. Þegar Gunnar var spurður hvort verkfallið nyti stuðnings sjómanna á Suðumesj- um svaraði hann: „Við styðjum þetta verkfall og okkar stjóm, við væmm ekki hér annars. Verk- fallið hefur fengið víðtækan stuðning frá okkar mönnum í Grindavík. Þar hefur verið mjög vei mætt á verkfallsskrifstofu og við fylgjum okkar formanni vel eftir. En það hlýtur að vera hægt að semja um þetta niðrí Karphúsi eins og annað, og við erum hér til að styðja okkar menn,“ sagði Gunnar. Stakkaklæddir á ráðherrafundi í þeim orðum töluðum bættist Óskar Vigfússon formaður Sjó- mannasambands íslands í hópinn. „Hvernig líst ykkur á að okkar mál skuli vera komin hingað inn,“ spurði Óskar. „Við fengum ekki að fara þama inn,“ svaraði einn úr hópnum að bragði. „Þingvörð- urinn sagði að þetta væri ómannlegur klæðnaður". Því má bæta við að þegar Ólaf- ur G. Einarsson formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins heyrði af þessum viðbrögðum dyravarðar bauð hann sjómönnunum frá Grindavík inn í þingflokksher- bergi Sjálfstæðisflokksins þar sem hann, Ámi Johnsen og Matt- hías Á. Mathiesen ræddu við þá. Inn á þennan fund kom Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra, ný- kominn frá París, og eftir að hafa rætt við sjómennina fór hann í ræðustól og mælti gegn því að frumvarp um að skipa kjaradóm yrði samþykkt fyrr en samninga- leiðin yrði þrautreynd. Fleiri þingmenn Sjálfstæðis- flokksins lögðust gegn þessu frumvarpi. Árni Johnsen sagðist í samtali við Morgunblaðið telja að ekki væri tímabært að taka það til afgreiðslu í þinginu, þar sem ekki væri fullreynt hvort hægt væri að semja í deilunni. Því væri út í hött að ætla sér að taka málið til afgreiðslu með hraði í þinginu. „Það er auðheyrt á þeim sem ég hef rætt við í dag, sem eru mest sjómenn, og einnig af skeytum sem mér hafa borist, Tel að ekki hafi verið þraut- reynt að leita sátta i deilunni, sagði Nikulás Einar Þórðarson. Erum að mótmæla þvi að þessi deila fari inn i Alþingishúsið, sagði Gunnar Sigurðsson. að menn vilja reyna samningaleið- ina til þrautar. Að mínu viti á því að ræsa á dekk og láta deiluaðila vinna sig út úr vandanum en ekki láta pusa lögum yfir þá,“ sagði Ámi. 89 ára á þingpöllum Uppi á þingpöllum var fullt út úr dyrum og frammi á gangi sat Nikulás Einar Þórðarson, 89 ára gamall fyrrverandi sjómaður. Morgunblaðið spurði hann hvað honum fyndist um að setja ætti lög til að binda enda á kjaradeil- una. „Mér finnst hún léleg. Tel ekki hafa verið þrautreynt og að sáttasemjari hafi gefist upp of fljótt. Atvinnurekendur vita það að launadómur er þeim alltaf hag- stæður og vita því hvemig spilin liggja. Annars hefðu þeir komið með eitthvað tilboð á móti,“ sagði Nikulás. Þjóðarhagur líka okkar hagur Morgunblaðið tók að lokum tvo unga sjómenn frá Vestmannaeyj- um tali, þá Pál Guðmundsson og Ágúst Inga Sigurðsson og þeir voru ekki sammála lagasetningu um kjaradóm. „Það er með þessu verið að taka vðldin af verkalýðs- félögunum og sjómannafor- ustunni og það hleypir illu blóði í okkur," sagði Ágúst. „Það er verið að tala um þjóðarhag í þessu sambandi, en það er okkar hagur jafnt og annarra og því á þetta þá að bitna á okkur?“ bætti Páll við. Páll og Ágúst voru að lokum spurðir hvort þeir byggjust við að kjaradómur yrði sjómönnum hag- stæður ef hann yrði skipaður í málinu. Páll svaraði: „Menn em almennt sammála um að það þurfi að leiðrétta skiptaprósentuna og við fáum til baka það sem tekið var af okkur með lögum 1983. Nú er lag til þess meðan olíuverð- ið er svona lágt. Það var Alþingi sem tók þetta af okkur á sínum tíma og því ætti það ekki að rétta okkur það aftur nú?“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.