Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 38

Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 VERÐSKRANING A ROTTERDAMMARKAÐI. — GASOLIA — BENSlN ■ • SVARTOLlA Verðþróun á bensíni og olíum eftir Kristján Bj. Olafsson Á undanfömum vikum og dögum hefur skráð olíuverð á Rotterdam- markaði hækkað verulega. Hækkun þessa má einkum rekja til samdrátt- ar í olíuframleiðslu og aukinnar eftirspumar vegna þess kuldakasts ' sem nú ríkir í Evrópu. Verður nú í nokkmm atriðum gerð grein fyrir hækkun innkaupsverðs og stöðu verðlagsmála hérlendis á gasolíu, bensíni og svartolíu. Rotterdam-markaður Meðfylgjandi línurit sýna annars- vegar daglega verðþróun á Rotter- dammarkaði frá 1. desember 1986 svo og nokkur dæmi um verð nú og á síðasta ári. Verð fór lægst um miðjan júlí 1986 en hefur hækkað verulega síðan eins og sjá má. Þrátt fyrir mikla hækkun að undanfömu má gera ráð fyrir að verð hafi ekki náð hámarki og ómögulegt er að segja til um það hver verðþróunin verður á næstu dögum og vikum. Vissulega er hér um nokkurt áhyggjuefni að ræða en á móti kem- ur að olíufélögin eiga nú í birgðum bensín og olíur til næstu 2—3ja mánaða á verulega lægra verði en núverandi markaðsverð. Staða verðlagsmála á gasolíu, bensíni og svartolíu er í stómm dráttum eftirfarandi: Gasolía Hvert tonn af gasolíu kostar nú á Rotterdam-markaði (11.01. 1987) 165 dollara og hefur þá t.d. hækk- að um 40 prósent í verði á sl. 30 dögum. Miðað við markaðsverð þyrfti útsöluverð gasolíu hérlendis að hækka um tæp 25% eða úr 6,90 kr./ltr. í 8,60 kr./ltr. Kostnaðarverð í birgðum olíufé- laganna er 34 $ tonn undir markaðsverði eða 131 $/tonn. Umreiknað í ísl. krónum alls 7,30 kr./ltr. Innkaupajöfnunarreikningur, sem hefur því meginhlutverki að gegna að jafna út mismun í inn- kaupsverði, er nú jákvæður og getur borið þann neikvæða mismun sem upp safnast í gasolíu vegna þess að útsöluverð er lægra en kostnaðarverð birgða. Ekki þarf því að koma til verðhækkunar á gas- olíu á meðan núverandi birgðir olíufélaganna endast, eða í næstu 3 mánuði. Bensín Á Rotterdam-markaði hefur bensínverð t.d. hækkað um 30% á sl. 30 dögum og er nú 163 dollarar (11.01. 1987) hvert tonn. Miðað við markaðsverð þyrfti bensínverðið hérlendis að hækka úr 26,30 kr./ltr. í 29,40 kr./ltr. eða um 12%. Kostnaðarverð birgða olíufélag- anna er nú 127 $/tonn eða 36 Kristján Bj. Ólafsson $/tonn undir markaðsverði, eða alls 27,10 kr./ltr. Innkaupajöfnunar- reikningur bensíns getur væntan- lega borið þann neikvæða mismun er upp safnast þar til í lok febrúar en þá verður staða reikningsins komin í núll. Verðhækkunar á bensíni má því vænta í byijun mars. Svartolía Svartolía hefur hækkað hlutfalls- lega mest í verði á undanfömum 30 dögum eða um 45%. Hvert tonn af svartolíu kostar nú 102,50 $/tonn (11.01. 1987) eða 7.600 krónur. Utsöluverðið er hinsvegar 5.700 kr./tonn. Kostnaðarverð birgða olíufélag- anna er 78 $/tonn (þ.e. án gæða- premíu) eða 6.400 kr./tonn. í lok febrúar verður staða innkaupajöfn- unarreiknings fyrir svartolíu væntanlega komin í núll og má þá fastlega reikna með verðhækkun. Skipting útsöluverðs Meðfylgjandi myndir sýna hver skipting útsöluverðs er um sl. ára- mót. Eins og sjá má er tillag til inn- kaupajöfnunar neikvætt í öllum tegundum. Kemur þetta til af því að kostnaðarverð birgða er hærra en útsöluverð, eins og rætt var hér að framan. Myndimar sýna glöggt hversu innkaupsverð em stór hluti af heild- arverði gasolíu og svartolíu. í bensíni er þessu öfugt farið, þar nemur innkaupsverð einungis 16 prósentum af heildarverði. Opin- ber gjöld (tollar, vegaskattur, söluskattur og fl.) em tæp 70 pró- sent bensínverðs eða 18,28 kr./ltr. Til fróðleiks má nefna að á hveiju ári seljast hérlendis um 130 milljón lítrar af bensíni þannig að skatt- heimta ríkisins nemur um 2.400 milljónum á ársgmndvelli. Lokaorð Miðað við núgildandi markaðs- verð á gasolíu, bensíni og svartolíu þyrfti útsöluverð hérlendis að hækka vemlega. Hækkunin næmi 25% á gasolíu, 12% á bensíni og 33% á svartolíu. Á móti kemur að olíufélögin eiga í birgðum bensín og olíur til næstu 2—3ja mánaða á verði langt undir markaðsverði. Það ásamt því að staða innkaupajöfnunarreiknings er nú jákvæð er þess valdandi að ekki þarf að koma til verðhækkunar að svo stöddu. Væntanlega verður þó ekki hjá því komist að hækka útsöluverð bensíns og svartolíu í byijun mars. Fastlega má gera ráð fyrir að út- söluverð gasolíu geti verið óbreytt eitthvað lengur en úrslitum mun valda hver þróun olíuverðs á Rott- erdam-markaði verður á næstu vikum. Höfundur er deildarstjóri hag- deildar Olíufélagsins Skeljungs hf. Flokkur mannsins mótmælir í FRÉTTATILKYNNINGU frá Flokki mannsins segir, að út- varpsráði hafi verið sent mótmælabréf vegna meints hlut- leysisbrots sem fram kom í þættinum „Fimmtudagsumræða — I byijun kosningaárs" en þar var formönnum allra stjórn- málaflokkanna boðið nema FM. I tilkynningunni segir ennfremur að flokkurinn telji það einnig ábyrgðarhluta að formenn hinna flokkanna skuli hafa tekið þátt í þessum þætti án þess að mótmæla útilokun FM og einnig furði flokkur- inn sig á því að í þáttinn „í takt við tímann" í sjónvarpinu skuli ekki hafa verið boðið fulltrúum FM, 7. janúar sl., þar sem mættir voru kvenframbjóðendur allra flokka. I fréttatilkynningunni segir einn- ig: „Útilokun FM frá stjómmálaum- ræðum nú á kosningaári er furðanleg þar sem FM hefur marg- Iýst þvi yfir að hann muni bjóða fram í öllum kjördæmum og hefur þegar birt framboðslista í tveimur stærstu kjördæmunum." Skipting útsöluverös ú benslni 1.1.1987 Verö 26,30 kr/ltr □ innflutningsverð 4.31 kr/ltr HD innkaupajöfnun —0,65 kr/ltr H opinber giöld 18.28 kr/ltr ^ dreifingarkostnaöur 2.39 kr/ltr Ltl veröjöfnunargjald 0,60 kr/ltr H smösölulaun 1.37 kr/ltr Kvenréttindafélag íslands 80 ára: Myndlistarsýning á Hallveigarstöðuni ÞANN 27. janúar næstkomandi verða 80 ár liðin frá stofnun Kven- réttindafélags íslands. í fréttatilkynningu segir, að félagið ætli að minnast þessara tímamóta með margvíslegum hætti. Á sjálfan afmælisdaginn kl. 18 verður boðið til síðdegisveislu í ný- innréttuðum samkomusal í kjallara Kvennaheimilisins Hallveigarstaða við Túngötu, en það.hús er í eigu KRFÍ og annarra kvennasamtaka sern þar hafa aðsetur. Til veislunn- ar verður boðið öllum félögum auk fjölda gesta. í tilefni afmælisins gengst félag- ið einnig fyrir sýningu á myndlistar- verkum eftir konur í áðumefndum samkomusal. Verður sýningin opn- uð laugardaginn 23. janúar og stendur til 8. febrúar. Á sýning- unni, sem jafnframt er sölusýning, verða ný og eldri verk núlifandi myndlistarkvenna, teikningar, grafík, textíl og málverk. Ætlunin er að meginviðfangsefni flestra verkanna snerti konur á einhvern hátt. Þess skal getið að þær konur sem hafa áhuga á að taka þátt í sýning- unni skulu skila inn verkum sínum á Hallveigarstöðum mánudginn 12. janúar nk. frá kl. 17.00 til 19.00 ásamt upplýsingum um þau og sjálfar sig. Sýningamefnd undir formennsku Hrafnhildar Schram mun síðan velja ur verkum sem berast. Upplýsmgar em veittar á skrifstofu KRFÍ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.