Morgunblaðið - 14.01.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987
41
St)örnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri Gunnlaugur. Ég er fædd
þann 26.5.1967, í Kópavogi
kl. 22.20 og er því TVíburi.
Ansi dæmigerður er ég hrædd
um, því ég þarf að halda aftur
af mér, svo þetta bréf fyllist
ekki af alls kyns blaðri. Því
ætla ég að setja endapunktinn
sem fyrst, en mig langar að
fá upplýsingar um helstu eigin-
leika og allt það. Að lokum vil
ég geta þess að hugur minn
stendur mjög til tónlistarinnar.
Ætli ég hafi möguleika á því
sviði? Með kærri þökk.“
Svar:
Þú hefur Sól og Merkúr í
Tvíbura, Tungl í Steingeit,
Venus í Krabba, Mars og Mið-
himin í Vog og ert Rísandi á
mörkum Sporðdreka og Bog-
manns.
Fjölhœf
Sól og Merkúr í Tvíbura tákn-
ar að þú ert jákvæð og hress
í grunneðli þínu, ert félags-
lynd, bjartsýn og látt og hefur
ríka þörf til að tjá þig. Þú ert
eirðarlaus og þarft hreyfingu
og fjölbreytileika.
Varkár
Tungl í Steingeit táknar að
'tilfinningalega ert þú alvöru-
gefin, íhaldssöm og ábyrg. Þú
átt til að vera formföst og eiga
erfitt með að tjá þær tilfínning-
ar sem búa í bijósti þér. Þú
ert létt og ræðin á yfírborðinu
en varkár undir niðri. Einnig
býr í þér ákveðin tilfínninga-
spenna. (Tungl-Mars-Venus
spennuþríhymingur).
Skapstór
Það síðasttalda getur orðið þér
til ama, ef þú gætir þess ekki
að leita jafnvægis. Þú ert fé-
lagslynd og vilt samvinnu en
ert skapstór og getur átt erfítt
með að ráða við tilfínningar
þínar. Það getur leitt til tog-
streitu, stundum eftirgjafar og
stundum keppni við aðra eða
þangað til þú fínnur jafnvægi.
Umhyggjusöm
Venus í Krabba táknar að þú
ert umhyggjusöm og hlý við
vini þína, ert töluverð mamma
í þér og átt t.d. til að vorkenna
fólki.
Kappsöm
Mars í Vog á Miðhimni táknar
að starf út í þjóðfélaginu skipt-
ir þig miklu, að þú ert kapps-
full og metnaðargjöm.
Miðhiminn er táknrænn fyrir
það sem þú vilt þroska í fari
þínu. Vegna Vogar stefnir þú
að því að efla félagslega og
listræna hæfíleika og vegna
Mars að efla sjálfstæði, dugn-
að og kappsemi.
Tónlist
Þegar á kort þitt er litið í
heild, sést að þú ert kappsfull,
metnaðargjöm og orkumikil,
en jafnframt eirðarlaus, fé-
lagslynd og fjölhæf. Þú hefur
hæfíleika í tónlist, m.a. vegna
Vogar á Miðhimni og afstöðu
Venusar við Neptúnus og Mið-
himin. Áhugi er besti mæli-
kvarðinn sem við höfum þegar
velja á starf. Við eigum fyrst
og fremst að fýlgja okkar innri
rödd. Ef þú ert síðan sam-
viskusöm ætti þér að ganga
vel.
Félagsmál
Vegna þess að þú ert Tvíburi,
ættir þú einnig að halda öðrum
möguleikum opnum og stefna
að menntun sem gefur þér
kost á fjölbreytileika í starfi
og möguleika á því að breyta
til. Sem Tvíburi og Vog hefur
þú hæfileika í tungumálum og
fjölmiðlum og í öllu félagslegu
samstarfi. Þú þarft að vinna
með fólki.
GARPUR
GAKTUK TEKUR UNPIR
StQ HELJARSTÖKK
AE>GE IMFARINU.
V|l \\» . •
X-9
GRETTIR
UOSKA
1/VtAAWJA VKKA^E-R LASIN
ÍSVO ÉG SÉ UM /MORSUN-
VERPINN
FERDINAND
SMAFOLK
uihat d\d you put
POWN FOR THAT
GIUESTION, MARCIE?
FAlTH, COURAGE ANP
HARP WORK'.'.WHAT
PIP YOU PUT POUJN?
„Hvað skapaði mikilleik Hvað settirðu við þessa ..Trú, kjarkur og elju-
okkar lands? spurningu, Magga? semi.“ Hvað settir þú?
„Samlokur með hnetu-
smjöri.“
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Jeff Rubens, annar ritstjóra
The Bridge World, hefur undan-
farið haft umsjón með æfingum
bandaríska unglingalandsliðs-
ins. Þar í landi taka menn
æfíngar alvarlega og er meðal
annars mikið gert af því að raða
fyrirfram í bakka erfiðum spil-
um. Hér er eitt, þar sem álagið
er á vestri.
Suður gefur; allir á hættu.
Vestur
Norður
♦ 754
♦ 987
♦ ÁK10965
♦ 2
Austur
V 1065432 II
♦ D7
♦ D10987
♦ KG10986
¥ÁG
♦ G83
♦ 64
Suður
♦ ÁD32
¥KD
♦ 42
♦ ÁKG53
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 lauf
Pass 1 tígull 1 spaði 2grönd
Pass Pass 3grönd Pass Pass
Vestur spilar út litlu hjarta
og austur tekur á ásinn og skil-
ar gosanum til baka. Þrátt fyrir
að austur eigi aðeins tvö hjörtu
er þetta besta vömin.
En nú er kannski rétt að leyfa
lesendum að spreyta sig. Er
hægt að hnekkja þremur grönd-
um eftir þessa byijun?
Sagnhafí á 7 slagi með spaða-
svíningu og verður því að sækja
sér tvo í viðbót á tígul. Það get-
ur hann gert með því að spila
litlum tígli á tfu blinds. Austur
fær á gosann, en á ekki hjarta
til að spila, svo geimið vinnst.
En hér erum við að gefa okk-
ur að vestur sofni á verðinum.
Með því að stinga upp tígul-
drottningunni gerir hann gjör-
samlega út um vinningsvonir
sagnhafa. Eftir þá vörn má
sleppa einn niður með þræðingi;
tígullinn er þá ekki snertur
meira og austri um síðir kastað
inn á spaða til að spila upp í
klaufína í tígli. En slík spila-
mennska er fráleit. Rétt ér að
spila upp á DG blankt í tígli og
þá fer spilið tvo niður.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á OHRA-mótinu í Amsterdam
sl. sumar kom þessi staða upp f
viðureign stórmeistaranna Ribli,
Ungverjalandi, sem hafði hvítt og
átti leik, og Van der Wiel, Hol-
landi:
Svartur hefur teflt byijunina
glæfralega og nú kom refsingin:
11. Rxe5! - Rxe5, 12. Rxd5 —
Rxd5, 13. Bxe5 — Be6, 14. c4
(Hvítur vinnur nú manninn til
baka og hefur þá borið tvö peð
úr býtum. Van der Wiel gaf eft-
ir) 14. — Hd8, 15. Bxg7 — Hg8,
16. Dd4 - Bc3, 17. Dxc3! -
Rxc3, 18. Bxc6+ — bxc6, 19.
Bxc3 - h5, 20. Hfdl - Ke7, 21.
f3.