Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 47

Morgunblaðið - 14.01.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1987 Morgunblaðið/RAX Bros- mildir félagar Adögunum fór fram nám- skeið í Háskóla íslands, fyrir starfsfólk Granda h.f., en það var haldið að tilstuðlan fyrirtæk- isins, H.I., verkalýðshreyfingar- innar og Sjávarútvegsráðuneyt- isins. Tina Turner komin á fast Rokkstjarnan Tina Tumer er komin á fast. Hinn heppni heit- ir Erwin Bach og er Þjóðverji. Þrátt fyrir að hann sé nýskriðinn yfir þrítugt, en hún 48 ára gömul, virð- ist aldursmunurinn ekki standa þeim fyrir þrifum. Bach þessi er að vísu ekki kom- inn af Johann Sebestian, en er í tónlistarbransanum eigi að síður, því hann er framkvæmdastjóri þýska hljómplötufyrirtækisins „Electrola Records". Að sögn sam- eiginlegs vinar var hér um að ræða ást við fyrstu sýn. Eftir að Tina skildi við Ike Tum- er, fyrrverandi eiginmann sinn, hefur hún ekki verið lengi í tygjum við karlmenn og reyndar lýst yfir vantrú sinni á föstum samböndum. Er kannski ekki að furða því Tina hefur lítinn tíma haft til þess að sinna karlmönnum, en á síðasta ári lék hún í nokkmm kvikmyndum, hélt 199 tónleika, tók upp eina og hálfa plötu, skrifaði bók og ýmis- legt fleira! Af Ike er það annars að frétta að hann var nýlega færður fyrir rétt og ákærður fyrir að hafa selt lögregluþjóni í dularklæðum 283 g af kókaíni. Ike, sem er orðinn 55 ára gamall, neitaði ákæmnni og Ike og Tina Turaer á velmektar dögunum. Tina Tumer. gengur nú laus gegn tryggingu. Hann hefur þó játað að vera þræll eiturlyfsins sjálfur og að hafa verið undir áhrifum efnisins undanfarin 15 ár. Hann er nú á meðferðarstofn- un. Kennd voru ýmis fræði fisk- vinnslu lútandi og voru 145 sérhæfðir fiskvinnslumenn út- skrifaðir. Við það tækifæri tók RAX, ljósmyndari Morgunblaðsins, þessa skemmtilegu mynd af ein- um þátttakandanum, Einari Magnússyni. Inn á myndina slæddist þó óvæntur gestur, sumsé beinagrind læknanemum til glöggvunar. Að vonum brosir Einar breitt, en ekki er annað að sjá en að beinagrindin sé hon- um jafnfagnandi, a.m.k. ef marka má brosið. Mark Thatcher í hjónabandið Mark Thatcher, sonur Mar- grétar, forsætisráðherra Bretlands, opinberaði trúlofun sína og ungfrú Diane Burgdorf, í nóvember sl., en þá var ekki upp- lýst hvenær af brúðkaupinu yrði. Faðir brúðarinnar, bandaríski milljónamæringurinn Theodore Burgdorf, tilkynnti nú fyrir skemmstu að brúðkaupið færi fram hinn 14. febrúar, en hann varðist allra frekari frétta og vildi ekki láta uppi hvar það færi fram. Þeir sem gerst til þekkja telja þó að brúðkaupið verði haldið í Lund- únaborg, en Denis og Margaret Thatcher munu hafa lagt mikla áherslu á það. Hjónin upprennandi ætla að búa í Texas, en þaðan er ungfrúin. Allt nýjar og nýlegar vðrur Opið frá 10-18. Laugardaga 10-13. Útsala Mikil verölækkun Hverfisgötu 64a, sími 25260

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.