Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 12,tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Bandaríkin: 16biðubana í flugárekstri Salt Lake Citv. AP. ** Salt Lake City, AP. FARÞEGAFLUGVÉL og smá- flugvél rákust á í lofti yfir borginni Salt Lake City í Utah- ríki síðdegis í gær með þeim afleiðingum að a.m.k. 16 menn, sem í þeim voru, biðu bana. Farþegaflugvélin var í eigu flug- félagsins Skywest og var 18 sæta, en óljóst er hversu margir voru um borð. Hún var á leið frá Pocatello í Idaho til alþjóðaflugvallarins við Salt Lake City. Smáflugvélin var Qögurra sæta og af gerðinni Moon- ey. Varð áreksturinn skömmu eftir flugtak hennar frá litlum flugvelli í úthverfi borgarinnar. Að sögn slökkviliðsmanna rigndi braki úr flugvélunum niður á Keams-íbúðahverfið í Salt Lake City. Dreifðust flugvélahlutir yfir stórt svæði og stórskemmdust þtjú íbúðarhús. Lík og líkamshlutar fundust á víð og dreif og féllu m.a. niður á skóla, sem verið var að kenna í, og kirkju. Svíþjóð: Tekirni 58 siimum fyrir akstur undir áhrifum Stokkhólmi, Reuter. HÉRAÐSDÓMARI í bænum Alingsas í miðhluta Svíþjóðar dæmdi 52 ára mann í sex mán- aða fangelsi í gær fyrir ölvun- arakstur. Var það í 58. sinn, sem maðurinn hlýtur dóm fyrir að aka bifreið undir áhrifum. Ólánssami ökumaðurinn var fyrst dæmdur fyrir ölvunarakstur árið 1957 og síðan hefur hann setið samtals ijögur og hálft ár í fangelsi sakir þess. Að þessu sinni var maðurinn, sem er 52 ára, dæmdur fyrir akst- ur með rúmlega tvöfalt leyfilegt áfengismagn í blóðinu. Þegar hann hafði hlýtt á dómsorðið sagðist hann vonast til að einhver góður fagmaður gæti hjálpað sér að komast yfír áfengisfíknina. AP/Símamynd Youri Vorontsov (t.v.), nýskipaður aðalsamningamaður Sovétmanna í Genfarviðræðunum um fækkun kjarnavopna, býður Max Kampelmann, samningamann Bandaríkjanna, velkominn til fyrsta fundar þeirra í sjöundu lotu viðræðnanna. Myndin var tekin í snjómuggu við sovézka sendiráðið. Sovétmenn fjölga SS-25 eldflaugum Iranir segjast nálgast Basra Ný lota í afvopnunarviðræðum hafin Bagdað, Teheran, AP. Reuter. ÍRANIR héldu því fram að herir þeirra hefðu sótt fram á bardaga- svæðum í austur- og suðurhluta íraks og gjöreyðilagt íraska stjórnstöð nálægt Basra í eld- flaugaárás. írakar vísuðu þessu á bug. Iranir sögðust nálgast Basra hægt og bítandi og hefðu sveitir þeirra sótt nokkra kílómetra til vesturs frá uppistöðulóninu, sem írakar reistu 10 km austur af borginni. Gífurlega harðir bardagar hefðu verið háðir en unnið væri kerfisbundið að því að „afmá“ óvinasveitirnar. Irakar voru jafn vigreifír og sögð- ust hafa hrakið innrásarliðið til baka. Hefðu orrustuþotur og þyrlur farið 500 árásarferðir gegn hersveitum írana og höggvið stórt skarð í raðir þeirra og eyðilagt fjölda hergagna. Genf^ Washington, AP. Reuter. SOVETMENN hafa fjölgað bækistöðvum fyrir langdrægar SS-25 kjarnaflaugar og ráða nú yfir 100 flaugum á skotpöllum í stað 70 fyrir ári, að því er Caspar Weinberger, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær. Weinberger sagði að umræðan um vopnasöluna til írans hefði beint athyglinni frá vaxandi hervæðingu Sovétmanna. SS-25 flaugin væri færanleg og gæfi hún því mikla möguleika. Bandaríkjamenn réðu ekki yfír langdrægum kjamaflaug- um, sem staðsettar væm á landi. Þar á þyrfti að verða breyting en tilraunir Reagans forseta til að fá fjárveitingar til smíði nýrrar ein- odda færanlegrar kjamaflaugar, Midgetman, og 10 sprengjuodda færanlegrar MX-flaugar hefðu mætt skilningsleysi. Aðalsamningamenn í Genfarvið- ræðum stórveldanna um fækkun kjamavopna hófu í gær sjöundu lotu viðræðnanna yfir hádegisverði í sovézka sendiráðinu. Ekkert var gefið upp um gang viðræðnanna en haft var eftir Yuri Vorontsov, hinum nýja fulltrúa Sovétríkjanna, að kominn væri tími til að hrinda hugmyndum frá leiðtogafundinum í Reykjavík í framkvæmd. Af hálfu Bandaríkjanna er þess vænzt að breytingar á skipan samninga- nefnda verði til að koma skrið á viðræður, sem þeir segja að hafí miðað lítið. Afganistan: Vopnahlé ekki virt? Islamabad, Kabúl, AP. Reuter. FRÁSAGNIR embættismanna í Kabúl um framgang einhliða vopnahlés, sem stjórn Najibullah lýsti yfir í fyrradag, stönguðust á í gær. Skæruliðar sögðust hafa aukið hernað sinn og sögðu að ekki yrði um vopnahlé að ræða fyrr en sovézki innrásarherinn væri allur á bak og burt frá Afganistan. Sumir embættismenn sögðu að skæruliðar virtu vopnahléð og hefðu 800 sveitir þeirra af um 1.300 lagt niður vopn í gærdag. Hermenn stjómarhersins og sovézkir hefðu yfirgefið bardagasvæðin á miðnætti í fyrrinótt og farið til bækistöðva sinna. Þeir væm samt tilbúnir að halda út á vígvöllinn ef skæmliðar legðu ekki niður vopn. Aðrir emb- ættismenn sögðu ailtof snemmt að segja hvort vopnahléð yrði haldið og erlendir stjórnarerindrekar í Kabúl skýrðu frá bardögum í ná- grenni Kabúl eftir að vopnahléð átti að vera gengið í gildi. Sovétmenn sögðu í gær að með vorinu yrðu heil herdeild úr fót- gönguliði hersins og nokkrar hersveitir kallaðar heim frá Mong- ólíu, en þar munu nú vera um 38.000 sovézkir hermenn. Flugfélög’in Sabena og SAS sameina fluffleiðir Kaupmannahöfn, AP. Kaupmannahöfn, AP. SAS-flugfélagið á nú í viðræð- um við belgíska flugfélagið Sabena um sameiningu flug- leiða félaganna, að sögn danska útvarpsins. Snúast viðræðurnar m.a. um þátttöku SAS i að fjár- magna stækkun flugvallarins í Briissel og ýmsar framkvæmd- ir þar til að hann megi mæta kröfum tímans. Að sögn danska útvarpsins hafa SAS og Sabena í hyggju að byggja upp nýtt leiðakerfí í Evr- ópu og til annarra heimsálfa. Danska blaðið Ekstra Bladet sagði í gær að Jan Carlzon, for- stjóri SAS, hafí nýlega átt leyni- legan fund í Stokkhólmi með fulltrúum danskra, norskra og sænskra starfsmanna SAS um fyrirhugaðar breytingar. Að sögn sænska viðskiptatíma- ritsins Veckan Affárer mundi Sabena kaupa hlut í SAS, sem er að þremur sjöundu í eign Svía, tveimur tíundu í eign Norðmanna og tveimur tíundu í eign Dana. Helmingur hlutanna er í eigu ríkissjóðs viðkomandi ríkja. í stað- inn mundi SAS útvega fjármagn til stækkunar flugvallarins í Brússel og framkvæmda, sem nauðsynlegar væru til að láta hann mæta kröfum tímans. Yrði flugvöllurinn gerður að miðstöð Atlantshafsflugs félaganna tveggja. Fulltrúar starfsmanna Kastr- up-flugvallar, sem er miðstöð alls flugs SAS innan og utan Skand- inavíu, hafa látið í ljós áhyggjur vegna fyrirhugaðs samstarfs SAS og Sabena og óttast að það hafí í för með sér fækkun starfsmanna um allt að 2.000. Kaj Ikast, Dani í stjórn SAS, sagði Ekstra Bladet í gær að sam- starf SAS og Sabena yrði rætt á stjórnarfúndi 29. janúar nk. Hann þvertók fyrir að verið væri að sameina flugfélögin, aðeins ákveðna þætti í starfsemi þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.