Morgunblaðið - 16.01.1987, Page 5

Morgunblaðið - 16.01.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 5 ekki hefði reynst mögulegt að ná lengra að þessu sinni og lögðu þeir til að samningamir yrðu samþykktir. Á fundinum kom fram að Vestfirðingar virð- ast hafa náð betri samningum og vildu nokkrir fundarmanna fá þá til að semja fyrir sig. B.B. Grindavík: Sjómenn almennt ánægð- ir nema rækjusjómenn FJÖLMENNI var á fundi Sjó- manna- og vélstjórafélags Grindavíkur um nýgerða kjara- samninga í Sjómannastofunni Vör í gærdag. Sævar Gunnarsson formaður rakti samninginn fyrir félagsmönnum, skýrði einstök atriði og svaraði fyrirspurnum. Sævar rakti einnig gang samn- ingaviðræðnanna og sagði það stærsta sigurinn þegar sjómönnum tókst að ná deilunni út úr Alþingi. Menn virtust almennt ánægðir með samningana, nema rækjusjómenn. Greidd voru atkvæði í lok fundarins. Kr. Ben Morgunblaðið/RAX Fundarmenn í húsi Slysavamarfélagsins taka gögn um samningana. Mikill urgur var í mönnum en Guðmundur Hallvarðsson; formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, sagðist fullviss um að hinn þögli meirihluti hefði sagt já. ÍJr því fæst skorið þegar atkvæði sjómanna verða talin í dag. Hvað færa samningarnir okkur í launaumslagið, var sú spurning sem brann á sjómönnum í gær. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur rekur helstu efnisatriði samninganna í ræðustól. skipum fengju álag fyrir saman- lagðan sjóferðatíma. „Ef kostnaðarhlutdeildin fer inn í kjarasamninginn verður ómögu- legt að ná henni út aftur,“ sagði ónefndur ræðumaður. „Með því að samþykkja hann erum við að leggja blessun okkar yfir það að sjómenn eigi að taka þátt í olíu- kostnaði og getum ekki gert okkur vonir um að það breytist fyrir alda- mót. Ríkisvaldið átti að sjá sóma sinn í því að afnema lögin fyrir löngu.“ Hófust mikil framíköll eft- ir þessa ræðu. Fundarmaður sagði að ef sjómenn greiddu samningn- um atkvæði væru þeir að gefa samningsréttin upp á bátinn. Líkti hann því við að þeir settu snöru um eigin háls. Öðrum var á orði að sjómenn hefðu tapað áróðurss- tríðinu, Kristjáni Ragnarssyni formanni Landsambands íslenskra útvegsmanna hefði tekist að sann- færa menn um að sjómenn væru með fráleitar kröfur. Atkvæði fundarmanna hurfu ofan í kassana og þegar talið verð- ur upp úr þeim í dag kemur í ljós hvort þær raddir sem andmæltu samningunum eiga sér hljóm- grunn. Guðmundur Hallvarðsson kvaðst vongóður um að samning- urinn hlyti meirihluta atkvæða. „Ég held að hinn þögli meirihluti hafi sagt já,“ sagði hann eftir fundinn. BS Komum ekki aftur suður til að semja - segir Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða „Þetta er búið að vera langt og strangt og menn hafa ekki uppskorið í samræmi við þann tíma, sem farið hefur í þessar viðræður. Við settum okkur það að ná allri kostnaðarhlutdeild- inni, það er að segja 80% til skipta. Utvegsmenn buðu mjög snemma 73% og allur tíminn hefur farið í karp um þetta. Ég vil meina að við getum ekki verið sérstaklega ánægðir fyrir hönd sjómanna fyrr en við höf- um alla kostnaðarhlutdeildina til skipta," sagði Pétur Sigurðs- son, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, í samtali við Morg- unblaðið um sjómannasamning- ana. Pétur sagði að með samningun- um væri tekin ákveðin áhætta, þar sem báðir aðilar féllust á að kostnaðarhlutdeildin væri tengd olíuverðinu, þannig að ef olíuverð hækkaði, lækkaði skiptahlutfallið til sjómanna, en ef olíuvrtð lækk- aði gætu menn ef til vill með mikilli bjartsýni átt von á því að ná meginhlutanum af því sem þeir hefðu sett sér. Pétur sagði að í þessum samn- ingum hefði náðst árangur hvað varðaði ýmis smærri atriði. „Menn hafa verið að glíma við sum þess- ara atriða í fjölda mörg ár og ekki tekist að ná samkomulagi. Það gerðist nú og ef til vill var það vegna þess að fallið var frá fyllstu kröfu hvaða varðaði kostn- aðarhlutdeildina. Þarna er einkum um að ræða ýmis samræmingar- atriði milli þessara fjögurra hópa, Farmanna- og fiskimannasam- bandsins, Sjómannasambandsins, skipstjóra- og stýrimannafélags- ins Bylgjunnar og Alþýðusam- bands Vestfjarða,“ sagði Pétur. „Okkur finnst þessi tími hafa verið dálítið lærdómsríkur. Við neyddumst til þess að koma hing- að til samninga, vegna þess að þarna var um sameiginlegt stór- mál að ræða, þar sem kostnaðar- hlutdeildin er. Við höfum kynnst hér félögum okkar víðs vegar að af landinu og átt mjög gott sam- starf við þá. Að því leyti til hefur þessi tími verið ánægjulegur, þó þetta hafi verið strembið. Hins vegar erum við aldrei ákveðnari en nú, eftir þessa samninga, að koma ekki suður til þess að semja,“ sagði Pétur Sigurðsson að lokum. Ekki ánægður með samningana - segir Gísli Skarphéðinsson, formaður skipsljóra- og stýri- mannafélagsins Bylgjunnar á Vestfjörðum GÍSLI Skarphéðinsson, form- aður skipstjóra og stýrimanna- félagsins Bylgjunnar, kvaðst ekki ánægður með þessa samn- inga. Einkum kvaðst hann óánægður með ákvæði í samn- ingunum um þáttöku sjómanna í kostnaði við útflutning fisks í gámum, en slík ákvæði eru ekki í fyrri samningum. „Þetta atriði var það erfiðasta fyrir okkur fyrir vestan að kyngja. Við fórum einnig mjög illa út úr fiskverðsákvörðuninni um ára- mótin, þar sem stærðarflokkun- inni var breytt og við fáum nánast enga hækkun út úr sölu fisks inn- anlands. Það bætist svo við að við sjáum fram á kjararýrnun út úr gámasölunum, sem við höfum byggt mikið á. Kostnaðarhlut- deildina fáum við að vísu nokkuð til baka, en hvaða hana snertir er olíuverðið þar óvissuþáttur,“ sagði Gísli. — Gátuð þið ekki komist lengra í þessum samningum? „Hvað það snertir er alvarlegur hlutur á ferðinni. Við vorum að gera þessa samninga nú í nótt nánast undir hervaldi. Við erum þvingaðir til samninga. Það er kallað saman þing í fljótfærni og það hvílir yfir manni sú hótun, að ef ekki semjist, verði haldið áfram á sömu braut. Ég veit ekki um neina stétt, sem hefur lent í þeirri aðstöðu, að biðstaða væri í þinginu á meðan það væri verið að gera kjarasamninga. Það er siðferðilega skylda okkar að útkljá samninga; allt annað er ábyrgðar- leysi og þess vegna lagði ég mig fram um að ná samningum. Það er ekki hægt að láta ríkisvaldið á hveijum tíma vera með fingurna í þessu. Þetta er ekkert eins- dæmi, það sama hefur verið upp á teningnum hjá nánast öllum ríkisstjómum," sagði Gísli. Gísli sagðist vonast til þess að samningarnir næðu fram að ganga í félögunum. Stærsti hlut- inn í þessum samningum væri bundin lagasetningu og hann sæi ekki hver staðan yrði ef sumir aðilar felldu en aðrir ekki. „Ég skoða það þannig að ekki hafi verið hægt að komast lengra við þessar aðstæður. Við skrifuðum undir samning til stutts tíma, sem er uppsegjanlegur frá 1. nóvem- ber og laus frá áramótum og þetta gerði ég eingöngu vegna óviss- unnar hvað varðaði olíuna. Þetta er alveg nýtt kerfi fyrir okkur og hefur ekki verið við lýði frá því hlutaskiptakerfið var aflagt. Samningarnir eru þó ekki alfarið neikvæðir. Helsta jákvæða atriðið er hvað snertir verkfallsboðun og þar fáum við rétt til jafns við aðrar stéttir. Þannig leggja menn niður vinnu þegar verkfall er boð að, en ekki einhvern tíma þegar einhveijum þóknast," sagði Gísli „Það skýrist ekki fyrr en í vor, hvað við höfum í raun og veru verið að semja um, því það ríkir svo mikil óvissa varðandi mörg atriði. Ég vona að samningurinn verði til góðs og við getum geng- ið í gegnum hann án stóráfalla, sagði Gísli Skarphéðinsson enn fremur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.