Morgunblaðið - 16.01.1987, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
Bandaríkin:
Ný kafbátaeldflaug
send í tilraunaflug
Frosthörkurnar komu ekki í veg fyrir að þessi breski veiðimaður gæti stundað áhugamál sitt.
200 manns hafa látið lífið
vegna kuldanna í Evrópu
AP, Kanaveralhöföa, Flórída.
BANDARÍSKI flotinn sendi nýja
eldflaug fyrir kafbáta, Trident-
II flaugina, í fyrsta tilraunaflug
í gær. Tilraunin heppnaðist vel.
Er þetta öflugasta eldflaug flot-
ans. Talsmenn varnarmálaráðu-
neytisins hafa sagt, að flaugin
sé svo marksækin og aflmikil,
að með henni sé unnt að eyði-
leggja styrkta skotpalla fyrir
eldflaugar og stjórnstöðvar neð-
anjarðar.
Tilraunin í gær er hin fyrsta af 20,
sem ráðgerðar eru frá skotpalli á
landi. Er ætlunin, að flaug verði
skotið á loft á 40 daga fresti. Síðan
verður 10 tilraunaflaugum skotið á
loft úr kafbáti, áður en eldflaugin
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR lækkaði
enn í gær gagnvart helztu gjald-
miðlum heims. Sðdegis í gær
kostaði brezka pundið 1,5067
doliara í London (1,4985), en
annars var gengi dollarans þann-
ig, að fyrir hann fengust 1,8345
vestur-þýzk mörk (1,8400),
1,5345 svissneskir frankar
(1,5562), 6,1150 franskir frankar
(6,1775), 2,0670 hollenzk gyllini
(2,0775), 1.309,50 ítalskar lírur
(1.316,75), 1,3616 kanadískir
dollarar (1,3663) og 152,55 jen
(153,23).
Verð á gulli lækkaði og var
415 dollara únsan (417,50).
verður sett um borð í kafbáta og
tekin í notkun á árinu 1989.
Trident-II flaugin er langdræg
eldflaug, sem nær til skotmarka í
allt að 11.100 km fjarlægð. Hún
er miklu marksæknari en fyrirrenn-
arar hennar Polaris, Poseidon
(dregur 4.600 km) og Trident-I
(dregur 7.400 km). Segja talsmenn
flotans, að nýju flauginni megi miða
jafn nákvæmlega á skotmörk og
eldflaugum á skotpöllum á landi,
jafnvel þótt hún sé send af stað frá
kafbáti, sem er á ferð neðansjávar.
Þegar tilraunin var gerð í gær,
söfnuðust 75 andstæðingar kjam-
orkuvopna saman í nágrenni við
skotpallinn. Þeir, sem eru á móti
smíði Trident-II flaugarinnar,
segja, að hún breyti kafbáta-eld-
flaugum Bandaríkjamanna í „fyrsta
höggs vopn", það er þær verði svo
marksæknar, að unnt sé að granda
mikilvægum stjómstöðvum og her-
stöðvum andstæðingsins með þeim.
Hingað til hefur verið litið á eld-
flaugar um borð í kafbátum sem
endurgjaldsvopn, þ.e. þær yrðu not-
aðar til að endurgjalda áras og þá
yrðu iðnaðarhéruð og borgir í sigti.
Trident-II eldflaugin er 13 metra
löng og vegur alls um 65 tonn.
Hver flaug getur flutt 10 kjarna-
odda, sem unnt er að senda til jafn
margra skotmarka. í Trident-I em
8 kjarnaoddar. í hveijum Trident-
kafbáti eru 24 eldflaugar. Opinber
gögn segja, að hver kjamaoddur
nýju flaugarinnar hafí 475 kíló-
tonna afl, þ.e. 38 sinnum meira afl
en sprengjan, sem varpað var á
Hiroshima í lok síðari heimsstyij-
aldarinnar.
London, Berlín og víðar, AP, Reuter.
200 MANNS hafa nú látið lífið
sökum kuldanna sem ríkja á
meginlandi Evrópu. Veðurfræð-
ingar sjá þess engin merki að
frostinu taki að linna.
í Tékkóslóvakíu hafa úlfar sést
á götum bæja og hafa þeir lagst á
nautgripi og aðra ferfætlinga.
Alls hafa 108 menn týnt lífi sök-
um kuldanna í Sovétríkjunum og
Póllandi. Sovéskir skriðdrekar í
Ungverjalandi björguðu í gær
nokkrum Austurríkismönnum og
Þjóðveijum, sem orðið höfðu veður-
tepptir skammt frá Búdapest.
Fólkið sat fast í bílum sínum í
tveggja metra djúpum snjóskafli.
20 stiga frost var á þessum slóðum
og vindhraðinn rúmir 100 kílómetr-
ar á klukkustund.
Á Bretlandseyjum létust tvö
gamalmenni í gær og hafa nú 27
manns látið Iífíð þar síðustu fjóra
daga. í gær neyddust Bretar til að
kaupa raforku frá Frakklandi og
samgöngur gengu víða úr skorðum
sökum snjóa. Bankar í miðborg
London lokuðu snemma í gær þar
sem fjöldi starfsmanna komst ekki
til vinnu.
Mitterrand Frakklandsforseti
skipaði hermönnum í gær að ryðja
vegi auk þess sem matvælum var
dreift til húsnæðisleysingja. Kirkjur
og brautarstöðvar voru í gær opnar
húsnæðisleysingjum í París. Þrír
menn fundust frosnir í hel í gær
og alls hafa 14 Frakkar látið lífíð
frá því kuldakastið hófst.
Vestrænir fréttamenn í Búkar-
est, höfuðborg Rúmeníu, sögðu í
gær að stjómvöld hefðu gripið til
orkuskömmtunar og fengju borg-
arbúar að hita heimili sín í tvær
klukkustundir á hverri nóttu. Ráða-
menn í Ungveijalandi gripu til sams
konar ráðstafana í gær. Einn mað-
ur fraus í hel í Ungveijalandi í gær
og hafði hann sofnað á svölum
heimilis síns í 29 stiga frosti. í
Austurríki þurftu 28 lúðrasveitar-
menn á aðhlynningu lækna að halda
eftir að þeir höfðu leikið lög til
heiðurs nýjum sendiherrum frá
Malí og Súdan, sem komu til Vínar
í gær í nístingsgaddi.
Danskir ísbijótar þurftu í gær
að aðstoða skip, sem höfðu lokast
inni. Feijusamgöngur féllu víða nið-
ur og ekki var siglt milli Svíþjóðar
og Danmerkur.
Þrír menn létu lífíð á Kanaríeyj-
um þegar flóðalda skolaði þeim á
haf út. Útigangsmaður fannst fros-
inn í hel í Barcelona í gær. 19 stiga
hiti var á Tenerife í gær.
Útvarpið í Róm skýrði frá því í
gær að lýst hefði verið yfir neyðar-
ástandi í Lazio á Ítalíu. Flóðöldur
hafa valdið miklum skemmdum á
mannvirkjum og var vindhraðinn
um 100 ídlómetrar á klukkustund
á þeim slóðum.
Veðurfræðingar spá áframhald-
andi kuldum og snjókomu á
meginlandinu fram yfir helgi.
Engar aug-
lýsingar
hjá BBC
London, AP.
BRESKA stjórnin hefur ákveðið
að hafna því að breska ríkisútvarp-
ið BBC sýni auglýsingar i sjón-
varpi.
Douglas Hurd innanríkisráðherra
sagði að stjómin hefði tekið góðar
og gildar tillögur nefndar, sem hún
skipaði. Nefndin lagði til að BBC
yrði áfram rekið með fé, sem eigend-
ur sjónvarpstækja greiddu árlega.
Áskriftargjöld eru nú um 4.000
kr. fyrir eigendur litsjónvarpstækja
og um 1.000 kr. fyrir svart hvítt sjón-
varpstæki. Hurd sagði að iðgjöld
myndu hækka í samræmi við verð-
bólgu frá og með 1. apríl 1988.
Stjóm BBC hefur ávallt verið
andvíg auglýsingum og fagnaði
ákvörðun stjómarinnar í gær.
Fúlga fyr-
ir tindáta
London, AP.
BANDARÍSKUR leikfangasafn-
ari greiddi um 600.000 isl. kr.
fyrir öskju með 280 tindátum á
uppboði i London.
„Þessir tindátar voru mjög dýrir
á sínum tíma og kostaði askjan þá
90 shillinga. Nú eru þetta án efa
dýrustu tindátar í heimi," sagði
Peter Johnson, talsmaður uppboðs-
haldarans.
Tindátamir voru framleiddir í
London árið 1905.
Eldsvoði í sovézku ræðismannsskrifstofunni í Montreal:
Eyðilögðu skjöl og neituðu
brunaliðsmönnum um aðgang
- á meðan eldurinn logaði
Montreal, AP.
MIKILL eldur kom upp í fyrradag í ræðismannsskrifstofu Sov-
étrikjanna í Montreal í Kanada. Ekki er vitað, hvað olli brunan-
um. Þegar brunaliðsmenn komu á vettvang, neituðu sovézku
starfsmennirnir að hleypa þeim inn í heilan stundarfjórðung, á
meðan þeir voru að brenna alls konar skjöl á skrifstofunni.
Áður en brunaliðsmenn komu
á vettvang, reyndu starfsmenn
ræðuismannsskrifstofunnar fyrst
að slökkva eldinn með slökkvi-
tækjum og með því að sækja
snjó í vatnsfötum til að bera á
eldinn. Enginn slasaðist í brunan-
um, en miklar skemmdir urðu á
ræðismannsskrifstofunni, því að
ekkert varð við eldinn ráðið.
Brugðu brunaliðsmenn á það ráð
að láta fólk fara úr nærliggjandi
byggingum og lokuðu síðan að-
liggjandi götum, en eldurinn
geisaði látlaust í þtjar klukku-
stundir.
Bineault, yfírmaður brunaliðs-
ins, sagði að margir sendiráðs-
menn hefðu verið í óða önn að
eyðileggja skjöl, þegar honum og
mönnum hans tókst loksins að
komast inn í húsið og hefðu þeir
neitað að fara.
Noel Huard, 26 ára gamall
verkamaður, sem var sjónarvott-
ur að brunanum, skýrði frétta-
mönnum svo frá: „Eg sá reyk
koma út úr glugga á annarri
hæð. Síðan tóku þeir, sem voru
inni í ræðismannsskrifstofunni,
að hlaupa út og inn með fullar
fötur af snjó til þess að slökkva
eldinn."
Igor Lobanov, talsmaður
sovézka sendiráðsins í Kanada,
varði þá ákvörðun að koma skjöl-
um undan, áður en brunaliðs-
mönnum yrði hleypt inn til þess
að beijast við eldinn og sagði,
að þeir hefðu eftir það fengið að
komast að eldinum.
Eldsvoði eyðilagði einnig
sovézka sendiráðið í Ottawa 1956
og var brunaliðsmönnum þá ekki
heldur hlaypt strax inn. Báru
starfsmenn sovézka sendiráðsins
fyrir sig friðhelgi sendistarfs-
manna og neituðu brunaliðs-
mönnum að fá að fara inn í
dulmálsherbergið. Þegar eldur-
inn breiddist út, tóku sendiráðs-
starfsmennnnimir að bera út
skjöl þaðan og fylltu tvo bíla með
þeim og tóku síðan brut útvarps-
senditæki. Alls geisaði eldurinn
í 6 klukkutíma með þeim afleið-
ingum, að byggingin eyðilagðist
í brunanum, svo að byggja varð
nýtt sendiráð. Voru upptök elds-
ins rakin til skammhlaups í
rafmagni.
Eftir þetta báru yfirmenn
brunavama í Ottawa fram mót-
mæli gegn atferli Sovétmann-
anna með þeim rökum, að þeir
hefðu stefnt í voða nærliggjandi
byggingum.
Eldslogana leggur upp af þakinu og þykkir reykjarbólstrar
stíga upp frá gluggunum í sovézka ræðismannsskrifstofunni í
Montreal á miðvikudag. Byggingin eyðilagðist nær alveg í brunan-