Morgunblaðið - 16.01.1987, Síða 30

Morgunblaðið - 16.01.1987, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 Biblían og Sunnlenzkar byggðir í frásögn Morgunblaðsins um nýbyggingu Fjölbrautaskóla Suðurlands í blaðinu fimmtu- daginn 15. janúar urðu þau mistök að mynd og texti áttu ekki saman. Myndin, sem hér fylgir, var tekin, þegar séra Sigurður Sigurðarson afhenti Þór Vigfússyni, skólameist- ara, Biblíu til skólans. Myndin sem birtist í gær með þeim texta, var hins vegar tekin, þegar Stefán Jasonarson færði skólanum að gjöf öll bindi Sunnlenskra byggða sem Búnaðarsambandið hefur gefið út. Beðist er velvirðing- ar á þessum mistökum. GENGIS- SKRANING Nr.9 - 15. janúar 1987 Kr. Kr. ToU- Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi Dollarí 40,000 40,120 40,580 St.pund 60,160 60,340 59,145 Kan.dollari 29,363 29,451 29,400 Dönskkr. 5,7492 5,7664 5,4561 Norsk kr. 5,6279 5,6447 5,4364 Sænskkr. 6,0962 6,1145 5,9280 Fi.mark 8,7184 8,7446 8,3860 Fr.franki 6,5386 6,5582 6,2648 Belg. franki 1,0561 1,0593 0,9917 Sv.franki 26,0374 26,1155 24,7326 Holl. gyllini 19,3752 19,4333 18,2772 V-þ.mark 21,8400 21,9055 20,6672 ít. líra 0,03070 0,03079 0,02976 Austurr. sch. 3,0888 3,0981 2,9416 Port escudo 0,2772 0,2780 0,2742 Sp. peseti 0,3113 0,3122 0,3052 Jap.yen 0,26204 0,26282 0,25424 Irsktpund 57,540 57,713 56,123 SDR (Sérst.) 49,9345 50,0843 49,2392 ECU, Evrópum. 44,9060 45,0407 42,9296 HRINGDU og fáðu áskriftargjöldin skuldfærð á greiðslukorta gmiiði.T-i-ii.mTiTTirt-mmnw a E SÍMINN ER 691140 691141 Hvað segja þeir um samningana „Mjög ánægður með að þessi niður- staða skuli fengin“ - segir Þorsteinn Pálsson ÞORSTEINN Pálsson fjármála- nieð að þessi niðurstaða skuli fagnar því að það skuli hafa ráðherra og formaður Sjálfstæð- fengin i kjaradeilu sjómanna og gerst eins skjótt og raun ber isflokksins kveðst mjög ánægður útvegsmanna, auk þess sem hann vitni. „Sýnir hversu fáránlegt stöðu- mat ríkisstj órnarinnar var“ - segir Jón Baldvin Hannibalsson JÓN Baldvin Hannibalsson form- aður Alþýðuflokksins segir að sú staðreynd að það tók ekki nema tæpan sólarhring að ná samning- um í sjómannadeilunni, sýni hversu fáránlegt stöðumat ríkis- stjórnarinnar hafi verið. „Sú staðreynd að það tók ekki nema tæpan sólarhring að lúka þessum samningum, sýnir hversu fáránlegt stöðumat ríkisstjórnar- innar var,“ sagði Jón Baldvin í samtali við Morgunblaðið. „Það staðfestir það sem við sögðum, að samningarnir hafi verið á sæmileg- um vegi og að tiltölulega lítið bærí á milli. Auk þess sem það stað- festir það sem báðir deiluaðilar sögðu, að ekki hafði verið reynt til þrautar," sagði Jón Baldvin. Jón Baldvin sagði jafnframt: „Niðurstaðan er sú, að frávísunar- tillagan okkar, sem studd var þessum rökum var á rökum reist og réttmæt. Eg tel að við höfum unnið hálfan sigur, þegar okkur „Hugmyndir um laga- setningu frumhlaup“ - segir Svavar Gestsson SVAVAR Gestsson segir að það sé ljóst, af þeim samningum sem Svavar Gestsson tókust með sjómönnum og út- vegsmönnum í fyrrinótt, að hugmyndir um lagasetningu í deilunni voru frumhlaup. „Það er í samræmi við það sem við héldum fram, að þessar hug- myndir um lagasetningu voru frumhlaup," sagði Svavar í samtali við Morgunblaðið. Hann kvaðst hafa haldið því fram í ræðu sinni á Alþingi að hægt væri að semja en pólitísk ákvörðun ríkisstjómar- innar á sunnudagskvöld, að taka málið úr höndum sáttasemjara og færa það inn í þingið hafi verið hrapaleg mistök. „Veruleikinn hefur dæmt í mál- inu, afgerandi, þannig að sú stefna sem ríkisstjórnin tók, hún er hrakin á flótta af veruleikanum," sagði Svavar. tókst að knýja ríkisstjórnina til und- anhalds, þ.e.a.s. að fallast á að frysta málið í þinginu, þótt við hefð- um kosið að frumvarpið yrði dregið til baka. Rás atburðanna hefur stað- fest þetta." Jón Baldvin sagði að með hliðsjón af góðærinu, sem að verulegu leyti mætti rekja til sjávarútvegsins, með vísan til þeirra umskipta sem orðið hefðu hvað varðar hag útgerðar, frá því að sjómenn tóku á sig aukna kostnaðarhlutdeild vegna olíuverðs- hækkana og með hliðsjón af tveggja milljarða lækkun útgjalda þjóðar- búsins vegna olíuverðslækkunar, þá teldi hann þetta vera réttmæta samninga og skynsamlega. „Eftir þessa samninga er útgerð enn rekin með myndarlegum hagn- aði, svo sem vera ber,“ sagði Jón Baldvin, „sem meta má einhvers staðar á bilinu 500 til 800 milljónir króna.“ Jón Baldvin Hannibalsson „Ákaf lega ánægður með að þessir samningar tókust“ segir Steingrímur Hermannsson STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra segist ákaflega ángæur með að samningar tók- ust í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna í fyrrinótt, jafn- framt því sem hann kveðst sannfærður um að ríkisstjórnin hafi haldið rétt á málum, í þess- um samningum. „Eg er ákaflega ánægður með að þessir samningar tókust og ég er sannfærður um það, að af hálfu ríkisstjómarinnar var haldið mjög rétt á þessum samningum," sagði Steingrímur í samtali við Morgun- blaðið. Forsætisráðherra kvaðst telja það hafa verið óumdeilanlegt og rétt mat hjá ráðherrunum Halld- óri Asgrímssyni og Matthíasi Bjamasyni að samningaviðræðurn- ar voru þá kon. iar í algjört strand, eins og bókað hefði verið hjá ríkis- sáttasemjara. „Ég held að sú ákvörðun að kalla saman þing og láta þingið fjalla um þetta mál, hafi komið skrið á málin á nýjan leik,“ sagði Steingrímur, „því það er staðreynd að eftir fund okkar með samningsaðilum á mánudag og sérstaklega á þriðju- dagsmorgun, hér á skrifstofu minni, þá komst hreyfing á viðræðumar á nýjan leik. Ég fékk svo upplýsingar um það seinnipart þriðjudags að aðilar voru komnir í viðræður af fullri alvöru og sagði því í ræðu minni á þingi að gefa ætti svigrúm til þess að aðilar næðu fijálsum samningum, þó að allir tækju frem- ur eftir upphlaupi Þorsteins. Það er enginn vafí á því í mínum huga, að framlagning frumvarpsins kom hlutunum af stað á nýjan leik, og ég fagna því mjög að það hafa náðst þarna fijálsir samningar og vona eindregið að slíkt takist einnig á kaupskipunum.“ Steingrímur Hermannsson Þorsteinn Pálsson „Ég er auðvitað mjög ánægður með að þessi niðurstaða skuli feng- in og að það skuli hafa gerst svona skjótt,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið. „Um leið og ég frétti af ákvörðun ríkisstjórnarinnar á mánudagsmorguninn, vildi ég að það yrði reynt að snúa þessu á annan veg og utanríkisráðherra eft- ir þau samtöl lagði til að deiluaðilar yrðu boðaðir til fundar strax á þriðjudagsmorgni og reynt að koma viðræðunum af stað á nýjan leik. Síðan var sú ákvörðun tekin, eftir að ég kom heim, að gefa þeim með ótvíræðum hætti svigrúm til þess að reyna að ná samningum. Niður- staðan er nú fengin á mjög skömmum tíma, og því hlýt ég að fagna. Þetta sýnir að það mat var rétt að láta reyna á samningsleið- ina.“ Kristín Halldórsdóttir „Fagna því að þeir náðu samkomu- lagi án afskipta“ - segirKristín Halldórsdóttir þingmaður Kvennalista KRISTÍN Halldórsdóttir, þing- maður Samtaka um kvennalista segist fagiia því sérstaklega að samningsaðilar i sjómannadeil- unni skuli hafa fengið frið til þess að ná samkomulagi, án af- skipta framkvæmdavalds eða Alþingis. „Aðilar virðast hafa mæst á miðri leið, “ sagði Kristín, „en það er það sem yfirleitt gerist, þegar menn setjast að samningum, og fer sjálf- sagt best á því.“ Kristín sagðist ekki telja að sjómenn hefðu fengið til baka allt það sem þeir tóku á sig, þegar olíuverðið hækkaði hvað mest, en þá hefðu þeir tekið á sig töluverða skerðingu á skiptaprósen- tunni. „Að því leytinu hafa þeir ekki náð nógu góðum samningum, en hafa væntanlega metið það þannig, að þeir kæmust ekki lengra að þessu sinni,“ sagði Kristín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.