Morgunblaðið - 16.01.1987, Síða 31

Morgunblaðið - 16.01.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 31 AKUREYRI Hvað segja þau um brottvikninguna? Þ6ra Steindórsdóttir. Þóra Steindórsdóttir, Akureyri: Harðar aðgerðir „Þetta er ferlegt. Það er það eina sem ég get sagt“ sagði Þóra Stein- dórsdóttir á Akureyri. Þóra sagðist ekki geta tjáð sig um málið af neinni þekkingu, þar sem hún hefði aðeins fréttir úr fjölmiðlum, en af þeim teldi hún að hér hefðu átt sér stað mjög harðar aðgerðir sem kæmu Akureyringum illa. Benedikt Sigfússon Svolítið hastarlegt - segir Benedikt Sig- fússon, Akureyri. „MÉR sýnist í fljótu bragði að þetta sé svolítið hastarlegt.án þess að ég Kennsla fellur niður víðast hvar þekki nú vel til“, sagði Benedikt Sigfússon ellilífeyrisþegi, er rætt var við hann í göngugötunni í gær. Benedikt sagðist aðfluttur til Akur- eyrar, hann hefði verið bóndi í Eyja- fírði. Aðspurður um hvað honum fyndist hastarlegt í málinu svaraði hann, að það hefði líklega mátt standa öðru vísi að þessu. „Það voru nú búin að fara einhver skeyti á milli þeirra, ráðherrans og Sturlu, þannig að það hefði átt að vera ljósara í hvað stefndi,“ sagði hann að lokum. Rétt, fyrst hann hef- ur brotið af sér - segir Valur Jóhanns- son úr Reykjavík „Mér finnst alveg rétt að reka hann, fyrst hann hefur brotið af sér“, sagði Valur Jóhannsson úr Reykjavík, er hann var tekinn tali í göngugötunni á Akureyri í gær, en Valur starfar hjá Sjóvá í Reykjavík. - Telur þú að Sturla hafi brotið af sér? Ég þekki þetta nú aðeins af því sem ég hef heyrt í fjölmiðlum, en verðum við ekki að gera ráð fyrir því að hann hafi brotið af sér. Ráð- herrann færi varla að reka hann með þessum hætti nema að hann hafi brotið af sér. Og ef hann hefur brotið af sér þá finnst mér sjálfsagt að reka hann. Valur Jóhannsson úr Reykjavík. KENNSLA liggur víðast niðri í grunnskólum Norðurlandskjör- dæmis eystraí dag, en með því eru kennarar og skólastjórnend- ur að mótmæla uppsögn fræðslu- stjóra, Sturlu Kristjánssonar. í gær komu aðstoðarmaður menntamálaráðherra, Reynir Kristinsson, og Runólfur Birgir Leifsson starfsmaður ráðuneyt- isins til fundar með starfsmönn- um fræðsluskrifstofunnar. Engin niðurstaða fékkst á fund- inum, enda verður honum framhaldið árdegis. Valgeir Gestsson formaður Kennarasam- bands íslands kemur til Akur- eyrar árdegis og situr fuhdi með kennurum í skólum til að kynna sér málsatvik. Kennarar funduðu víða í grunn- skólum í gærmorgun og var ákveðið í þeim velflestum kjördæmisins að fara að áskorun fundar skólastjóm- enda og stjómar Bandalags kennara frá í fyrrakvöld um að fella niður kennslu í dag og ráða á með- an ráðum sínum. Fulltrúar menntamálaráðuneyt- isins, Reynir Kristinsson aðstoðar- maður menntamálaráðherra og Runólfur Birgir Leifsson komu fljúgandi til Akureyrar um miðjan dag í gær og sátu fund með starfs- fólki fræðsluskrifstofunnar. Fund- inum lauk á sjöunda tímanum og sögðu starfsmenn skrifstofunnar að ekkert hefði gerst á fundinum; að þeir hefðu ekki fengið eitt ein- asta svar við spumingum sem þeir hefðu sent ráðherra, og var heldur þungt hljóðið í fólki. Einn starfs- mannanna sagði, að Reynir Krist- insson hefði lýst ástandinu sem hjónabandi þar sem samkomulagið væri ekki í lagi. Annar skaut því þá að, að hann myndi þegar sækja um skilað, ef hann sæti í slíku hjónabandi sem Reynir hefði lýst. Meðal þeirra sem sátu fundinn var Trausti Þorsteinsson frá Dalvík, Stórkost- 1 eg óhæfa „Mér finnst þetta alveg stórkostleg óhæfa. Ég vona bara að Sturla verði settur aftur inn i embættið og að hann verði beðinn afsökunar á þessu“, sagði Jódís Kr. Jósefsdottir starfsmaður á skrifstofu Morgun- blaðsins á Akureyri. Jódís sagðist ekki þekkja persónu- lega inn á starfsemi fræðsluskrifstof- unnar, en að hún vissi að Sturla væri mjög vinsæll af samstarfsfólki sínu og eins bæri öllum saman um, að hann hefði staðið sig vel sem embætt- ismaður. Hún sagði ennfremur: „Mér finnst mjög alvarlegt að yfirmaður eins og ráðherra geti rekið hæfan starfsmann, eingöngu vegna þess að hann fer í taugamar á honum. Ég veit að skólamenn koma til með að standa saman, svo Sturla verði endur- ráðinn, og ég vona að hvergi verði hægt að reka fleyg þar á milli." Jódís var í lokin spurð hvað hún sæi helst til ráða: „Ég vil halda borgara- fundi, hvcrfafundi og hefja undir- skriftasafnanir. Ég vona bara að hann verði ráðinn aftur. Hann er vitur og góðgjam maður." Jódís Kr. Jósefsdóttir. Jódís Kr. Jósefsdóttir starfsmaður Morgun- blaðsins á Akureyri: en hann sat í gær í stóli fræðslu- stjóra fýrir hönd fræðsluráðs umdæmisins. Eins og komið hefur fram í fréttum hefur fræðsluráð tilkynnt ráðuneytinu, að það ætli sjálft að sinna stjómun fræðslu-^. skrifstofunnar þar til fræðslustjóri hefur verið ráðinn. Trausti sagði í lok fundarins í gær, að ekkert hefði gerst á honum og því væri ekkert að segja af honum. Reynir Kristinsson aðstoðarmað- ur menntamálaráðherra sagði eftir fundinn, að þeir hefðu notað hann til þess að fara yfir málin, þannig að fortíðin hefðu aðallega verið til umræðu. Þeir myndu síðan fjalla um framtíðina í dag, en fundurinn hefst á ný kl. 9 árdegis. Sjónvarp Akureyri DAGSKRÁ Sjónvarps Akureyri i kvöld, föstudagskvöld, er svo- hljóðandi Kl. 20.30 Barnaefni. Teikni- myndir um Glæframúsina og Fuðmbúa sýndar. Kl. 21.10 Myndrokk. Tónlistar- þáttur með myndböndum. Kl. 21.50 Einfarinn. Framhalds- myndaflokkur um Lomax, hetjuna miklu, sem oftast. er nær dauða en lífi vegna ýmissa, sem vilja klekkja á honum. Kl. Kl. 22.50 Ástarhreiðrið, gam- anþáttur. Kl. 23.15 Stone Pillow. Bandarísk stórmynd með Lucy Ball í aðalhlutverki. Hér leikur hún gamla flækingskonu, sem flækist í ýmis mál er eiga sér stað í undir- heimum stórborga í Bandaríkjun- um. - Endursýning. Kl. 00.50 Dagskrárlok. Hvað segja þeir um samningana Segjum áreiðanlega nei - ef taka á olíu- verðið inn í, segir Pétur Sigurðsson netamaður á Heimaey „MÉR lýst ekki á, ef taka á olíu- verðið inn í þetta. Þá segjum við áreiðanlega nei. Það yrði þá meiriháttar mál að reikna út launin, ef fara á að taka olíuverð- ið einnig inn í þau. Þetta er nógu flókið nú þegar“, sagði Pétur Sigurðsson netamaður á Heima- ey frá Vestmannaeyjum. Pétur er Akureyringur og hefur verið í tvo mánuði á Heimaeynni en hún gerir út héðan á rækju. Heimaeyin lá við Torfunes- bryggju og var áhöfnin að vinna við að gera klárt snemma í gær- morgun, reiknuðu jafnvel með að geta farið út í kvöld, ef samningarn- ir yrðu samþykktir. Pétur var spurður hvernig honum litist á samningana, eins og fréttst hafði af þeim norður í gærmorgun. Hann kvaðst engan veginn geta sætt sig við að olíukostnaður yrði tekinn inn í þá, einnig væri hann mótfallinn því að skiptin yrðu við 75 til 76$ mörkin. Sjómenn ættu að fá fulla hlutdeild í aflaverðmætinu eins og það væri. Þá kvaðst Pétur vera orðinn þreyttur á sambandsleysi sjómanna og sagði m.a.: „Það vantar samstöð- una. Ég hefi haldið því fram, að við þyrftum að fá Kristján Ragnars- son í okkar hóp. Hann virðist alltaf geta vælt út samúð. Við erum ætíð farnir að dauðvorkenna þeim og komnir með samvizkubit efir tvo til þijá daga í samningaviðræðum, en hver vorkennir okkur? Auk þess að fá skiptaprósentuna lagfærða sagðist Pétur vilja sjá sjó- menn fá frítt fæði á öllum skipum, en í dag er ekki frítt fæði á bátun- um. Pétur var í lokin spurður, hvað honum fyndist um afskipti Alþingis af samningamálunum. Hann sagði, að stjómmálamenn ættu ekki að koma nálægt þessum málum, reyna ætti til þrautar að semja í milli sjó- manna og útgerðarmanna. Jón Hjaltason matsveinn og varaformaður Sjómannafélags Eyjafjarðar „MENN em geysilega óhressir að binda þetta við olíuna. Það heyri Morgunblaðið/Fríða Proppé. Jón Hjaltason ég alls staðar. Þá teljum við þetta hreinar hótanir sem forsætisráð- lierra, Steingrímur Hermannsson, hafði í frammi í sjónvarpi," sagði Jón Hjaltason matsveinn á Kaldbak og varaformaður Sjómannaféiags Eyjafjarðar, er rætt var við hann á skrifstofu félagsins um hádegið í gær, en þá var hann að fá fyrstu fréttir af innihaldi samninganna. Jón sagðist ekki vilja geta sér til um hvernig atkvæðagreiðslur fæm hér fyrir norðan, en hann væri ugg- andi um að mikill meirihluti Morgunblaðið/Frfða Proppé Pétur Sigurðsson sjómanna væri óánægður vegna „olíuklásúlunnar". Jón var ennfremur mjög óánægð- ur með afskipti stjórnvalda af þessum samningum og sagði: „ Þetta sem Steingrímur Hermanns- son sagði í sjónvarpinu um að kalla þyrfti þing saman á ný, ef ekki semdist, var ekkert annað en hót- un, en ég vonast til að sjómenn láti það ekki hafa nein áhrif á sig, en þetta hljómaði eins og hótum". Jón saðist í lokin alls ekki vera bjartsýnn á að sjómenn greiddu þessum samningum atkvæði sitt. Blaðbera vantar Blaðbera vantar í Innbæ og Víðilund. Upplýsingar í síma 23905. Hafnarstræti 85.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.