Morgunblaðið - 16.01.1987, Page 38

Morgunblaðið - 16.01.1987, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og tengdasonur, HALLGRÍMUR J. S. SYLVERÍUSSON, Nesvegi 45, Reykjavík, lést 5. janúar sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kristfn T. Hallgrfmsdóttir, HallgrfmurS. Hallgrfmsson, Gfsli Hallgrfmsson, Sveinn Hallgrfmsson, Ragnar Hallgrfmsson, Kristján Hallgrfmsson, Gunnar Hallgrfmsson, Helga Hallgrfmsdóttir, Guðrún Hallgrfmsdóttir, Ásgeir Hallgrfmsson, Gísli Sveinsson og barnabörn. Helgi M. Alfreðsson, Hrefna Andrésdóttir, Jóhanna Jóhannsdóttir, Alfreö Hafsteinsson, t Móðir mín, tengdamóöir, amma og langamma, GUÐBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR, Vitateigi 1, Akranesi, andaðist í sjúkrahúsi Akraness 14. janúar. Halldóra Björnsdóttir, Þórður Óskarsson og ömmubörn. ■ Móöir okkar og systir, t RAGNA LÁRA RAGNARSDÓTTIR, Álftamýri 24, andaðist í Landakotsspítala miðvikudaginn 14. janúar. Áslaug Kristjánsdóttir, Ragnar Kristjánsson, Jónina Ragnarsdóttir, Halldóra Ragnarsdóttir, Guðlaug Ragnarsdóttir, Erla S. Ragnarsdóttir, Ólafur Þór Ragnarsson, Sveinn H. Ragnarsson. Jón P. Ragnarsson, t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, LÁRUS KRISTÓFER EYJÓLFSSON, húsgagnasmfðameistari, Lækjartúni v/Vatnsveituveg, lést 15. janúar. Ragna Pótursdóttir, börn, tengdasynir og barnabörn. t Maðurinn minn, BJÖRN J. BLÖNDAL, Laugarholti, lést í Borgarspítalanum 14. janúar. Jórunn Blöndal. t Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar, son, bróður og tengdason, JÓHANNES PÁLSSON, Suðurgötu 16, Sandgerði, sem fórst með mb. Arnari ÍS 125 23. nóvember sl., fer fram frá Hvalsneskirkju laugardaginn 17. janúar kl. 14.00. Anna Margrét Kristjénsdóttir, Páll Jóhannesson, Heiða Fjóla Jóhannesdóttir, Helga Björk Jóhannesdóttir, Páll Jóhannesson, Gestheiður Jónsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Grfmkell Pálsson, Fjóla Gísladóttir. t Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÓHANNESSON frá Siglufirði, Miðvangi 41, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 16. janúar kl. 13.30. Ólaffa Ólafsdóttlr, Hilmir Guðmundsson, Ásrún Á. Ólsen, Gréta Guðmundsdóttir, Höröur Arnþórsson, Bryndfs Guðmundsdóttir, Sverrir Aðalstelnsson, barnabörn og barnabarnabar. i. Minning: Sesselja Guð- mundsdóttir Fædd 8. ágúst 1940 Dáin 9. janúar 1987 Haustið 1966 fluttum við hjónin með böm og buru norður á Húsavík og settumst að í Garðarshólma, gamla faktorshúsinu sem stóð í hjarta bæjarins. Á neðri hæðinni í þessu vinalega húsi sem þó mátti muna fífil sinn fegri, bjuggu ung hjón, nálega jafnaldrar okkar, þau Sesselja Guðmundsdóttir, eða Sella, og Reynald Jónsson ásamt börnum sínum tveimur, Sigríði Ósk og Sig- urði. Sambýli okkar í Garðarshólma stóð um nokkurra ára skeið og þar tengdumst við vináttuböndum sem aldrei hafa rofnað. Á þeim árum vorum við Sella heima og gættum hús og bama eins og þorrinn af húsmæðrum gerði þá. Við áttum margt sameiginlegt og daglegur samgangur gerði það að verkum að við urðum hvor annarri mjög nákomnar. Við sungum saman á kirkjuloftinu, en Sella hafði einkar fallegan sópran. Saman köfuðum við snjóskaflana með litlu drengina okkar í pilsfaldinum og saman fór- um við í búðimar, sem voru aðal- samkomustaðir bæjarbúa að deginum, enda krökkar af kátu af- greiðslufólki. Og saman fórum við á árshátíðimar, ógleymanlegar samkomur, gæddar gleði og hlýju sem skapast af því að allir þekkjast og njóta þess að skemmta sér sam- an. Dagamir liðu fullir af hlátri og kátínu. í vöggugjöf hafði Sella hlot- ið einstakan hæfíleika til að sjá broslegu hliðamar á hlutunum. Við það bættist rík frásagnargáfa sem gerði það að verkum að frásagnir hennar vörpuðu ljóma langt fram á veginn. En Sella hafði fleiri góða eigin- leika til að bera. Hún var ábyrg í orði og gjörðum, það sem hún tók að sér var í öruggum höndum. Heimili sitt annaðist hún óaðfinnan- lega og af eðlislægri smekkvísi. Hún var hreinskiptin og hispurslaus og öll yfirborðsmennska fjarri henni. Þó er mér efst í huga hve traustur vinur og hve raungóð hún var. Ég minnist þess ekki að nokk- um tímann stæði svo illa á hjá henni að hún sparaði tíma og fyrirhöfn til að hjálpa ef í nauðimar rak. Slíkir vinir eru fágætir en hver sem verður þeirra aðnjótandi er ekki einn á ferð. Leiðir okkar skildu að sinni þegar Sella og Reynald fluttu suður með bömin sín sem þá voru orðin þijú, Guðmundur Þór hafði bæst í hóp- inn. Hin síðari ár voru samfundir stijálli, enda við Sella þá báðar orðnar útivinnandi húsmæður. Sella vann um tíma við Kleppsspítala og síðan nokkur ár á bamaheimili. Nú liin síðustu árin starfaði hún ásamt Reynald við fýrirtæki þeirra hjóna. Að öllum þessum störfum gekk hún af þeim áhuga og trúmennsku sem henni var í blóð borin. Þó að samfundir stijáluðust var vináttan söm. Hún var óháð fjar- lægðum í tíma og rúmi. Stundum liðu mánuðir á þess ég hitti Sellu en svo stóð hún inni á eldhúsgólfí hjá mér einn góðan veðurdag og þá var þráðurinn tekinn upp for- málalaust. Og byijað að hlæja. Allt er í heiminum hverfult. Garðars- hólmi stendur ekki lengur í hjarta Húsavíkurbæjar, hann varð að víkja fyrir kröfum tímans og er nú að húsabaki en ber sig með reisn. Og Sella er horfín. Á einu andar- taki er henni svipt í burtu og eftir stöndum við skilningsvana. Hlátur- inn er hljóðnaður. En í hugum okkar sem nutum samvista hennar í stuttu jarðlífí mun hann enduróma þó dag- ar verði að árum. Reynald vini mínum, Ósk, Sig- urði og Guðmundi, Þórhildi móður Sellu og öðrum nánum aðstandend- um votta ég samúð sem orð megna ekki að tjá. Megi sá Guð sem Sella alla tíð trúði á af fölskvalausri ein- lægni veita þeim styrk til að mæta hinu ókomna. „Far þú í friði friður guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt“ (V.Br.) Iðunn Steinsdóttir Sella dáin, farin alveg fyrirvara- laust. Af tómri eigingirni fínnst mér það óþolandi tilhugsun, að geta ekki lyft upp símtólinu, spjallað við hana og fengið uppörfun ef því er að skipta. Alltaf enduðu samtölin á því að við ákváðum að biðja hvor fyrir annarri. Þannig var Sella. Allt- af uppfull af gleði, trú og einlægni og hressileg í viðmóti. Hún var mjög kirkjurækin og söngelsk og t Minningarathöfn um eiginmann minn, fööur okkar, tengdafööur og afa, JÓN EÐVALDSSON, Suðurgötu 28, Sandgerði, sem fórst meö mb. Arnari (S 125 23. nóvember sl., fer fram frá Hvalsneskirkju laugardaginn 17. janúar kl. 14.00. Guðbjörg Ástvaldsdóttir, Grétar Mar Jónsson, Kári Jónsson, Sesselja Aðalsteinsdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Vignir Sigursveinsson og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinar- hug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, ADOLFS SIGURJÓNSSONAR, bifreiðarstjóra, Hrauntúni 13, Vestmannaeyjum. Herdfs Tegeder, Sigurjón H. Adolfsson, Kristín E. Elfasdóttir, Gunnar Adolfsson, Svava Bjarnadóttir, Jón Stelnar Adolfsson, Sæþór Gunnarsson, Adolf Sigurjónsson. naut friðarins og tónlistarinnar í kirkjunni. Hún var búin að segja mér að hún hlakkaði mikið til þess- arar ferðar, sem hún var að leggja upp í með eiginmanni sínum, Reyn- ald Jónssyni. Þetta átti að vera viðskiptaferð og svo ætluðu þau í lokin að heimsækja dóttur sína, Sigríði Ósk, sem býr í Ósló. Hún var elsta bam þeirra, fædd 3. júní 1959, fóstra að mennt, gift Hinriki Hjörleifssyni, húsasmið. Þau eiga einn son, Reynald. Auk þess áttu Sella og Reynald tvo syni, Sigurð, fæddan 16. mars 1966, og Guð- mund Þór, fæddan 14. nóvember 1968, báðir við framhaldsnám. Allt myndarlegt fólk og duglegt. Okkar kynni hófust í Odense, Danmörku, fyrir rúmum 20 árum, þar sem eiginmenn okkar stunduðu nám við sama skóla. Minningamar hrannast upp. Við gerðum alltaf saman laufabrauð fyrir jólin og héldum hátíðlegt gamlárskvöld saman og ýmislegt fleira og þar sem hvorki var sími, sjónvarp né bílar, vom reiðhjólin óspart notuð til að fara á milli í heimsóknir. Þama var töluverður hópur af íslendingum á þessum tíma, sem alltaf heldur sam- bandi ennþá, sk. Odense-hópur. Þá er jafnan glatt á hjalla og ekki átti Sella minnstan þátt í söngnum. Eftir að þau komu heim starfaði Reynald í 5 ár sem bæjartækni- fræðingur á Húsavík og em okkur hjónunum ógleymanlegar móttök- umar, sem við fengum þar, þegar við komum í heimsókn. Sella var góð kona og hjartahlý og minningin um hana mun lifa með okkur.áfram. Bið ég guð að styrkja okkur öll og þá sérstaklega Reynald og börnin og móður hennar og aðra ættingja. Magga Þau sorgartíðindi bámst mér föstudaginn 9. janúar síðastliðinn að mágkona mín, frú Sesselja Guð- mundsdóttir, hefði látist af völdum umferðarslyss þá um morguninn. Óteljandi minningar leita á hugann án allrar rökhyggju, en manni verð- ur svara fátt. Hátíð ljóss og friðar nýliðin. Nýtt ár rétt að hefja göngu sína með fyrirheitum og áformum sem jafnan tengjast slíkum tíma- mótum. Skammdegisskuggamir byijaðir að hörfa undan hækkandi sól. Skuggar sorgar og saknaðar hellast nú yfir án nokkurs fyrir- vara. Slysin gera ekki boð á undan sér, em óumdeilanleg sannindi. Sella, en svo var hún ávallt köll- uð af vinum og ættingjum, var ásamt eiginmanni sínum að leggja upp í viku ferðalag til útlanda og átti meðal annars að nota hluta þessa stutta tíma til að heimsækja dóttur, tengdason og ömmustrákinn litla sem var augasteinn afa og ömmu. Einlæg tilhlökkun hennar fyrir væntanlegu ferðalagi hreif mann til þátttöku í gleði hennar yfír því sem í vændum var. En margt fer á aðra lund en ætlað er. „Enginn ræður sínum næturstað" stendur einhversstaðar. Við lok jarðlífs elskulegrar mágkonu minnar langar mig að minnast hennar nokkmm orðum þótt fátæk- leg verði. Sesselja Guðmundsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 8. ágúst 1940. Foreldrar hennar vom Sigrún Þór- hildur Guðnadóttir og Guðmundur Hróbjartsson frá Landlyst í Vest- mannaeyjum. Ólst hún upp í for- eldrahúsum ásamt sex öðmm systkinum sínum. Fjölskyldulífið var í föstum skorðum og fastmót- að. Samstaða bama og foreldra til fyrirmyndar og eftirtektarverð. Öll unnu þau heilt að sameiginlegri velferð fjölskyldunnar. Guðsótti og góðir siðir ásamt virðingu og heil- brigðri afstöðu til manna og málefna í hávegum höfð. Enda mun mágkona mín ávallt hafa lagt rækt við sína bamatrú og sjálfur hygg ég að hún hafi verið tilbúin til hinstu farar er þar að kæmi. Það veganesti sem hún fékk í foreldrahúsum mun hafa reynst henni vel er hún fór sjálf að takast á við margbreytileik fullorðinsár- anna. Sellu kynntist ég árið 1954, en það var fermingarárið hennar, en sama ár tengdist ég Landlystar- fjölskyldunni. Hún var litla systirin í hópnum, glettin og glaðlynd, full

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.