Morgunblaðið - 16.01.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 16.01.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 39 af æskufjöri. Urðum við fljótt góðir kunningjar og þróaðist sá kunn- ingsskapur með árunum til góðrar og traustrar vináttu. Unglingsárin liðu fyrr en varði og alvara fullorð- insáranna tók við. I Eyjum kynntist hún manni sínum, Reynald Jóns- syni, ættuðum frá Dalvík. Gengu þau í hjónaband í aprílmánuði árið 1959. Samband þeirra var traust og stóðu þau heilshugar saman að öllu sem þau tóku sér fyrir hendur alla tíð. Búskap sinn hófu þau á Dalvík, en dvölin þar varð ekki löng. Fluttu þau hjón til Odense í Dan- mörku, en þæ- lauk eiginmaðurinn tækninámi. Á þeim tíma þurfti mik- inn kjark og dugnað til að leggja út á slíka braut, nær eingöngu með sterkan vilja og bjartsýni eina í farteskinu. Þá sem ávallt síðar var Sella manni sínum hin styrka stoð. Allt gekk þetta að óskum, námsár- in að baki, sigur unninn. Heim komu þau síðan árið 1965 og sett- ust þá að á Húsavík þar sem maður hennar var bæjartæknifræðingur um nokkurra ára bil. Oft minntist Sella áranna í Odense og góðra vina og kunningja sem þau hjónin eign- uðust þar og hélt þessi hópur ávallt uppi góðu sambandi. Frá Húsavík lá leið þeirra um 1970 til Reykjavík- ur og bjuggu þau hér í borg uppfrá því, nú síðast í Sæviðarsundi 23. Sella og Reynald eignuðust þijú böm. Elst er dóttirin Sigríður Osk, fædd árið 1959. Maður hennar er Hinrik Hjörleifsson og eiga þau einn son, Reynald. Næstur er Sigurður, fæddur árið 1966, og yngstur er Guðmundur Þór, fæddur árið 1968. Öll eru þau vel gert myndarfólk. Sella mágkona mín var fríð og glæsileg kona sem vakti hvarvetna athygli með hressilegri og fijáls- legri framkomu sinni. Hún var félagslynd að eðlisfari og átti gott með að umgangast fólk. Hún var hrókur alls fagnaðar á vinafundum, hrífandi og skemmtileg. Kímnigáf- una átti hún í ríkum mæli og skemmtilegur frásagnarhæfíleiki var henni meðfæddur. Gott er að eiga minningamar um heimsóknir hennar og samverustundir. Ávallt mátti maður vænta einhvers skemmtilegs ef hana bar að garði. Manni þótti einatt sjálfsagt að hún færði gleði og kátínu í bæinn, en hugkvæmdist aftur á móti síður að hún gæti kannski líka þurft á upp- örvun að halda frá öðmm. Meðal annars svona var Sella gefandi en ekki þiggjandi, þá ekki síður á öðr- um sviðum. Móður- og húsmóður- hlutvérk sitt rækti hún af alúð og kostgæfni sem og annað sem hún hafði á höndum. Heimili sitt bjó hún sér og fjölskyldu sinni af mikilli smekkvísi og myndarskap. Hún var góð heim að sækja enda var hún og þau hjónin vinamörg. Hjálpsemi hennar og greiðvikni þekktum við vel. Þar þurfti ekki alltaf að biðja, hún vissi vel hvers þurfti með og var jafnan boðin og búin ef hjálpar var þörf. í dag, 16. janúar, á 75 ára af- mælisdegi Þórhildar, móður Sess- elju, fer útför hennar fram frá Áskirkju í Reykjavík. Kæri Reynald, megi allar góðar minningar verða þér, bömum þínum og ástvinum öllum styrkur í sárri sorg. Með þakklátum huga fyrir allar góðar stundir kveð ég og fjöl- skylda mín kæra mágkonu, systur og frænku um leið og við biðjum henni blessunar Guðs í nýjum heim- kynnum. Olgeir Jóhannsson og fjölskylda. I dag er til moldar borin mág- kona mín og vinkona, Sesselja Guðmundsdóttir, eða Sella eins og hún var ævinlega nefnd. Hún fæddist þann 8. ágúst 1940 í Landlyst í Vestmannaeyjum, dótt- ir hjónanna Þórhildar Guðnadóttur og Guðmundar Hróbjartssonar. Guðmundur lést árið 1975 en Þór- hildur lifír dóttur sína. Sella var fimmta í hópi sjö systkina. Er nú stórt skarð höggvið í þennan sam- henta systkinahóp. í apríl 1959 giftist Sella eftirlif- andi eiginmanni sínum, Reynald Jónssynij og eignuðust þau 3 böm, Sigríði Osk, fædda 3. júní 1959, gift Hinrik Hjörleifssyni og eiga þau einn son, ársgamlan; Sigurð fæddan 16. maí 1966 og Guðmund fæddan 14. nóvember 1968, sem báðir em við nám og búa í föðurhúsum. Sella og Reynald vom alla tíð mjög sam- hent bæði í starfi sínu sem öðm. Það era svo ótal minningar sem leita á hugann við fráfall góðs vin- ar, allar þær góðu og skemmtilegu stundir sem við áttum saman. Ekki væri hægt að riíja allt upp hér en þessi fátæklegu orð mín votta fyrst og fremst þakklæti fyrir vináttuna, tryggðina og hjálpsemina sem hún sýndi mér alla tíð. Sella var ein af þeim manneskj- um sem geislaði af lífsorku og hamingju. Það er svo gott að þekkja T5vona manneskju, sem tekst að snúa öllu á betri veg og koma allt- af auga á björtu hliðina. Ég gat alltaf leitað til hennar. Mér verður nú fyrst og fremst hugsað til Reynalds og barnanna þeirra þriggja og ekki síst litla ömmudrengsins, sem hún var ein- mitt á leiðinni að heimsækja. Ég bið góðan guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg, svo og Þórhildi og systkinin. Ég kveð Sellu með þessum fal- lega sálmi eftir afa minn, Valdimar V. Snævarr. Þú, Kristur, ástvin alls sem lifír, ert enn á meðal vor. Þú ræður mestum mætti yfir og máir dauðans spor. Þú sendir kraft af hæstum hæðum svo himinvissan kveikir líf í æðum og dregur heilagt fortjald frá, oss fegurð himins birtist þá. Þú vígir oss sem votta þína að veruleika þeim að vinir aldrei vinum týna þótt víki til þín heim. Þú lætur efnisþokur þynnast svo það sé hægra elskendum að finnast og jafnvel heljar húmið svart þín heilög ástúð gjörir bjart. Þín elska nær til allra manna þótt efínn haldi þeim og lætur huldar leiðir kanna að ljóssins dýrðarheim. Vér skulum þínir vottar vera og vitnisburð um stórmerki þin bera því þú ert eilíf ást og náð og öllum sálum hjálparráð. Stefanía Snævarr Blómin urðu mér svo nákomin af kynnum og vinafundum; því trega ég þau svo sárt þcgar ég sé þau falla. (Þýð. Helgi Hálfdanarson) Vinkona mín, Sesselja Guð- mundsdóttir, er fallin frá. Orðvana stendur maður frammi fyrir sorgar- atburðum, óskiljanlegum. Hugurinn leitar á vit minninganna og til ást- vina sem mest hafa misst. Vinátta okkar Sellu tengist sam- heldnum hópi námsmanna og mökum þeirra frá Óðinsvéum og spannar aldarfjórðung. Sella var í Oðinsvéum með manni sínum, Reynald Jónssyni, sem þar stundaði tækninám. Hlutskipti Sellu var, eins og margra góðra kvenna, að afla brauðs meðan maðurinn las. Sella og Reynald vom eins konar fmm- heijar þessa hóps og leitaði því margur nýkominn á þeirra fund. Sella var mamma hópsins. Hlýleik- inn var í fyrirrúmi í litlu hanabjálka- íbúðinni, þar var nægt rými. Eftir námsárin flutti þessi hlýja Vestmannaeyjakona með manni sínum til íslands, fyrst til Húsavík- ur, síðan suður, og um tíma lá leiðin um virkjunarsvæði í óbyggðum. Síðastliðin ár hefur heimili Sellu og Reynalds verið í Sæviðarsundi í Reykjavík. Allt frá fyrstu kynnum hefur vin- áttan haldist, verið haldið við með reglulegum fundum og þroskast. Ein af styrkustu stoðum þessarar vináttu var og verður Sella. Hún hefur gegnum árin verið hvata- manneskja. Sella var manneskja í jákvæðustu mynd, hún var hress, dugmikil, hreinskilin, brosmild og kát. En ekki er lífið eintóm kátína, það vissi Sella líka. Sella virkaði sterk, en viðkvæmari og næmari manneskju hef ég varla kynnst. Þessum næmleika kynntist maður betur eftir því sem á leið og lærði að meta. Æviskeið manna er breytilegt, miserfitt og misgott. Einhvem veg- inn fannst manni að nú væri Sella ásamt manni sínum og fjölskyldu að ganga nýtt hamingjuskeið, sam- eiginleg vinna samrýndra hjóna, velgengni og birta framundan. Því þá nú, — ekki er okkar að svara. Erfitt er að leita huggunar, þó er það eina leiðin. Um leið og við kveðjum ástkæra vinkonu sam- hryggjumst við eiginmanni og fjölskyldu og vonum að þeim veitist styrkur á erfiðum stundum. Blessuð sé minning góðrar konu. Sigmjón Yngvason og aðrir Óðinsvéavinir. Það hvarflaði ekki að okkur í desember síðastliðnum, að það væri í síðasta sinn sem Sella í Landlyst fyllti hóp okkar skólasystranna úr Vestmannaeyjum sem hafa haldið saman í rúma tvo áratugi. Ferða- lagið sem hún talaði þá um, af mikilii tilhlökkun, endaði á öðram áfangastað en til stóð. Kaldur vem- leikinn blasir nú við. Engin Sella lengur í hópnum. Kom það vel i ljós, er við hittumst í vikunni til að minnast hennar. Það leyndi sér aldrei hver var í anddyrinu þegar hún mætti til leiks. Hressileikinn sem einkenndi hana var einn af stóm þáttunum í sam- stöðu hópsins og var sérstakt til- hlökkunarefni, enda alltaf spurt: „Er Sella mætt?“ Það var trygging- in fyrir skemmtilegu kvöldi. Sumu fólki er meira gefið en öðm. Glaðværð Sellu og hnyttin tilsvör, einn af mikilvægum fjár- sjóðum hennar, lífguðu heldur betur upp á hópinn. Aðferð hennar við að gera sem best úr öllu var eftir- breytnileg og urðu stór vandamál oft að litlum í meðfömm hennar. Ekki lét hún sig muna um það að koma við í „Línunni", ásamt heppi- legu fómarlambi, á leiðinni í tert- umar, og miðla síðan okkur með vigtardelluna. Besta megmnin vom hlátrasköllin sem þessum umræðum fylgdi. En hún var ekki bara skemmtileg, því umhyggjusemi hennar við aðra, jafnt innan fjöl- skyldunnar sem utan, var aðdáun- arverð. Það sýndi hún með einstakri nærgætni við þá sem þurftu aðstoð- ar við á einn eða annan hátt. Það hafa margar okkar reynt í gegnum tíðina. Þetta sérstaka samband okk- ar Eyjastelpnanna úr árgangi 1940, er tilkomið af þörfinni fyrir að halda tengslum við þann samfélagsanda sem við ólumst upp við í Eyjum, en allar fluttumst við ungar burtu. Þessi „fréttastofa“ gerir okkur kleift að fylgjast betur með en ella hvað efst er á baugi í Eyjunum hveiju sinni og takmarkast að miklu leyti við það. Auðvitað fylgjumst við með hver annarri og gleðjumst yfir velgengni og samhryggjumst í erfiðleikum. Það er mikil eftirsjá í fundunum í Sæviðarsundinu. Heim- ili Sellu og Reynalds ber vott um góðan smekk þeirra hjóna og góður heimilisandinn leyndi sér ekki. Allt tekur enda, bæði gott og báglegt, og finnst öllum hið fyrra erfitt að sætta sig við. Enginn kemst þó hjá þeim lokadómi að hverfa úr mannheimi. Fyrirvara- laust brottkall fólks á besta aldri setur okkur, við sem bíðum, í þá erfiðu aðstöðu að verða að sætta okkur við orðinn hlut. Hjálpin á þeim erfíðleikatíma felst í góðum minningum. Því höfum við öll, sem syrgjum Sellu, gott veganesti. Fjölskyldu Sellu sendum við inni- legustu samúðarkveðjur. Eyjaklúbburinn t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN MATTHÍAS GUÐMUNDSSON, Sæbóli, Seltjarnarnesi, veröurjarösunginnfrá Neskirkju mánudaginn 19. janúarkl. 15.00. Sigfrfður Jóna Þorláksdóttir, Guðmundur Matthías Jónsson, Sigrún Valsdóttir, Hekla Guðmundsdóttir, Berglind Guðmundsdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, HELGU SIGVALDADÓTTUR fró Syðri-Á í Ólafsfirði. Sérstakar þakkir til söngstjóra og félaga í kirkjukór Kópavogs. Jóhann Þórðarson, Björg Þórðardóttir, Helgi Þórðarson, Ólafur Þórðarson, Kormákur Þóröarson, tengdabörn og barnabörn. t Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug er feðgarnir HERMANN B. SIGURÐSSON og GUÐMUNDUR Vl'KINGUR HERMANNSSON fórust með Tjaldi (S 116. Sérstakar þakkir sendum við konum og karlmönnum í Slysavarna- félaginu, Kíwanismönnum, Háprenti og Hjálparsveit skáta. Guð blessi ykkur öll. Gréta Jónsdóttir, Þórhildur Sigurðardóttir. t Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GEIRLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Hlfðarvegi 30a, Kópavogi. Magnús Danfelsson, Guðmundur Daníelsson, Þórólfur Daníelsson, Jarþrúður Lilja Danielsdóttir, barnabörn og Elín Ringsted, Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Erla Sigurðardóttir, Óli Kr. Björnsson, barnabarnabörn. t Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra mörgu fjær og nær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug viö andlát og útför sonar okkar, bróður, mágs og barnabarns, SIGURÐAR ÖLVIS BRAGASONAR frá Sauðárkróki. Bragi Þ. Sigurðsson, Styrmir Bragason, Brynja Bragadóttir, Margrét Bragadóttir, Sigurður Jónsson, Sigurlaug Svelnsdóttir, Sveinn Sölvason, Ómar Imsland, Karl Sveinsson, Nanna Þorsteinsdóttir. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlót og útför STEFANÍU STEFÁNSDÓTTUR, Mánagötu 7, Reykjavfk. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfótks Reykjalundar. Aðstandendur. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúö og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, KRISTJÁNS JÓHANNS HANSSONAR. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Hulda Jóhannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.