Morgunblaðið - 16.01.1987, Síða 40

Morgunblaðið - 16.01.1987, Síða 40
iö'í .GittAjamioflOM 40 86 r JIAUVIAT. M ÍIUOAtt MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 fclk í fréttum Rod og Kelly. Danadrottning í ónáðinni hjá SAS? Skandínavíska flugfélagið SAS neitaði fyrir skemmstu að selja Danadrottningu og föruneyti henn- ar 10 flugmiða á fyrsta farrými frá Singapore, á heimför drottningar- innar frá Ástralíu. Ástæðan, sem upp var gefin, var sú að aðeins væru níu sæti til sölu, hið tíunda væri ætlað áhöfninni til hvíldar, en flugmenn mega ekki vera lengur en átta klukkustundir við stýrið í senn. Umrætt flug tekur 11 tíma. Fór því svo að drottningin keypti miða með Thai Air, beint frá Sid- ney. Hið taílenska flugfélag hefur lagt mikla áherslu á að ferðin verði sem hnökralausust og var aðstoðar- framkvæmdastjóri þess, Daninn Niels Lumholt, sendur til Kaup- mannahafnar til þess að ráðfæra sig við hirðina um fyrirkomulag hennar. Fulltrúar SAS hafa nú játað að um mistök sín hafi verið að ræða og lofa því að slíkt muni ekki ger- ast á ný. Raddir hafa hins vegar heyrst um að málið hafí strandað á norskum deildarstjóra, þrátt fyrir að venja sé að flugfélagið reyni að vera þjóðhöfðingjum Norðurlanda sérlega innan handar. Innan SAS hefur gætt töluverðr- ar umræðu vegna þessa máls og jafnvel rætt um að „höfuð muni fjúka" af þeim sökum. Fýlu hefur gætt meðal almennings í Danmörku vegna málsins og telja sumir að sala SAS í Danmörku muni dragast eitthvað saman. Af þessu tilefni hefur Preben Kjær, upplýsingafull- trúi SAS, sagt að SAS vilji endilega sem flest gera fyrir Dani — fljúga drottningunni, prinsunum, ráðherr- um og landsliðum Dana hvert á land sem er. „Þessari einstöku beiðni var ekki hægt að sinna vegna samnings félagsins við flugmenn." Formaður félags flugmanna segir hins vegar að hefði félagið verið Skakka húsið í Corona Flestir kannast við skakka turn- inn í Pisa, en færri þekkja væntanlega skakka húsið í Corona. Hús þetta hefur verið kallað „Mar- tröð byggingarmeistarans", en það stendur í borginni Corona á Spáni. Sem sjá má mynda veggimir 45 gráðu halla við jörð, en tekið skal fram að gólfín eru lárétt. í húsinu vinna um 300 manns ýmis skrif- stofustörf og segjir fólkið að hinir skáhöllu veggir hafi engin áhrif á það: — jákvæð ef einhver. Að sögn arkítektsins fannst hon- Hún er römm forneskjan. um tími til kominn til þess að hrista upp í föstum formum nútímabygg- ingarlistar og skoðun almennings á því hvemig hús „eigi að vera“. * Aramótabrenna Fáks rlega er haldin áramótabrenna ^á vegum hestamannafélagsins Rod Stewart verðandi faðir mm Skoski söngvarinn Rod Stew- art á von á barni ásamt ástkonu sinni, Kelly Emberg, og er þéss voníjúní. Nú nýverið var ljóstrað upp um þetta, en því var haldið leyndu fyrir öllum almenningi og sérstak- lega Alönu, fyrri konu Rods. Með henni átti Rod tvö böm, Kimber- ley og Sean. „Rod óttaðist að Alana færi fram á stóraukið meðlag við frétt- imar“, segja vinir Rods og bæta við því til skýringar að Alana hafi alltaf haldið í vonina um að þau Rod tækju saman aftur. Rod, sem er 41 árs gamall, hefur enn ekki gengið frá Ijjár- málahlið skilnaðarins, en Alana hefur bent á að hún sé móðir bama hans, svo að hún hljóti allt- af að vera á „sérsamningi", ef svo má að orði komast. Kelly Emberg er 26 ára gömul Texasdóttir, en að sögn foreldra hennar er ekki von á að parið gangi í það heilaga á næstunni, enda telji Kelly að þau séu tengd nógu sterkum böndum þar sem bamið er. Fáks. Hún fer þó hvorki fram á áramótum né þrettánda, heldur fyrsta laugardag eftir áramót. Nú fór svo að fresta þurfti henni vegna veðurs og var kveikt í kestin- um inni í Víðidal sl. laugardag — hinn 10. Svo sem venja er fóru álfa- kóngur og drottning fyrir sérstakri álfareið og voru sungin ýmis ára- mótalög. Eins og sjá má á myndunum var nokkur strekkingur, en menn létu það sem vind um eyru þjóta og skemmtu sér hið besta. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Fylgst með álfareiAinnl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.