Morgunblaðið - 16.01.1987, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
Handknattleikur:
Loks sigur hjá ÍBV í 2. deild
Vestmannaeyjum.
ÍBV vann loks leik f 2. deildinni
eftir heldur slakt gengi uppá
síðkastið. Eyjamenn sigruðu
Gróttu 24:20 f Eyjum á þriðju-
dagskvöldið. Þetta var margfrest-
aður leikur sem átti að fara fram
einhverntfma í fyrra.
Gróttumenn voru sterkari fram-
an af leiknum og höfðu yfir í hálfleik
9:12. Eyjamenn jöfnuðu fijótlega í
síðari hálfleik og sigur þeirri var
öruggur í lokin. Allt annað að sjá
til liðsins nú, enda ekki verið stöð-
ugt að hringla með menn í stöðum.
Gróttumenn léku ágætlega í fyrri
hálfleik en allur kraftur þvarr þeim
í síðari hálfleik.
Sigbjörn Óskarsson skoraði 7
mörk fyrir ÍBV, Jóhann Pétursson
skoraði 5 mörk og Páll Scheving
4. Hjá Gróttu var Halldór Ingólfs-
son atkvæðamestur, skoraði 7
mörk en þeir Björn Björnsson og
Davíð Gíslason skoruðu 5 mörk
hvor. -hkj.
Iþróttarannsóknir
ÁRIÐ 1984 styrkti Heilbrigðis- og
Rannsóknarráð ÍSÍ Jón Inga Ben-
ediktsson til verkefnisins:
„Rannsóknir á líkamlegu ástandi
fslenskra knattspyrnu- og hand-
knattleiksmanna með sérstaka
áherslu á súrefnisupptöku sam-
fara auknu eða minnkandi
æfingaálagi."
Jón Ingi hefur nýlokið verkefninu
• Stökkpallurinn f Oberstdorf er glæsilgt mannvirki.
og mun Heilbrigðis- og Rannsókn-
arráð hafa í hyggju að kynna
niðurstöður sem margt og mikið
má læra af úr slíkri rannsókn.
Heilbrigðis- og Rannsóknarráð
hefur auglýst rannsóknarstyrkinn
fyrir árið 1986. Umsóknarfrestur
rennur út 1. febrúar 1986. Um-
sóknareyðublöð liggja frammi í
skrifstofu ISÍ.
Nefndin vekur athygli á öllum
greinum íþrótta sem rannsóknar-
efni á ölium sviðum.
Fróttatilkynnlng frá iSf
UlfaríGK
Ranghermt var f blaðinu hjá
okkur á miðvikudaginn er við
sögðum að íslandsmeistarinn f
golfi, Úlfar Jónsson, væri í Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Hið rétta er
að Úlfar er í Golfklúbbnum Keili
í Hafnarfirði.
Einnig var sagt að hann hefði
orðiö annar á Doug Saunders golf-
mótinu í Skotlandi þar sem allir
fremstu kylfingar heims hefðu
keppt. Þetta er ekki alveg rétt því
á þessu móti keppa fremstu ung-
ingar Evrópu og náði Úlfar þar
örðu sæti.
• Michael Jordan er stigahæstur f NBA-deildinni, hefur skorað 38,5
stig að meðaltali. Tfu sinnum hefur hann skorað meira en 50 stig í leik.
Körfuknattleikur í Bandaríkjunum:
Tveir leikmenn
frá Huston í bann
- stóðust ekki lyfjapróf NBA-deildarinnar
Frá Gunnari Valgeirssyni, fróttaritara Morgunblaðaina
í GÆR voru tveir leimenn Huston
Rockets, sem leikur f NBA-deild-
Heimsmeistarakeppnin á skíðum:
Alpagreinarnar í
Crans-Montana og
norrænu greinarnar
í Oberstdorf
HEIMSMEISTARAMÓT skíða-
manna í alpagreinum og norræn-
um greinum fara fram um næstu
mánaðarmót. Keppt verður í
alpagreinum í Crans-Montana f
Sviss og í norrænum greinum í
Oberstdorf f Vestur-Þýskalandi.
Gera má ráð fyrir að íslendingar
sendi fulitrúa á þessi mót.
Heimsmeistaramótið í alpa-
greinum hefst 24. janúar í sviss-
neska skíðabænum Crans
Montana, sem er í 1000 metra
hæð yfir sjávarmáli, og mun Ijúka
8. febrúar. Gífurlegan undirbúning
þar fyrir slík stórmót og hafa
Crans-Montana-búar verið önnum
kafnir við undirbúninginn frá því
1983.
Miklar breytingar hefur þurft að
gera á skíðabrekkum staðarins,
því að þó að þær hafi allar verið
til staða um langan tíma, voru þær
það þröngar, að þær stóðust ekki
lengur allar öryggiskröfur. Gerðar
hafa verið víðtækar ráðstafanri til
að hafa til taks mikið magn af
gervisnjó ef á þar að halda, því
reynsalan hefur kennt mönnum að
það er einmitt óvissuþátturinn
með sjóinn, sem oftast kemur róti
á framkvæmd svona móta.
Norrænu greinarnar
í Oberstdorf
Heimsmeistaramótið í Norræn-
um greinum verður haldið í
Oberstdorf í Vestur-Þýskalandi og
hefst 10. febrúar og mun standa
í 12 daga. Oberstdorf er skíðabær
sem liggur við landamæri Sviss
og Vestur-Þýskalands og er í 800
metra hæð yfir sjávarmáli.
í oberstdorf er glæsilegur stökk-
pallur fyrir 50, 70, og 90 metra
stökk. Keppt verður samtals í 22
greinum á mótinu. Mótshaldarar
búast við að um 100 þúsund
manns fylgist með keppninni. Dag-
skrá mótsins verður með þeim
hætti að áhorfendur geti fylgst
með nær öllum greinum. Keppt er
í skíðagöngunum fyrri hluta dags
en skíðastökki síðdegis.
Skíðasamband íslands hefur
enn ekki ákveðið hverjir verði full-
trúar íslands á HM en gera má ráð
fyrir að þangað fari tveir til fjórir
keppendur.
f Bandaríkjunum.
inni í körfuknattleik, reknir vegna
þess að þeir stóðust ekki lyfja-
próf. Þetta voru þeir Michall
Wiggin og Lewis Lloud sem báðir
eru bakverðir og hafa verið í byrj-
unarliði Huston.
Þeir stóðust ekki lyfjapróf sem
NBA-deildin stóð fyrir. Þeir fá því
ekki aö leika í deildinni um ókomna
framtíð. Reglur um lyfjanotkun
leikmanna deildarinnar eru þær
ströngustu í atvinnumannaíþrótta-
grein í Bandaríkjunum.
Lakers hefur náð
besta árangri
Lið Péturs Guðmundssonar,
Los Angeles Lakers, hefur náð
besta árangri allra liða í NBA-
deiidinni það sem af er. Þeir leika
í vestur-deildinni og hafa unnið 26
leiki en tapað 8. Dallas er í öðru
sæti með 23 sigra og 9 töp. í aust-
ur-deildinni hefur Atalanta komið
mjög á óvart og er nú í efsta sæti.
Hefur unnið 24 leiki en tapað 9.
Boston Celtics er í öðru sæti með
24 sigra á móti 10.
Jordan stigahæstur
Michael Jordan leikmaður með
Chicaco er nú stigahæsti leikmað-
ur NBA-deildarinnar. Hann hefur
nú skorað 38,5 stig að meðaltali.
Tíu sinnum hefur hann skorað
meira en 50 stig í leik.
Jabbar hefur staðið
sig mjög vel
Kareen Abdul Jabbar, sem er
39 ára og hefur skorað fleiri stig
í NBA-deildinni en nokkur annar
leikmaður, hefur leikið mjög vel
fyrir Lakers í vetur. Hann þyngdi
sig um 8 kíló í sumar og virðist
það henta honum vel. Hann tekur
nú fleiri fráköst en áður og leikur
nær körfunni, en skorar ekki eins
mikið.
• Her er tákn HM f Oberstforf.