Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987 Ungt fólk skortir þekk- ingu á sögu og tilgangi Atlantshafsbandalagsins - segir Connie Hedegaard yngsti þingmaður Dana „VISSULEGA er það ekki mjög algengt nú á tímum að ungar konur sérhæfi sig i varnar- og öryggismálum. Þær hafa ennþá tilhneigingu til þess að sinna frekar menntamálum eða fé- lagslegum-, menningarlegum- og kirkjulegum málaflokkum. Þetta á þó eftir að breytast. Það er algengt meðal minna jafn- aldra að stelpur leyti menntun- arlega inn á svið þar sem karlmenn hafa hingað til verið allsráðandi og það á eftir að hafa sín áhrif á stjórnmálasvið- inu“, sagði Connie Hedegaard, yngsti þingmaður danska þjóð- þingsins, í samtali við Morgun- blaðið, en hún var stödd hér á landi um síðustu helgi í boði Sambands ungra sjálfstæðis- manna. Meðan á dvöl Connie stóð hér á landi flutti hún er- indi á fundum hjá SVS og Varðberg, Sambandi ungra sjálfstæðismanna og Hvöt, fé- lagi sjálfstæðiskvenna. Connie var einungis 23 ára er hún var kosin á þing fyrir íhalds- flokkinn í lok ársins 1983. Þá hafði hún starfað um all nokkurt skeið í Samtökum íhaldssamra stúdenta í Danmörku og m.a. verið formaður þeirra. Einnig hafði hún starfað fyrir þingflokk íhaldsflokksins í tvö og hálft ár. Sérsvið Connie eru öryggis- og vamarmál. Hún er formaður sam- takanna Atlantic Association of Young Political Leaders, sem eru heildarsamtök Varðbergsfélaga, og á sæti í utanríkismálanefnd danska þingsins. Hún starfar einnig mikið að atvinnuleysis-, mennta- og menningarmálum auk þess að vera talsmaður íhaldsflokksins í málefn- um ungs fólks. „Eftir síðustu kosningar urðu nokkrar breytingar á vamar- og öryggismálastefnu Dana. Jafnaðar- menn, sem höfðu ávallt stutt aðild Danmerkur að Atlantshafsbanda- laginu og stefnu þess, mynduðu eftir síðustu kosningar bandalag við hina vinstri flokkana í utanríkis- og vamarmálum og hefur þetta bandalag meirihluta í þinginu. Þetta hefur valdið okkur miklum vand- ræðum innan NATO, fulltrúar okkar hafa sífellt verið með sérbók- anir á fundum o.fl. Ég held að það sé mikilvægt að við Danir gemm okkur grein fyrir því, að við verðum að reyna að hafa áhrif innan NATO og taka þátt í samstarfí NATO-ríkjanna. Við höfum einfaldlega ekki efni á því að vera ein á báti. Þá stöndum við uppi áhrifalaus. Það em vissulega vandamál inn- an NATO sem þarf að leysa og við eigum auðvitað hiklaust að vekja máls á. Til dæmis ef geimvarnar- áætlun Bandaríkjanna verður að vemleika, ef tillögumar frá Reylqavíkurfundinum um brott- flutning allra meðaldrægra eld- flauga verða framkvæmdar eða ef Bandaríkjamenn fara að draga úr herafla sínum í Evrópu. Við verðum að vera á varðbergi gagnvart þess- um straumum því þetta gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir Evr- ópu eftir 15-20 ár. Við þurfum að gefa mun meiri gaum að jafnvægisleysinu sem ríkir á sviði hefðbundinna vopna í Evrópu og meta vamarstefnu okkar upp á nýtt. Umræðan um vamarmál í Danmörku hefur t.d. verið hálf furðuleg upp á síðkastið. í stað þess að ræða gmndvallaratriði í , framtíðar varnarstefnu okkar hefur tímanum verið eytt í þras um það, hvort útgjöld til vamarmála eigi að vera einu eða tveimur prósentustig- 1 um hærri eða lægri. Við verðum að setjast niður, ákveða hvaða hlut- verki við ætlum vömum okkar og 11 síðan sjá til þess að nauðsynlegt ’ fjármagn sé til staðar svo sú stefna nái fram að ganga. Vissulega verð- ur óheyrilega dýrt að endumýja vopn og vamarkerfi, en þetta er einfaldlega ákvörðun sem verður að taka, við getum ekki ýtt vanda- málinu á undan okkur lengur. Ef við treystum okkur ekki til þess að færa þær efnahagslegu fómir sem vamir okkar kunna að krefjast - Connie á fundi hjá Sambandi ungra sjálfstæðismanna Reyklaus skóli í Stykkishólmi Stykkishólmi. I HAUST þegar Grunnskólinn í Stykkishólmi tók til starfa til- kynnti skólastjórinn að engin breyting hefði orðið á starfsliði frá árinu áður, hvorki á kennurum né öðrum starfsmönnum og þótti þetta nýlunda. Þá voru nemendur mættir í 10 bekkjardeildum og sumum tvískiptum auk framhalds- deildar. Þótt stórkostlegur sigur ynnist með þvi að fá nýjan og góðan skóla, vel hannaðan til betri nýtingar, varð ekki hjá þvi komist að nýta gamla húsnæðið, sem um 50 ára skeið hafði þjónað menntun Stykkishólmsbaraa með sóma, oft tvisettur, en hvað um það. Þetta blessaðist allt. Nú hafa nemendur og kennarar sett sér háleitt takmark, en það var í haust strax að því stefnt að skólinn yrði reyklaus skóli, semsagt enginn neytti tóbaks í skólanum og sýndi þessu góða húsnæði þann sóma. Nú hefir þetta takmark náðst eftir því sem best verður vitað, nemendur og kennarar hafa uppörvað hver annan og það verður nú meiri hátíðin við Morgunblaðið/Ámi Kennarar og nemendur í grunnskólanum eru að vonum ánægðir því takmarkinu er náð, þ.e. reyklaus skóli. skólaslit að geta skilað þessum áfanga heilum í höfn. Ómenguðum skóla, heilbrigðu hugar- fari. Fréttaritari brá sér því einn daginn í skólann bæði til að ræða við skóla- stjóra, kennara og nemendur og varð þess vísari að þetta var satt og rétt. Ég hitti nokkra nemendur sem eru í efri bekkjunum, svo og formann og nemendaráðið, sem létu óspart ánægju sína í ljósi yfir góðum árangri. Þetta er enginn vandi, bara ef menn vilja, sagði formaðurinn og viðstaddir tóku undir í einum kór. Ég leit inn á kennarastofuna og þar var andrúmsloftið alveg unaðs- legt, ekkert reykský á lofti. Þama sýndi sig að fordæmið er það eina sem gildir og góðir siðir smita út frá sér. —Árai. FRYSTIKISTUR SPAÐU I VERÐIÐ SPÁÐU í VERÐIÐ SPÁÐU í VERÐIÐ SPÁÐU í VERÐIÐ 200 lxtra kr. 22.900 250 lítra kr. 24.490 300 lítra kr. 25.690 350 lxtra kr. 26.980 410 lxtra kr. 29.980 510 lxtra kr. 33.690 FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670 L- Innrabyrði úr hömruðu áli Lok með ljósi, læsingu, jafn- vægisgormum og plastklætt Djúpfrystihólf Viðvörunarljós Kælistilling Körfur Botninn er auðvitað frysti- flötur ásamt veggjum 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.