Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
Yfirmaður bandaríska herráðsins:
Hvetur til stuðnings
við contra-skæruliða
- þrátt fyrir slælega herstjórn þeirra
Washington, AP.
WILLIAM CROWE, yfirmaður
herráðs Bandaríkjanna, telur
rétt að Bandaríkjastjórn haldi
áfram að styrkja contra-skæru-
liða í Nicaragua þrátt fyrir
innibyrðis átök í röðum þeirra
og skipulagsleysi.
Crowe svaraði spumingum ut-
anríkismálanefndar öldungadeildar
Bandaríkjaþings á þriðjudag en í
gær hugðust nefndarmenn greiða
atkvæði um hvort stöðva beri stuðn-
ing við skæruliða.
Crowe sagði skæmliða eiga við
ýmis konar vanda að etja. Nefndi
hann einkum skipulagsleysi og
vafasama herfræði máli sínu til
stuðnings auk þess sem hann sagði
sveitir þeirra þurfa á markvissri
þjálfun að halda. Þá sagði hann
skæruliða þurfa að treysta stjóm-
málalegan gmndvöll baráttu sinnar.
Hann kvaðst sannfærður um að
skæmliðar gætu veitt stjóm sandin-
ista öfluga mótspymu ef Banda-
ríkjastjóm styddi þá áfram. Kvað
hann það þjóna bæði hagsmunum
Mið-Ameríkuríkja og Banda-
ríkjanna.
Síðasta haust samþykkti Banda-
ríkjaþing með naumum meirihluta
100 milljóna dala fjárveitingu til
contra-skæmliða. í þeirri samþykkt
var kveðið á um að 40 prósent upp-
hæðarinnar yrðu einungis veitt
skæmliðum ef sýnt þætti að hennar
Klerkastjórain í íran móðgaðist er Khomeini virtist handfjatla
nærfatnað kvenna í grínþætti í vestur þýsku sjónvarpi.
+
Iran:
Bannað að gera
grín að Khomeini
Nikósía, Bonn. AP.
HUNDRUÐ námsmanna söfn-
uðust saman fyrir utan vestur-
þýska sendiráðið í Teheran, í
Iran í gær til að mótmæla því
að gert hafði verið grín að
Khomeini, æðstapresti, í sjón-
varpsþætti er var á dagskrá
vestur-þýskrar sjónvarpsstöðv-
ar sl. sunnudag.
Námsmennimir hrópuðu vígorð
gegn Vestur-Þjóðveijum og
Bandaríkjamönnum' og heimtuðu
að stjómmálasambandi við Vest-
ur-Þýskaland yrði slitið. írönsk
stjómvöld skipuðu tveimur vest-
ur-þýskum sendimönnum að
hverfa úr landi á þriðjudag og
lokuðu í gær vestur-þýskri menn-
ingarmiðstöð í Teheran. Atburðir
þessir koma sér mjög illa fyrir
vestur-þýsk stjómvöld, sem hafa
að undanfomu leitað stuðnings
írönsku stjómarinnar við að fá
látna lausa gísla í Líbanon.
Rudi Carrell, stjómandi þáttar-
ins þar sem grínið að Khomeini
var gert, hefur beðið írönsku þjóð-
ina afsökunnar og sagt að gera
hefði átt grín að fréttum, en ekki
að móðga neinn. Grínþættir Carr-
ells njóta mikila vinsælda og í
þættinum sl. sunnudag var það
14 sekúndna atriði sem deilunum
hefur valdið, þar sem fagnandi
konur virtust kasta nærfatnaði
sínum að fótum Khomeinis.
Þetta er í annað skiptið á
skömmum tíma, sem efni í vest-
ur-evrópsku sjónvarpj móðgar
klerkastjómina í íran. í nóvember
sl. ráku írönsk stjómvöld heim
þijá ítalska sendimenn og kölluðu
sendiherra sinn heim frá Róma-
borg í mótmælaskyni við grínat-
riði í ítalska sjónvarpinu.
væri þörf og að skæruliðar virtu
mannréttindi. Andstæðingar Ron-
alds Reagan Bandaríkjaforseta
hyggjast koma í veg fyrir að þessi
hluti fjárveitingarinnar komist í
hendur skæruliða. Mun Reagan þá
þurfa að beita neitunarvaldi sínu
og þarf tvo þriðju hluta þingmanna
til að hnekkja þeim úrskurði.
Brasilía:
Reuter
Björgunarmaður leitar í braki tveggja lesta, sem skullu saman í Sao
Paulo í Brasiliu í gær.
58 manns far-
ast í lestarslysi
Sao Paulo, AP.
FIMMTÍÚ og átta manns fórust
í lestarslysi í úthverfi Sao Paulo
skömmu eftir miðnætd í gær og
níutíu og níu slösuðust, að sögn
embættismanna. Björgunarmenn
unnu við að hreinsa brott brak
úr lestunum og fjarlæga laskaða
vagna í gærdag.
Talsmaður jámbrautarfélags
hins opinbera, Joao Carlos Gonzales
Tavares da Costa, sagði að björgun-
armenn teldu að lík allra þeirra, sem
fórustu í slysinu, væm fundin. Að
hans sögn létust 46 menn og voru
86 lagðir inn á sjúkrahús. Gert var
að sárum 25 og þeim síðan leyft
að fara heim. Talsmaður slökkvi-
liðsins sagði að tólf menn hefðu
látist í sjúkrahúsi.
Að sögn embættismanna var
fjöldi manns í lestunum þegar þær
rákust saman hálfrí klukkustundu
eftir miðnætti að ísl. tíma. Lög-
regluþjónar og björgunarmenn
notuðu logsuðutæki og vélsagir til
að bjarga slösuðu fólki, sem sat
fast í braki lestanna. Björgunar-
starf gekk illa vegna hvassviðris
og úrhellis. Fjöldi vagna fór af lest-
Spænska-Sahara:
Skæruliðar fella
stg órnar her menn
arsporunum og brak lá á víð og
dreif.
„Ég veit ekki hvað gerðist. Ég
heyrði ærandi hávaða og hélt að
eldingu hefði lostið í lestina. Síðan
vissi ég ekki fyrri til en ég vaknaði
hér á sjúkrahúsinu," sagði Maria
Aparecida de Lima húsmóðir, sem
rifbeinsbrotnaði og hlaut skurð á
enni.
Slysið gerðist þegar önnur les-
tanna fór yfír á spor, sem hin lestin
kom aðvífandi eftir í Itaquara, út-
hverfi fátækra í Sao Paulo. Ekki
er vitað hvað lestimar voru á mikl-
um hraða. Rannsókn málsins tekur
líkast til viku og verður ekkert lá-
tið uppi um orsakir slyssins fyrr en
niðurstöður eru fengnar úr henni.
— „Við höfum gert að sárum fólks
í allan dag, margir hafa misst hend-
ur eða fætur," sagði Adnan Neser
yfírskurðlæknir. „Og margir geta
ekki gert sér miklar vonir um að
lifa af.“
AJgeirsborg, Reuter.
SKÆRULIÐAR Polisario-
hreyfingarinnar, sem beijast
fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis í
Spönsku-Sahara, kváðust í gær
hafa fellt fjölmarga menn úr
her Marokkó í hörðum bardög-
um. APS, hin opinbera frétta-
stofa Alsír tilkynnti um
mannfallið en lét þess ógetið
hvar bardagarnir hefðu verið
háðir.
Erlendir stjómarerindrekar í
Algeirsborg sögðu skæruliða hafa
fellt hermenn frá Marokkó, sem
vinna að byggingu vamargarðs
við Atlantshafsströnd Marokkó.
Talsmaður Polisario-hreyfingar-
innar í Evrópu skýrði frá bygging-
arframkvæmdunum á blaða-
mannafundi nú nýlega í París og
sagði að með honum myndi Márit-
anía dragast inn í stríðið að nýju,
sem staðið hefur í tæp tólf ár.
Átökin bmtust út er Spánveijar
gáfu eftir yfírráð sín yfír þessum
hluta Sahara árið 1976.
Spænska-Sahara kom þá í hlut
Máritaníu og Marokkó. Skæmlið-
ar hófu þá að heija á Máritaníu
og gáfust stjómvöld þar loks upp
og eftirlétu Marokkó sinn hluta
landsvæðisins.
Júgóslavía:
Varað við vaxandi
andkommúnisma
Belgrað. Reuter.
FORYSTA júgóslavneska komm-
únistaflokksins hefur hótað
hörðu öllum þeim, sem gagnrýna
eða vinna gegn flokknum. Skýrði
Tanjug-fréttastofan júgóslavn-
eska frá þessu í gær.
í frétt Tanjug sagði, að á fundi
í forsætisnefnd kommúnistaflokks-
ins í fyrradag hefði verið samþykkt,
að stjómin skyldi bregðast við hvers
kyns undirróðursstarfsemi „með
viðeigandi ráðum eins og kveðið
væri á um {lögum". Var ekki tekið
fram við hvaða aðgerðir væri átt.
Að undanfömu hafa stjómvöld
verið að herða áróðurinn gegn
pólitískum andstæðingum sínum
meðal þjóðarinnar og gegn óopin-
berum samtökum, „Samstöðusjóðn-
um“, sem stofnaður var til að
styrkja andófsmenn. í fyrradag
hvatti einn frammámanna í flokkn-
um, Slobodan Milosevic, til að látið
yrði til skarar skríða gegn vaxandi
andkommúnisma í landinu og ýmsir
embættismenn halda því fram, að
„stjómarandstæðingar" hafí komið
sér fyrir á fjölmiðlunum og í
menntakerfinu.
Kauphallar-
hneyksli í
Wall Street
Washington, Reuter.
ENN eitt hneykslismálid er nú
komið upp í Wall Street. í fyrra-
dag var lögfræðingur einn f New
York sakaður um að hafa veitt
fimm ættingjum og einum vini
sínum uppláingar, sem leynt áttu
að fara, með þeim afleiðingum,
að þeir náðu að hagnast ólöglega
um 1,5 millj. dollara á hlutabréfa-
viðskiptum.
Maðyr sá, sem hér um ræðir, heit-
ir Israel Grossmann og er 34 ára að
aldri. Hann komst yfir leynilegar
upplýsingar um áform um að auka
hlutafé vopnaverksmiðjanna „Cold
Industries Inc“ um 1,5 milljarða doll-
ara, sem hlaut að leiða til þess að
hlutabréf í þeim myndu snarhækka
í verði. Þessum upplýsingum kom
Grossmann síðan áleiðis til framan-
greindra aðila, sem náðu síðan að
kaupa hlutabfef í fyrirtækinu, á með-
an verð þeirra var enn lágt.
Þegar tilkynnt var um hlutafjár-
útboðið, hækkuðu verðbréfín um 27
dollara á einum sólarhring hvert bréf.
Fyrrgreindir ættingjar og vinur
Grossmanns náðu því að hagnast um
stórfé eða sem nam 1,5 millj. dollara.
Hin opinbera eftirlitsnefnd með kaup-
hallarviðskiptum hefur þegar krafízt
þess, að þessum aðilum verði gert
að endurgreiða hinn ólögmæta hagn-
að eða 1,5 millj. dollara auk 4,5
millj. dollara ( sektir. Einn þeirra er
þegar sagður hafa flúið til ísraels og
á hann að hafa náð að flytja veruleg-
an hluta af hinum ólöglega feng
sínum til útlanda.