Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
31
Mótmælin í Alma Ata í Sovétríkjunum:
Tveir létust og
200 slösuðust
Alma Ata. AP, Reuter.
Forsætisráðherrann í Sovét-
lýðveldinu Kazakhstan gaf í gær
nýjar upplýsingar um óeirðirnar,
sem urðu í Alma Ata, höfuðborg
ríkisins, i desember sl. og stang-
ast þær nokkuð á við fyrri
fréttir. Kom nú fram hjá honum,
að tveir menn hefðu látist og um
200 slasast.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI Bandaríkjadollara hækk-
aði gagnvart helstu gjaldmiðlum
i gær og verð á gulli lækkaði.
í London kostaði sterlingspundið
1.5310 dollara (1,5310) síðdegis í
gær. Dollarinn kostaði 153,77 jap-
önsk jen.
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var með þeim hætti að dollarinn
kostaði: 1,8305 vestur-þýsk mörk
(1,8104), 1,5485 svissneska franka
(1,5295), 6,0950 franska franka
(6,0325), 2,0675 hollensk gyllini
(2,0440), 1.302,00 ítalskar lírur
(1.289,83) og 1,3295 kanadíska
doljara (1,3327).
I London kostaði únsa af gulli
391,70 dollara (394,50).
Bandaríkin:
Nursultan Nazarbayev, forsætis-
ráðherra í Kazakhstan, sagði, að
allt að 3000 manns hefðu tekið
þátt í óeirðunum en ekki nokkur
hundruð manns eins og áður var
haldið fram. Sagði hann, að um 100
manns hefðu verið handteknir og
þrír verið dæmdir í fangelsi. Mál
28 annarra væru nú til meðferðar.
Nazarbayev skýrði frá þessu á
fundi með 12 erlendum fréttamönn-
um, þeim fyrstu, sem leyft er að
koma til Alma Ata frá því óeirðim-
ar voru þar í desember. Í fyrstu
fréttum sovéskra fjölmiðla var lögð
áhersla á, að „óaldarlýður og
sníkjudýr" hefðu staðið fyrir mót-
mælunum en Nazarbayev sagði, að
sumar kröfur mótmælendanna, sem
voru aðallega námsmenn, hefðu
verið eðlilegar, t.d. hvað varðaði
framboð á matvælum og húsnæði.
Tveir menn, lögreglumaður og
námsmaður, létust og um 200
þurftu á læknishjálp að halda vegna
meiðsla, sem þeir hlutu í átökunum.
Hófust þau daginn eftir að Gennady
Kolbin, sem er Rússi, tók við sem
leiðtogi kommúnistaflokksins af
Dinmukhamed Kunayev en hann
er Kazakhi. Létu námsmennimir í
Hamagangur íkauphöllinni
Meiri hækkun varð á hlutabréfum á þriðjudag í Wall Street í New York en nokkru sinni á einum degi
á þessu ári. Talið er, að bjartsýni á batnandi efnahagshorfur í Bandarikjunum hafi ráðið þar
mestu um. í gærmorgun héldu hlutabréf áfram að hækka í Wall Street, en úr þvi dró þó, er á
leið daginn.
Hækkun hlutabréfa í Bandaríkjunum hafði jafnframt mikil áhrif til hækkunar á hlutabréfum
víða annars staðar i heiminum. Þannig varð mikil hækkun á hlutabréfum i Japan og þá einkum
hjá Nippon og fleiri stórfyrirtækjum. Mynd þessi var tekin i kauphöliinni i Tókýó í gærmorgun
og sýnir liamaganginn, sem gjarnan verður i kauphöllunum, þegar mest gengur á.
Flotamálaráðherr-
ann lætur af störfum
Washington, Reuter.
JOHN Lehman, flotamáiaráð-
herra Bandaríkjanna, tilkynnti á
þriðjudag að hann hygðist láta
af störfum. Lehman hefur verið
ötull talsmaður þess að Banda-
ríkjafloti byggi styrk sinn á
öflugum flugmóðurskipum. Til-
kynnt var i Hvita húsinu í gær
að Ronald Reagan Bandarikja-
forseti hefði ákveðið að útnefna
James Webb, sem nú fer með
yfirstjórn varaliðs Bandarikja-
hers, eftirmann hans.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um að Lehman, sem er 44 ára gam-
all, hyggist annast kosningabaráttu
George Bush, varaforseta, vegna
forsetakosninganna sem fram fara
árið 1988. Hann hefur þó stað-
fastlega neitað þessum sögusögn-
um og kvaðst í gær hafa í hyggju
að taka til starfa í ónefndu einka-
fyrirtæki.
Caspar Weinberger vamarmála-
ráðherra lagði hart að Lehman að
endurskoða ákvörðun sína. „Leh-
man hefur sýnt fádæma dugnað og
Weinberger vill alls ekki missa
hann,“ sagði talsmaður varnarmá-
ráðuneytisins fyrir skömmu.
James Webb gat sér gott orð
fyrir framgöngu sína í Víetnam-
stríðinu og hlaut fjölmörg heiðurs-
merki fyrir unnin afrek þar. Hann
er 41 árs gamall og er lögfræðing-
ur að mennt. Hann hefur og skrifað
nokkrar bækur m.a. um Víetnam-
stríðið.
John Lehman hefur þótt einstak-
lega líflegur ráðherra og hefur hann
verið óhræddur við að gagnrýna
embættismenn stjórnarinnar. Hann
hefur verið ráðherra flotamála frá
því Ronald Reagan varð forseti
Bandaríkjanna árið 1981. Lehman
samdi áætlun þar sem gert er ráð
fyrir að Bandaríkjafloti ráði yfir 600
herskipum árið 1992. Styrkur flota-
deildanna mun að verulegu leyti
byggja á öflugum flugmóðurskip-
um. Hefur Lehman tekist að fá
gríðarlegar Qárveitingar til upp-
byggingar flotans og hafa menn
haft á orði að allt annar andi ríki
meðal sjóliða frá því hann tók til
starfa.
Í ágústmánuði lenti Lehman
saman við Weinberger þegar hann
lagði til að 20 milljónum dala yrði
varið til smíði skólaskips fyrir
bandaríska sjóliða. Weinbergertaldi
að þeim fjármunum yrði betur var-
ið til annarra verkefna.
í desember á síðasta ári hvatti
John Lehman Weinberger til að
þrýsta á bandaríska þingmenn um
að samþykkja efnahagslegar refs-
iaðgerðir gegn Nýsjálendingum.
Taldi flotamálaráðherrann þetta
eðlileg viðbrögð við þeirri ákvörðun
stjórnar Nýja Sjálands að meina
bandarískum herskipum, sem talin
eru kjarnorkuknúin eða hafa kjam-
orkuvopn innanborðs, að leita til
hafnar þar.
Líbanon:
V opnahléstilraun-
ir árangurslausar
40 hafa fallið síðustu þrjá daga
Beirút, AP.
SÍÐUSTU þijá sólarhringa
hafa 40 manns fallið og um 200
særst í átökum shíta og banda-
lags drúsa og kommúnista í
Beirút. I gær tókst Sýrlending-
um að koma á vopnahléi en það
var rofið er átök brutust út
nærri bandaríska háskólanum
þar í borg.
Að sögn lögreglumanna skutu
hersveitir drúsa og kommúnista
eldflaugum að höfuðstöðvum
shíta og reyndu fulltrúar Sýr-
landsstjórnar enn á ný að bera
klæði á vopnin.
Þúsundir manna sem haldið
höfðu til í kjöllurum húsa og
sprengjubyrgjum hættu sér í gær
út á götur Beirút eftir þriggja
sólarhringa linnulitla bardaga.
Þar gat að líta sundurtætt hús
og brunna bíla. Víða brunnu eldar
og glerbrot þöktu götumar. Fólkið
hugðist kaupa mat en engan mat
var að fá þar eð verslunareigend-
ur áræddu ekki að hafa opið af
ótta við frekari átök.
Shítar höfðu sagt að þeir
myndu aflétta umsátri um flótta-
mannabúðir Palestínumanna í
Beirút og heimila flutninga á
matvælum til sveltandi flóttafólks.
Lögreglumenn í Beirút kváðust
ekki hafa orðið varir við flutninga
á hjálpargögnum og sagði tals-
maður hjálparstarfs á vegum
Sameinuðu Þjóðanna í Beirút að
átök og blóðugir bardagar gerðu
að verkum að ómögulegt væri að
skipuleggja flutninga á neyðar-
gögnum þangað.
OPIÐ: Mán.-föst. 9-18 laugard. 14-17 sunnud. 14-17
BENCO hf
LÁGMÚLA 7, SÍMI 84077.
5IMONSEN
BÍLASÍMINN
MINNSTUR!
LÉTTASTUR!
(3,1 kg)
VINNUÞJARKUR!
SPARNEYTINN!
(1,6 A)
HRAÐVIRKT
RÁSAVAL
gefur strax
SÁ EINI VATNSÞÉTTI!
SÁ EINI RYKÞÉTTI!
2 ÁRA ÁBYRGÐ!
KAUPLEIGUSAMNINGAR!