Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
rökræðum. Miða skal við þroskastig
bamsins hveiju sinni. Þessi þjálfun
þarf að byija strax á dagvistaraldri.
Vonandi er sá tími að renna upp
að við gerum okkur grein fyrir því
að langflestir foreldrar þurfa á fag-
legri aðstoð að halda í uppeldi bama
sinna. Óhjákvæmilegt er að skil-
greina foreldrahlutverkið sam-
kvæmt núverandi aðstæðum og átta
sig á því hvemig faglært starfsfólk
og foreldrar vinna saman að vel-
ferð bamsins. Það er einnig brýnt
að átta sig á því að hvaða leyti
faglærð fóstra nær jafnvel betri
árangri en venjulegir foreldrar, án
þess að vera sífellt ásakaður um
að taka alla ábyrgð af foreldmm.
Um það er alls ekki að ræða. Fag-
lært starfsfólk er fyrst og fremst
stuðningur við foreldra og getur
aldrei komið í stað þeirra.
Uppeldisáætlun fyrir
dagvistarheimili gefin
út af menntamála-
ráðuneytinu 1985
í OECD-skýrslunni benda höf-
undar á að æskilegt sé að viður-
kenna og nýta til fulls kennsluhæfni
fóstra sem starfa með bömum á
dagvistaraldri. Við lestur skýrsl-
unnar er þó óljóst hvort höfundum
hefur verið kunnugt um að hér á
landi er til upþeldisáætlun fyrir
dagvistarheimili sem kom út árið
1985. Þessi skýrsla var unnin af
nefnd á vegum menntamálaráðu-
neytis og starfaði frú Valborg
Sigurðardóttir, fyrrverandi skóla-
stjóri Fósturskólans, sem sérfræð-
ingur nefndarinnar.
I áætluninni em uppeldismark-
mið fyrir dagvistarheimili skilgreind
nákvæmlega og hér fara á eftir 6
meginmarkmið.
1. að búa bömum vel skipulagt
uppeldisumhverfi og ömgg leik-
skilyrði sem jafnframt em hlýleg
og lærdómsrík og auðga
reynsluheim bamanna.
2. að gefa bömunum kost á að
taka þátt í leik og starfi í hópi
jafnoka og njóta þannig ijöl-
breyttra uppeldiskosta bama-
hópsins undir leiðsögn fóstra.
3. að kappkosta í samvinnu við
heimilin að efla alhliða þroska
bamanna (þ.e. líkams-, tilfínn-
inga-, vitsmuna-, félags-, fagur-
og siðgæðisþroska) í samræmi
við eðli, þarfir og þroska hvers
og eins og leitast við að hlúa
að þeim andlega og líkamlega
svo að þau fái notið bemsku
sinnar sem slíkrar til fulls en
gjaldi hennar ekki.
4. að stuðla að því að bömin nái
þroska til að mæta kröfum
skyldunámsins og stuðla jafn-
framt að því að eðlileg tengsl
skapist milli dagvistarheimila og
gmnnskólans.
5. að auka umburðarlyndi og
víðsýni bamanna og skilning
þeirra á mannlegum kjömm og
umhverfi og jafna uppeldisað-
stöðu þeirra í hvívetna.
6. að efla kristilegt siðgæði bam-
anna og leggja gmndvöll að því
að böm verði sjálfstæðir, hugs-
andi, virkir og ábyrgir þátttak-
endur í lýðræðisþjóðfélagi sem
er í örri og sífelldri þróun.
Auk þessara meginmarkmiða er
fjallað ítarlega um 20 undirmark-
mið og bent á leiðir til að ná þeim.
Fjallað er um mikilvægi foreldra-
samstarfs, ennfremur er fjallað um
mikilvægi fræðilegrar starfsmennt-
unar fóstra.
Uppeldisáætlunin byggir á hefð-
bundnu starfi dagvistarheimila,
hérlendis og erlendis, ásamt nýrri
reynslu og þekkingu á sviði uppeld-
isfræði og þróunarsálfræði. ..
Uppeldisáætluninni er ætlað að
vera leiðarvísir við uppeldisstörf á
dagvistarheimilum og mynda eins
konar umgjörð um starfið eða
sveigjanlegan starfsramma." (Bls.
17.) Að loknum lestri uppeldisáætl-
unarinnar ætti lesandi ekki að vea
í nokkrum vafa um kennarahlut-
verk fóstrunnar. né heldur að
starfsnám fóstra krefst ekki minni
undirbúningsmenntunar en stafs-
menntun kennara. M.a. má benda
á ítarlega heimildaskrá aftast í
áætluninni, en stór hluti hennar er
meðal námsefnis í Fósturskóla ís-
lands.
Útgáfa uppeldisáætlunarinnar
var því stórt skref í rétta átt. Því
má þó ekki gleyma að hún þarfnast
sífelldrar endurskoðunar rétt eins
og hver önnur námskrá.
Nauðsynlegt er að
styrkja og efla fóstur-
menntun á Islandi
Stjórn Fósturskóla íslands og
Fósturfélag Islands hafa nú um
nokkurt skeið unnið að því að gera
undirbúningsmenntun fóstra sam-
bærilega við undirbúningsmenntun
kennara og hafa sent núverandi
menntamálaráðherra tillögur þess
efnis. Einnig er bent á nauðsyn
þess að huga gaumgæfilega að
menntun alls starfsfólks dagvistar-
stofnana í heild. Er þar átt við
aðstoðarfólk og fóstrur.
Enn hefur ekki reynt á hug ráða-
manna í þessum efnum, en það er
einlæg von mín að alþingismenn
og stjómvöld taki mark á og íhugi
vel ábendingar þeirra OECD-manna
og Evrópuráðs svo og tillögur okkar
sem vinnum að þessum málum. Þar
með væri stigið stórt skref fram á
við til að tryggja þroskavænleg
uppeldisskilyrði íslenskra bama.
Höfundur er skólastjóri Fóstur-
skóla íslands.
51
PORTOBELLtfS
Peysur og jakkapeysur
-íterm-
GARÐURINN
Aðalstræti 9, simi 12234.
túnum
þúsund krónur. Aðrar gerðir kosta frá 474 þúsund
krónum. Þú gerir vart betri bílakaup!
Opið laugardaga frá kl. 1—5
BILABORG HF
Smiöshöfða 23 slmi 68 12 99