Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987 Kosningabaráttan í Háskólanum haf in: • • „Oflug hagsmunabarátta eða samræður um sósíalisma“ - segir Eyjólfur Sveinsson, formaður Vöku VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúdenta hóf formlega kosninga- baráttu sína síðastliðinn sunnu- dag, þegar félagið hélt árlega stefnuskrárráðstefnu sína að Skálafelli. Stefnuskrá félagsins til kosning- anna skiptist í fjóra hluta, þar sem flallað er um: 1. Lánamál, 2. Menntamál, 3. Félagsstofnun stúd- enta, 4. Starfíð í Stúdentaráði og Stúdentablaðið. Innan Vöku hafa undanfamar Varðandi almenna starfsemi F. S. er m. a. á stefnuskrá Vöku að deildarfélögum verði gert kleift að taka yfír rekstur kaffístofa, þar sem það á við. Flokkapólitík burt úr stúdentaráði Það er eindregin afstaða Vöku að utanríkis- og landsmálumræða eigi ekki heima í stúdentaráði, held- ur eigi það að vera markmið ráðsins að gæta og beijast fyrir hagsmun- um stúdenta. Það er skoðun Vöku að fundir Stúdentaráðs séu ekki nógu markvissir; þá beri að hafa oftar, reglulega og skemur í hvert sinn. Mikil umræða varð um málefni Stúdentablaðsins á stefnskrárráð- stefnunni og var það álit manna, að afnema ætti skylduáskrift að blaðinu, en þess í stað ættu auglýs- ingar alfarið að standa undir útgáfukostnaði. Sterk málefnastaða Vöku „Ég er mjög ánægður með þessa ráðstefnu, þar komu fram margar ferskar hugmyndir og nýjar skoðan- ir,“ sagði Eyjólfur Sveinsson formaður Vöku í samtali við Morg- unblaðið, „Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á að málefnastaða Vöku sé styrk og að stefnuskránni sé fylgt í hvívetna. Þannig held ég að óhætt sé að segja, að flest þau mál, sem Vaka hefur sett á oddinn hafí náð fram að ganga. Við munum óhræddir leggja verk okkar fyrir dóm stúdenta og tel ég að sú stefna sem við fylgjum eigi hljómgrunn meðal stúdenta. Stefna okkar markast af því að fagleg sjónarmið ráði í stað þess að teknir verði upp fyrri starfshætti, þar sem flokka- drættir og ýmis annarleg sjónarmið réðu mestu. Á því er ekki þörf, því að allir stúdentar hljóta að geta átt samleið í hagsmunamálum sínum og kröfur stúdenta verða að byggj- ast á sanngimi en ekki óbilgimi; reynslan af undanfömum viðræðum námsmanna við stjómvöld sýnir að annað er ekki vænlegt til árangurs. Kosningamar til stúdentaráðs snúast því annars vegar um öfluga hagsmunabaráttu Vöku eða „sam- ræður um sósalisma", sem vinstri- menn virðast hafa sett á oddinn með fundaherferð undir þessari yfírskrift. Slík flokkapólitík á auð- vitað ekkert skylt við hagsmuna- baráttu stúdenta og á að fara fram annars staðar en á vettvangi stúd- entaráðs," sagði Eyjólfur Sveinsson að lokum. Prófessor Signijón Björnsson með 1. tölublað Tímarits Háskóla íslands Við höfum ekkert ákveðið plan, en við hugsum okkur að hægt sé að hafa yfírlitsgreinar um rannsóknir. Þær geta verið hrein fræðileg frásögn eða sögulegt yfirlit, einnig yfirlits- greinar um starfsemi ákveðinnar stofnunar, eða kynning á einhveiju fræðisviði. Við höfum ekki heldur hugsað okkur að binda okkur við háskólann. Hér á landi er Qöldinn allur af stofnunum sem eru að vinna á háskólastigi og við vildum gjaman sjá ritgerðir frá þeim. Þetta gerum við í þeirri trú að nóg sé til af fólki í landinu sem ér nógu andlega forvitið til að lesa vel skrifað- ar greinar, um efni sem það er ekki endilega sérfræðingar í. Auðvitað rennum við alveg blint í sjóinn með hversu mikill áhuginn er, en við von- um að það séu allavega 3000 manns sem hafa áhuga. Ég held það hljóti að vera.“ ^^uglýsinga- síminn er 2 24 80 Félagsstofnun standi undir sér Vaka setur það fram sem megin- markmið að hinar ýmsu rekstrar- einingar Félagsstofnunar stúdenta (F.S.) standi undir sér; ekki sé á þeim bullandi tap né óhóflegur hagnaður. Bygging nýrra hjónagarða er nú hafin og leggur Vaka á það höfuðá- herslu að frá styrkri stefnu í byggingarmálum sé ekki horfíð. Hafnað er hins vegar sérstakri skattlagningu á stúdenta vegna þessa. Unnið hefur verið markvisst að bamaheimilismálum stúdenta í vet- ur og leggur Vaka kapp á að þeirri vinnu verði haldið áfram og að bygging nýs bamaheimilis á vegum stúdenta hefjist þegar á næsta ári. vikur verið starfandi undirbúnings- nefndir, sem samið hafa drög að stefnuskrá félagsins í viðkomandi málaflokkum. Á stefnuskrárráð- stefnunni skiptu félagsmenn sér svo upp í hópa, þar sem drögin voru tekin til umfjöllunar. Jafnir mögnleikar til náms Samkvæmt stefnuskrá Vöku er það algert aðalatriði að tryggja jafna möguleika til náms og annað í raun aukaatriði. Lögð er áhersla á það að upphæð námslána verði komið í eðlilegt horf og að framfærsluviðmiðuninni verði framvegis aðeins unnt að breyta af hlutlausum aðila. Um lánskjör segir að vöxtum ofan á verðbætur sé hafnað, en á það er hins vegar Iögð áhersla að námslán endurgreiðist að fullu til baka. í stefnuskránni er og fyallað um þjónustu LÍN og úthlutunarreglur sjóðsins._ Öflugur Háskóli for- senda framfara Að vanda sendir Vaka frá sér ítarlega stefnuskrá varðandi mál- efni Háskólans og kennir þar margra grasa. Vaka berst m. a. fyrir þriðjungsaðild stúdenta að helstu stjómunarstofnunum Há- skólans og að þeir fái þar fullan atkvæðisrétt. Æviráðningum kenn- ara er hafnað, svo og sjálfvirku stöðuhækkanakerfí. Mikil áhersla er lögð á það að prófessorar sinni rannsóknarskyldu sinni og að möguleikar stúdenta á þátttöku í rannsóknarstörfum séu auknir. Að mati Vöku er fjárskortur al- varlegasti vandi Háskóla Islands og stendur hann skólanum fyrir þrifum. „Fylgja verður betur eftir fjárbeiðnum til hins opinbera, en jafnframt verður að auka sértekjur skólans." Tímarit Háskóla íslands: Tilgangnrinn er að opna háskólann - segir Sigurjón Björnsson, ritsljóri FYRSTA tölublað Tímarits Há- skóla Íslands er komið út. Tímarit- ið flytur fræðilegt efni úr mörgum greinum og er ætlað fróðleiks- fúsum og upplýstum almenningi. Ritstjóri tímaritsins er Sigurjón Björnsson, prófessor í sálarfræði og tjáði hann Morgunblaðinu hver væru tildrög, tilgangur og mark- mið með útgáfu tímaritsins: „Tímarit af þessu tagi hefur ekki verið gefið út áður. Ég held að menn hafi ekki verið og séu ekki alltof bjart- sýnir á þetta. Maður veit ekkert hvemig fjárhagsdæmið kemur til með að ganga, en það er Háskóli íslands sem gefur tímaritið út og hann fjár- magnar fyrirtækið. Auðvitað vonum við öll, sem stöndum að þessu, að sala á blaðinu eigi eftir að skila því fjármagni sem hefur verið lagt í það. Það eru fastir starfsmenn skólans sem vinna við blaðið. Það er enginn ráðinn fyrir föst laun, nema auglýs- inga— og afgreiðslustjóri. Við sendum blaðið til 4000 manna og kvenna, ásamt gíróreikningi, í samvinnu við BHM. Síðan eru starfsmenn skólans um 1000. Þetta er auðvitað geysilega dýr auglýsingaaðferð, en við vonum að þetta fólk fái áhuga á blaðinu, þegar það fer að lesa það, bregðist vel við og gerist áskrifendur. Við sem stöndum að útgáfu tíma- ritsins erum allir nýliðar í svona útgáfustarfsemi. Sumir okkar hafa að vísu verið viðloðandi útgáfustarf- semi á árum áður, en það hefur allt breyst mikið síðan, tæknin og prent- vinnan er allt önnur og prófarkarlest- ur fer öðruvísi fram en áður tíðkaðist. Við vonumst til að geta komið timarit- inu út tvisvar á ári, á vorin, áður en sumarfríin byija og seint á haustin, áður en jólafrí byija." En hvað kom til að þið réðust í útgáfu á tímariti núna? „Þetta kom eiginlega til með rekt- orskjöri Sigmundar. Fyrir kjörið hafði hann sagt frá hugmyndum sínum og áformum um að opna háskólann mjög mikið, þannig að almenningur tengd- ist honum meira og vissi hvað væri þar að gerast. Síðan, stuttu eftir að Sigmundur var kosinn, vorum við að ræða saman og hann bað mig að vera í nefnd sem ætti að setja fram iillög- ur um þessi mál. Ég sagði honum að ég nennti ekki að sitja í nefndum og vera á fundum, en ég skyldi hjálpa honum með eitt, að gefa út tímarit Háskóla íslands. Við fengum fleiri með okkur í þetta, athuguðum Qárhagsgrundvöll og hu- gleiddum hvemig svona rit ætti að vera. Síðan lögðum við tillögur okkar fyrir háskólaráð sem tók þá ákvörð- un, seinni hluta síðasta veirar, að gefa út tvö blöð á ári. Þá var jafn- framt ákveðið að gefa fyrsta tímaritið út árið 1976, sem var 75 ára af- mælisár skólans. Það reyndist, þegar til kom, of skammur tími. Þessvegna kemur fyrsta tölublaðið út núna, en er í rauninni 1. tölublað 1986. Síðan mun 1. tölublað 1987 koma út í vor.“ En hver er tilgangurinn með þessu tímariti? „Tilgangurinn er auðvitað að opna háskólann, gefa almenningi betri að- gang að vísindastarfseminni í landinu. Það sem við höfum í huga er að hvert hefti fyrir sig verði mjög fjölbreytt. Við höfum ekki áhuga á að hafa „temahefti," heldur er stefna okkar að aldrei sé meira en ein grein af hveiju sviði. í þessu fyrsta hefti em 11 greinar, hver á sínu sviði. VW GOLF Golí er bíll, sem heíur öölast íastan sess í vitund manna íyrir alhliöa kosti og áreiöanleika. Hann heldur verögildi sínu lengur og betur en ílestir aörir bílar vegna þess hve vinsœll hann er og þar aí leiðandi eítirsóttur aí kaupendum notaöra bíla. Geidii: C-CL-GL-GT- GTI GTI16 v&ntla - Syncro
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.