Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
37
Kvenfélagið Hringurimi
í Stykkishólmi 80 ára
Stykkishólmi.
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í
Stykkishólmi átti 80 ára afmæli
Hús kvenfélagsins Hringsins á Stykkishólmi.
hinn 17. febrúar og minmst þess
með fagnaði laugardaginn 21.
febrúar.
Það var árið 1907 að nokkrar
konur í Stykkishólmi komu sam-
an og hófu með sér félagsskap.
Aður hafði kvenfélagið Hringur-
inn í Reykjavík sent þeim
áskorun um að stofna félag til
að styrkja berklasjúklinga, sem
þyrftu að leita til hins fyrir-
hugaða berklahælis. Um þessar
mundir heijaði berklaveikin um
allt land og var hinn mesti vá-
gestur þeirra tíma enda varð
fáum vörnum komið við. Varð
þetta til þess að góðar konur í
Hóhninum efndu til þessa fundar
og Iýsti áhuginn sér strax í því
að yfir 30 konur mættu og ákváðu
að stofna félag og kusu sér fé-
lagsstjóm.
Fyrsta stjómin var skipuð þann-
ig: Amdís Jónsdóttir, læknisfrú
formaður, Magðalena Halldórsson,
eiginkona Sæmundar kaupmanns
og var hún gjaldkeri, ritari var
Kristín Sveinsdóttir Möller, til vara
Frederikke Eggers og Herdís Boga-
dóttir. Og þar með varð Hringurinn
til og hefír starfað að allskonar
líknar- og menningarmálum alla tíð
síðan. Fyrsta verkið var að halda
hlutaveltu til íj'áröflunar og hélst
sú fjáröflunaraðferð lengi, einnig
var flár aflað með leiksýningum,
bögglauppboðum o.fl. o.fl. Einnig
lögðu konur sjálfar til fé. Þetta
varð málefninu mikil stoð. Fjármun-
ir komu víðsvegar af landinu til
styrktar baráttunni gegn berkla-
veikina og ekki var á liði sínu legið.
Árið 1921 vom lög sett á Alþingi
um hælisvist á Vífilsstöðum næst-
um endurgjaldslausa. Var þá hægt
að beina starfinu í aðrar áttir líknar-
mála. Strax árið 1922 ræðst félagið
í að launa hjúkranarkonu að hálfu
móti hreppsfélaginu. Starfaði hún
á vegum félagsins í 14 ár eða þar
til sjúkrahúsið í Stykkishólmi tók
til starfa. Þá var ráðin hjálparstúlka
á heimili sem þess þurftu við í
Hólminum og stóð sú þjónusta í 6
ár. Jólatrésskemmtanir fyrir böm
vora árvissar og fatagjafir til fá-
tækra bama vora send fyrir öll jól.
Fjölda menningarmála hefír kven-
félagið stutt hér í Hólminum. Má
þar til nefna námskeiðahald, styrkt
gufubaðstofu, sundlaugarbygg-
ingu, og ekki má gleyma skrúðgarð-
inum í hjarta bæjarins sem
kvenfélagskonur hafa ræktað og
ber sú ræktun meiri árangur með
hveiju ári sem líður og er garðurinn
eitt af verðmætum Stykkishólms.
Kvenfélagið helfur látið sig mál-
efni kirkjunnar mikið skipta um
áraraðir, fært kirkjunni verðmætar
gjafír, annast aðventukvöld o.fl. Þá
var um langt skeið söfnun á vegum
félagsins til stofnunar húsmæðra-
skóla og 1944 hóf félagið söfnun
til elliheimilisbyggingar og þegar
heimavist bamaskólans var breytt
í heimili fyrir aldraða lagði kvenfé-
lagið veralega fjárapphæð til þess
verkefnis. Þess má geta að kvenfé-
lagið stóð með öðram félögum að
byggingu veglegs félagsheimilis í
Hólminum og er eignaraðili að þeirri
stofnun. Bamaleikvöllur fyrir fram-
kvæði kvenfélagsins er starfræktur
á sumrin og lagði félagið fram
starfskrafta en hreppsfélagið sér
nú um ijárreiður.
Kvenfélagið rekur skrúðgarðinn
og þar era unglingar að störfum i
umsjá félagskvenna og Stykkis-
hólmshrepps. Garðurinn hefír verið
stækkaður mjög og er komið þar
gott athafnasvæði fyrir útihátíðir
svo sem 17. júní o.fl. Skólinn hefir
ekki farið varhluta af starfí kvenfé-
lagsins og lengi hafa sjúklingum
og vistfólki á dvalarheimilinu verið
færðar gjafír fyrir jól. Kvenfélagið
lét byggja hús fyrir starfsemina í
skrúðgarðinum og er það bæði til
prýðis og góðra nota. Var þetta
mikið afrek og íjárfrekt.
Þegar samband breiðfírskra
kvenna var stofnað varð kvenfélag-
ið aðili að því uns kvenfélagsam-
band sýslunnar hóf störf 1965 þá
gekk félagið þar til samstarfs. Þótti
það hentugra. Alls hafa 17 félags-
konur verið gerðar að heiðursfélög-
um á umliðnum árum og nú munu
11 þeirra vera á iífi.
Lengst allra hefir Kristjana
Hannesdóttir, fv. skólastjóri, verið
formaður eða í 19 ár og þrátt fyrir
háan aldur sækir hún enn fundi,
fylgist með og tekur til máls og
reifar mál dagsins. Hún er heiðurs-
félagi. Margar era þær konurnar í
gegnum árin sem unnið hafa kven-
félaginu mikið gagn og gæfa
félagsins hefír verið að hafa jafnan
góðum félögum á að skipa og notið
velvildar bæjarbúa. Ekki má
gleyma að minnast allra skemmti-
og fræðsluferðanna um landið sem
kvenfélagið hefir staðið fyrir og
orlofsdvalir hafa þær látið til sín
taka.
Félagar munu nú vera um 80.
Stjórn skipa nú: María Bærings-
dóttir, formaður, Alma Diego,
gjaldkeri, og Guðrún Gunnlaugs-
dóttir, ritari.
— Árni.
Landbúnaðarráðstefna Varðar;
Straumhvörf í ís-
lenskum landbúnaði
STRAUMH V ORF í íslenskum
landbúnaði verður yfirskrift ráð-
stefnu um landbúnaðarmál sem
landsmálafélagið Vörður heldur
á morgun, föstudag, í Valhöll við
Háaleitisbraut.
Ráðstefnan stendur frá klukkan
16 til 20. Dagskráin er þannig:
Setning: Dr. Jónas Bjamason,
formaður Varðar.
Þróun í landbúnaði seinustu árin:
Dr. Sigurgeir Þorgeirsson.
Stjómkerfi landbúnaðarins:
Gunnlaugur Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri.
Afleiðingar afurðasölu- og verð-
lagsskipulagsins: Steingrímur Ari
Arason, hagfræðingur.
Staða bændastéttarinnar: Jó-
hannes Torfason, bóndi.
Áhrif kvótakerfísins og núver-
andi framleiðslustýring: Guðmund-
ur Stefánsson, landbúnaðarhag-
fræðingur.
Hvemig er hægt að leysa núver-
andi vanda?: Ketill A. Hannesson,
landbúnaðarhagfræðingur.
Stefnumörkun í landbúnaði: Jón
Magnússon hdl.
Ráðstefnustjóri verður Sigur-
bjöm Magnússon lögfræðingur.
Fundurinn er opinn öllum áhuga-
mönnum um landbúnaðarmál.
(Úr fréttatilkynningu.)
Morgunblaðið/Guðmundur Pétureson
Yegarlagmngu að flugstöðinni að ljúka
Verktakar eru langt komnir með lagningu vegar að nýju flugstöðinni á Keflavikurflugvelli og er
verið að tengja hann við Reykjanesbrautina á Fitjum í Njarðvík. Vegurinn er 7 km að lengd.
Myndin var tekin er unnið var að framkvæmdum við veginn í vikunni.
172 vinningar afhentir
í jólahappdrætti SÁÁ
VINNINGAR í jólahappdrætti
SÁÁ hafa verið afhentir, en alls
voru þeir 172 talsins. Dregið var
eingöngu úr seldum miðum.
Vinningar voru 14 bílar, átta
myndbandsupptökuvélar, 75 út-
varpstæki með segulbandi og 75
reiðhjól.
Samtök áhugafólks um áfengis-
vandamálið reisti á áranum 1982
og 1983 sjúkrastöð að Vogi með
60 sjúkrarúmum. í árslok 1983 var
sjúkrastöðin flutt frá Silungapolli.
Hvert rúm á Vogi hefur verið skip-
að frá fyrsta degi og svo er enn.
Sjúkrastöðin er rekin með daggjöld-
um Tryggingastofnunar. Enn era
miklar og þungar byggingaskuldir
sem hvfla á Vogi og rennur ágóði
happdrættisins nú sem áður til að
grynnka á þeim skuldum, segir í
frétt frá SÁÁ.
Á árinu 1985 komu um 1.500
einstaklingar á aldrinum 16 til 80
ára til meðferðar á Vogi í tíu til
tólf daga. Þar af vora um 650 að
koma til meðferðar í fyrsta sinn.
Flestir halda áfram til endurhæf-
ingar að Sogni eða Staðarfelli.
Tölur frá því í fyrra liggja ekki
fyrir enn, en era svipaðar.
í fræðslu- og leiðbeiningastöð
SÁÁ, Síðumúla 3-5, fær fólk oft
fyrstu aðstoð auk þess sem nám-
skeiðahald og viðtalsþjónusta er
veitt fyrir þá sem áður hafa sótt
meðferð. Þar fer einnig fram
fræðsla fyrir fjölskyldur og aðra
aðstandendur drykkjusjúkra. Á
hverju fimmtudagskvöldi er þar
kynningarfundur um áfengisvanda-
málið og starfsemi SÁÁ. Má því
ætla að um 3.000 einstaklingar
njóti þjónustu SÁÁ á ári hveiju,
segir jafnframt í fréttatilkynningu
Frá afhendingu vinninga í jólahappdrætti SÁÁ