Morgunblaðið - 19.02.1987, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 19.02.1987, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987 45 Leitin að Harry Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Frelsum Harry (Lets Get Harry). Sýnd í Stjörnubíó. Stjörnugjöf: ★ ★ Bandarísk. Leikstjóri: Alan Smithee. Handrit: Charles Rob- ert Carner, eftir sögu Mark Feldberg og Samuels Fullers. Tónlist: Brad Fiedel. Kvik- myndataka: James A. Contber. Framleiðendur: Daniel H. Blatt og Robert Singer. Helstu hlut- verk: Michael Schoeffling, Robert Duvall, Gary Busey, Glenn Frey og Ben Johnson. Það má vera að það hljómi undar- lega en Frelsum Harry er hasar- mynd um pípulagningamenn. Þannig er að í Kólumbíu er pípu- lagningamanni rænt um leið og sendiherra Bandaríkjanna og félag- ar píparans í Ameríku halda suður í land til að frelsa hann. Félagar sendiherrans gera hins vegar ekki neitt af því það er yfirlýst stefna stjómarinnar í Washington að semja ekki við mannræningja. Pípulagningamennirnir eru ekk- ert séríega sterkir á svellinu þegar kemur að því að fást við spillinguna í Kólumbíu jafnvel þótt Robert Duvall sé með þeim og reyni að bjarga því sem bjargað verður, bæði að því er varðar leiðangurinn og myndina sjálfa. Duvall, Gary Busey, Glenn Frey, fyrrum meðlimur hljómsveitarinnar The Eagles, og Ben Johnson eru á meðal leikaranna í þessari hetju- mynd, sem sýnir unga, hugrakka og stolta Ameríkana halda út í Fiskvinnslu- námskeið í Stykkishólmi Stykkishólmi. EINS OG áður hefir komið fram notaði fiskvinnslufólkið sér timann vel á meðan verkfall sjó- manna stóð í janúar. A vegum verkalýðssamtakanna hér á Snæ- fellsnesi var settur upp skóli í fiskvinnslu og öðrum hagnýtum fræðum til þess að sá fróðleikur og verktækni sem nú er allsstað- ar mætti koma að sem bestum noturn fólkinu, sem vinnur við þennan fyrsta flokks mat, og þá ekki siður þeim sem vöruna selja og hennar neyta. Þótt fískurinn okkar hér sé besta fæða í heiminum, vil ég segja, þá er eins og alltaf sé hægt að bæta hann og gera úr honum betri vöru og ég sem frá bamæsku hefi fylgst með vinnslu sjávarafurða, allt frá erfíðri og einfaldri vinnutilhögun í nýtísku meðferð, undrast stundum hversu öllu hefír þar fleygt fram, bæði hvað meðferð og hreinlæti snertir. Og ennþá er hægt að gera betur. Það sýndi mér það sem ég fékk að fylgjast með námskeiðinu hér í Hólminum. Þegar verkfalli lauk, var töluvert eftir af þeim tíma sem námskeiðið átti að standa og létu þá fískvinnslumar hér fólkið skipta sér á námskeiðin þannig að vinnsla sjávarafurða gat gengið áfram. Sjávarþorpin hér voru með þessi námskeið í sameiningu og þegar fréttamann bar að garði á eitt þess- ara námskeiða var sóknarprestur- inn úr Grundarfirði að fræða nemendur námskeiðsins um hag- nýta hluti. Kom strax í hug minn að ekki spillti guðsblessun fyrir. Sem sagt, það var góður andi þama ríkjandi og ég átti svo tal við nám- skeiðsmenn sem voru himinlifandi yfír því, eins og einn sagði: „Hvað ég hafði gott af þessum tímum.“ Einar Karlsson formaður Verka- lýðsfélags Stykkishólms var með í forinni og fannst -þessi stund jafn ánægjuleg og fréttaritara. Og þegar við yfirgáfum staðinn var í hugan- um þessi góða setning: Alltaf getur gott batnað. óvissuna til að bjarga félaga sínum. Og það em kannski fyrst og fremst þessir leikarar (að Johnson frá- dregnum), sem gera þetta gatslitna Rambóþema og óð til ameríska ein- staklingsframtaksins, vináttu og bræðralags að einhveiju sem hægt er að horfa á án þess að sofna. Duvall leikur harðjaxlinn Nor- man, sem býðst til að fara með grænjöxlunum úr pípulagninga- stéttinni suður til Kólombíu. Norman er stríðshetja frá Víetnam og Duvall nýtur þess í botn að leika hann, töff, æsingalaus og kíminn þótt það sé svolítið skrítið að sjá þennan vandaða skapgerðarleikara á einum stað setja sig í karatestell- ingar og lemja niður fjóra misyndis- menn eins og hann væri sjálfur Rambó. Busey leikur gleiðbrosandi bfla- sala, sem fjármagnar leiðangurinn og er kostulega amerískur í öllu sem hann gerir, og Glenn Frey leikur einn af pípulagningamönnunum, sniffar kókaín og hendir gaman að kringumstæðunum. Aðrir í leið- angrinum eru alltof iðnir við að leika alvarlegar og fórnfúsar hetjur til að hægt sé að hafa gaman af þeim. Robert Duvall: Það besta við myndina Frelsum Harry. Raunar hefði þessi mynd alveg eins getað heitið Á villigötum því mestur partur myndarinnar fer í að sýna píparana þvælast um Kól- umbíu án þess að komast afturábak eða áfram í leit sinni að Harry. í lokin kemur svo skotbardaginn ómissandi og hann fer eins og mað- ur á von á þegar hjartahreinir hitta óþjóðalýðinn. Það hefði verið gam- an að sjá hvað maður eins og Oliver Stone hefði gert úr þessum efnivið. Sýning í „Jútópíu“ SIGÞRÚÐUR Pálsdóttir (Sissú) opnar myndlistarsýningu í „Jútópíu“ að Hverfisgötu 57a í Reykjavík laugardaginn 21. fe- brúar kl. 16.00. Er þetta þriðja einkasýning Sissúar i Reykjavík á sl. fjórum árum. Galleríið „Jútópía" hefur verið vinnustaður listamannsins undan- farin tvö ár en hún kveður nú húsnæðið með þessari sýningu. Á sýningunni verða u.þ.b. 25 olíumálverk unnin á árinu 1986 og 20 teikningar. Sissú stundaði nám á Ítalíu og í Kaupmannahöfn og hélt síðan til New York haustið 1977, fyrsta vet- urinn þar var hún við myndlist- amám í The Arts Students League of New York. Árin 1978-82 nam hún síðan myndlist við The School of Visual Arts í New York og lauk þaðan BA prófí vorið 1982. Sýningin verður opin daglega frá kl. 16.00-22.00 og stendur til 1. mars. ÚTSALA Þeir sem til þekkja vita hvað við meinum með útsölu Vörulækkun sem vekur athygli Upphitunarbuxur kr. 350, Sundbolir kr. 990,- Sundskýlur kr. 290,- Úlpa Verð áður kr. Nú 2.490,- 990,- Skíðabuxur 3.675,- 1.990,- Skíðagallar 4.510,- 2.990,- Skíðagallar 6.900,- 4.900,- Skíðagallar 10.175,- 6.900,- Skíðapeysur 6.990,- 5.995,- Henson-galli 3.490,- 1.990,- Adidas-skór 1.490,- 990.- Don Cano 5.670,- 2.990,- Gönguskíði 2.580,- 1.890,- Henson-galli 3.300,- 990,- Don Cano-anorakkur 5.960,- 3.990,- Moon Boots 1.250,- 890,- Skíða-stretch-buxur 3.789,- 2.490,- \ Sendum í póstkr 'öfu msm i \t Laugavegi 116 við Hlemm, Símar 26690 og 14390 Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Um skoðanir hefur verið sagt: Við teljum þá eina menn vitra sem játa okkar eigin skoðanir. — gullkom — Þessa skoðun þekkja að sjálfsögðu allir af eigin raun! Það ætti því ekki að verða erfítt að verða mér sam- mála um gæði meðfylgjandi máls- verðar. Rétturinn er næsta óvenjulegur aðalréttur, hann kemur samt flestum þægilega á óvart. Þetta er Fiskpottréttur (fyrir 4) 1 stór laukur 1 hvítlauksrif 1 stór gulrót 2—3 stönglar sellerí 1 græn paprika 50 gr smjörlíki 1 lítil dós tómatpúrré 1 lárviðarlauf 2—3 meðalstórar kartöflur 'h tsk. basil 1 tsk. salt (eða eftir smekk) 2 bollar kjúklingasoð eða 2 bollar vatn + 2 ten. kjúklinga- kraftur 700—800 gr. fískur (ýsa, lúða, skötuselur, rækja) V2bolli ijómi. 1. Smjörlíkið er hitað í potti. Lauk- ur er skorinn fremur smátt, hvít- lauksrif er finsaxað, sellerístönglar eru skomir í bita, gulrót og paprika eru hreinsaðar og skomar í litla bita. Grænmetið er láti krauma í feitinni þar til það er farið að mýkjast upp. 2. Því næst er tómatkrafti, lándð- arlaufi brotnu í tvennt, basil og salti bætt út í og hrært saman við græn- metið og allt látið krauma í 1 mín. 3. Kartöflur (afhýddar hráar og skomar í litla teninga) er bætt út í ásamt kjötsoðinu (að sjálfsögðu má einnig notað físksoð). Lok er sett yfir pottinn og grænmetið soðið þar til kartöflumar eru næstum fullsoðn- ar (5—10 mín.) 4. Fiskurinn (ein tegund eða fleiri) er skorinn í munnbitastærð, bætt út í pottinn og er fiskurinn rétt soðinn í gegn. 5. Að síðustu er ijómanum bætt út soðið og hitað vel. Hrært er var- lega í á meðan. Á borð eru lagðir djúpir diskar og skeiðar. Pottrétturinn borinn fram í súpuskál með kjamgóðu brauði eða heitu brauði smurðu hvítlaukssmjöri. Fiskisúpur eða fískpottréttir þykja með fínni málsverðum víða erlendis. En þeir em dýrir, þar sem fiskur er víðast hvar dýrari en hér á landi. Fræg er hið suður-franska „bouilla- baisse", en í þann rétt em settar hinar Qölbreyttustu físk- og skelfísk- tegundir. Þær em soðnar í góðu fisksoði með lauk og kryddlaufí. Fiskpottréttir hafa ekki verið al-' gengir á borðum hér á landi undanfarin ár. Við höfum þó heims- ins besta hráefni, sem er nýveiddur fískur. Margir fískpottréttir era af- bragðsmatur og falla vel að bragð- smekk yngra fólksins eins og þessi sem hér fylgir. ☆ ☆ ☆ Ég á mér draum; að settur verði upp fiskmarkaður fyrir neytendur niðri við höfn á laugardagsmorgn- um. Á þessum markaði sé ég fyrir mér nýveiddan fisk og allar tegund-. ir skelfisks og krabba sem veiðanleg- ar em í flóanum. /\pglýsitíga-: síminn er 2 24 80
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.