Morgunblaðið - 19.02.1987, Page 46

Morgunblaðið - 19.02.1987, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987 Morgunblaðið/Þorkell Samtök gegn astma og ofnæmi gáfu lungnadeild Vífilsstaðaspítala tvö sjúkrarúm sl. laugardag. Samtök gegn astma og ofnæmi: Gáfu Vífilsstaða- spítala 2 sjúkrarúm SAMTOK gegn astma og ofnæmi afhentu lungnadeild Vífilsstaða- spítala tvö sjúkrarúm laugardag- inn 14. febrúar sl. og verða önnur tvö rúm afhent síðar. Samtök gegn astma og ofnæmi eru landssamtök og eru liðlega 1100 manns í þeim. Fræðslufundir eru haldnir á vegum samtakanna og einnig er gefið út fréttabréf. Samtökin hafa gengist fyrir nám- skeiðum að Reykjalundi, einnig fyrir ferðum félagsmanna, bæði innanlands og utan. Rekstur félagsins er fjármagnað- ur með félagsgjöldum, skyndihapp- drættum, jólakortasölu, bingói, árlegum jólabasar ofl. Skrifstofa samtakanna er að Suðurgötu 10 í Reykjavík og er opið þar frá kl. 13 til 17 mánudaga til fimmtudaga. Framhaldsnámskeið ítarlegt og vandað námskeið fyrir þá sem kunna grunnatriðin í notkun Multiplans en vilja læra að nota möguleika kerfisins til fulls. Dagskrá: ★ Upprifjun á helstu skipunum í MULTI- PLAN. ★ Rökaðgerð í MULTIPLAN. ★ Notkun stærðfræðifalla. ★ Endurreikningsaðferðin INTERATION. ★ Ýmis algeng verkefni leyst með MULTI- PLAN. ★ Notkun tilbúinna líkana í MULTIPLAN. ★ Tenging við teikniforritið CHART. ★ Notkun Macró skiparta í MULTIPLAN 2.0. ★ Umræður og fyrirspurnir. Tími: 23.-26. februar kl. Innritun i símum 687590 og 686790 UriðbetawndJ: Ó*kar B. Haukuon, verfcfrasðlngur. 17—20. Tölvufræðslan Borgartúni 28, Reykjavík. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ROBIN LUSTIG Persaflóa-stríðið vekur ugg í Kuwait MOHAMMED Ali Naki, afkomandi einnar virtustu ættar Shia- múhameðstrúarmanna í Kuwait, birti stóra auglýsingu á forsíðum allra dagblaða í Kuwait um síðustu mánaðamót. Þar sagði meðal annars: „Mohammed Ali Naki, bræður hans og fjölskylda tilkynna hér með að þau eru ekkert skyld þeim sem innanríkisráðuneytið hefur handtekið og ákært fyrir íkveilgur.“ skuldinni á útlendinga eina. „Ágreiningur sértrúarhópanna hef- ur skotið rótum um allt samfélagið," segir vestrænn stjómarerindreki. Vestrænir sérfræðingar í löndun- um við Persaflóa segja að yfirvöld að er skiljanlegt að fjölskyldan skuli vilja staðfesta sakleysi sitt. Sjónvarpið í Kuwait hafði sýnt áhrifamiklar myndir af birgðum af vopnum og skotfærum sem sagt var að hefðu fundizt við handtöku 11 Kuwait-búa sem grunaðir voru um aðild að skemmdarverkum á mikil- vægum búnaði til olíuvinnslu undan strönd landsins. Meðal hinna hand- teknu var maður að nafni Khaled Abdel-Majid Abdel Nabi al-Naki, og öllum Kuwait-búum var strax ljóst að þar fór maður úr einni valda- mestu Shia-fjölskyldu þessa litla furstadæmis. Það er ekki eingöngu Naki-íjöl- skyldan sem hefur áhyggjur. í Kuwait má gjörla heyra fallbyssu- drunumar frá suðurvígstöðvum Persaflóastríðsins, og styijöldin hef- ur ófyrirsjáanleg áhrif á lífið í furstadæminu, sem stendur við botn flóans. „Það verður ekki aftur snúið," sagði menntamaður úr röðum Shia, sem ekki vildi láta nafns síns getið. „Hér hefur ekki farið mikið fyrir ftjálslyndi. Samfélagið hér í Kuwait hefur þó alltaf verið opnara en í öðmm ríkjum hér við flóann, en þetta er viðkvæmt samfélag sem á erfitt með að taka áföllum. Hér ríkir nú mikil spenna og drungi. Hér er ekkert frelsi lengur." Talið er að um 30% íbúa Kuwaits séu Shia-múhameðstrúar, flestir af- komendur innflytjenda sem komu frá íran um síðustu aldamót. Sumir þeirra em sagðir styðja málstað ír- ana í styijöldinni við Persaflóa, sem staðið hefur í sex ár, og sumir tala frekar persnesku en arabísku á heimilum sínum. Að sögn halda þeir stundum niður á markaðstorgin og dreifa þar sætindum þegar frétt- ir berast af velgengni írana á vígstöðvunum. Handtökumar um mánaðamótin juku enn á spennuna í Kuwait. Þá viðurkenndu yfírvöld í fyrsta sinn að það væru ekki eingöngu erlendir æsingamenn sem væm að vinna skemmdarverk á homsteinum sam- félagsins, heldur ættu Kuwait-búar sjálfir þar einnig aðild að. í þjóð- félagi þar sem aðeins lítill hluti þjóðarinnar telst vera „fyrsta flokks" borgarar — hinir eru ýmist taldir aðkomumenn eða skammtíma innflytjendur án nokkurra borgara- réttinda — felast válegar vísbend- ingar í þessari viðurkenningu. Dagblaðið Arab Times, sem gefið er út á ensku, og er eins og öll dagblöð í Kuwait undir ströngu eft- irliti yfirvalda, segir í forustugrein: „Þessir menn (sem ákærðir em fyr- ir skemmdarverk) hafa hlotið borgararéttindi í Kuwait. Kuwait hefur reynzt þeim gjöfult, tekið þá í tölu sona sinna og gefíð þeim nöfn. Hvað vilja þessir djöflar í raun og veru, og fyrir hvaða ódæðisöfl starfa þeir?“ Frammámenn í sumum rílqum við Persaflóa telja að Kuwait hafi boðið hættunni heim með því að hleypa inn í landið verkamönnum frá ýmsum öðram arabaríkjum til að starfa þar meðan mestur upp- gangur var í olíusölunni. „Þeir hleyptu inn Palestínumönnum, Líbönum, írökum og írönum — en ófriður ríkir hjá öllum þessum þjóð- um,“ sagði talsmaður eins Persa- flóaríkisins. Sumir Kuwait-búar em sama sinnis, eða eins og einn þeirra komst að orði: „Palestínumenn em mestu skepnumar í Austurlöndum nær. Þeir einu sem kunna réttu tök- in á þeim em ísraelar.“ I Bahrein, eyríki út af miðri suð- vesturströnd Persaflóa þar sem meirihluti íbúanna 400.000 em Shia-múhameðstrúar, hafa yfirvöld lengi sýnt meiri aðgát og aðeins hleypt inn til landsins farandverka- mönnum frá „ömggum" löndum eins og Indlandi, Pakistan og Filippseyjum. Enginn farandverka- mannanna fær að dveljast í landinu lengur en starfssamningur hans segir til um. Þótt Bahrein-búar haldi því fram að stríðið við Persaflóa hafi lítil sjá- anleg áhrif haft á opinn og heims- borgaralegan lífsstfl þeirra (þar er sala á áfengi fijáls, en hinsvegar bönnuð í Kuwait og Saudi Arabíu), telja erlendir sendifulltrúar að vax- andi gremja grafí um sig hjá Shia-múhameðstrúarmönnum vegna yfírráða Sunni-múhameðs- trúarmanna, sem fyrst fluttust til landsins frá nálægum arabaríkjum fyrir 250 ámm. „Sunnitamir em aðkomumenn hér, og litið á þá sem slíka," segir vestrænn stjómarerindreki. „Það em ekki allir Shitar sem viðurkenna þá sem lögmæta stjómendur." Árið 1981 komu yfírvöld í veg fyrir bylt- ingartilraun, sem sagt var að Shitar hafi skipulagt með aðstoð frá íran. Síðan hefur þó ríkt ró á stjóm- málasviðinu, þótt útlendingar í Manama, höfuðborg Bahrein, segi að hópar Shia-útlaga, sem búsettir em í Iran, dreifi annað veifið flugrit- um þar sem hvatt er til þess að emímum, Sheik Isa bin Salam al- Khalifa, verði steypt af stóli. Meðan_ keisarinn heitinn réð enn ríkjum í íran, gerðu íranir kröfu til yfirráða á Bahrein. Byltingarstjóm Khomeinis, sem við tók, hefur enn ekki ítrekað þá kröfu, en sumir Bahrein-búa óttast að svo kunni að fara. Nýlega vár opnaður nýr akveg- ur frá Bahrein yfir sundið til Saudi Arabíu — sem Saudi Arabía kostaði að öllu leyti — og er litið á hann sem tákn þess að Bahrein sé tengd- ari arabaþjóðunum við flóann en Persum. Þótt það sé siður í Kuwait að kenna „útlendum" Shitum um inn- lenda undirróðursstarfsemi, virðast nýjustu handtökumar benda til þess að ekki sé lengur unnt að skella þar um slóðir óttist ekki mest að byltingarsveitir írana muni í fram- tíðinni bijótast gegnum vamir íraka og flæða suður eftir vesturströnd Persaflóa með íslömskum ofsa. Það er álitið mjög ósennilegt. Það sem heldur vöku fyrir araba- höfðingjunum er tilhugsunin um að innbyrðis ósætti hjá þjóðum þeirra, sem þar til nýlega var unnt að halda í skefjum með ríkulegu aðstreymi olíudollara, bijótist brátt upp á yfir- borðið. „Martröð þeirra er ekki sú að upp á þá verði þröngvað ein- hverskonar klerkaveldisstjóm, heldur skelfast þeir tilhugsunina um að samfélag þeirra geti sundrazt eins og í Líbanon," segir háttsettur stjómarerindreki. Ráðamenn í ríkjunum við Persa- flóa stjóma eftir gömlum og reyndum leiðum, sem eiga lítið skylt við vestrænar hugmyndir um lýð- ræði. Kuwait gat áður hreykt sér af því að vera talið eina lýðræðisrík- ið við flóann, jafnvel þótt, eins og vestrænn stjómarerindreki komst að orði, þar ríkti lýðræði skylt því sem var í Grikklandi hinu foma, aðeins til hagsbóta fyrir ríkjandi yfirstéttir. En þing landsins var leyst upp í fyrra þegar óstýrilátir stjómmálamenn fóm að skipta sér af fjármálum fjölskyldu stjómenda landsins. Enginn virðist harma örlög þingsins neitt að ráði; eða eins og einn íbúanna komst að orði:„íbúar Kuwait taka peninga framyfír lýð- ræði — það sem skiptir máli hér er að allir séu auðugir." Persaflóastríðið hefur slæmar af- leiðingar fyrir Kuwait hvemig sem það fer. Ef íran ber sigur úr býtum verða Kuwait-buar að horfa fram á nábýli við islamska byltingarsinna. Verði gífurlegur herstyrkur íraka óskertur að styijöldinni lokinni, er hugsanlegt að þeir ágimist á ný landsvæði Kuwaits, eins og þeir gerðu fyrir 25 ámm þegar Bretar urðu að senda þangað her til að koma í veg fyrir innrás. Og ef styijöldin geisar áfram, verður Kuwait — sem er lang auðug- asta ríkið við Persaflóa og hefur lengi veitt írökum mesta fjárhags- aðstoð allra ríkja — að halda áfram að standa undir stríðskostnaðinum. Eins og einn stjómarfulltrúinn komst að orði nýlega: „Hvemig svo sem stríðinu lyktar verða afleiðing- amar slæmar fyrir Kuwait." Höfundur er fréttaritarí brezka blaðsins The Observer í Austurlöndum nær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.