Morgunblaðið - 19.02.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
49
Ríkisútvarpið-Sjónvarp;
Þingfréttirnar verða
með eðlilegum hætti
- þrátt fyrir samþykkt útvarpsráðs sérstaklega fréttnæmra at
„ÉG má haga mínum fréttaflutn-
ingi af Alþingi og af stjórnmálum
með nákvæmlega sama hætti og
ég hef gert til þessa,“ sagði Ólaf-
ur Sigurðsson, þingfréttamaður
ríkissjónvarpsins, í samtali við
Morgunblaðið í kjölfar sam-
þykktar útvarpsráðs sl. föstudag
um hertar reglur um frambjóð-
endur í ríkisfjölmiðlum.
Samkvæmt samþykktinni skulu
frambjóðendur í aðalsætum í al-
mennum kosningum ekki koma
fram í almennum dagskrám ríkis-
fjölmiðlanna frá því að framboðs-
listar eru birtir þar til kosning hefur
farið fram. Ólafur sagðist hafa
fengið skriflegt svar fréttastjóra
varðandi málið að undangengnu
samtali hans við útvarpsstjóra
„þannig að ég held áfram frétta-
flutningi mínum af þingi eins og
ekkert hafi í skorist."
Atli Rúnar Halldórsson, þing-
fréttamaður ríkisútvarpsins, sagð-
ist ekki vita hvort taka ætti þessa
samþykkt sem grin eða alvöru. „Ég
sá tvo möguleika í stöðunni, annars
vegar að hætta að skrifa pólitískar
fréttir fram yfír kosningar eða
skrifa eingöngu fréttir um þá þing-
menn sem ekki eru lengur í
framboði svo sem þau Sigríði Dúnu,
Garðar Sigurðsson og Guðmund J.
Fréttastjóranum leist hinsvegar
ekki á.þá möguleika og sagði mér
að sinna fréttaflutningi mínum eins
ogeg hef verið að gera hingað til.“
í samþykktinni segir einnig;
„Fréttastofu ber að varast að leiða
frambjóðendur fram í fréttum eða
fréttatengdum þáttum eftir að
framboð hefur verið tilkynnt og þar
til kosningar eru um garð gengnar
nema unnt sé að leiða sterk rök að
nauðsyn þess að viðkomandi komi
fram í fréttum eða í hann sé vitnað
„Mér fínnst þetta ákaflega sér-
kennileg samþykkt og ég get ekki
staðið frammi fyrir því að þurfa að
verja gerðir mínar taki ég frambjóð-
anda í útvarpsviðtal vegna máls,
sem ég met fréttnæmt," sagði Atli
Rúnar að lokum.
Söngkonan
Haywoode
skemmtir
í Evrópu
BRESKA söngkonan Hay-
woode skemmtir gestum
veitingahússins Evrópu,
Borgartúni 32, dagana 19.,
20. og 21. febrúar nk.
Haywoode hóf feril sinn með
því að syngja bakraddir með
bresku hljómsveitinni Spandau
Ballet og síðan með Boy George
og félögum í Culture Club.
Henni til aðstoðar á sviði eru
tvær stúlkur sem syngja bakradd-
ir og dansa með henni, koma þær
einnig frá Bretlandi.
Auk þess að skemmta gestum
Evrópu mun hún verða í veitinga-
húsinu Glaumbergi í Keflavík
fostudaginn 20. febrúar.
Breska söngkonan Haywoode
BOKHALDSN ÁMSKEIÐ
ÓPUS— hugbúnaður
Tölvufræðslan hefur skipulagt 14 tima námskeið
í ÓPUS-bókhaldskerfinu. Á námskeiðinu verður
mestum tima varið í fjárhags- og viðskiptamanna-
bókhaldið, en jafnframt er gert ráð fyrir að
nemendur fái heildarsýn yfir ÓPUS-kerfið og
tengingu sölukerfis við viðskiptamanna- og
birgðabókhald.
Námskeiðið hentar þeim sem eru að
byrja að nota ÓPUS-kerfin eða vilja
kynnast ÓPUS-hugbúnaðinum.
Dagskrá:
★ Grundvallaratriði við notkun PC-tölva.
★ Uppsetning bókhaldslykils.
★ Skráning færslna á fjárhagsbókhald.
★ Runuvinnsla.
★ Áramót/lokun timabila/áætlanagerð.
★ Stofnun viðskiptamanna.
★ Uttektir og innborganir viðskiptamanna.
★ Vaxtaútreikningur.
★ lnnheimtuaðgerðir með ÓPUS
★ Prcntun limmiða.
★ Uppsctning rukkunarbréfa.
★ Birgðaskráning og verðlistar.
★ Vörur færðar á lager/vörutalning.
★ Prcntun sölunóta.
★ Öryggisafritun bókhaldsgagna.
★ Umræður og' fyrirspumir.
Leiðbeinandi:
Sigriður Hauksdótttr,
starfsmaður
íslenskrar
forritaþróunar.
Timi: 28. febrúar og 1. mars kl. 9-17.
Ixmritim í símum 686790 og 687590.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
NÁMSKEIÐ SFÍ
STJÓRNUNARNÁMSKEIÐ
ERLEND NAMSKEIÐ
ÚTFLUTNINGS- OG
MARKAÐSSKÓLI
ÍSLANDS
TÖL VUSKÓLl/
TÖL VUFRÆÐSLA
MÍMIR
MÁLASKÓLl/
RITARA SKÓLI
FJÁRFESTINGA
ÁKVARDANIR
FYRIR TÆKJA
Markmið námskeiðsins er að kynna
þátttakendum ýmis hugtök fjárfestingarreikninga.
□ Efni:
Á námskeiðinu verður fjallað um aðferðir
við að meta arðsemi fjárfestinga. Fjallað
verður um ýmis hugtök s. s.
greiösluraðir, vaxtareikning, arðsemi og
áhættu fjárfestingar, núvirði, afkastavexti
og næmisathuganir. Fjallað verður um
tölvutækni sem hjálpartæki viö
fjarlestingarútreikninga og kynnt veróa
nokkur forrit í þvl sambandi.
Þátttakendur: Námskeiöið er einkum ætlaö þeim sem vinna
vió eða ætla að vinna vió mat fjárfestingarvalkosta og vilja
kynnast aóferóum og kenningum á sviði tjármáiafræóa.
Leiðbeinandi: Glsli S. Arason rekstrarhagfræðingur. Rekur
eigið rekstrarráðgjpfarfyrirtæki, Stuðul hf., og er
stundakennari viö Háskóla íslands.
Timiog staður: 2.—3. mars, kl. 8.30—17.30 fyrri daginn
og kl. 8.30—12.30 seinni daginn I Ánanaustum 15.
4, BOKFÆRSLA
Markmið þessa námskeiös er að þátttakendur
geti að því loknu fært almennt bókhald og fengið
nokkra innsýn í gerð rekstraryfirlita.
Námskeið þetta er bæöi ætlað byrjendum og
lengra komnum.
□ Efni:
— Meginreglur tvlhliðabókhalds meö
færsium I sjóðbók, dagbók,
viðskiptamannabækur og aðalbækur.
— Gerö rekstraryfirlita og uppgjörs.
Leiöbeinandi: Þorvaldur Ingi Jónsson, viðskiptafræðingur,
deildarstjóri i rlkisbókhaldi.
Timj og staður: 2.-6. mars, kl. 13.30—18.30
að Ánanaustum 15.
dBase ///+, 9.—11. mars
Leiðbeinandi: Valgeir Hallvarðsson
Sölutækni, 10.—11. mars
Leiðbeinandi: Haukur Haraldsson
Stjórnandinn og hlutverk hans, 9.—12. mars
Leiðbeinandi: Höskuldur Frímannsson
Stofnun nýrra fyrirtækja, 11.—13. mars
Leiðbeinandi: Þorsteinn Guðnason
Multiplan II, 12., 13. og 16. mars
Leiðbeinandi: Björn Guðmundsson
Verkefnastjórnun, 9.—10. mars
Leiðbeinandi: Don G. Todd
DISPLA YWRITE/36
Displaywrite ritvinnsiukerfið hefur veriö þýtt yfir á
Islensku og nefnist nú Ritvangur/36. Skjámyndir
og hjálpartextar eru á íslensku sem auðveldar
notandanum alla vinnslu við kerfið.
Markmið: Tilgangur námskeiðsins er tvíþættur.
Annars vegar að þjálfa þátttakendur í notkun
Ritvangs/36 og hins vegar að kenna uppsetningu
skjala og bréfa með sérstöku tilliti til þeirra
möguleika sem Ritvangur/36 býóur upp á.
□ Efni:
— Valmyndir S/36
— Skipanir kerfisins
— /Efingar
— íslenskir staðlar
— Prentun
— Útsending dreifibréfa meö tengslum
. við Svara/36 (Query/36)
— Kynning á Liðsinna/36 (Personal
Services/36)
Þátttakendur: Námskeióið er ætlað notendum IBM tölva sem
áhuga hafa á að læra notkun Ritvangs/36 og kynnast
tengslum kerfisins við annan hugbúnað System/36 töiva.
Tími og staður: 2.-5. mars kl. 13.30—,17.30.
Leiðbeinandi: Ragna Siguröardóttir Guðjohnsen.
VIÐ VILJUM MINNA A