Morgunblaðið - 19.02.1987, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
Athugasemdir vegna
fj ölmiðlakannana
NOKKRAR athugasemdir vegna
samanburðar á fjölmiðlakönnun
SKÁÍS (29. janúar) og fjölmiðla-
könnunum Félagsvísindastofn-
unar (desember 1986).
Undanfarið hefur nokkuð verið
fjallað á opinberum vettvangi um
könnun SKAÍS á notkun sjónvarps
á Faxaflóasvæðinu og hafa niður-
stöður þessarar könnunar verið
bomar saman við niðurstöður könn-
unar Félagsvísindastofnunar frá
desember sl. Þar sem samanburður
þessi er mjög villandi telur Félags-
vísindastofnun rétt að upplýsa
eftirfarandi:
1. Könnun SKÁÍS er unnin með
annarri aðferð en kannanir Félags-
vísindastofnunar og eru niðurstöður
þessara kannana alls ekki sambæri-
legar. Könnun SKÁÍS sýnir hvaða
stöð var opin á tilteknum tíma, á
þeim heimilum þar sem svarað var,
en kannanir Félagsvísindastofnun-
ar sýna hlutfall einstaklinga á
aldrinum 15-70 ára sem horfðu á
Lýst eftir
vitnum að
árekstri
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að árekstri sem varð
sl. laugardagskvöld.
Áreksturinn varð á mótum
Kringlumýrarbrautar og Háaleitis-
brautar kl. 23.40. Bifreiðamar, sem
þar skullu saman, eru að Lada og
Toyota gerðum og segja báðir öku-
menn að þeir hafi ekið á móti grænu
ljósi. Þeir sem gætu varpað ljósi á
mál þetta eru beðnir um að hafa
samband við Slysarannsóknardeild
lögreglunnar.
Leiðréttinar
Selfossi. O
í GREIN sem birtist nýlega um hita-
veitu, sem hjónin í Hvammi í
Landsveit lögðu að bæ sínum, mátti
skilja orðalag þannig að þar hefði
alltaf verið skortur á köldu vatni að
bænum. Svo er ekki og hefur um
langan tíma verið sjálfrennandi vatn
að bænum, tekið í um 600 metra fjar-
lægð á stað sem nefndur er Dý.
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðing-
ar á þessari missögn í greininni.
— Sig.Jóns.
hvem dagskrárlið nokkra daga aft-
ur í tímann. Markmiðið með könnun
SKÁÍS er að bera saman hlutfall
beggja stöðvanna (t.d. hvort önnur
sé opin á þriðjungi eða helmingi
fleiri heimila en hin), en markmið
kannana Félagsvísindastofnunar er
að sýna hlutfall íbúa á könnunar-
svæðinu er horfa á hvem dagskrár-
lið og þar með til viðbótar að bera
saman stærð áhorfendahópanna
(ásamt greiningu áhorfenda eftir
aldri og kyni, sem ekki er hægt að
gera með aðferð SKÁÍS).
Aðferð SKÁÍS gefur mun hærri
hlutfallstölur hjá báðum stöðvum,
vegna þess að aðeins var spurt
hvort sjónvarpið væri opið en ekki
hvort svarandi væri að horfa á til-
tekinn dagskrárlið, né heldur hve
margir á heimilinu eru beinlínis að
horfa á sjónvarp. Auk þess eru þau
heimili þar sem ekki var svarað
ekki tekin með í útreikningunum.
Með öðrum orðum, hlutfallstölumar
eru reiknaðar af öðrum grunni en
í könnunum Félagsvísindastofnun-
ar. Því er út í hött að bera saman
niðurstöður þessara tveggja kann-
ana, eins og gert hefur verið, og
draga af því ákveðnar ályktanir.
Varað er við þessu í greinargerð
SKÁÍS en hins vegar hefur þetta
ekki komið fram í umfjöllunum um
kannanir þessar og er því nauðsyn-
legt að leiðrétta þá mynd sem
dregin hefur verið upp af niðurstöð-
um þessum.
2. í greinargerð SKÁÍS segir að
úrtakið hafí veirð 3138 heimili, eða
um 5,8% heimilanna á könnunar-
svæðinu. Þetta er mjög villandi.
Aðferð SKÁlS felur í sér að hvert
könnunartímabil, þ.e. hver útsend-
ingartími sem mældur er, telst veia
ein sjálfstæð könnun. Þannig er í
reynd um 22 kannanir að ræða á
5 daga tímabili og var spurt á
hveiju tímabili hvort sjónvarpið
væri opið, og þá á hvaða stöð væri
stillt. Meðalstærð úrtakanna er því
miklu minni en gefíð er til kynna.
Auk þess kemur í ljós að úrtaks-
stærðimar eru breytilegar eftir því
hvenær kvöldsins er spurt. I spum-
ingum um þátt númer 1 voru
úrtökin á bilinu_402 til 526 á þess-
um dögum. Úrtökin fyrir þátt
númer 2 voru á bilinu 325 til 438,
fyrir þátt 3 á bilinu 229 til 326,
og fyrir þátt 4 frá 111 til 243. Al-
rangt er að leggja allar þessar tölur
saman, upp í 3138, og segja það
vera „úrtakið" sem könnunin byggi
á.
Blaðburðarfólk
óskast!
■^ft
AUSTURBÆR KÓPAVOGUR
Þingholtsstræti o.fl. Laufbrekka o.fl.
Sóleyjargata
Meðalholt VESTURBÆR
Stórholt Aragata o.fl.
Úrtök þau sem SKÁÍS notar eru
ekki tilviljunarúrtök úr þjóðskrá
sem eiga að gefa rétta mynd af
íbúum könnunarsvæðisins, heldur
eru þau svo kölluð kvótaúrtök. í
slíkum könnunum er hringt í tiltek-
inn fjölda símanúmera. Ef ekki
svarar í einu númeri er einfaldlega
farið að því næsta, og er þá úr
sögunni sá meginkostur tilviljunar-
úrtaks að allir íbúar könnunarsvæð-
isins eigi jafna mög^uleika á að lenda
í úrtakinu. Þegar svo er komið er
ekki hsegt að tryggja að úrtakið
gefí rétta mynd af sjónvarpsnotkun
á könnunarsvæðinu.
3. Aðstandendur Stöðvar 2 hafa
gagnrýnt þá aðferð Félagsvísinda-
stofnunar að spyija um sjónvarps-
notkun nokkra daga aftur í tímann,
og bera því við að óvissa ríki um
hve minni svarenda sé áreiðanlegt.
Ymis áreiðanleikapróf hafa verið
gerð á aðferð þessari og þykir hún
gefa fullnægjandi áreiðanleika ef
spyrlar hafi nægar upplýsingar um
hvem dagskrárlið. Félagsvísinda-
stofnun hefur nú gert 3 kannanir
með þessari aðferð og hafa áreiðan-
leikaprófanir þegar verið gerðar á
þeim. Ekkert hefur komið fram sem
styður ofangreinda gagnrýni.
(Frá Félagsvísinda-
stofnun Háskólans)
Evrópufrumsýn-
ing í Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýning-
ar á myndinni Góðlr gæjar. Er
þetta jafnframt Evrópufrumsýn-
ing hjá kvikmyndahúsinu. Leik-
stjóri myndarinnar er Jeff
Kanew. Með aðalhlutverk í
myndinni fara Burt Lancaster,
Kirk Douglas, Charles Durning
og Alexis Smith.
í frétt frá kvikmyndahúsinu seg-
ir að myndin fjalli um vinina Harry
og Archie, sem er sleppt eftir 30
ára fangavist. Þeir höfðu gerst sek-
ir um lestarrán á sínum yngri árum,
en þess má geta að Archi er 67 ára
og Harry 72 ára. Er það því mikið
tilhlökkunarefni að byija nýtt líf
eftir fangavistina. Þegar vinirnir
svo loks sleppa úr fangelsinu er
Harry vistaður á elliheimili og kann
því illa. Archie fær hins vegar inni
á einu af hótelum borgarinnar og
þar sem hann á enn nokkur ár í
sjötugt má hann starfa á hinum
almenna vinnumarkaði, en það
gengur brösuglega. Frelsið er því
ekki alveg eins ánægjulegt og þeir
höfðu vonast eftir. Þeir sjá eiginlega
aðeins eitt ráð — ræna sömu lestina
og þeir reyndu við forðum, ef
heppnin skyldi vera með þeim í
þetta skiptið.
Starf póst- og símstöðvarstjóra í
Stykkishólmi laust til umsóknar
Stykkishóimi.
STARF stöðvarstjóra Pósts
og síma hefir nú verið aug-
lýst laust til umsóknar og
rann umsóknarfrestur út 13.
febrúar.
Þorsteinn Olafsson, sem hér
hefir verið stöðvarstjóri í tæp þijú
ár með ágætum lætur af störfum,
þar sem hann hefir fengið for-
stöðumannsstarf við pósthúsið R8
við Ármúla, en það er nú aðalpóst-
hús höfuðborgarinnar.
Hver tekur við af honum er enn
ekki vitað, en það er ráðherra sem
veitir starfið. Sjálfsagt sækja
margir um því seinast voru um-
sækiendur hátt á annan tug.
— Árni
gluggar
Við sérsmíðum glugga eftir
þínum óskum. Hér eru
aðeins smásýnishorn af
gluggunum okkar. Við
gerum föst verðtilboð í alla
sérsmíði.
Vönduð íslensk framleiðsla.
Góðir greiðsluskilmálar —
Sendum í póstkröfu.
AUKhf. 10.64/SlA
TRESMIDJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR hf.
V/REYKJANESBRAUT, HAFNARFIRÐI.
SlMAR: 54444, 54495
ÁRATUGA REYNSLA [ GLUGGASMÍÐI
L