Morgunblaðið - 24.05.1987, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
116.tbl. 75. árg._____________________________________SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afvopnunarviðræður risaveldanna:
Arangiir á öllum sviðum
skilyrði leiðtogafundar
- segir talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins
Vínarborg, Reuter.
Texas:
37 fórust
í hvirfilbyl
HVIRFILBYLUR jafnaði smábæ-
inn Saragosa í Texas í Banda-
ríkjunum við jörðu á föstudags-
kvöld með þeim afleiðingum að
37 menn biðu bana og 110 slösuð-
ust, að því er haft var eftir
lögreglu og embættismönnum.
Mörg böm létu lífíð þegar þak
félagsheimilis bæjarins hrundi á
meðan á skólaútskrift stóð.
„Eitt húsið rifnaði eins og pappírs-
blað og lá heybindivél ofan á rústun-
um, “ sagði Carol Bumett, talsmaður
lögreglu. „Bfll lá á hvolfi þar sem
gamla nýlenduvömverslunin var áð-
ur en óveðrið skall á.“
Þvottavél
sem þarf
ekki sápu
Tókýó. Reuter. ■*“
JAPANSKT fyrirtæki hefur
smíðað þvottavél, sem notar ekki
sápu við þvottinn. Forráðamenn
fyrirtækisins staðhæfa, að þessi
nýja vél þvoi bæði betur og hraðar
en venjulegar þvottavélar.
Það er fyrirtækið JAC í Tókýó sem
ffamleiðir vélina. Hún þvær tau á
sama hátt og skartgripasmiðir
hreinsa demanta — með hátíðnihljóð-
bylgjum.
Fyrirtækið hefur enn ekki tekið
ákvörðun um væntanlegt markaðs-
verð vélanna, en líklegt er, að fýrst
í stað muni þær kosta um 120.000
yen (um 33.000 ísl. kr.) eða allmiklu
meira en venjulegar þvottavélar.
Óhreinindin em lamin úr tauinu
með loftbólum, sem myndast, þegar
hátíðnihljóðbylgjur skella á loft-
straumi, sem blásið er inn í vatnið.
Sjóntækjafræðingar em þegar
famir að nota litlar hátíðnivélar við
hreinsun á gleijum og skartgripa-
smiðir nota þær við demantahreins-
un.
Talsmaður fyrirtækisins sagði, að
vélin væri ekki enn komin á markað,
en tilraunavél væri fullgerð á rann-
sóknastofum JAC.
Uppfinning þessi er hugarfóstur
Masao Kanazawa, sem er 58 ára
gamall og stjómarformaður JAC.
Það tók hann þijú ár að hanna vél-
ina og ljúka gerð hennar. Kanazawa
vonast til, að vélin verði komin á
heimamarkað eftir fáeina mánuði.
GENNADY Gerasimov, talsmað-
ur sovéska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði í viðtali sem birtist í
gær að árangur á öllum sviðum
afvopnunarmála væri skilyrði
fyrir því að leiðtogar stórveld-
anna kæmu saraan til fundar á
þessu ári. Gerasimov lét þess
einnig getið að ágreiningur að-
ildarríkja Atlantshafsbandalags-
ins kynni að koma í veg fyrir
samkomulag um upprætingu
meðaldrægra kjarnorkuflauga í
Evrópu.
„Fullnægjandi grundvöllur fyrir
fund leiðtoganna væri samkomulag
um útrýmingu meðaldrægra kjarn-
orkuflauga og um lykilatriði
varðandi fækkun langdrægra eld-
flauga og geimvarnaráætlun
Bandaríkjastjórnar,“ sagði Geras-
imov í viðtali við Rude Pravo,
málgagn tékkneska kommúnista-
flokksins. Hann sakaði Caspar
Weinberger, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, um að standa í vegi
fyrir samkomulagi og sagði að
ágreiningur innan Atlantshafs-
bandalagsins varðandi afstöðu til
tillagna Sovétstjórnarinnar kynni
að koma í veg fyrir að samkomulag
um utrýmingu meðaldrægra kjarn-
orkuflauga yrði undirritað.
Gerasimov kvað viðræður samn-
inganefnda risaveldanna í Genf
komnar á lokastig. „Ef sendimenn-
imir í Genf ná viðunandi árangri í
sumar má vænta þess að þeir Mikh-
ail Gorbachev og Ronald Reagan
komi saman til fundar í haust,“
sagði Gerasimov. En hann bætti við
að ágreiningur aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins gerði það að
verkum að erfitt væri að segja til
um hvort viðræðumar skiluðu til-
ætluðum árangri.
Noregur:
Stj ómarkreppa fyrir þinglausnir?
Ó«ló. Frá Jan Erik Laurc, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÁ þráláti orðrómur gengur
nú fjöllum hærra í Noregi að
stjórnarkreppa verði skollin á
áður en þingmenn halda í sum-
arleyfi. Mikil spenna ríkir
innan veggja þingsins og sögu-
sagnir eru á kreiki. Borgara-
flokkarnir hafa hafið
formlegar samningaviðræður
sem kunna að leiða til end-
urnýjaðs samstarfs þeirra og
tilraunar til að koma ríkis-
stjórninni frá völdum fyrir
þinghlé.
í síðustu viku sáust fyrstu
merki þess að þríflokkunum væri
að takast að koma sér saman um
grundvöll að nýju stjórnarsam-
starfi. Þá tókust samningar milli
Kristilega þjóðarflokksins og
Hægri flokksins um sameiginlega
afstöðu til nýrra laga um gervi-
fijóvgun.
Hægri flokkurinn hafði áður
tekið mun íjálslyndari afstöðu til
málsins og vildi að frelsi á þessu
sviði yrði nær algert. En skyndi-
lega sneri flokkurinn við blaðinu
og gerði sjónarmið Kristilega
þjóðarflokksins í öllum meginat-
riðum að sínum. Samtímis nálgað-
ist Kristilegi þjóðarflokkurinn
Hægri flokkinn og kvaðst reiðu-
búinn að samþykkja að læknar
sem starfa sjálfstætt fengju leyfi
til að stunda gervifijóvgunar-
aðgerðir.
Um helgina skilaði nefnd, sem
þríflokkamir skipuðu, áliti um,
hvað það er, sem sameinar eða
aðskilur flokkana. Á sama tíma
ræddust leiðtogar flokkanna við
og mótuðu sameiginlega afstöðu
til fjárlagafrumvaipsins, sem ný-
lega hefur verið endurskoðað.
Þá er Framfaraflokkurinn til
alls vís. Flokksformaðurinn, Carl
I. Hagen, hefur látið í veðri vaka,
að hann muni e.t.v. leggja fram
vantrauststillögu í því skyni að
fella ríkisstjórnina. „Það er mun
heillavænlegra að leggja fram
slíka tillögu en bíða eftir ein-
hveiju máli, sem leitt getur til
falls stjórnarinnar," segir hann.
„Gro Hariem Brundtland mun
aldrei leggja líf ríkisstjómarinnar
að veði vegna einstakra mála.“