Morgunblaðið - 24.05.1987, Blaðsíða 27
r
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
27
„Fatafelluatriðið" í Gildu frá
1946.
Hayworthárið 1978.
„Hvers vegna ætti mér ekki að
standa á sama,“ sagði hún. „Ég
kann vel við að láta taka myndir
af mér.“ Kvikmyndin Gilda varð
henni mjög til framdráttar en kvik-
myndaeftirlitið var ekki alveg sátt
við áðumefnt „fatafelluatriði".
Hayworth, sem skilið hafði við
sinn fyrsta eiginmann, giftist Orson
Welles árið 1943 og þau eignuðust
dótturina Rebeccu. Á meðan Welles
leikstýrði henni í einni af hennar
bestu myndum, The Lady From
Shanghai árið 1949, sótti hún um
skilnað. Hún hafði kynnst og orðið
ástfangin af prinsinum Aly Khan
og þar sem hvomgt þeirra var frá-
skilið þá stundina ollu ferðalög
þeirra saman um Evrópu nokkurri
hneykslan. Þegar þau giftust seinna
á árinu var Hayworth orðin ólétt.
Hún skildi við prinsinn tveimur
árum seinna og giftist og skildi við
söngvarann Dick Haymes og svo
kvikmvndaframleiðandann James
Hill.
Hún hafði gefið kvikmyndaleik-
inn upp á bátinn til að giftast Aly
Khan og þegar hún sneri aftur náði
hún aldrei sömu frægð. Hún lék á
móti Robert Mitchum í Fire Down
Below, með Frank Sinatra í Pal
Joey og í mynd Terence Rattigan,
Separate Tables, með Burt Lancast-
er, David Niven og Deborah Kerr.
En það sem eftir lifði kvikmynda-
ferilsins, sem lauk með myndinni
The Wrath of God árið 1972, lék
hún ómerkileg hlutverk í annars
flokks myndum. Hún reyndi fyrir
sér á sviði árið 1971 en gat ekki
munað setningamar. Alzheimer-
sjúkdómurinn tók að segja til sín
og árið 1981 úrskurðaði réttur í
Los Angeles að hún væri óhæf að
sjá um sig sjálfa og hún var sett í
umsjá dóttur sinnar Yasmin. Sex
ámm seinna lést hún.
Samantekt: -ai.
Kammertónlist í Fríkirkjunni
Tónlist
Jón Asgeirsson
Það hefur oft hent að erlendir
tónlistarmenn, sem átt hafa hér
leið um á ferðum sínum, hafa
fengið þá hugmynd að halda
tónleika og er þá gjaman leitað
til ýmissa aðila hér heima um
aðstoð. Oftar en ekki era slíkir
tónleikar haldnir á óheppilegum
tíma og auk þess nær því án
undantekninga mjög illa aug-
lýstir, þannig að áheyrendur láta
sig venjulega vanta. Einir slíkir
tónleikar vora haldnir í Fríkirkj-
unni um síðustu helgi og áttu
þar hlut að tónlistarmenn frá
Ameríku, auk þess sem séra
Gunnar Björnsson tók þátt í
tveimur samleiksatriðum og lék
Es dúr einsleikssvítuna eftir
Bach.
Amerísku tónlistarmennimir
vora Stella Amar er lék á enskt
horn og óbó og Andrew Cordle
á fagott. Á efnisskránni voru
barokkverk og nútímaverk eftir
Hovaness, Britten, Persichetti
og Gordon Jacob. Barokkverkin
voru fallega leikin, en skemmti-
legustu verkin vora Metamorp-
hoses, fyrir óbó, eftir Britten,
sem Stella Amar lék á köflum
ágætlega og Parable eftir Vinc-
ent Persichetti, er Andrew
Cordle lék prýðilega. Hér voru
á ferðinni ágætir hljóðfæraleik-
arar, en eftir því sem tilkynnt
var í upphafi tónleikanna hafði
önnur efnisskrá verið fyrir-
huguð, sem breyta varð þar sem
einn hljóðfæraleikaranna hafði
forfallast á síðustu stundu. Hér
mun séra Gunnar hafa hlaupið
undir bagga og lék með fagott-
leikaranum tvö dúó verk eftir
Boismortier.
Fyrsta og síðasta verkið á
tónleikunum bæði eftir Tele-
mann, sónötur í C- og B-dúr,
sem voru fallega leiknar, auk
þess sem tónlist þessa snillings
er ávallt skemmtileg áheyrnar.
Það sem skyggði á þessa tón-
leika var slæm aðsókn og er í
því sambandi rétt að benda þeim
á er hyggjast aðstoða tónlistar-
menn er eiga hér leið um, að
tónleikahald þarf að vera vel
undirbúið og auglýst auk þess
sem mjög mikið er um tónleika-
hald, svo að tónleikagestir verða
að velja og hafna. Þá er hætta
á að óvissa um það, sem í vænd-
um kann að vera, valdi miklu
um val tónleikagesta og hafa
því ágætir tónlistarmenn lent í
því að leika fyrir nærri tómu
húsi, listamenn sem að öllu jöfnu
hefðu átt að vera aufúsugestir.
ROM FYRIR AÐEINS
GETUR ÞAÐ VERIÐ?
JÚ, ÞAÐ ER HÁRRÉTT
NAPOLI
PORTICI^
ERCOLANO
ANACAPRI
META
PIANO Dl SORRENTO
SORRENTO £
MASSALUBRENSE
CAPRI
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL býður þér upp á beint flug til
í Sorrento er götulíf-
ið hvergi meira og
þar er kvöldlífið eins
gg það gerist best á
Ítalíu.
Síðan getur þú valið að auki:
- 19 dagar í Sorrento 8 dagar í Sorrento - Til Rómar um Luxem
5 dagar í Róm 3 dagar í Róm Heim um Luxembourg bourg 5. ágúst 8 dagar í Sorrento 5 dagar í Róm
Eða bara bílaleigubfl allan tímann
Fararstjóri allan tímann verður Úrvalsfararstjórinn Friðrik Rafnsson.
Boðið verður upp á fjöldan allan af skoðunarferðum s.s. til Caprí,
Pompei, Vesuvíus, Napolí og Caserta Cassino.
Um Sorrento hefur oft verið sagt að hvergi sé fegurð Ítalíu meiri,
hvergi sé hægt að komast nær sögufrægri menningu Rómaveldis og
í snertingu við einhverjar ægilegustu náttúruhamfarir sögunnar.
■■
KOMDU MEÐ TIL ROMAR OG SORRENTO.
FERÐASKRIFSTOFAN URVAL V AUSTURVÖLL, PÓSTHÚSSTRÆTI 9, 101 REYKJAVÍK
Umboðsmenn Úrvals um land allt:
SIMI 26900
Akranes: Ólafur B. Ólafsson, Skólabraut 2, s. 1985
Akureyri: Ferðaskrifstofa Akureyrar, Ráðhústorgi 3,
s. 25000
Bolungarvík: Margrét Kristjánsdóttir, Traðarstig 11,
s. 7158
Borgarnes: Þóra Björgvinsdóttir, Sæunnargötu 2,
s. 7485
Dalvík: Sólveig Antonsdóttir, Goðabraut 3, s. 61320
Egilsstaðir: Feröamiðstöö Austurlands, Kaupvangi 6,
S. 1499
Flateyri: Jónína Ásbjarnardóttir, Eyrarvegi 12, s. 7674
Grindavík: Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Norðurvör, s. 8060
Grundartjörður: Dóra Haraldsdóttir, Grundargötu 50,
s. 8655
Hafnarfjörður: Jóhann Petersen, Strandgötu 25,
s. 51500
Hella: Aðalheiður Högnadóttir, v/Suðurlandsveg, s. 5165
Húsavík: Björn Hólmgeirsson, Háageröi 10, s. 41749
Höfn: Hornagaröur hf., Hrisbraut 12, s. 81001
ísafjörður: Ferðaskrifstofa Vestfjaröa, Hafnarstræti 4,
s. 3557
Keflavík: Nesgaröur hf, Faxabraut 2, s. 3677
Ólafsvík: Valdis Haraldsdóttir, Brautarholti 3,
s. 6225/6565
Patreksfjörður: Flugleiöir hf., Aðalstræti 6, s. 1133
Rif: Auður Alexandersdóttir, Háarifi 33, s. 6644
Sauðárkrókur: Árni Blöndal, Viðihlið 2, s. 5630
Selfoss: Suöurgarður hf., Austurvegi 22, s. 1666
Seyöisfjöröur: Adolf Guðmundsson, Túngötu 16, s. 233S
Siglufjörður: Birgir Steindórsson, Aöalgötu 26, s. 71301
Skágaströnd: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hólabraut 4,
s. 4790
Stykkishólmur: Hrafnkell Alexandersson, versl. Húsiö,
s. 8333
Vestmannaeyjar: Úrvalsumboöiö, Tryggingahúsinu,
s. 1862
Vopnafjörður: Bragi Dýrfjörð, Kolbeinsgötu 15, s. 3145
Þingeyri: Katrin Gunnarsdóttir, Aöalstræti 39, s> 8117