Morgunblaðið - 24.05.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
t
Faðir minn,
ÞÓRÐURSTURLAUGSSON,
er látinn. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ólafur Sturla.
t
Útför bróður míns,
SIGURBERGS E. GUÐJÓNSSONAR,
Hátúni 12,
fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 26. maí kl. 15.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á Sjálfsbjörg, félag fatlaðra.
Fyrir hönd vandamanna,
Ragnheiður Guðjónsdóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRARINN JÓNSSON,
Gnoðarvogi 28,
verður jarðsunginn frá Kirkju óháða safnaöarins miðvikudaginn
27. maí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Kirkju
óháða safnaöarins.
Guðrún Kristín Sigurjónsdóttir,
Hólmfríður Þórarinsdóttir, Jón Þórir Jóhannesson,
Valdimar Þórarinsson,
Elísabet G. Þórarinsdóttir, Jóhann Rúnar Kjærbo,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
FRANZ BENEDIKTSSON,
Biönduhlfð 21,
lést í Borgarspítalanum 16. maí sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 25. maí kl.
13.30.
Fyrir hönd aöstandenda.
Ægir Franzson.
t
Sonur okkar, bróðir, mágur og dóttursonur,
kristjAn jóhann KRISTJÁNSSON,
Miðvangi 31,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjaröarkirkju mánudaginn 25. maí
kl. 13.30.
Anna Erlendsdóttir, Kristján J. Ásgeirsson,
Anna Karen Kristjánsdóttir, Björn Arnar,
Kristfna V. Kristjánsdóttir,
Vilhelmína Arngrfmsdóttir, Erlendur Indriðason.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA GUÐBJÖRG GUÐLAUGSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. maí kl.
15.00.
Gfsli G. Geírsson, Gurli Geirsson,
Svala Geirsdóttir, Vilhjálmur Hafberg,
Hanna Margrét Geirsdóttir,
Brynja Geirsdóttir, Sigurður Viðarsson
og barnabörn.
LEGSTEINAR MOSAÍK h.f. Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Jóhanna G. Guð-
laugsdóttir — Minning
Fædd 19. ágúst 1924
Dáin 16. maí 1987
Tengdamóðir mín Jóhanna Guð-
björg Guðlaugsdóttir er látin. Það
kom eins og reiðarslag yfír mig því
hún var svo full af lífsgleði þegar
ég dvaldi hjá henni um páskana.
Þá ræddi hún um framtíðina sem
hún horfði svo björtum augum til.
Þegar ég kynntist Jóhönnu þá opn-
aði hún heimili sitt fyrir mér og tók
mig að sér og var ég eins og eitt
af hennar bömum. Á heimili henn-
ar, sem var mannmargt, ríkti
ævinlega glaðværð og var hún mik-
il húsmóðir sem alltaf var tilbúin
að liðsinna öllum. Það vom því
mikil viðbrigði þegar við hjónin
fluttum erlendis en þá höfðum við
sumarfríin til að hlakka til, annað-
hvort hér eða í Danmörku. Það var
henni mikil gleði þegar við fluttum
aftur heim og fjölskyldan var öll
saman aftur.
En lífíð er ekki aðeins dans á
rósum. Hún þurfti að ganga í gegn-
um meiri erfiðleika en margur
annar, en alltaf var brosað í gegn-
um tárin. Síðustu mánuðina bjó hún
á Akureyri, bæ sem hún var tengd
sterkum böndum. En vegir Guðs
em órannsakanlegir. Þar lést hún
á sínu kæra heimili, Fjólugötu 9.
Guð blessi minningu hennar.
Gurli Geirsson
Elsku Hanna amma er dáin. Við
vomm búin að hlakka mikið til að
fá að heimsækja hana í nýja húsið
á Akureyri í sumar. Hún skrifaði
okkur bréf þar sem hún sagði okk-
ur frá garðinum sínum og öllum
skemmtilegu hlutunum sem við
ætluðum að gera saman.
Það var alltaf gaman að vera
með Hönnu ömmu. Hún var svo kát
og glöð og til í að leika og spila.
En nú er hún farin til Guðs og þar
líður henni vel.
Bless Hanna amma.
Vertu mér yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Geir Már, Ragnar Már
Pétur Fannar, Harpa Júlía
og Elín Ósk.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(C.V.Briem).
Mig setti hljóða þegar mér barst
andlátsfregn systur minnar og ég
átti bágt með að trúa því að mín
ástkæra systir væri horfín bak við
móðuna miklu.
Degi áður en þessi harmafregn
barst var ég hjá henni eins og svo
oft áður síðan Jóhanna og hennar
maður fluttust til Akureyrar. Hún
var þá svo hress og glöð á sínu
nýja heimili og vann kappsamlega
í garðinum við heimilið sitt og hann
var að verða ljómandi fallegur og
blómin voru farin að springa út.
Jóhanna Guðbjörg var fædd 19.
ágúst 1924 á Ánabrekku í Mýra-
sýslu, dóttir Elínar Margrétar
Jónsdóttur og Guðlaugs Jónssonar
bónda, þau áttu saman 5 böm. Jó-
hanna var næst yngst, hin öll lifa
systur sína, Ágúst og Lilja búsett
á Akureyri og Jón og Jóhann í
Reykjavík.
Jóhanna var í foreldrahúsum
fram jfír fermingu. Var í vinnu í
Borgarnesi einn vetur en um vorið
og sumarið í kaupavinnu á Höfða
í Þverárhlíð, eftir það fór hún á
Kvennaskólann á Laugalandi í
Eyjafirði. Síðan lá leið hennar til
Reykjavíkur og vann hún þar við
saumaskap enda var hún myndar-
leg í höndunum, það kom sér vel
þegar hún eignaðist börnin.
Arið 1953 giftist Jóhanna fyrri
manni sínum, Geir R. Gíslasyni í
Reykjavík. Þau eignuðust fjögur
elskuleg böm, Gísla, Svölu, Mar-
gréti og Brynju sem öll eru búsett
í Reykjavík. Eg og fjölskylda mín
erum búin að eiga margar sólskins
stundirnar á heimili hennar.
Síðastliðið sumar giftist hún
seinni manni sínum, Friðgeir Ax-
fjörð og þau fluttu til Akureyrar
um haustið. Heimilið þeirra var í
Fjölugötu 9, Akureyri.
Hlutverki sínu hér á jörðu skilaði
hún með miklum sóma. Blessuð sé
minning hennar. Guð styrki ykkur
og styðji á þessari stundu sem og
alla aðra. Samúðarkveðjur.
Systir
Minning:
Franz Benedikts
son sjómaður
Fæddur 19. febrúar 1896
Dáinn 16.maí 1987
Þeim fækkar óðum af þeirri kyn-
slóð, sem fædd er fyrir síðustu
aldamót. Franz Benediktsson var
einn þeirra, en hann lést 16. maí
91 árs að aldri. Hann var fæddur
á Dönustöðum, Laxárdal, Dala-
sýslu, einn af níu bömum hjónanna
Sigríðar Helgadóttur og Benedikts
Halldórssonar. Upp úr aldamótum
flytja foreldrar hans til Bolung-
arvíkur en Franz verður eftir, fyrst
í Dalasýslu, en um 9 ára fer hann
til vandalausra inn í ísafjarðardjúp
og dvelur þar við misjafnan kost
fram yfír fermingu. Frá þessum
ámm sagði hann oft og minnist
með þakklæti konu, sem lánaði
honum föt til að fermast í.
14 ára gamall byijar hann að
stunda sjó, fyrst á bátum fyrir vest-
an en síðar á skipum frá Norður-
landi. Einnig sigldi hann á sænskum
og dönskum skipum um tíma í lok
fyrri heimsstyijaldarinnar. Þá er
hann mörg ár á togurum frá
Reykjavík.
1929 kvænist hann fyrri konu
sinni Guðrúnu Matthíasdóttur, veit-
ingakonu, og bjuggu þau um 18
ára skeið, þar til Guðrún lést. Á
þeim árum stundaði hann ýmis störf
í landi, um tíma meðal annars bú-
skap á Skrauthólum á Kjalarnesi.
Eftir að hann hættir búskap fer
hann á togarann Venus frá Hafnar-
fírði og síðan á Röðul með sama
skipstjóra, Vilhjálmi Ámasyni, þeim
mæta manni, sem hann mat mikið.
1955 kvænist hann síðari konu
sinni, Ellen Hallgrímsson, mikilli
sæmdarkonu. Þau bjuggu lengst
af sínum búskap í Blönduhlíð 21.
Ellen lést síðastliðið haust.
Franz var myndarlegur maður á
velli, þrekvaxinn og bar sig vel alla
tíð þrátt fyrir háan aldur. Það var
gaman að heyra hann segja frá sjó-
mannsferli sínum, frásögn hans var
svo greinargóð og lifandi.
I sínu einkalífi var hann gæfu-
maður, var sjómaður í báðum
heimsstyijöldunum án þess að verða
fyrir alvarlegum skakkaföllum.
Hann eignaðist einn son, Ægi, fisk-
eftirlitsmann hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. Er hann kvænt-
ur Sigríði Steinólfsdóttur og eiga
þau þrjú börn.
Sjómannsferill hans spannar yfir
60 ára tímabil. 74 ára fór hann í
land. Eftir það vann hann í landi í
nokkur ár.
Með þessum línum vil ég og fjöl-
skylda mín þakka Ellen og Franz
sambýlið í Blönduhlíð 21 og það
veit ég að Valdís og Jón og börn
þeirra gera einnig.
Minningin um gott sambýlisfólk
lifir.
Guð blessi þau.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR JÓNSSON
frá Efra-Lóni á Langanesi,
síðar búsettur á Lokastíg 4 f Reykjavík,
lést í Landakotsspítala aðfaranótt 15. maí sl.
Jarðarförin ferfram frá Hallgrímskirkju 26. maí nk. klukkan 15.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er
bent á að láta líknarstofnanir njóta þess.
Guðrún Ólafsdóttir,
Sigrfður Sigurðardóttir, Skjöldur Vatnar,
Þóra G. Sigurðardóttir, Gunnar H. Jóhannesson,
Jónfna S. Sigurðardóttir, Rúnar F. Sigurðsson,
Unnur Sigurðardóttir, Bernhard Svavarsson,
Anna Björk Sigurðardóttir, Erlingur Sigtryggsson
og barnabörn.
Narfi Hjartarson