Morgunblaðið - 24.05.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
Magnea Magnúsdóttír
Magnea Magnúsdóttir er
fædd 25. júní 1967 og
er því tvítug að aldri.
Magnea er fædd og
uppalin í Reykjavík og
hefur unnið sem bókari á
pósthúsi síðan í
september í fyrra og líkar
vel að eigin sögn. Hún
hafði áður verið að læra
tækniteiknun í
Iðnskólanum í Reykjavík,
en líkaði ekki alls kostar
og hefur því tekið sér frí
frá námi í bili. Síðar meir
langar hana til að fara
út fyrir landsteinana og
læra förðun fyrir
sjónvarp og leikhús, en
er óráðin í því hver
áfangastaðurinn verður.
Magnea syndir mikið og
hefur mikinn áhuga á
ferðalögum;
óskastaðurinn er grísku
eyjarnar. Foreldrar
Magneu eru þau Magnús
Oddsson og Þórunn
Ólafsdóttir. Magnea er
176 cm á hæð.
Sigríður Guðlaugsdóttir
Sigríður Guðlaugsdóttir
er rúmlega tvítugur
Hafnfirðingur, fædd 29.
ágúst 1966. Sigríður
hefur ný nýlokið
stúdentsprófi frá
Verslunarskólanum og
ætlar að fara til
Frakklands í haust og
læra frönsku í París. Hún
hefur um tveggja ára
skeið starfað með Módel
’79 ogfinnst
sýningarstörfm
spennandi og
skemmtileg; segist vel
geta hugsað sér að starfa
við slíkt um einhvern
tíma. Sigríður á sér mörg
áhugamál, því hún
stundar skíði og
jassballett og hefur
mikinn áhuga á útiveru
og ferðalögum. Foreldrar
hennar eru Guðlaugur R.
Jóhannsson og Berglind
Oddgeirsdóttir. Sigríður
er 170 cm á hæð.
Þóra Birgisdóttir
Þóra Birgisdóttir er átján ára, fædd 30. maí 1969 í Reykjavík, en er nú
búsett á Akureyri og var kjörin ungfrú Norðurland 1987. Þóra stundar
nú nám við Menntaskólann á Akureyri og er hálfnuð í stúdentspróf. Hún
á sér fjöldamörg áhugamál, s.s. útiveru, fatnað, tungumál, ferðalög,
vélsleða og fjórhjól. Framtíðaráform Þóru eru þau að læra fatahönnun,
en markmiðin em einnig að verða góð móðir og húsmóðir. Foreldrar
Þóru em þau Birgir Ágústsson og Ingunn Þ. Baldvinsdóttir. Þóra er 171
cm á hæð.