Morgunblaðið - 24.05.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
Morgunblaðið/Kristján Jónsson
Varðskipið Týr og björgunarbátur Björgunarfélags Vestmannaeyja fylgdu hraðbátnum með mönnunum
þremur til hafnar í Eyjum.
Slj órnarmyndun:
Þrír fulltrúar frá
hveijum flokki
VIÐRÆÐUR forystumanna
Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks
og Kvennalista um myndun nýrr-
ar ríkisstjórnar hófust kl. 13 í
gær í Borgartúni 6.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins
sátu fundinn þeir Þorsteinn Páls-
son, Friðrik Sophusson og Ólafur
G. Einarsson. Fyrir Alþýðuflokkinn
voru Jón Baldvin Hannibalsson,
Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Sig-
INNLENT
urðsson. í viðræðunefnd Kvenna-
lista voru þær Guðrún Agnarsdóttir,
Þórhildur Þorleifsdóttir og Kristín
Halldórsdóttir.
Ferming í
Bolungarvík
FERMING í Bolungarvíkur-
kirkju í dag, sunnudaginn 24.
maí, kl. 11.00.
Fermd verða:
Karl Hallgrímsson,
Holtastíg 12,
Ketill Már Júlíusson,
Vitastíg 17,
Ragnhildur Helga Benediktsdóttir,
Heiðarbrún 50,
Rúnar Amarson,
Höfðastíg 8
Steinunn Kristín Bjamadóttir,
Reykjum, Hrútafirði.
Villtust í þoku á leið til Eyja
Vestmannaeyj um.
UMFANGSMIKIL leit var gerð
aðfaranótt laugardags að þrem-
ur mönnum á plastbáti sem
villtust í þoku er þeir voru að
koma úr eggjatöku í EUiðaey.
Tíu fiskibátar, Lóðsinn í Eyjum,
varðskip og þyrla Landhelgis-
gæslunnar hófu leit að mönnun-
um um klukkan fjögur um
nóttina og laust eftir klukkan sjö
á laugardagsmorgun fann þyrlan
mennina talsvert vestan við Eyj-
ar, upp við brimgarðinn.
Mennimir þrír fóm á plastbáti
með utanborðsmótor til eggjatöku
í Elliðaey um níu leitið á föstudags-
kvöld en Elliðaey er rétt austan við
Heimaey, örstutta siglingaleið. Nið-
dimm þoka skall á um kvöldið og
um miðnættið hafði ekkert heyrst
í mönnunum og um fjögurleytið var
ákveðið að hefja leit. Tíu bátar sem
vom að veiðum tóku upp og hófu
leit, Lóðsinn hélt úr höfn í Eyjum
og varðskip sem var statt í Þorláks-
höfn hélt til leitar. Þyrla Land-
helgisgæslunar hóf einnig leit úr
lofti og laust eftir klukkan 7 um
morguninn fann áhöfn þyrlunnar
ménnina.
Vom þeir þá staddir talsvert fyr-
ir vestan Eyjar, norður af Þrídröng-
um, upp við brimgarðinn á
ströndinni. Keyrðu þeir út frá brim-
garðinum þar sem ekki var lendandi
á sandinum. Þyrlan sveimaði yfir
bátnum uns björgunarbátur Björg-
unarfélags Vestmannaeyja kom á
staðinn og skömmu síðar kom varð-
skipið einnig á staðinn. Var
mönnunum fylgt til hafnar! Eyjum.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Vestmannaneyjum var
hvorki kompás né önnur leiðsögu-
tæki um borð í bátnum. Mikil þoka
hefur verið í Eyjum síðustu dagana.
-hkj.
Eldur í Matvali
ELDUR kom upp í versluninni
Matvali við Þingholtsbraut í
Kópavogi aðfaranótt laugar-
dagsins.
Slökkviliðinu í Reykjavík barst
tilkynning um eldinn kl. 2.02, en
þá höfðu íbúar húss við Sunnubraut
tekið eftir því að eldur var fyrir
innan glugga matvöruverslunarinn-
ar. Tveir reykkafarar fóru inn í
verslunina og tókst fljótlega að
slökkva eldinn. Rífa þurfti skilrúm,
sem eldur hafði komist í. íbúð er á
efri hæð hússins, en enginn reykur
komst þar upp.
„Mjög hreykin og ánægð“
fréttir í gærmorgun að sonur
hennar væri orðinn heims-
meistari sveina í skák.
Hún sagði að Hannes hefði teflt
mikið allt frá því að hann lærði
mannganginn 5 ára gamall.
„Hann hefur tekið skákina fram
yfir alla aðra leiki. Þegar einhver
kom í heimsókn tók hann fram
taflið og bauð öllum í skák,“ sagði
Sesselja. Hún sagði að sig hefði
ekki dreymt um að Hannes næði
þessum árangri fyrr en eftir að
mótið hófst. „í mótinu tóku þátt
45 strákar frá þessum stórþjóð-
um, Bandaríkjunum, Englandi og
Austantjaldsþjóðunum, sem eru
svo framarlega í skákinni. En
hann leiddi mótið frá byijun, svo
hann á sigurinn ábyggilega skil-
inn“.
Hún sagði að skákáhugi Hann-
esar myndi örugglega ekki
minnka við þennan árangur.
„Hann hefur alltaf verið að taka
þátt í mótum og hefur sífellt öðl- .
ast meiri innsýn í skákina. En það
er mikil vinna að stúdera skák.
Hann vinnur mikið með bækur,
þó mér finnist hann hafi ekki
gert eins mikið af því í vetur og
hann gerði á tímabili, enda skipt-
ir miklu máli að fá tækifæri til
þess að taka þátt í mótum og
afla sér reynslu. Guðmundur Sig-
uijónsson hefur örugglega verið
honum mikil stoð og stytta á
mótinu nú. Ég er í loftinu yfir
þessum árangri hans og hef fylgst
spennt með framvindu mótsins,"
sagði Sesselja að lokum.
Faðir Hannesar lést þegar hann
var tveggja ára gamall. Hann hét
Stefán Hannesson.
Morgunblaðið/Bjami
Sesselja Friðriksdóttir með blómvönd sem Morgnnblaðið færði
henni í tilefni af glæsilegum sigri Hannesar Hlífars.
- segirSess-
elja Friðriks-
dóttir, móðir
Hannesar
Hlífars Stef-
ánssonar
„Ég er mjög hreykin og
ánægð, þetta er stórkostlegur
árangur," sagði Sesselja Frið-
riksdóttir, móðir Hannesar
Hlífars Stefánssonar, er Morg-
unblaðið færði henni þær
„Þykir vænt
um að Islend-
ingur vinnur
þetta mót aftur“
„MÉR þykir vænt um að íslend-
ingur skuli vinna þetta mót
aftur. Hannes er mjög efnileg-
ur skákmaður og átti þennan
sigur alveg fyllilega skiUnn
enda virðist hann bera af jafn-
öldrum sínum á skáksviðinu,"
sagði Jón L. Arnason stórmeist-
ari en hann vann Heimsmeist-
aramót sveina i skák árið 1977.
Jón var spurður hvort hann
teldi mótið nú vera erfiðara en
þegar hann vann það. „Það er
mjög erfitt að segja hvort þetta
mót er erfiðara en þegar ég vann.
Það kemur ekki í ljós fyrr en eft-
ir nokkur ár. Þegar ég tefldi á
þessu móti voru Kasparov og
Short meðal þátttakenda en það
má vel vera að eftir nokkur ár
verði mótið núna talið sterkt af
því Hannes Hlífar var með,“ sagði
Jón L. Ámason.
„Hannes er
fljótur að
f inna besta
leikinn“
„Hingað barst frétt um að
Hannes Hlífar hefði orðið
heimsmeistari sveina og menn
gerðu hlé á fundarstörfum og
klöppuðu lengi,“ sagði Margeir
Pétursson, stórmeistari í skák,
í samtali við Morgunblaðið, þar
sem hann var staddur á aðal-
fundi Skáksambands íslands,
sem haldinn var í gær. Margeir
sagði að á fundinum hefðu
menn beðið spenntir og reynt
hefði verið að hringja út og
hvað eina til þess að afla frétta
af niðurstöðu síðustu umferð-
arinnar.
„Þetta er auðvitað frábær
árangur hjá Hannesi, sérstaklega
þar sem þetta er mót fyrir 16 ára
og yngri og hann gæti því tekið
þátt í mótinu í eitt eða tvö ár
enn. Hannes er vafalaust með
yngstu mönnum, sem hafa unnið
þennan titil, því yfírleitt vinna
menn titilinn á síðasta ári,“ sagði
Margeir ennfremur.
Hann sagði að Hannesi hefðu
verið dálítið mislagðar hendur í
skákinni að undanförnu. „En
mótið í New York um daginn
hefur verið honum góð æfing og
hann hefur eflaust áttað sig á í
hvaða efnum hann gæti bætt tafl-
mennsku sína með þessum
árangri. Þama er mjög mikið
skákefni á ferðinni. Hannes fer
oft ekki troðnar slóðir, teflir frum-
lega, og einmitt í þeim skákum
sem ég hef séð frá þessu móti,
hefur hann komið andstæðingum
sínum á óvart með því. Hann
byggir sinn styrk ekki fyrst og
fremst á bóklegri þekkingu, held-
ur miklu frekar á því að vera
fljótur að fínna besta leikinn,"
sagði Margeir.
Hann sagði að það væri of
snemmt að spá Hannesi frekari
frama á skáksviðinu, en benti á
að Jón L. Ámason hefði unnið
þennan titil og orðið stórmeistari.
„Ætli maður verði ekki að spá
Hannesi því sama, ef hann heldur
áfram að stunda skákina. Hins
vegar er það til að þeir sem hafa
unnið titilinn hafi hætt skákiðkun,
en ég hef enga trú á því að Hann-
es geri það. Ég held að hann
muni tefla áfram af krafti. Hann
nýtur þess virkilega að tefla, en
þarf að lesa sér meira til í ská-
kinni að mínu mati,“ sagði
Margeir að lokum.
„Staðfestir
gróskuna 1
islensku skáklífi“
„ÞETTA eru mjög gleðilegar
fréttir og hittist nú vel á því
það stendur yfir aðalfundur
Skáksambands íslands. Við gát-
um ekki fengið betri gjöf en
þetta til merkis um hvað ungl-
ingastarf okkar hefur gengið
vel. Og þetta er enn ein stað-
festingin á gróskunni í íslensku
skáklífi,“ sagði Þráinn Guð-
mundsson forseti Skáksam-
bands íslands.