Morgunblaðið - 24.05.1987, Page 39

Morgunblaðið - 24.05.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987 39 Stjörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson í dag ætla ég að fjalla um árið framundan hjá Tvíbura- merkinu (21. maí—20. júní). Einungis er flallað um sólar- merkin og því hafa aðrir þættir einnig áhrif hjá hverj- um og einum Tvibura. Hér er ekki um spá að ræða, held- ur orku sem hver og einn getur unnið með, enda höfum við frjálsan vilja. Ár svipíinga Þegar á heildina er litið verð- ur næsta ár að teljast ár sviptinga, sérstaklega fyrir þá sem eru fæddir í síðara hluta merkisins eða eftir 14.—15. júní. Rólegt ár Þeir Tvíburar sem hins vegar eru fæddir frá 21. maí til 5. júní geta búist við rólegu ári fastra liða eins og venjulega, a.m.k. hvað varðar sólar- merkið. Heppni Júpíter er t Hrútsmerkinu á árinu og myndar því hag- stæða afstöðu við Tvíburann, eða þá sem fæddir eru eftir 8. júní. Það táknar að þrátt fyrir átök og vissa mótspymu frá Satúmusi ættu tækifærin að leynast bakvið hornið og viss heppni að vera möguleg. f þvi sambandi er mikilvægt að vera opinn fyrir tækifær- um, að horfa hátt og vera bjartsýnn. Endurmat Satúmus myndar afstöðu við Sól þeirra sem fæddir em frá 6. júní. Það táknar að um viss átök og mótvind er að ræða og útfrá því þörf fyrir endurmat og endurskipu- lagningu á starfsháttum og lífsmynstri. Hver er ég, hvað vil ég, hvert stefni ég og dugar það lengur sem ég hef verið að fást við? Kröfur verða gerðar um raunsæi í vinnubrögðum. Þegar Sat- úrnus er annars vegar er best að bíta á jaxlinn og lifa reglusömu lífi og vera reiðu- búinn að axla ábyrgð og vinna mikið. Horfast í augu við endurmat. Nýir vindar Þeir Tvíburar sem fæddir eru eftir 14.—15. júní þurfa bæði að takast á við Satúmus og Úranus. Hið síðamefnda táknar að nýir vindar blása, að bylting er framundan i hallarsölum vitundarinnar (hátíðlegt!). Á venjulegu máli táknar það að þessir Tvíburar koma til með að breytast á næsta ári, og þurfa að takast á við ný mál. Sjón þeirra á lífið breytist. Markviss nýsköpun f besta falli geta Satúmus og Úranus táknað að um markvissa nýsköpun er að ræða. Orka þeirra bíður upp á dugnað, vinnu og raunsæja uppbyggingu á nýjum og framsæknum sviðum. Næsta ár er því gott til að byija á nýjum verkum sem kreíjast hugkvæmni og dugnaðar. Hugrekki Ef viðkomandi Tvíburar neita að breyta til eða em tregir til og vilja halda fast í hið gamla er hætt við að næsta ár verði stressandi, leiðinlegt og erfitt. Segja má að það sem nú þarf sé hugrekki. Eina ömgga lögmál lífsins er að allt er breytingum háð. Þeir sveigjanlegu lifa, hinir verða undir eða lenda í erfíð- leikum. Opin viðhorf og leit að nýjum möguleikum og síðan þor og dugnaður er það sem skiptir máli á næsta ári fyrir Tvíbura fædda eftir 14.—15. júní, sem og reyndar fyrir aðra sem hafa plánetur á því svæði. GARPUR LfiNGT /NN! I FENJUNUM GEISL/IR Kfí/IFTV/? /F/iVÆG/ KDNUNG/ / VAK.NID OG IÆBÐ Ff?jhLSSS\ /R PRÖTTSETAR MÍU/K. NÖER J KOM/NN TlAII T/L AD NÁ U/LDlk % ÞI//SSEM 'VtéR 8BR ' V ---^KETTU/J, BN FYL<5ST ER /PlEÐ 814ESf KONUNG/. f NA VALPÍ? SVO V/RPIST SENt V/P EK3(JA1 ÖARDAGA FVRIRHÖKDUM.UEPfí V/Ð8ÖINN ATÖKCHi .1 o fbfrjou GRETTIR DYRAGLENS LJOSKA rfr ... FERDINAND \ > '' ^ 1 3—5 iiniiiiiiiniiiiiiiiiiniiiiiiiniiiiu.miiirii SMAFOLK UJATCH OUT, MAKCIE.. VOU'RE GOIN6 TO BUMP INTO MV PESK... 6EEPBEEP6EEP BEEP BEEPBEEP -JF--- 50RRV, MAAM..5ME 5ET OFF MVALARM SV5TEM! Passaðu þig Magga, þú rekst á borðið mitt... Afsakaðu, kennari, hún setti viðvörunarkerflð mitt 'gang! Þú ert rugludallur, herra! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Símon Símonarson vann fjög- ur hjörtu á óvenjulegu bragði í spili 102 á fslandsmótinu: Vestur gefur; AV á hættu. Norður ♦ KD74 ¥ 9864 ♦ Á97 *Á5 Vestur Á93 K52 G853 D108 Austur ♦ G62 ¥ D10 ♦ KD642 ♦ G96 Suður ♦ 1085 ¥ ÁG73 ♦ 10 ♦ K7432 Vestur Norður Austur Suður Vestur Norður Austur Suður Pass 1 lauf Pass 1 hjarta Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Það er mikil grimmd að stökkva í fjögur hjörtu, en það verður að gæta að því að laufopnun norðurs er í flestum tilvikum byggð á ekta lit. Vestur spilaði út tíglí, sem Símon drap á ás og fór strax í— laufíð, tók ás og kóng og tromp- aði lauf. Spilaði svo hjarta; tía, gosi og kóngur. Vestur hélt áfram með tígulinn, sem Simon varð að trompa heima. Og spil- aði svo spaða. Vestur dúkkaði og kóngurinn átti slaginn. Næst kom hjarta heim á ás. Nú átti Símon hjartasjöuna heima og áttuna í blindum. Ekki var því hægt að taka síðasta tromp vesturs og frílaufín, því blindur hefði lent inni. Því var ekki um annað að ræða en spila laufi. Vestur trompaði og Símon kastaði tígli! Vestur varð því að spila spaða eða tígli út í tvöfalda eyðu. Skemmtileg endastaða, þótt spilið mætti vinna eftir ýmsum öðrum leiðum. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á meistaramóti Perú í ár kom þessi staða upp í skák þeirra Aguilar, sem hafði hvítt og átti^ leik, og Garcia. Svartur lék síðast 22. — f7-f6, hann hefur greinilega aðeins reiknað með 23. exf6 — Dxg3 eða 23. — Hxd3 — fxg5. wmi/. A BMBf Wí. mj m ‘'ÆB i -- — i® JmI *■ \m m&i B 23. Rxh7! - Kxh7, 24. Re7 - g5, 25. Dxd3+ - f5, 26. Dh3+ - Kg7, 27. Dh5 - Dxe5, 28. Dg6+ og svartur gafst upp, því hann er mát í næsta leik. 19 ára gamall skákmaður, Urday að nafni, varð Perúmeistari. t*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.