Morgunblaðið - 24.05.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAI 1987
41
Minning:
Baldur Péturs-
son frá Hjalteyri
Fæddur 16. júlí 1915
Dáinn 7. maí 1987
Baldur Pétursscn verkstjóri frá
Hjalteyri lézt á Borgarspítalanum
í Reykjavík 7. maí sl. og fór bálför
hans fram í kyrrþey að eigin ósk
15. maí. Hann hafði þá átt við van-
heilsu að stríða í mörg ár.
Baldur fæddist á Akureyri 16.
júlí 1915. Foreldrar hans voru þau
Valrós Baldvinsdóttir og Pétur Jón-
asson framkvæmdastjóri á Hjalt-
eyri. Valrós var Þingeyingur í báðar
ættir, dóttir Jóhönnu Finnbogadótt-
ur, sem síðar bjó á Akureyri, og
Baldvins Bergvinssonar Bárðdals
kennara. Pétur var sonur Þuríðar
Pétursdóttur frá Oddsstöðum á
Sléttu, sonardóttur Jakobs Péturs-
sonar umboðsmanns á Breiðamýri,
og Jónasar Jónssonar sem var ætt-
aður úr Skagafirðij sonarsonur
Eiríks Eiríkssonar á Abæ í Austur-
dal. Þau Þuríður og Jónas bjuggu
á Halldórsstöðum í Reykjadal.
Foreldrar Baldurs fluttust til
Hjalteyrar árið 1918 og gerðist
Pétur Jónasson framkvæmdastjóri
hjá Kveldúlfi hf. sem hafði þá mik-
il umsvif á staðnum. Pétur var
annálaður fyrir dugnað og sína frá-
bæru verkstjóm. Þama ólst Baldur
upp á sjávarbakkanum, ásamt Ijór-
um systkinum sinum í litlu húsi sem
kallað var Péturshús. Þetta hús
stendur enn og er í eigu systkin-
anna.
Baldur gekk í Laugaskóla
1933—1935, en þar var þá skóla-
stjóri Leifur Asgeirsson, síðar
prófessor, sá mikli stærðfræðingur
og skólamaður. Talaði Baldur jafn-
an um Leif með mikilli hlýju og
virðingu og taldi hann hafa haft á
sig mikil áhrif.
Að loknu prófí frá Laugum hóf
Baldur trésmíðanám á Akureyri, en
hvarf frá því og settist í Verzlunar-
skóla Íslands haustið 1938 og lauk
þaðan verzlunarprófí 1940. Hann
settist síðan að á Hjalteyri og gerð-
ist starfsmaður hjá síldarverksmiðj-
unni þar, sem tekið hafði til starfa
1937. Varð hann fljótlega verk-
stjóri þar og hélzt svo meðan
verksmiðjan starfaði.
Baldur kvæntist sumarið 1942
sinni ágætu eiginkonu, Sveinbjörgu
Hansdóttur Wíum frá Sandgerði.
Hún lifir mann sinn. Bjuggu þau
fallegu heimili á Hjalteyri meðan
þar var við eitthvað að vera. En
1968 fluttust þau alfarin til
Bamaefni
á snældu
KOMIN ER út kassetta sem
heitir Barnaspil. Flytjendur eru
Guðmundur Rúnar Lúðviksson
og Káti leikhópurinn og er
þetta sjöunda útgáfa sem kem-
ur frá G.R. Lúðvíkssyni.
Á kassettunni eru ellefu bamalög
og má þar nefna: Allir krakkar, Það
búa litlir dvergar, Litlu andarun-
gamir, Stína og brúðan hennar,
Fimmeyringurinn o.fl., o.fl. Einnig
em tvö frumsamin lög við texta
eftir Guðjón Weihe.
Á B-hliðinni er frumflutt nýtt
leikrit sem heitir Daði dvetgur í
Stóraskógi. Handrit og stjómun sá
Guðmundur Rúnar um. í leikritinu
em sjö söngvar eftir Guðmund
Rúnar Lúðvíksson og textar eftir
Sigurbjörgu Axelsdóttur. Aðrir leik-
arar sem koma við sögu f verkinu
em Jóhannes Á. Stefánsson sem
er lesari og ljón, Þráinn Óskarsson,
Ólafur Viðar Birgisson, Agnes
Andrésdóttir, Lovísa W. Guðmunds-
dóttir, Signý Jóhannesdóttir og
Jónfna Björgvinsdóttir.
Reykjavíkur. Þá var öll síld horfin
úr sjónum, verksmiðjan verkefna-
laus og vart útlit fyrir annað en
Hjalteyri legðist í eyði. Raunar
hafði þá marga undanfarna vetur
verið þar atvinnuleysi því að Eyja-
§örður innan Hríseyjar var einnig
orðinn hálftæmdur að fiski. Baldur
varð því að leita sér vinnu annað
að vetrinum, var stundum á togara
en stundum í fiskvinnslu á suðvest-
urhorninu. Taldi hann slíkt ekki
eftir sér því að maðurinn var harð-
duglegur og kunni ekki að hlífa
sér, en hugði víst minna að eigin
heilsufari, og tók það að hefna sín
illa um þær mundir sem þau fluttu
suður. Baldur neyddist því til að
velja sér léttari vinnu og fékkst við
bensínafgreiðslu og lagerstörf
fyrstu árin í Reykjavík.
Þau Sveinbjörg og Baldur eign-
uðust fímm börn sem öll em á lífi.
Þau eru: Petra húsfreyja,
Reykjavík, gift Jóni R. Ragnarssyni
forstjóra; Pétur Hans húsasmiður,
Garðabæ, kvæntur Huldu Haralds-
dóttur; Rannveig húsfreyja, Akur-
eyri, gift Guðna Jónssyni
múrarameistara; Hafsteinn renni-
smiður, Akranesi, kvæntur Hafdísi
Hákonardóttur; Heimir prentari,
Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu Dís
Gylfadóttur. Barnabörnin em orðin
15 og tvö barnabarnabörn.
Baldur Pétursson var eftirminni-
legur maður þeim sem honum
kynntust. Á hreysti hans meðan
heilsan entist og harðneskju við
sjálfan sig hef ég áður minnzt. En
við aðra var hann ekki harður, held-
ur hið gagnstæða og allra manna
greiðviknastur, vildi alla aðstoða
sem slíks þurftu með. Hann var
vinsæll maður og gleðimaður og
hrókur alls fagnaðar í ijölmenni
jafnt sem fámenni, að minnsta kosti
meðan heilsan leyfði og raunar
lengur. Hann var tónelskur og hafði
ágæta söngrödd — og var í Karla-
kórnum Geysi um hríð. Hann lék
einnig vel á hljóðfæri.
Baldur var mikill Norðlendingur
og þá umfram allt Hjalteyringur,
og eftir að þau hjón fluttu til
Reykjavíkur dvöldust þau á Hjalt-
eyri um tíma hvert sumar, ef þau
komu því við. *
Ég kynntist Baldri Péturssyni
þegar ég trúlofaðist konu minni,
systur hans, Jóhönnu, árið 1948,
og hélzt sú vinátta unz yfir lauk.
Við áttum margt sameiginlegt,
höfðum alltaf um nóg að spjalla.
Sagnamaður var hann ágætur og
minnugur og hafði ég einkar gaman
af sögum hans sem oft fjölluðu um
hann sjálfan eða fólk sem hann
hafði kynnzt í æsku norður við
Eyjafjörðinn. Ég sé eftir að hafa
ekki skráð sumar af þessum sögum
eftir honum — en nú er of seint
að hugsa um það.
Blessuð sé minning góðs drengs.
Eiríkur Hreinn Finnbogason
1
HVERT SEM ÞU FERÐ
- VIÐ HÖFUM GJALDEYRINN
Einkeraii gjaldeyrisdeilda okkar er hröð
afgreiðsla á öllum helstu gjaldmiðlum heims.
Visa, ferðatékkar, almermirtékkar, reiðufé.
Komdu við hjá okkur.
0
.. ' : ' • .
jA]
!1H
ifNBIlii
1Í k '
-nútim fankj