Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 29
29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
f slenskur vísindamað-
ur fær fremstu verð-
laun vatnalíffræðinga
Forseti alþjóðasambands vatnalíffræðinga, prófessor Heinz Löffler,
afhendir Pétri M. Jónassyni heiðursverðlaun vatnalíffræðinga, Nau-
mann-Thienemann-verðlaunin, á Nýja Sjálandi.
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
DR. PÉTUR M. Jónasson pró-
fessor var sæmdur Naumann-
Thienemann-vísindaverðlaunun-
um á alþjóðaþingi vatnalíffræð-
inga á Nýja Sjálandi á dögunum.
Verðlaunin eru æðsti heiður sem
vatnalíffræðingi getur hlotnazt
og er þeim úthlutað á þinginu til
þriggja vísindamanna, en þingin
eru haldin þriðja hvert ár.
Nefnd vísindamanna frá 6 þjóð-
um greiðir atkvæði um verðlauna-
veitinguna og áttu nú Austurríki,
V-Þýskaland, Bandaríkin, Fólland,
Svíþjóð og Frakkland hvert sinn
fulltrúa í dómnefndinni. Félagar í
alþjóðasamtökum vatnalíffræðinga
eru 5.000 talsins og voru verðlauna-
hafamir valdir úr 50 manna hópi
og má því geta nærri, að ekki koma
aðrir en þekktir og alþjóðlega hugs-
andi vísindamenn tií greina við
verðlaunaveitinguna. Hinir tveir
voru Svisslendingurinn Richard
Vollenwaider og Dietrich Uhlmann
frá A-Þýzkalandi, en þeir voru báð-
ir fjarverandi, er afhendingin fór
fram.
Dr. Pétur fékk verðlaunin fyrir'
fjölþættar rannsóknir sínar á Es-
rumsö á Norður-Sjálandi og
íslenzku vötnunum, sem hafa vakið
athygli víða um heim. Hann hefur
sérstöðu meðal kollega sinna, því
að flestir þeirra verða að vinna ein-
göngu við rannsóknir á óhreinum
og menguðum vötnum, en Pétur
Jónasson stjómar yfirgripsmiklum
rannsóknum á líffræði hinna fersku
stórvatna, Mývatns og Þingvalla-
vatns.
Alþjóðaráðstefnan var nú haldin
í fyrsta sinn á suðurhveli jarðar og
komu um 1.000 manns til funda-
haldanna. Næst verður komið
saman í Miinchen eftir 3 ár og er
þá búist við a.m.k. 1.500 fundar-
gestum.
{ sambandi við ráðstefnuna fór
dr. Pétur í fótspor Jörundar hunda-
dagakonungs til Tasmaníu, en þar
stofnaði hinn nafnkunni íslands-
kóngur höfuðborgina Hobart. Ekki
fann dr. Pétur þó styttu af Jör-
undi, sem hann hafði vænzt að sjá,
en á litskyggnu í nýju safni er
mynd af málverki því, sem Eck-
ersberg málaði forðum af Jörgen
Jörgensen. Margir þekkja nafn Jör-
undar þarna enn í dag og er hann
eins konar þjóðhetja í Tasmaníu.
Vatnalíffræðideild Hafnarhá-
skóla, sem Pétur M. Jónasson veitir
forstöðu, er staðsett í Hilleröd eins
og kunnugt er. Deildin var stofnuð
við Furesö fyrir 90 ámm og heldur
þessa dagana merkisafmæli sitt
hátíðlegt, en síðan 1930 hefur hún
verið til húsa í nágrenni Frederiks-
borgslotssö. Dr. Pétur er 4. prófess-
orinn, sem stjómar stofnuninni, en
hún hefur 85 starfsmönnum á að
skipa, þar af em 50 nemendur, 17
vísindamenn og 18 tæknimenn.
Stofnunin setur markið hátt og
byggir á samstarfi virkra vísinda-
manna á alþjóðlegan mælikvarða
og er virt vel um allan heim. Er
danska vatnalíffræðideildin mest
alhliða deildanna á Norðurlöndum
og fékk nýlega bezta faglegt mat,
sem nokkur deild Hafnarháskóla
hefur fengið. Ástæðan fyrir vel-
gengni okkar er, að við vinnum og
birtum niðurstöður okkar á alþjóð-
legum vettvangi, segir dr. Pétur.
En helzti árangur rannsókna hans
er kominn í þær kennslubækur í
vatnalíffræði sem máli skipta.
Dr. Pétur Jónasson er nú á fömm
heim til Fróns eins og hann kemst
að orði. Heima vinnur hann að hinu
mikla vísindariti um Þingvallavatn,
líkt og bókinni Lake Mývatn fyrir
8 ámm. Fjölmargir Islendingar
vinna að rannsóknarverkefninu við
Þingvallavatn með honum, en alls
hafa 33 vísindamenn frá öllum
Norðurlöndunum haft þar samstarf.
— G.L.Ásg.
NVI
MR
Sumarið er
í kjallara
Nýjabæjar
í kjallara Nýjabæjar er núna nýopnaður
sumarvörumarkaður. Þar færð þú allt
sem tengist sumri og sól; grill og grillvörur,
garðvörur, tjöld, létt húsgögn og margt,
margt fleira. Til hátíðarbrigða munum við
grilla ýmis konar góðgæti fyrir við-
skiptavini okkar hvenær sem færi gefst.
IVýr opnimartími
í sumar verður opið alla virka daga til
kl. 19, nema á föstudögum, en þá verður
opið til kl. 22. Á iaugardögum verður
opið frá kl. 9-13. Lokað verður á
sunnudögum. Gildir frá 1. júní.