Morgunblaðið - 17.07.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
Indland:
Gandhi reynir að
styrkja stöðu sína
Rekur þrjá gagn-
rýnendur sína úr
flokknum
Reuter
Alþjóðlegur belgingur
Á myndinni sjást loftbelgir taka sig á loft meðan Talið er að nær eitt hundrað loftbelgir frá 13 lönd-
verið er að blása aðra upp á alþjóðlegri loftbelgja- um taki þátt í þessari stærstu loftbelgjahátíð í
hátíð sem nýlega var haldin í Joure í Hollandi. Evrópu.
sókna Austur-Þjóðverja yfir landa-
mærin, en um tvær milljónir hafa
fengið fararleyfi í ár. í upphafi ára-
tugarins var samsvarandi tala um
20.000.
Tilkynnt var um heimsóknina í
fyrradag, aðeins nokkrum dögum
eftir að forseti Vestur-Þýskalands,
Richard von Wiezsaecker, kom úr
opinberri heimsókn frá Sovétríkjun-
um.
Reuter
Nýkjörinn forseti Indlands, Ram-
aswami Venkataraman, sést hér
fagana sigri i gær á heimili sínu
anfarana mánuði hafa Singh og
Gandhi átt í miklum deilum.
Ekki er talið að deilur um leið-
togahæfileika Gandhis muni verða
úr sögunni þótt forsætisráðherrann
sé búinn að reka nokkra gagnrýnend-
ur sína. Mistekist hefur að stöðva
hryðjuverk Sikha í fylkinu Punjab,
spenna fer vaxandi milli hindúa og
múslima og er Gandhi kennt um.
Margir og miklir ósigrar stjórnar-
flokksins i kosningum til fylkisþinga
síðustu mánuði hafa einnig veikt
stöðu forsætisráðherrans mjög og
hættulegasti andstæðingur hans,
Vishwanath Pratap Singh, sem
Gandhi á sínum tíma rak úr emb-
ætti fjármálaráðherra, nýtur mikilla
vinsælda á Norður-Indlandi þar sem
höfuðvígi Kongressflokks (I) eru.
Singh reyndi á ráðherraferli sínum
að ganga á milli bols og höfuðs á
fjármálaspillingu meðal embættis-
og stjórnmálamanna á Indlandi.
Staða Singhs innan flokksins er
nú til athugunar hjá flokksyfirvöld-
um en verði hann rekinn eru taldar
líkur á að flokkurinn klofni. Singh
hóf í fyrradag að reka harðan áróður
fyrir pólitískum umbótum í fylkinu
Uttar Pradesh og hafði hann engin
samráð við flokksforystuna varðandi
stefnumálin. Uppreisnarmennirnir
þrír, sem reknir voru, hafa ákveðið
að styðja umbótabaráttu Singhs.
Willoch næsti fram-
kvæmdastjóri NATO?
Ósló, frá fréttaritara Morgunblaðsins Jan
KÁRE WILLOCH, fyrrverandi
forsætisráðherra Noregs, er nú
ræddur sem hugsanlegur arftaki
Carringtons lávarðar, núverandi
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins. Ríkisstjórn Verka-
mannaflokksins mun vera
þessari hugmynd fylgjandi og
þess tilbúin að fylgja henni eftir
að fúllum krafti, þó svo að
Willoch sé fremstur í flokki
höfúðandstæðinganna — Hægri-
flokksins.
Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Noregs, átti í síðustu viku
fund með Willoch, þar sem hann
spurði hvort hann hefði áhuga á
starfinu. Willoch svaraði afdráttar-
laust: „Já.“ í framhaldi af því var
samband haft við sendiherra Nor-
egs í aðalstöðvum NATO í Briissel
og hann beðinn um að kanna hvort
grundvöllur sé fyrir slíku framboði
Willochs.
í blaðinu Aftenposten var það
haft eftir heimildum innan stjórnar-
innar að hún myndi beita sér óspart
fyrir vali Willochs, ef áhugi reynd-
ist vera fyrir hendi meðal annarra
bandalagsþjóða. Samkvæmt blað-
inu er stjórninni umhugað um að
Norðmenn beiti sér meir en verið
hefur á alþjóðavettvangi. Að vísu
hefði Verkamannaflokkurinn helst
kosið að einhver flokksgæðingur
hans reyndi að hreppa hnossið, en
flokksforustan gerði sér grein fyrir
að enginn vegur væri að ganga
fram hjá Willoch.
Erik Laure.
Aðrir, sem taldir eru koma til
greina sem næstu framkvæmda-
stjórar vamarbandalagsins em
utanríkisráðherrarnir Manfred
Wörner, frá Þýskalandi, Belginn
Leo Tindermans og ítalinn Giulio
Andreotti.
Karl Bretaprins:
Hrifinn af
Japönum
London, Reuter.
í kynnisferð í jarðvélaverk-
smiðju í Norðaustur-Englandi
sagði Karl Bretaprins að breskir
iðnrekendur gætu margt lært af
Japönum varðandi rekstur fyrir-
tækja og framkomu við starfs-
menn.
Prinsinn sagðist vera hrifinn af
þeim anda samvinnu og samstöðu
sem ríkti í fyrirtækjum undir stjórn
Japana og nefndi sem dæmi sam-
eiginlega matstofu yfirmanna og
undirmanna.
Verksmiðjan var upphaflega í
eigu bandarísku Caterpillar-verk-
smiðjanna sem nýlega hættu rekstri
hennar. Japönsku Komatsu-verk-
smiðjumar keyptu hana nýlega og
starfa þar nú um 160 manns.
Suður-Kórea:
Prestar og fréttamenn
mótmæla stjórninni
Seoul, Reuter.
HÓPUR 48 suður-kóreanskra
mótmælendapresta í ensku bisk-
upakirkjunni lauk sex daga
hungurverkfalli sínu, sem beind-
ist gegn einræðistilburðum
stjórnvalda, í gær en hátt í 100
sjónvarpsfréttamenn lögðu niður
vinnu í einn dag til að mótmæla
meintri ritskoðun frétta.
Prestamir hófu verkfallið á
fímmtudaginn í síðustu viku eftir
að óeirðalögregla réðst inn í dóm-
kirkju þeirra í leit að mótmælendum
sem höfðu leitað þar skjóls eftir
átök í sambandi við útför stúdenta-
leiðtoga.
Leiðtogi prestanna sagði að þeir
hefðu stöðvað verkfallið til að gefa
stjórnmálamönnunum tíma til und-
irbúnings lýðræðislegra stjórnhátta
en bætti því við að ef það mistæ-
kist myndu prestamir reyna að
fylkja öllum kirkjudeildum til bar-
áttu gegn einræðisöflunum.
Prestamiráttu ríkan þátt í mót-
mælunum gegn þeirri ákvörðun
Chuns forseta 13. apríl að hætta
viðræðum um endurbætur á kosn-
ingalögum. Þeir hafa einnig unnið
mikið í samvinnunefnd þeirri er
skipulagði íjölmargar mótmælaað-
gerðir sem urðu loks til þess að
stjómvöld létu undan.
Fréttamennimir starfa hjá ann-
arri af tveim sjónvarpsstöðvum
landsins og lögðu tveir þriðju hlutar
þeirra niður vinnu. Stöðin telst vera
í einkaeign en sjónvarpsstöð ríkiss-
ins á 70 % af hlutabréfum hennar.
Fréttamennimir kröfðust þess að
stjórnarformaður stöðvarinnar
segði af sér enda álíta þeir hann
vera handbendi Chuns forseta og
sé hlutverk hans að ritskoða frétta-
flutning.
Leiðtogar stjómarandstöðunnar,
Kim Young-Sam og Kim Dae-Jung,
kröfðust þess í gær að Chun for-
seti ræki nýskipaðan forsætisráð-
herra sinn, Kim Chung-Yul, og
myndaði hlutlausa „þjóðstjórn" með
þátttöku stjómarandstæðinga til að
tryggja að væntanlegar forseta-
kosningar fari lýðræðislega fram.
Sögðu þeir skipun Kim Chung-Yuls
í embætti vera hluta af samsæri
ríkisstjórnarinnar um að halda
áfram völdum með því að beita
kosningasvindli.
Nýju-Delhi, Reuter.
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, rak í gær þrjá háværa
gagnrýnendur sína úr flokki
sínum, Kongressflokki (I). Nýr
forseti var kjörinn á Indlandi í
vikunni og hlaut Ramaswamy
Venkataraman, áður varaforseti,
langflest atkvæði þeirra þriggja
sem í framboði voru. Nýi forsetinn
er stuðningsmaður forsætisráð-
herrans og er talið að sjálfstraust
Gandhis hafl aukist við kosninga-
sigurinn.
Forseti er kjörinn af þingmönnum
á sambandsþingi landsins og þingum
einstakra fylkja, samtals um 4800
manns. Venkataraman er 76 ára að
aldri, nýtur mikillar virðingar og er
talinn verða mun samvinnuþýðari
gagnvart Gandhi en Zail Singh, sem
áður gegndi forsetaembættinu. Und-
Vestur-þýsk stjórnvöld:
Vara við bjartsýni vegna
heimsóknar Honeckers
Bonn, Reuter.
STJÓRNVÖLD í Bonn sögðu í
gær að fyrirhuguð heimsókn
Erichs Honeckers til Vestur-
Þýskalands i september gæfl til
kynna bætta sambúð ríkjanna,
en vöruðu menn við því að gera
sér of háar vonir um afrakstur
slikrar heimsóknar. Ef af heim-
sókninni verður, yrði það í fyrsta
sinn frá stofnun rikjanna sitt
hvoru megin járntjalds sem aust-
ur-þýskur leiðtogi fer vestur yfir
múr. Fram að þessu hafa nokkru
sinni verið uppi áætlanir um
slikar heimsóknir, en Rússar
hafa ávallt lagst gegn þeim
vegna ýmiss ágreinings sem upp
hefúr komið við Vesturlönd
hvort sem Þjóðverjar hafa þar
átt hlut að máli eður ei.
Kommúnistaleiðtoginn mun fá
hefðbundna móttöku þjóðhöfðingja
við komuna til Bonnar hinn 7. sept-
ember, þar á meðal mun hann
kanna heiðursvörð Bundeswehr.
Erich Honecker.
Athyglisvert þykir að ekki er um
opinbera ríkisheimsókn að ræða
heldur sérstaka opinbera heimsókn
í boði kanzlarans.
Á meðan fimm daga heimsókn
Honeckers stendur mun hann meðal
annars heimsækja fæðingarstað
sinn í Saar og borgina Trier, þar
sem Karl Heinrich Marx, heimspek-
ingurinn þýski og upphafsmaður
kommúnismans, kom í heiminn.
„Heimsóknin undirstrikar sam-
starfsvilja beggja ríkjanna," sagði
skrifstofustjóri kanzíaraembættis-
ins, Wolfgang Schaeuble. „Það er
í þágu beggja aðila að auka þessa
samvinnu, sem fyrst og fremst þjón-
ar þjóðinni í hinu klofna Þýskalandi
... Hins vegar ættu við ekki að gera
okkur of miklar vonir um árangur-
inn,“ bætti hann við. „Heimsóknin
á sér stað þrátt fyrir að báðir aðilar
hafi mjög skiptar skoðanir í veiga-
miklum málaflokkum.“
„Þegar Schaeuble var spurður
hvað ylli boðinu nú sagði hann að
mestu hefði ráðið fjölgun heim-