Morgunblaðið - 17.07.1987, Side 38
ffclk ff
fréttum
vpt>i l.irrt. -?t tnlritttlrrfívN tnrti rrtwr í.’Vsro'M
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
s,Það er eins gott að láta ekki þennan ljósmyndara fæla fiskinn".
Brosmilt kóngafólk
Þeim leiðast ekki skyldustörfín ef dæma má af sólskinsbrosinu á þeim Önnu prinsessu og eiginmanni henn-
ar, Mark Phillips, þar sem þau veifa til mannfjöldans eftir heimsókn á Landbúnaðarsýningu í Stoneleigh
í Englandi.
Sautján ára
verðbréfasali
Yeiðidag’ur í Meðalfellsvatni
Um síðustu helgi buðu bændur sem eiga veiðrétt í Meðalfellsvatni í Kjós fólki að renna fyrir físk í vatninu.
Ungir sem aldnir gripu þetta kærkomna tækifæri til þess að krækja sér í bröndu.
Danny Stein, sem fékk leyfi
til að stunda verðbréfavið-
skipti á Mannhattan fyrir rúmri
viku síðan er sannkallað undra-
bam. Hann er yngsti verðbréfasali
Bandaríkjanna og er honum spáð
miklum frama í viðskiptalífínu.
Danny vinnur hjá verðbréfafyr-
irtæki á Manhattan í New York
og hefur þegar aflað sér yfír 50
fastra viðskiptavina sem treysta
honum fyrir fjármunum sínum.
Samstarfsmenn hans og yfirboð-
arar em hæst ánægðir með
frammistöðu þessa töluglögga
tánings sem segist síður en svo
óttast samkeppni þeirra sem eldri
eru og reyndari.
Verðbréfaviðskipti geta verið
mjög ábatasöm í New York og
hefur Danny aflað sér dágóðra
tekna síðan hann fór að versla
með þau. Oftast fer hann til vinnu
sinnar í stórum svörtum leigubíl
en stundum ekur hann sjálfur á
BMW sportbílnum sínum. „Opnu
Corvettuna , árgerð ’59, nota ég
aðeins á sólríkum dögum" segir
hann. Danny nýtur þess að eiga
peninga og geta veitt sér öll
heimsins gæði. Hann fer á dýra
veitingastaði til þess að afla sér
viðskiptavina og velur sér föt frá
dýrum og virðulegum merkjum.
Það hefur eflaust komið Danny
til góða við að fá vinnu hjá verð-
bréfafyrirtækinu að vinur hans,
sem er tvítugur, er aðstoðar for-
stjóri þess og sonur eigandans.
Til þess að fá réttindi til að höndla
með fé fyrir aðra þurfti Stein að
taka sex tíma langt próf ásamt
rúmlega 6000 öðrum. Tæpur
helmingur þeirra sem þreyttu
prófíð féll, og voru þó flestir með
meiri menntun en hann.
Stein hefur alltaf haft mikinn
áhuga á alls kyns sölumennsku,
allt frá því hann seldi gosdrykki
í hverfínu sínu og braskaði með
aðgöngumiða að rokktónleikum.
Hann fékk áhuga á verðbréfavið-
skiptum þegar hann heimsótti
kauphöllina í New York og heill-
aðist af spennuþrungnu andrúms-
loftinu.
Þó Danny hafi svo sannarlega
meir en nóga peninga upp úr við-
skiptum sínum býr hann enn
heima hjá foreldrum sínum og
borgar hvorki fyrir fæði né hús-
næði. Faðir hans er lögfræðingur
á Manhattan og móðir hans er
prófessor í tölfræði. Hún er af-
skaplega stolt af syni sínum og
segist ekki efast um að hann sé
verðandi miljónamæringur.„Ég sé
hann í anda gefa heilu álmumar
til sjúkrahúsa" segir hún. Sjálfur
er Stein sannfærður um að hann
muni innan fárra ára geta sest í
helgan stein og lifað í vellysting-
um til hárrar elli. En hann hefur
tímann fyrir sér því hann verður
ekki þrítugur fyrr en árið 2000.
Reuter
Danny Stein, 17 ára , er yngsti verðbréfasali Bandarikjanna.
Ungur veiðmaður býst til að hala þann stóra á land.
Morgunblaðið/Sverrir