Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 38
ffclk ff fréttum vpt>i l.irrt. -?t tnlritttlrrfívN tnrti rrtwr í.’Vsro'M MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987 s,Það er eins gott að láta ekki þennan ljósmyndara fæla fiskinn". Brosmilt kóngafólk Þeim leiðast ekki skyldustörfín ef dæma má af sólskinsbrosinu á þeim Önnu prinsessu og eiginmanni henn- ar, Mark Phillips, þar sem þau veifa til mannfjöldans eftir heimsókn á Landbúnaðarsýningu í Stoneleigh í Englandi. Sautján ára verðbréfasali Yeiðidag’ur í Meðalfellsvatni Um síðustu helgi buðu bændur sem eiga veiðrétt í Meðalfellsvatni í Kjós fólki að renna fyrir físk í vatninu. Ungir sem aldnir gripu þetta kærkomna tækifæri til þess að krækja sér í bröndu. Danny Stein, sem fékk leyfi til að stunda verðbréfavið- skipti á Mannhattan fyrir rúmri viku síðan er sannkallað undra- bam. Hann er yngsti verðbréfasali Bandaríkjanna og er honum spáð miklum frama í viðskiptalífínu. Danny vinnur hjá verðbréfafyr- irtæki á Manhattan í New York og hefur þegar aflað sér yfír 50 fastra viðskiptavina sem treysta honum fyrir fjármunum sínum. Samstarfsmenn hans og yfirboð- arar em hæst ánægðir með frammistöðu þessa töluglögga tánings sem segist síður en svo óttast samkeppni þeirra sem eldri eru og reyndari. Verðbréfaviðskipti geta verið mjög ábatasöm í New York og hefur Danny aflað sér dágóðra tekna síðan hann fór að versla með þau. Oftast fer hann til vinnu sinnar í stórum svörtum leigubíl en stundum ekur hann sjálfur á BMW sportbílnum sínum. „Opnu Corvettuna , árgerð ’59, nota ég aðeins á sólríkum dögum" segir hann. Danny nýtur þess að eiga peninga og geta veitt sér öll heimsins gæði. Hann fer á dýra veitingastaði til þess að afla sér viðskiptavina og velur sér föt frá dýrum og virðulegum merkjum. Það hefur eflaust komið Danny til góða við að fá vinnu hjá verð- bréfafyrirtækinu að vinur hans, sem er tvítugur, er aðstoðar for- stjóri þess og sonur eigandans. Til þess að fá réttindi til að höndla með fé fyrir aðra þurfti Stein að taka sex tíma langt próf ásamt rúmlega 6000 öðrum. Tæpur helmingur þeirra sem þreyttu prófíð féll, og voru þó flestir með meiri menntun en hann. Stein hefur alltaf haft mikinn áhuga á alls kyns sölumennsku, allt frá því hann seldi gosdrykki í hverfínu sínu og braskaði með aðgöngumiða að rokktónleikum. Hann fékk áhuga á verðbréfavið- skiptum þegar hann heimsótti kauphöllina í New York og heill- aðist af spennuþrungnu andrúms- loftinu. Þó Danny hafi svo sannarlega meir en nóga peninga upp úr við- skiptum sínum býr hann enn heima hjá foreldrum sínum og borgar hvorki fyrir fæði né hús- næði. Faðir hans er lögfræðingur á Manhattan og móðir hans er prófessor í tölfræði. Hún er af- skaplega stolt af syni sínum og segist ekki efast um að hann sé verðandi miljónamæringur.„Ég sé hann í anda gefa heilu álmumar til sjúkrahúsa" segir hún. Sjálfur er Stein sannfærður um að hann muni innan fárra ára geta sest í helgan stein og lifað í vellysting- um til hárrar elli. En hann hefur tímann fyrir sér því hann verður ekki þrítugur fyrr en árið 2000. Reuter Danny Stein, 17 ára , er yngsti verðbréfasali Bandarikjanna. Ungur veiðmaður býst til að hala þann stóra á land. Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.