Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
160. tbl. 75. árg.__________________________________LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Poindexter í þingyfírheyrslunum:
Skýrði þinginu
ítrekað rangt frá
Washincrton, Reuter. ^ J
Washington, Reuter.
JOHN Poindexter, fyrrum ör-
yggisráðgjafi Reagans forseta,
sagði í þingyfirheyrslunum, sem
héldu áfram í gær, að hann
hefði hvað eftir annað skýrt
Bandaríkjaþingi rangt frá varð-
andi vopnasölumálið og það fé,
sem látið var renna til kontra-
skæruliða í Nicaragua.
Poindexter fullyrti hins vegar,
að embættismenn Hvíta hússins
væru að vemda Reagan forseta,
er þeir neituðu því, að forsetinn
myndi hafa veitt samþykki sitt
fyrir því að táta fé úr vopnasöl-
unni til írans ganga til kontra-
skæruliða, ef leitað hefði verið eftir
því.
Tilefni þessara ummæla Poin-
dexters var sú fullyrðing Marlins
Fitzwater, blaðafúlltrúa Hvíta
hússins, í fyrradag, að forsetinn
myndi ekki undir nokkrum kring-
umstæðum hafa leyft að láta þetta
fé renna til kontra-skæruliða.
Robert Byrd, leiðtogi demókrata
í öldungadeild Bandaríkjaþings,
sagðist ekki trúa því í gær, að
Poindexter hefði látið undir höfuð
leggjast að skýra forsetanum frá
áformum sínúm varðandi þetta fé,
eri ætlunin með þessum áformum
var að sniðganga bann Bandaríkja-
þings við hemaðaraðstoð við
skæmliða.
„Hvemig á nokkur maður að
trúa þessum náunga?" sagði Byrd
í gær, er hann var inntur álits á
yfirheyrslunum yfir Poindexter.
Reuter
Frakkar hertu mjög alla gæzlu við íranska sendiráðið í París í gær, eftir að tilkynnt hafði verið, að
stjórnmálasambandi hefði verið slitið við írani. Mynd þessi sýnir sveit lögreglumanna taka sér stöðu á
Place d’Iena í 50 metra fiarlægð frá íranska sendiráðinu.
Frakkland og íran slíta stj órnmálasambandi:
Frönskum gíslum í
Beirút hótað lífláti
Reuter
Thatcher
í Washington
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, átti í gær fund
með Reagan Bandaríkjaforseta í
Washington. Eftir viðræður
þeirra sagði Thatcher, að Vest-
urlönd þörfnuðust forystu
Reagans nú „meira en nokkru
sinni áður“.
ParÍB, Reuter.
FRAKKAR og íranir slitu
stjórnmálasambandi sin í milli
í gær. í framhaldi af þvi hót-
uðu íslamskir hryðjuverka-
menn í Beirút að myrða
franska gisla, sem þeir hafa í
haldi. Gerðist þetta í kjölfar
deilu, sem staðið hefiir í 18
daga, út af írönskum sendi-
starfsmanni, Vahid Gordij,
sem neitað hefur að bera vitni
um meint tengsl sín við hryðju-
verk í París. Franska lögregl-
an herti mjög alla gæzlu við
iranska sendiráðið í gær til
þess að koma i veg fyrir, að
Gordij kæmist burt þaðan með
leynd.
Frakkar kenndu frönum um
stjómmálaslitin og sögðu, að úr-
slitakostir, sem íranska stjómin
hefði komið fram með í fyrradag,
hefði gert það óhjákvæmilegt að
slíta stjornmálasambandinu. Þar
var þess krafizt, að umsátri
frönsku lögreglunnar um íranska
sendiráðið í París yrði aflétt innan
þriggja sólarhringa og beðist af-
sökunar á árás franskra landa-
mæravarða á íranskan sendi-
starfsmann, Mohsen Aminzadeh,
á flugvellinum í Genf.
íranir svömðu í gær aðgerðum
Frakka með því að láta lögreglu-
lið umkringja franska sendiráðið
í Teheran. Sökuðu þeir Frakka
um brot á alþjóðareglum um
meðferð sendimanna og að þeir
hygðust nota Vahid Gordij sem
gísl. Frakkar hefðu og og hindrað
fleiri sendistarfsmenn írana í
París í að fara frá Paris. Þá var
sagt, að franski ræðismaðurinn
í Teheran, Jean-Paul Torri, yrði
dreginn fyrir rétt sakaður um
njósnir, smygl og svartamarkaðs
brask.
Talsmaður samtakanna
Heilagt stríð (Islamic Jihad) í
Libanon, tilkynnti í gær, að tveir
franskir gíslar, sem þessi samtök
hafa á valdi sínu í Beirút, yrðu
teknir af lífi til þess að hegna
Frökkum fyrir fjandsamlegar
aðgerðir þeirra gagnvart írönum.
Samtök þessi, sem era vinveitt
írönum, rændu mönnunum í
marz 1985. Þeir vora báðir sendi-
starfsmenn og heita Marcel
Carton, 62 ára, og Marcel Fo-
untaine, 43 ára.
Noregur:
Siglt með
físk til
Kola-skaga
Osló, Reuter.
NORSKIR fiskimenn, sem átt
hafa í vandræðum með að koma
afia sinum í hús vegna manneklu
í norskum fiskiðnaði, hafa sótt
um leyfi til þess að sigla með
aflann til Sovétrikjanna.
„Við höfum fiskað mjög vel í
sumar, en það er engin leið til þess
að losna við aflann. Flest fisk-
vinnsluhúsin er lokuð vegna
sumarleyfa," sagði Magnar Peder-
sen, talsmaður norska ferskfisk-
sambandsins.
Pedersen sagði að nú væri sá
möguleiki kannaður að losa aflann
í fiskvinnslustöðvum á Kola-skaga,
handan sovésku landamæranna, en
þangað er skömm sigling frá helstu
miðum Norðmanna.
„Við seldum beint um borð í sov-
éska verksmiðjutogara árin 1983
og 1984, en við höfum aldrei farið
til hafnar og selt aflann þar. Vand-
inn nú er sá að fiskigengdimar
komu miklu fyrr en áður.“
Sovétríkin:
Lesendur Izvestia kvarta
yfir kosningasvikum
Moakvu, Reuter.
SOVÉZKA dagblaðið Izvestia
skýrði svo frá í gær, að því
hefði borizt fjöldi lesenda-
bréfa, þar sem lýst væri yfir
óánægju með kosningar þær,
er fram fóru með nýju fyrir-
komulagi i siðasta mánuði.
Hefðu kvartanir jafhvel borizt
mn hrein kosningasvik.
Þannig hefur blaðið það eftir
gamalli stríðshetju úr síðari
heimsstyijöldinni, D. Nedbailo frá
Novosibirsk, að hann hefði farið
snemma á fætur á kjördag og
farið í sín beztu föt, sett á sig
heiðursmerkin og farið til þess að
kjósa. „En þegar ég og konan
mín komum á kjörstað nr. 20, þá
kom í ljós, að það var þegar búið
að greiða atkvæði fyrir okkur."
Segir Izvestia, að enn fleiri lesend-
ur hefðu haft sömu sögu að segja.
Kosningar þessar fóru fram 21.
júní og var þar m.a. kosið í bæj-
ar- og sveitarstjómir. A sumum
stöðum var kosið eftir nýjum regl-
um, sem Mikhail Gorbachev
Sovétleiðtogi hefur gerzt talsmað-
ur fyrir. Var þar hægt að kjósa
á milli tveggja eða fleiri frambjóð-
enda kommúnistaflokksins, enda
þótt víðast hvar væri aðeins um
einn flokksframbjóðanda að ræða.
„Við vorum öll að vonast til
þess að sjá ný viðhorf koma fram
í þessum kosningum," segir í bréfi
frá öðrum lesanda, A. Nasedkin
í Úkraínu. „í reynd var allt óbreytt
frá því sem verið hefur undan-
fama áratugi."