Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987 I góðu gengi eftirÞór Indriðason Ágrip af allsnægtum Það þykja ekki lengur mikil tíðindi eða merkileg að í landinu ríkir um þessar mundir slík velmekt að um þvílíkt og annað eins finnast fá dæmi í gjörvallri íslandssögunni ef nokkur. Svartagallsraus og langbreyttar raunarollur um þjóðarhag á fallanda fæti hafa vikið fyrir bjartsýni og von um að hamingjusömustu þjóðar í heimi bíði ævarandi hagsæld, enda þótt finna megi á meðal vor efa- hyggjumenn sem hafa á sér andvara og treysta tíðinni varlega, vitandi það að jafnan getur brugðið til beggja vona í íslenskum efnahagsmálum. Afstaðan til góðærisins hefur þó ekki verið á einn veg og hafa marg- ir látið í ljósi þann grun sinn að ekki hafi allir fengið sinn skerf og því orðið rýrt í hendi þegar gripið hefur verið til pyngjunnar. Á hitt ber þó einnig að líta að sjaldan hafa hag- skýrslur verið jafn ánægjuleg lesning og einmitt nú og hefði einhvem tíma mátt segja það einhveijum tvisvar aðj>ær gætu orðið skemmtilegar. I fyrstu viku maímánaðar síðast- liðins var haldinn ársfundur Seðla- bankans og við það tækifæri upplýsti Jóhannes Nordal seðlabankastjóri til- heyrendur sína um góðærið og gaf þeim fyrirheit um áframhald þess. Um svipað leyti gaf Þjóðhagsstofnun út greinargerð sína um almennt ástand efnahagsmála, sem unnin var að beiðni stjómmálaflokkanna í tengslum við stjómarmyndunarvið- ræður. Bæði ræða seðlabankastjóra og greinargerð Þjóðhagsstofnunar lýsa í meginatriðum þeirri einmun- atíð sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar: — Undanfarin þijú ár hefur hag- vöxtur að meðaltali numið um 4,5% af landsframleiðslu og vöxtur þjóðar- tekna að jafnaði verið rúm 5%. — Áætlanir benda til að á árinu 1986 hafi land8framleiðslan aukist um 6,3% og hefur vöxtur hennar ekki verið meiri síðan 1978. Spáð er 4% aukningu landsframleiðslunnar á þessu ári og vexti þjóðartekna um 5,5-6%. — Á síðasta ári tókst að i'étta við- skiptajöfnuðinn úr 4,3% halla miðað við landsframleiðslu árið áður í 0,4% afgang. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1978 sem viðskiptajöfnuðurinn er okkur hagstæður. — Prátt fyrir miklar lántökur <ir- lendis á síðasta ári lækkaði hlutfall erlendra skulda af íandsframleiðslu vemlega, eða úr 54,8% í 50,8%. Svip- aða sögu er að segja um greiðslu- byrði erlendra lána en hún ’ ækkaði úr þvf að vera sem svaraði til 19,2% útflutningsteknanna i 18,9%. — Miðað við yísitölu framfærslu- kostnaðar varð verðbólga síðasta árs aðeins 13% sem er það iægsta sem verið hefur í hálfan annan áratug. Þjóðhagsstofnun spáir því að á þessu ári verði verðbólgan á bilinu 13-15%. — Á síðasta ári nam peningalegur spamaður um 80% af landsfram- leiðslu, en árið 1980 var hann aðeins 47,1%. Hér er því um 70% raunaukn- ingu að ræða. — Gert er ráð fyrir að aukning atvinnutekna milli áranna 1986 og 1987 verði á bilinu 25—27% en að kaupmáttaraukningin verði á milli 8,5% og 10,0%. — Um langt árabil hefur afkoma sjávarútvegs ekki verið jafn góð og undanfarin þijú ár og ekki er búist við að í bráð verði þar á teljandi breyting. Hagur iðnaðar hefur einnig vænkast mjög að undanfömu og jókst iðnaðarframleiðsla um 4,4% á síðasta ári. En þótt ástand og horfur hafi sjaldan verið með þeim hætti sem hér kemur fram, þá varpar allnokkur halli á rekstri ríkissjóðs nokkmm skugga hér á. Það er reyndar eftir öðm að slíkur halli myndaðist á tímum sem hans er ekki þörf, enda vart annars að vænta þar sem fjár- lögum ríkisins hefur ekki verið beitt mjög markvisst og með tilliti til ár- ferðis í þjóðarbúskapnum hveiju sinni. Lengst af hafa áhrif flárlaga- hagstjómar hér á landi verið tilviljun- arkennd og í litlu samræmi við vandaðar og almennt viðúrkenndar kenningar hagfræðinnar, að því er best verður af reynslunni séð. Hallinn á ríkissjóði nú er þó minna áhyggju- efni en oft áður þar sem að fjármögn- un hans hefur verið staðið með lántökum innanlands en ekki erlendu lánsfé eða seðlaprentun umfram framleiðniaukningu. Af þessum sök- um má vænta þess að þensluáhrif hallans verði vemlega minni en jafn- an áður. Gengisstefiia og kjaramál Hins vegar hefur góðærið fært þjóðinni meiri stöðugleika í gengis- málum en dæmi em um síðan fastgengiskerfíð, sem kennt hefur verið við Bretton Woods, gekk sér til húðar á ámnum í kringum 1970. Upphafs þessa stöðúgleika er að leitá í þeim víðtæku og harkalegu efna- hagsaðgerðum sem stjómvöld gripu til í maímánuði 1983 en kjami þeirra var að afnema sjálfvirk tengsl launa og verðlags og taka upp festu í geng- ismálum. Einn Iiður þessara aðgerða var lækkun gengisins um 15% og má telja hana síðustu meiriháttar gengisfellinguna sem framkvæmd hefur verið hér á landi. Allar götur síðan hefur mikið kapp verið lagt á að halda gengisfestunni og hafa bæði stjómmálamenn og hagspek- ingar lýst þeirri skoðun sinni að þennan árangur beri að veija. Geng- isstefnunni hefur verið ætlað það metnaðarfulla hlutverk að setja þró- un annarra hagstærða umgjörð, og þá einkum þróun launakostnaðar og almenns verðlags. Að baki henni liggur það sjónarmið að ef launa- og verðlagsþróun gengur um of úr takti við þróun gengisins, munum við áður en langt um líður taka að nýju til við þann darraðardans sem hér var stiginn á ámnum um 1980, mitt í hringiðu óðaverðbólgu og efna- hagslegs öngþveitis. En þótt gengis- stefnunni sé ætlað að halda aftur af víxlhækkunum iauna og verðlags, þá er gengi ’hennar undir því komið að hún sé virt og hefur þess sérstak- lega verið vænst af samtökum launþega að þau stilli kröfum sínum svo í hóf að stöðugleikanum verði ekki ógnað. Þessi nýja fastgengisstefnna er fyrir margra hluta sakir nerkileg, en þó kanrski helst íyrir það að hún er hluti af, og endurspeglar mjög vel þær breytingar r;em hafa verið að eiga sér stað hér á iandi í riamskipt- um samtaka aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins að undanfömu. ]>ess- ar breytingar heflast :neð efnahags- aðgerðunum 1983 sem áður eru nefndar. Þeirra aðgerða hefur fram til þessa einkum verið minnst fyrir tvennt. í fyrsta iagi fyrir það hve harkalegar þær voru gagnvart iauna- fólki sem ekki einasta mátti þola kaupmáttarrýmun í kjölfar fyrr- nefndrar gengisfellingar um 15%, heldur einnig afnám samningsréttar- ins, sem er bæði einstök og ótrúleg aðgerð í ríki sem býr við lýðræðis- legt stjómarfar. í öðru lagi hefur aðgerðanna verið minnst vegna þeirra jákvæðu áhrifa sem margir, og þá ekki síst höfundar þeirra, ætla að þær hafi haft á efnahagslíf þjóðar- innar. Það er hins vegar ekki ósennilegt að þegar frá líður muni þeirra verða minnst fyrir enn ann- arra hluta sakir og ekki síður merkilegri. Á þær má nefnilega líta sem mjög afdráttarlausa tilraun stjómvalda til þess að umbylta þeim hugsunarhætti sem mótast hafði á áttunda áratugnum. Kjami þess hugsunarháttar var verðbólguvænt- ingar sem voru hvati almennrar spákaupmennsku og birtust í kröfum og aðgerðum launþegasamtakanna og endurspegluðust jafnframt í töku ákvarðana í verðlagsmálum. Ásamt því að vera til þess hugsaðar að mæta aðsteðjandi vanda í efnahags- málum (sem vissulega var mjög mikill á þessum tíma) var aðgerðun- um því beinlínis ætlað að leggja efnahagslegum ákvörðunum og íslenskum efnahagsmálum yfirleitt, nýjan grunn. Fullsnemmt er í dag að segja nokkuð um það hvort þessi tilraun tekst eða ekki. Tíminn hefur síðasta orðið þar um. Það er engin tilviljun að aðgerðun- um í maí 1983 var að miklu leyti beint gegn launafólki og hagsmuna- samtökum þess, eða þá að þeim kjarasamningum sem að undanfömu hafa verið gerðir skuli hafa verið settur rammi með gengisstefnunni. Meðal margra stjómmálamanna og prófasta íslenskra efnahagsmála hef- ur sú skoðun átt upp á pallborðið að jafnvægisleysi í íslenska þjóðarbú- skapnum sé að miklu leyti að kenna steftiu launþegasamtakanna í kjara- málum og mikilli óbilgimi í kröfum þeirra. Þannig hafi verkalýðsforyst- an ekki sést fyrir í starfí sínu og haldið uppspenntum launakröfum til streitu án nokkurs tillits til afkomu fyrirtækjanna í landinu. Með nokk- urri einföldun má segja að það sé einkum tvennt sem hafi verið nefnt til skýringar þeirri kjarastefnu sem heildarsamtök launþega ráku síðasta áratug og reynt var að jarðsetja með aðgerðunum 1983. Annars vegar er um að ræða einhvers konar siðferði- legt niðurbrot verkalýðshreyfingar- innar sem greinilegast sýndi sig í stöðugt vaxandi skotgrafarhemaði innan hennar þar sem beinar kjara- viðmiðanir milli einstakra hópa launþega kyntu undir linnúlausum víxlhækkunum Iaunataxtanna. Hins vegar hafði átt sér stað fráhvarf frá þeirri stefnu sem mótast hafði á fyrstu árunum eftir síðari heimsstyij- öld og almennt var reynt að fylgja á Vesturlöndum, að þróun launa- tekna skyldi haldast í hendur við afkomu fyrirtækja á hveijum tíma. Reyndar má líta svo á að með því að hverfa frá þessari stefnu, á ofan- verðum sjöunda áratugnum, hafi forsendur verið skapaðar fyrir inn- byrðis samkeppni verkalýðsfélag- anna. Hér er þó ekki um neitt séríslenskt fyrirbrigði að ræða heldur hafa mjög svipaðir hlutir verið að gerast í flestum ríkjum Vestur- Evrópu. Þessi kjarastefna mótast um það leyti sem alvarlegir brestir verða sýnilegir í hinu alþjóðlega samkomu- lagi um fastgengiskerfí og þótt e.t.v. megi finna eitthvert samband þar á milli er hæpið að skoða annað r,em beina orsök hins. Þetta tvennt — hrun fastgengiskerfísins og einarðari kjarastefnu verkalýðsfélaga — iiafa margir talið vera þá meginþættí sem sköpum skiptu fyrir almenna verð- iags- og iaunaþróun á árunum eftir 1970, bæði hér á landi og erlendis. Almennar kaupkröfur, og þ.a.l. auk- in^ launakostnaður fyrirtækja, settu fyrirtækjunum tvo kosti: Að mæta kostnaðarhækkununum með því að velta þeim út í verðlagið eða með þvi að segja fólki upp störfum. Þriðji kosturinn var reyndar einnig til, sem var að gera þetta hvort tveggja. Inn í þessar kringumstæður dregst síðan ríkisvaldið með þeim hætti að á herð- ar þess er sú „skylda" lögð að tryggja afkomu atvinnurekstrarins í landinu. Fastgengiskerfið hafði haldið geng- inu svo til fullkomlega óvirku sem hagstjómartæki en með hruni þess gafst stjómvöldum meira svigrúm en nokkru sinni áðurtil þess að hlíta þessari skyldu sinni. í hönd fór tíma- bil stöðugra gengislækkana sem færðu tekjur frá launafólki til fyrir- tækja og bættu með þeim hætti rekstrarstöðu þeirra, þó aðeins til skamms tíma í senn því launþega- samtökin hafa jafnan lagt sig eftir því að ná upp fyrri kaupmætti laun- anna og höfðu oftar en ekki árangur sem erfiði á þessum árum. Breytt viðhorf í gengismálum Þótt menn óttuðust að með hruni fastgengiskerfisins myndi skapast lausung og óstöðugleiki í alþjóða- gjaldeyrisviðskiptum, þá var engu Þór Indriðason „Látið hefur verið að því liggja að undan- förnu að launakröfur í þjóðfélaginu kunni að kippa stoðunum undan fastgengisstefiiunni. I raun er þessu öfiigt far- ið; sú kjarastefna sem fylgt hefur verið stend- ur og fellur með gengisfestunni.“ að síður litið svo á að endalok henn- ar hefðu í för með sér vissa kosti fyrir almenna hagstjóm. Á dögum fastgengiskerfísins voru gengis- breytingar aðeins leyfðar ef mjög verulegt jafnvægisleysi hafði mynd- ast í þjóðarbúskapnum og sem talið var sem næst ógerlegt að leiðrétta eftir öðmm leiðum. Slíkar breytingar urðu því fáar en mjög stórvægilegar og höfðu í för með sér stökkbreyting- ar á almennu verðlagi og kaupmætti — í þá vemna að verðlag snar- hækkaði en kaupátturinn rýmaði stómm, því jafnan var um lækkun gengisins að ræða. Með því að taka upp sveigjanlega gengisskráningu gátu stjómvöld hins vegar hagað gengi krónunnar með tilliti til að- stæðna hveiju sinni. Þetta gerði þeim kleift að mæta yandamálunum nán- ast um leið og þau skutu upp kollin- um og einnig komast hjá stórfelldum verðlagsbreytingum og þeirri miklu röskun á iífskjömm r>em þeim fylgdu með því að lækka gengið oftar og minna í einu. En þegar frá ieið breyttust við- horfin gagnvart fijálsgengisstefn- unni, eins og þetta fyrirkomulag var gjaman nefnt. Mönnum varð Ijóst að í stað þess að gengisskráningin hefði orðið að einungis einum þætti hagstjómarinnar, þá var hagstjómin orðið lítið annað en gengisfellingar. í stað þess að veita verðbólgunni viðnám, þá viðhélt "tjálsgengisstefn- an henni með þeim afleiðingum að ólga á vinnumarkaði og ójafnvægi í þjóðarbúskapnum varð viðvarandi. Vinsældir gengisfellinga meðal ríkis- stjóma em hins vegar að sumu leyti vel skiljanlegar. Gengislækkun er einföld og fljótvirk aðferð til að leið- rétta, a.m.k. um stundarsakir, halla á viðskiptum við útlönd og áhrif hennar á almenning og fyrirtæki em almenns eðlis, þ.e. hún gerir aðeins upp á milli þeirra sem fá tekjur sínar greiddar í erlendri mynt og hinna sem fá þær greiddar í íslenskum krónum. En þótt gengisfellingar njóti lítilla vinsælda meðal almennings og nokkuð víst að varanleg áhrif þeirra séu lítil, þá kunna þær samt sem áður að vera illskárri kostur í augum stjómvalda en aðrar aðgerðir til að bæta úr óhagstæðum viðskiptajöfn- uði. Þannig gæti t.d. strangt aðhald í peningamálum, sem meðal annars fælist í takmörkun útlána bankanna, orðið tilefni mun meiri óánægju í þjóðfélaginu en gengislækkanir þar sem slíkar aðgerðir hljóta að kreflast þess að bankayfirvöld geri ekki að- eins upp á milli einstakra hópa þjóðfélagsins heldur einnig fyrir- tækja og jafnvel atvinnugreina. Þó að áhrif slíkra aðgerða á viðskipta- jöfnuð séu svipuð áhrifum gengis- fellinga, og gætu jafnvel reynst varanlegri, þá kann óttinn við enn frekara vinsældatap í kjölfar þeirra að valda því að ríkisstjómir hafa fremur hallað sér að gengisfelling- um. Það liggur aftur á móti í augum uppi að það gæti reynst stjómvöldum torvelt að vinna bug á verðbólgu með strangri peningamálastefnu og festu í gengismálum ef launþega- samtökin þráast við að laga kröfur sínar til samræmis við slíka stefnu. Fyrr eða síðar mundi við slíkar kring- umstæður koma til atvinnnuleysis eða þá að stjómvöld létu undan og tækju að nýju til við seðlaprentun og gengisfellingar. Baksvið aðgerðanna í maí 1983 í framhaldi af þessu er eðlilegt að spyija hvað orðið hafi til þess að stjómvöld sneru baki við gengisfell- ingum sem leið til þess að fást við efnahagsvandann en beittu þess í stað mun harkalegri aðgerðum 1983, sem víst var að ganga myndu nær almenningi. Við þessari spumingu er sjálfsagt ekkert einhlítt svar, en tvennt kemur þó e.t.v. til greina öðru fremur. í fyrsta lagi var sá vandi sem blasti við í upphafi ársins mun alvar- legri en oftast áður. Þjóðartekjur höfðu ekki verið jafn lágar síðan 1967 er síldarstofninn hrundi og spár bentu til þess að þjóðarframleiðsla myndi minnka um allt að 3% á árinu sem þýtt hefði mesta samdrátt henn- ar í hálfa öld. Ástæður þessa aftur- kipps voru þær helstar að þorskaflinn hafði minnkað verulega og mjög hafði orðið að draga úr Ioðnuveiðum vegna ofnýtingar stofnsins. í öðru lagi er hugsanlegt að stöðugar geng- isfellingar hafí reynt svo á langlund- argeð almennings að stjómvöld hafi á þessum tíma álitið að grundvöllur hefði þegar skapast fyrir annars konar áherslum íagstjóm, jafnvel þótt slíkum breytingum fylgdu meiri þrengingar almennings. I augum stjómvalda var sveigjanleg gengis- skráning nærtæk aðferð til að takast á við það jafnvægisieysi sem skapað- ist vegna breytingr. f óstöðugum ytri skilyrðum þjóðarbúsins. í augum al- mennings var hún hins vegar ein meginorsök efnahagsiegs óstöðug- leika og aimennrar óvissu. Að margra áliti gáfu /.engisfellingar til kynna ístöðuleysi stjómvalda og ótta þeirra við að mæta aðsteðjandi vanda af einurð og því hafi þau talið nauð- synlegt að sýna meiri festu og endurvekja með því virðingu kjós- enda í sinn garð f. nýjan íeik. Sá verðbóiguvandi ::em hér blasir við var að inörgu íeyti hliðstæður þeim sem við var að oiga annars staðar. I Bretiandi réðist ríkisstjóm Thatchers gegn verðbólgunni með mjög ströngum aðhaldsaðgerðum í peningamáium. I'essi r;tefna hauð verkalýðsfélögunuin r.ð ntilla kröfum sínum í hóf sem þau gerðu ekki og því kom til raikiis atvinnuieysis í kjöl- far aðgerðanna. Frú Thatcher var ekki í vafa um p.ð éfarir kjarastefnu verkalýðsfélaganna væri fyrst og fremst að kenna væfildómi verka- lýðsleiðtoganna; þeir væru ekki menn til þess að brjóta af sér hlekki stöð- ugra kjaraviðmiðana ;nilli einstakra launþegahópa íieídur iétu þeir ævin- lega undan brýstingi og spenntu kjarakröfumar ípp, langt umfram greiðslugetu fyrirtækjanna. Efna- hagsaðgerðimar sem gripið var til hér á landi 1983 benda til þess að íslensk stjómvöld hafí dregið nokk- um lærdóm af reynslunni frá Bret- landi og víðar þar sem svipaðri stefnu var fylgt. í stað þess að láta kjara- stefnu launþegasamtakana reyna um of á vilja sinn til þess að takast á við verðbólguvandann og getu fyrir- tækjanna til að verða við kröfum um launahækkanir, tók ríkisstjómin þann kostinn að afnema samnings- rétt verkalýðsfélaganna með lögum og fría sig og stefnu sína þeim þrýst- ingi sem líklegt er að kjarabaráttan hefði haft í för með sér. Þau skila- boð sem í aðgerðunum fólust og beint var til verkalýðsforystunnar voru mjög ótvíræð; verkalýðshreyfingin yrði að taka þá kjarastefnu sem hún hafði fylgt til rækilegrar endurskoð- unar því hún væri ábyrgðarlaus og með öllu óþolandi til lengdar. Ef ná ætti jafnvægi í efnahagsmálum og skapa forsendur fyrir raunverulegum kjarabótum, yrði hreyfíngin að taka sjálfa sig taki; ná tökum á sínum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.