Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987 4 ENNAF UNGLINGUM Frá landsþingi LÍF. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Morgan kemur heim — Morgan Stewart’s Coming Home ☆'/2 Leikstjóri: Alan Smithel Framleiðandi: Stephen Friedman Handrit: Ken Hixon Tónlist: Peter Bernstein Myndatökustjóri: Richard Bro- oks Aðalleikendur: Jon Cryer, Lynn Redgrave, Nicholas Pryor, Sa- vely Kraorov, Paul Gleason Bandarísk. Kingways 1987. Dæmigerð uppfyllingarmynd. Skotið inn í áætlunina í sal 1 fram að Bond, síðan mega myndir sem þessar missa stig og eru jafnframt öllum gleymdar. Hér er því þessi lítt frumlega unglingamynd eins- konar logn á undan storminum. Hér er reynt að tutla inn á vin- sældir Jon Cryers, sem vakti tals- verða athygli fyrir ágætan leik í ruglukollshlutverki í myndinni Pretty in Pink, ef nokkur man hana þá lengur. Hér hefur hann krafist þess að fá að viðra listræna hæfi- leika sína og fengið hlutverk svona nokkum veginn óbijálaðs unglings. Er þó illskástur ef honum býðst að fíflast. Að þessu sinni er Cryer einkason- ur öldungardeildarþingmannsins Pryor og homreka í fjölskyldunni þar sem foreldrar hans hafa engan tíma til að vasast í innanhússmál- um. Strákur hefur því flækst á milli heimavistarskóla frá bams- aldri. En í myndarbyrjun standa miklar brcytingar til því hann er sóttur á þyrlu af móður sinni, (Lynn Redgrave), og fluttur til síns heima, sem hann veit þó ekki hvar er. Fljót- lega kemur í ljós að búferlaflutning- ar stráksa koma ekki til af ást og umhyggju heldur á nú að nota kauða í auglýsingaherferð fyrir endurkjöri karls föður hans ... Aðstandendur myndarinnar eru greinilega íjarri því að vera gæddir nægilega ríkri kímnigáfu til að halda á floti heilli kvikmynd. Ein- staka atriði em brosleg en yfir Morgan kemur heim er ósköp hvers- dagslegur, þreytulegur blær og efnið kunnuglegt úr þeim tugum mynda af sömu gerð sem hellst hafa yfir markaðinn. Þar hefur vissulega kennt góðra grasa innan- um en svo virðist sem að þetta myndform sé búið að ganga sér til húðar í flestu tilliti og óskandi að Hollywoodframleiðendur komi auga á þá staðreynd sem fýrst. Lynn Redgrave er einna skárst í hlutverki óþolandi, þrælsnobbaðr- ar þingmannsfrúar, þó hún minni mann reyndar á Anthony Zerbe, (meira að segja röddin), og er það einkar óþægilegt. Pryor, sem maður hefur séð leika óteljandi, guðsvol- aða eymingja í gegnum árin, bætir hér einum í safnið, auðvitað með prýði, þetta er vanur maður! Og Gleason fellur vel í hlutverk kosn- ingasmalans. Hér eru til staðar nokkrar góðar hugmyndir og kraft- ar, það hefur því miður ekki tekist að vinna ur þeim. Og mikið er ég smeykur um að framavonir Cryers hafi beðið hér illbætanlegt afhroð. Frímerki Jón Aðalsteinn Jónsson Um sama leyti og Félag frímerkjasafnara hélt afmælissýn- ingu sína, Frímex 87, var 20. landsþing Landssambands íslenzkra frímerkjasafnara háð í félagsheimili sambandsins í Síðu- múla 17 sunnudaginn 31. maí sl. Sóttu 17 fulltrúar þingið frá aðild- arfélögum Landssambandsins í Reykjavík, á Húsavík, Dalvík og af Selfossi. Auk þess sátu þingið í boði Landssambandsins tveir full- trúar Póst- og símamálastofnunar- innar, þeir Rafn Júlíusson og Guðlaugur Sæmundsson. Fundar- stjóri var kjörinn Guðmundur Árnason 0g fundarritari Jóhann Guðmundsson. Formaður LÍF, Jón Aðalsteinn Jónsson, flutti skýrslu stjórnar og rakti þau helztu mál, sem tekin höfðu verið til umræðu og úrlausn- ar á liðnu starfsári. Þar ber enn hæst að koma húsnæðismálum Landssambandsins farsællega í höfn. En hið nýja félagsheimili hefur orðið félagsstarfsemi frímerkjasafnara mikil lyftistöng, og mun það koma æ betur í ljós á komandi árum. Samstarf við erlend frímerkja- samtök er orðinn verulegur þáttur í starfi LÍF, einkum þó við lands- sambönd frímerkjasafnara á öðrum Norðurlöndum. Eins hafa samskipti við Alþjóðasamband frímerkjasafnara, FIP, aukizt mjög á liðnum árum og þá um leið þátt- taka í erlendum frímerkjasýning- um. í beinu framhaldi af þessu hafði stjóm LÍF látið semja reglur um umboðsmenn erlendra sýninga á íslandi og eins um störf dóm- nefnda. Voru þessar reglur samþykktar á þinginu. Mörg mál önnur lágu fyrir þing- inu til úrlausnar. Eitt þeirra er að koma útgáfu tímarits safnara, Grúsks, í viðunandi horf og gera átak til þess að gera blaðið betur úr garði og fjölbreyttara að efni en verið hefur. Núverandi ritnefnd skipa Sverrir Einarsson, Hálfdan Helgason og Ólafur Elíasson. Á þinginu var ákveðið að auka út- breiðslustarf meðal unglinga og eins að hefja leiðbeiningarstarf meðal eldri borgara og fræða þá um frímerki og frímerkjasöfnun, en margir þeirra eiga vafalaust frímerki í fórum sínum. Á næsta ári verður LÍF 20 ára, og hefur verið ákveðið að halda frímerkjasýningu hér í Reykjavík af því tilefni. Hefur henni verið valið heitið LÍFÍL 88. Sýningar- nefnd hefur verið skipuð og er hún þegar tekin til starfa. Er stefnt að um 250 ramma sýningu með fjölbreyttu efni, bæði frá söfnurum hér heima og eins erlendis frá. Ég vil benda söfnurum á, að æskilegt er, að sem flestir þeirra, sem eiga frambærilegt efni til sýningar, taki þátt í þessari sýningu. í þessu sam- bandi má minna á nálarflokkinn í samkeppnisdeild, sem er einmitt ætlaður sérstaklega fyrir nýliða á sýningum. Þá hefur verið rætt um að halda aftur NORDIU-sýningu hérlendis, og kemur árið 1991 mjög til greina. Jón Aðalsteinn Jónsson, sem Jon Cryer í titilhlutverki Morgan kernur heim. Gottað grípa til Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Það getur komið sér vel að eiga dós af niðursoðnum fískibollum, eða búðingi, til að grípa til þegar þannig stendur á. Algengast er líkast til að hafa bollumar í tómats- ósu eða steikja þær og steikja búðinginn í sneiðum. En fleira kemur til og það án þess að of langur tími fari í matseldina, því víða þarf sjálfsagt að hafa hraðar hendur við matartilbúninginn þeg- ar komið er heim að afloknum vinnudegi. Fiskibollur með grænmeti 1 dós niðursoðnar fískibollur, 1 poki fryst grænmeti, helst blandað, Fiskbollur með grænmeti 2 matsk. tómatþykkni, 1 tsk. basil. Það þarf vart að taka það fram að nýtt soðið grænmeti er ákjósan- legt með bollunum. En ef við höldum okkur við það frysta er það sett í pott, hitað í gegn og bollun- um þá bætt á. Soði (af bollunum) og tómatþykkni blandað saman og hellt yfír og allt hitað vel í gegn. Gratineraður fiskbúðingur Basillauf og annað krydd sett eftir smekk. Borið fram með soðnum kartöflum. Ætlað fyrir 4-6. Fiskibollu-risotto 2 stórir laukar, 4 gulrætur, 1-2 hvítlauksrif,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.