Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987 Bæklingnr um útflutn- ing fyrir sjávarútveg KOMINN er út á ensku fyrsti bæklingur ÚtQutningsráðs ís- lands um útQutningsvörur fyrir sjávarútveg. Ber hann heitið „Iceland - the Cutting Edge Of Fisheries Techno- logy.“ í honum er eingöngu Qallað um ísienskar vélar og annan varning fyrir sjávarút- veg. Ætlunin er að nota ritið til að kynna útlendingum það Sveitin milli sanda skemmt- ir í Þórscafé Hljómsveitin Sveitin milli sanda skemmtir i Þórscafé í kvöld, Laugardagskvöld. Sveitin milli sanda hefur verið að skemmta Reykvíkingum undan- famar vikur en kemur nú fram í fyrsta sinn á efri hæð Þórscafé. Diskótekið verður á sínum stað niðri eins og endranær. sem framleitt er hér fyrir Qsk- iðnað og sjávarútveg. Upplag bæklingsins er fímmt- ánþúsund eintök, en þar af verður sjöþúsund eintökum dreift sem sérriti með breska sjávarútvegs- ritinu World Fishing, sem keypt er víða um heim. Bæklingurinn er 76 blaðsíður á vönduðum pappír. Hann gefur yfírgripsmikla mynd af úrvali fískibáta, véla, tækja, fatnaðar, tölvubúnaðar, umbúða og efna til dæmis, sem nauðsynleg eru fyrir útgerð og fískvinnslu. Útflutningsráð mun síðar einn- ig gefa bæklinginn út á norsku og spænsku. Útgáfan er verulega styrkt af Iðnlánasjóði, en jafn- framt greiða þeir sem eiga vörur í blaðinu auglýsingagjald. Þetta litprentaða sérrit verður jafnframt haft frammi á alþjóðlegum sjávar- útvegssýningum og á öðrum þeim stöðum þar sem íslenskar fram- leiðsluvörur til sjávarútvegs verða kynntar og seldar. Morgunblaðið/Jón Sig. Hin stálheppna SofiSa Pétursdóttir tekur hér við lyklunum að happ- drættisbílnum úr hendi formanns ungmennafélagsins Hvatar. Með þeim á myndinni er Vilhelm Jónsson, unnusti SofiSu. Blönduós: Vann bíl í happdrætti ungmennafélagsins Bókaupp- boð hald- ið i Iðnó BÓKAUPPBOÐ fer fram í veitingasal Iðnó sunnudaginn 19. júlí næstkomandi. Upp- boðið hefst klukkan 14. Bækumar á uppboðinu verða til sýnis á sama stað laugardag- inn 18. júlí milli klukkan 11 og 17. Inngangur í húsið er frá Vonarstræti. Alls verður boðin upp 161 bók og ritröð, þar á meðal ljóð, skáld- verk, bókafræðirit, ættfræðirit, tímarit og ýmsar fágætar bæk- ur. Að uppboðinu standa fom- bókaverslunin Bókavarðan og Sigurður Benediktsson hf. Blönduósi. UNG stúlka, SofiSa Péturs- dóttir, hreppti bU af gerðinni Borgarflörður: Deilur vegna úti- hátíðar í Húsafelli DEILUR hafa nú risið á mUli Félags orlofshúsaeigenda í Húsafelli og Ungmennasambands BorgarQarðar vegna útihátíðar, sem Ung- mennasambandið hyggst standa fyrir yfír verslunarmannahelgina. LeyQ sýslunefndar Mýra- og Borgarfjarðarsýslu liggur fyrir gegn þvf að viss skilyrði verði uppfyllt af mótsstjóm. Búið er að semja um lög- og heilsugæslu, og annað í þeim dúr, en efitir er að fara ofan í nánara skipulag á svæðinu sjálfú, tíl dæmis hvað varðar hreinlæt- is- og salernisaðstöðu, að sögn Einars Siguijónssonar fúUtrúa sýslumanns. í bréfí, sem Félag orlofshúsaeig- enda skrifaði UMSB, segir að 17 ára svo til óslitin hrakfallasaga úti- samkoma í Borgarfírði ætti að hafa fært mönnum reynslu. „Ungur maður liggur á spítala með marg- brotnar fætur og verður hann örkumla alla ævi. Á öðrum stað liggur annar ungur maður með þriðja stigs bruna á brjósti, hann verður eitt ár að jafna sig. Á spítala á Akranesi liggur ung stúlka, niður- lægð og slösuð, jafnar hún sig? Fjórir bílar eru skemmdir eftir árekstra og veltur, sjö ungmenni hafa verið svipt ökuleyfí og yfír 40 unglingar bera minniháttar skrám- ur. Allt þetta eftir dansleikjahald um hvítasunnuhelgina í Borgarfírði með tilheyrandi tjaldsamkomu að Húsafelli," segir í bréfí frá Félagi OH. Ennfremur segir í bréfínu: „Ger- um okkur grein fyrir að þessi slys eru tilkomin vegna peningafíknar einstakra félaga og mann, áköfum í að græða á mannlegri eymd og skemmtanafíkn unglinga með til- heyrandi áfengis og fíkniefna- neyslu. Framkoma þessara aðila gegn æsku vorri lýsir ábyrgðarleysi af hæstu gráðu, skeytingarleysi um mannlegar tilfínningar og slíku virðingarleysi við náttúru landsins að það jaðrar við landráð." IJMSB ráðgerir að halda útihátí- ðina í Hlíðartúni sem er í jaðri Húsafellsskógar, í landi Ástríðar Þorsteinsdóttur, systur Kristleifs Þorsteinssonar sem er landeigandi Húsafellslands. Sigríður Þorvaldsdóttir formaður UMSB sagði í samtali við Morgun- blaðið að unnið væri að undirbún- ingi útihátíðarinnar að fullum krafti enda væri engin ástæða til að hætta við hana þrátt fyrir þetta upphlaup orlofshúsaeigenda. „Bréf félagsins var lagt fyrir stjórn og formenn aðildarfélaga UMSB. Okkur þótti hinsvegar ekki ástæða til að ræða efni bréfsins þar sem það er bæði öfga- og fjarstæðukennt. Vitnað var meðal annars í útihátfðir, sem UMSB hafði aldrei komið nálægt." Sigríður sagði að UMSB hefði stað- ið fyrir útihátíðum í Húsafelli á árunum 1967 til 1976 sem allar þóttu takast með ágætum enda hefði aðhald og öryggisgæsla verið mjög ströng. Birgir Gunnlaugsson stjómar- maður í Félagi OH sagði að félagið væri síst á móti mótshaldi svo fram- arlega að gengið verði almennilega um staðinn. Kinsvegar hefði reynsla síðari ára ekki sýnt það og væri gróðurinn ennþá að jafna sig eftir átroðning mótsgesta 1976 þegar UMSB stóð fyrir sinni síðustu úti- hátíð í Húsafelli. Kristleifur Þor- steinsson landeigandi í Húsafelli hefur lýst því yfír að hann teldi atvinnurekstur sinn í hættu vegna fyrirhugaðs mótshalds og jafnframt hafa forsvarsmenn Verslunar- mannafélags Reykjavíkur lýst því yfír að þeir ætli að flytja sína átta sumarbústaði af svæðinu verði af samkomunni. Fulltrúi sýslumanns sagði að leyfí lægi fyrir bæði frá landeigendum og Náttúruvemdarráði auk þess sem hvorki hreppsnefnd né bygg- inganefnd hefðu mótmælt móts- haldinu. Sýsluyfírvöld teldu að hægt væri að anna löggæslu á sómasamlegan hátt eins og verið hefur á slíkum samkomum og því sæi hann enga fyrirstöðu á móts- haldinu svo framarlega sem öll skilyrði hvað varðaði aðstöðu á mótssvæðinu væru uppfyllt. Samkomur síðan 1976 IJMSB óviðkomandi MORGUNBLAÐINU hafa borizt efitirfarandi yfírlýsingar með ósk um birtingu: „Vegna villandi frétta í fjölmiðl- um að undanfömu er nauðsynlegt að það komi fram, að Ungmenna- samband Borgarfjarðar gekkst fyrir sumarhátíð í Húsafelli fyrst árið 1967 og síðast árið 1976. Vom þessar samkomur haldnar í góðri samvinnu við heimilisfólkið á Húsafelli, lögregluyfírvöld í hér- aði og aðra þá sem tengdust mótshaldinu. Útisamkomur í héraðinu síðan em óviðkomandi Ungmennasam- bandi Borgarijarðar. í héraði 16. júlí 1987, Ófeigur Gestsson fyrrv. sambandsstjóri Ungmenna- sambands BorgarQarðar. Sigríður Þorvaldsdóttir núv. sambandsstjóri Ungmennasambands Borg- arQarðar." „Vegna frétta í §ölmiðlum um mótshald á vegum UMSB o.fl. vil ég upplýsa: Mót á vegum UMSB hófust í Húsafelli árið 1967. Síðasta mót var haldið árið 1976. Þessi mót Daihatsu Coure í happdrætti ungmennafélagsins Hvatar á Blönduósi. Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi gekkst fyrir happdrætti nú í sumar til styrktar starfsemi sinni. Alls vom útgefnir miðar 1.000 og var dregið í happdrætt- inu í hálfleik er 4. deildar liðin í knattspymu, Hvöt og Árroðinn, áttust við. Aðeins var dregið úr seldum miðum og upp kom númer- ið 85 og eins og fyrr greinir var happdrættismiði með þessu núm- eri í eigu Soffíu. Hvatarmenn hafa verið mjög ötulir við fjáröflunina og hafa þar margir lagt hönd á plóginn. Ekki veitir af því mikill kostnaður fylg- ir því að halda uppi öflugu íþrótta- starfí og ekki síst að taka þátt í deildarkeppninni í knattspymu. — Jón Sig. Haraldur, ekki Halldór í viðtali við Nils Ihre, fyrrver- andi framkvæmdastjóra samtaka sementsfiramleiðenda í Vestur— Evrópu sem birtist sl. miðviku- dag misritaðist nafin íslendings- ins sem stjómaði rannsóknum á alkalískemmdum hjá Rannsókn- arstofíiun byggingariðnaðarins. Hið rétta er að þessar rannsókn- ir voru undir stjóm Haralds Ás- geirssonar. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. © INNLENT 40 ára starfsemi Hvítasunnumanna í Stykkishólmi voru öll haldin með Ijölbreyttri dag- skrá, sem höfðaði til fólks á öllum aldri. Áfengisneysla var stranglega bönnuð og að því staðið með mik- illi festu sem og annarri fram- kvæmd. I fréttum þessa dagana hefur komið fram nokkur ruglingur á þessum staðreyndum, þar sem gefíð er í skyn, að UMSB hafi staðið fyrir fjöldasamkomum um hvíta- sunnuhelgi og samkomu á Húsafelli árið 1983. Staðreyndin er að þessi mann- safnaður seinni ára hefur farið fram án nokkurrar stjómar og síst af öllu verið á vegum UMSB, nema dansleikir sem haldnir hafa verið í samkomuhúsum héraðsins verslun- armannahelgar um nokkurra ára skeið. Ég mun hafa látið liggja að því, að um síðustu hvítasunnu hafi UMSB staðið fyrir dansleik sem haldinn var í Logalandi, en það er alrangt. Það var hljómsveit sem tók húsið á leigu og hélt þar dansleiki á sína ábyrgð. Húsafelli 15. júlí 1987, Kristleifúr Þorsteinsson Stykkishólmi. UM ÞESSAR mundir eru liðin 40 ár síðan Hvítasunnuhreyfing- in hóf starfsemi sína hér í Stykkishólmi. Af því tilefni er hreyfíngin með samkomur þessa dagana. í dag, laugardag, verða þijár samkomur og á morgun lýkur afmælishátíðinni. Það var árið 1947, að þau Hertha og Þórarinn Magnússon komu hing- að á vegum hreyfingarinnar og héldu samkomu bæði í kirkjunni og samkomuhúsinu. Var mikil aðsókn að samkomum sem leiddi til þess að þau ákváðu að hefja hér kristi- legt starf hvítasunnumanna. Þau voru nýkomin frá Svíþjóð, þar sem þau voru bæði þátttakendur í líku starfí, Hertha var sænsk en lærði furðu fljótt íslenskuna. Hún var mjög músfkölsk og söng vel og setti það sinn blæ á samkomumar. En Þórarinn og Hertha létu ekki þar við sitja heldur hófu þau bygg- ingu samkomuhúss með íbúð fyrir safnaðarstjómina og þetta hús gátu þau tekið í notkun 1948. Þótti þetta hið mesta afrek, þó að þau fengju hjálp frá vinum í hreyfingunni víðsvegar að. Ekki var samkomu- hald látið nægja, heldur hafíð bamastarf sem enn í dag er við lýði. Þau hjón stýrðu þessu í 8 ár en þá tóku aðrir við. Þórarinn hóf trúboð í Grænlandi sem hann vann að til dauðadags. Síðan hafa 8 forstöðumenn verið fyrir söfnuðinum og núverandi for- stöðumaður er Kjell Lindblom og kona hans, Margrét. Margir hafa notið góðs af þessu starfí, enda það fólk sem að þessu hefur staðið bæði fómfúst og áhugasamt. — Ámi NAFN listmálarans Kjartans Öla- sonar misritaðist í frétt frá Bolung- arvík í blaðinu síðastliðinn fímmtudag, er hann var sagður Ólafsson. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. GENGIS- SKRANING Nr. 132 - 17. júlí 1987 Kr. Kr. ToU- Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi Dollari 39,070 39,190 39,100 Stpund 63,370 63,564 62,440 Kan.dollari 29,600 29,691 29,338 Dönskkr. 5,5834 5,6006 5,6505 Norskkr. 5,7989 5,8167 5,8310 Sænskkr. 6,0809 6,0996 6,1228 Fi.mark 8,7434 8,7703 8,7806 Fr.franki 6,3642 6,3838 6,4167 Belg.franki 1,0216 1,0248 1,0319 Sv. franki 25,4312 25,5093 25,7746 Holl. gyUini 18,8198 18,8776 19,0157 V.-Þ.mark 21,1848 21,2498 21,4012 Ítlíra 0,02928 0,02937 0,02952 Austurr.sch. 3,0141 3,0233 3,0446 Port. escudo 0,2713 0,2722 0,2731 Sp.peseti 0,3085 0,3095 0,3094 Jap.yen 0,25772 0,25851 0,26749 írsktpund 56,763 56,937 57,299 SDR(Sérst) 49,6908 49,8438 50,0442 Ecu, Evr. 44,0241 44,1593 44,3316 Belg. fr. Fin 1,0181 1,0212
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.