Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987 Ljósadýrð í Laugardalshöll Vel á fímmta þúsund manna keyptu til Japans. Virtust áheyrendur þekkja vel klukkustundir. sig inn á tónleika norsku hljómsveitarinn- til efnisskrár hljómsveitarinnar og kunna Hljómsveitin heldur aðra hljómleika í ar A-ha í gærkvöldi. vel að meta ljósadýrðina sem fylgdi tónlist- Laugardalshöll í kvöld. Hljómsveitin kom hingað úr tónleikaferð inni. Tónleikamir stóðu í hartnær tvær Margeir gerði jafiitefli MARGEIR Pétursson gerði jafíi- tefli við Norðmanninn Tisdal í gær í 6. umferð Skákþings Norð- urlanda, sem haldið er í Þórshöfíi í Færeyjum og er ennþá í 2. sæti á mótinu með 4 vinninga á eftir Mortensen frá Danmörku, sem hefíir hálfum vinningi meira. Jón L. Árnason tapaði fyrir Hansen frá Danmörku, en Helgi vann Ziska frá Færeyjum. Helgi er í 3.-7. sæti ásamt Hansen frá Dan- mörku, Tisdal frá Noregi og Schneider frá Svíþjóð með 3,5 vinn- inga eftir sex umferðir. 7. umferð verður tefld í dag. Þá teflir Margeir við Máki frá Finn- landi og hinir íslendingarnir tveir, Jón L. og Helgi tefla saman. Alls verða tefldar 11 umferðir á mótinu. Gæslan fer á móti flugvél ÞYRLA Landhelgisgæslunar TF-SIF fór um kvöldmatarleytið á móti bandariskri flugvél, sem var stödd austur af Keflavík og fylgdi henni inn til lendingar í Reykjavík. Flugvélin hafði tapað afli á öðrum hreyflinum og var að tapa hæð. Hún lenti heilu og höldnu f Reykjavík klukkan háf átta. Samkomulag um fiskverð á Fáskrúðsfírði: Greitt meðalverð á markaði í Haíharfírði SAMKOMULAG var í sjónmáli um fískverð milli sjómanna og Hraðfrystihúss Faskrúðsfjarðar í gærkvöldi og var gert ráð fyrir að báðir togararar Fáskrúðs- fírðinga, Hoflellið og Ljósafellið héldu á veiðar i nótt. Samkomu- lagið, sem átti eftir að ganga frá formlega í gærkveldi, felur i sér að fískverð til sjómanna skuli Vestmannaeyjar; Smíði nýs Herj- ólfs undirbúin Vestmannaeyjum. STJÓRN Heijólfs hf. i Vest- mannaeyjum hefur ákveðið að láta hefía hönnun á nýju skipi til siglinga milli Eyja og Þorláks- hafiiar. Smiði skipsins verður boðin út og samkvæmt verkáætl- un er að þvi steftit að nýja skipið verði tekið notkun í maímánuði 1989. Reiknað er með að nýja skipið, sem verður bæði stærra og hraðskreiðara en Heijólfur, muni kosta milli 400 og 500 millj- ónir króna. Sjóleiðin sem Heijólfur siglir daglega, allan ársins hring, er um 72 km. og samkvæmt athugun sem Herjólfsmenn gerðu, kostar það um 500 milljónir króna að leggja mal- bik á jafn langan vegarkafla, eða INNLENT álíka upphæð og nýja skipið mun kosta. Eyjabúar líta gjaman á sjó- leið Heijólfs sem sinn þjóðveg til fastalandsins. Það er hugmynd stjómar Heij- ólfs hf. að nýja skipið verði búið a.m.k. tveimur vélum, en núverandi Heijólfur er aðeins með eina vél. Ganghraðinn verður 17-18 mílur sem mun stytta siglingatíma skips- ins um nær eina klukkustund. Skipið verður með gegnumkeyrslu sem mun verulega stytta af- greiðslutíma í höfnum. Skipið mun rúma 450-500 farþega, þar af 100 í klefum, en sæti verða fyrir alla farþega. Þá getur skipið tekið 80-90 fólksbifreiðar og gert er ráð fyrir að skipið geti flutt vörugáma. Danska skipaverkfræðifyrirtæk- ið Dwinger Consult AS verður aðalhönnuður nýsmíðinnar, Skipa- tækni hf. verður tæknilegur ráð- gjafi og Þorkell Sigurlaugsson, viðskiptafræðingur, verður rekstr- arlegur ráðgjafí. Ráðgert er að smíðalýsing verði tilbúin um miðjan nóvember á þessu ári og þá fari fram útboð á smíði skipsins. -hkj. miða við meðalverð á fískmark- aði í Hafíiarfirði. Eiríkur Stefánsson, formaður verkalýðs- og sjómannafélags Fá- skrúðsijarðar, kvað sjómenn mjög ánægða með þessa niðurstöðu, þeir hefðu lengi krafíst þess að fá fijálst fiskverð og teldu það hagstæðast. Því hefði hins vegar verið hafnað af viðsemjendum og því hefðu þeir farið fram á sarna fiskverð og gilti á Norðurlandi. í fyrrinótt hefði hins vegar verið gefinn möguleiki á þess- ari viðmiðun, en á því hefði verið formgalli og því hefðu sjómenn hafnað þessu tilboði. í gær hefði hins vegar tekist að sníða þennan formgalla af og sjómönum því ekk- ert verið að vanbúnaði og samþykkt viðmiðun við markaðinn í Haftiar- firði. Framhalds- skólinn á Húsavík tek- ur til starfa Húsavík. ARFTAKI gagnfræðaskóla Húsavíkur, Framhaldsskólinn á Húsavik, tekur til starfa á kom- andi hausti. Menntamálaráðherra hefur sett Jón Hannesson skólastjóra hins nýja skóla. Jón hefur um árabil verið kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð en síðastliðið ár ver- ið skólastjóri skólans á Húnavöllum. Fréttaritari Morgunbiaðið/Einar Falur Gatnamálasijóri fær aðstöðu í Breiðholti Á mótum Jaðarsels og Seljabrautar í Breiðholti er unnið að byggingu bækistöðvar fyrir starfsmenn gatna- og garðyrkju- stjóra borgarinnar. Að sögn Hjörleifs Kvaran skrifstofustjóra borgarverkfræðings er það aðstaða gatnamálastjóra við Sævar- höfða, sem flytur starfsemi sina í Breiðholtið. Skytturnar keppa á kvikmyndahá- tíðinni í Locarno SKYTTURNAR, mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, hefur verið valin til þess að taka þátt í kvik- myndahátíðinni í Locarno í Sviss 6.-16. ágúst næstkomandi. Þessi hátíð er jafiigömul þeirri í Can- nes og heldur því upp á fertugs- afínæli sitt á þessu ári. Friðrik Þór sagði í samtali við Morgunblaðið að myndin hefði verið valin sem ein af Qórtán myndum er keppa til verðlauna á hátíðinni og væri þetta í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd yrði slíks heiðurs aðnjótandi á jafn virtri hátið og þeirri í Locamo, en hún væri sú þriðja virtasta í Evrópu. Hingað til hefðu íslenskar kvikmyndir einung- is verið sýndar á mörkuðum utan sjálfrar keppninnar, t.d. í Cannes og Berlín. í Locamo er keppt um leóparda og meðal þeirra sem hafa unnið gullleópardann em leikstjórar á borið við Milos Forman, Antonioni, Pasolini og Tarkovsky. Friðrik Þór sagði að á þessari kvikmyndahátið væru oft uppgötvaðir nýir straumar og nefndi sem dæmi frönsku ný- bylgjuna. „Ég yrði mjög ánægður ef myndin hlyti einhveija viður- kenningu en fínnst nógur heiður að vera valinn til þátttöku í keppn- inni,“ sagði Friðrik Þór að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.