Morgunblaðið - 18.07.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
Reuter
Líbýskir hermenn flýja til Egyptalands
Höfuðsmaður i flugher Líbýu og tveir undirforingjar hans flúðu í fyrradag til Egyptalands og
sóttu um hæli. Það var veitt nær samstundis en mennimir komust til Egyptalands á árásarþyrlu
af gerðinni Mil-8, en hún er sovésk að uppruna. Þetta er þriðji slíki atburðinn í ár og er það rakið
til versnandi anda í líbýska hemum, sem talið er stafa m.a. af hrakförum hans í stríðinu við Chad.
Suður-Kórea:
Óttastað 135
mannshafi
farist í fellibyl
Seoul. Reuter.
ÓTTAST er, að 135 manns hið
fæsta hafi farist, þegar fellibyl-
urinn Thelma gekk yfir suður-
hluta Suður-Kóreu f fyrradag.
Skip sukku af völdum veðursins
og mikil flóó og aurskriður fóru
af stað, að því er suður-kóreska
rikisútvarpið sagði f gærkvöldi.
Útvarpið sagði, að búið væri að
finna 59 lík, en a.m.k. 76 manna
væri enn saknað og um 7000 hefðu
misst heimili sín. Veðurfræðingar
vanmátu styrkleika Thelmu framan
af deginum, þegar hún stefndi út
á Japanshaf.
Flestir hinna látnu drukknuðu i
flóðunum eða grófust í aurskriður.
A.m.k. 30 sjómanna var saknað.
Að sögn útvarpsins tóku tugir
þúsunda hermanna, lögreglumanna
og almennra borgara þátt í björg-
unaraðgerðum í suðausturhluta
landsins, í nágrenni hafnarborgar-
innar Pusan, þar sem Thelma var
hvað mannskæðust. A.m.k. 42 lík
hafa fundist þar og 64 er saknað.
Mikið tjón varð á mannvirkjum
af völdum flóðanna og yfir 50 þús-
und hektarar ræktarlands fóru
undir vatn. Samgöngur, bæði á
landi, sjó og í lofti, lágu niðri með-
an á hamförunum stóð.
Kínverska hagstofan:
Borgarbúar njóta ekki
ávaxta efhahagsfrelsis
Peking, Reuter.
SAMKVÆMT nýútkominni
hagskýrslu ú Alþýðulýðveldinu
Kína hafa lífsgæði um 20%
borgarbúa í landinu versnað
þrátt fyrir aukna hagsæld í
landinu að undanförnu. Er
þetta rakið að hluta til hinnar
nýju frjálsræðisstefiiu í efiia-
hagsmálum. „Rauntekjur
fimmtu hverrar borgarQöl-
skyldu hafa lækkað og um 5%
þeirra eiga í alvarlegum krögg-
um,“ var haft eftir Zhang
Zhongji, talsmanni kínversku
hagstofúnnar. Talið er að um
200 milljónir búi í borgum, en
það er tæplega fimmtungur
þjóðarinnar. Hins vegar hefiir
staða iðnaðarins batnað mjög,
sem og vöruskiptajöftiuðurinn.
Fram kom á blaðamannafundi
Hagstofunnar að verð á helstu
matvælum hefði hækkað mjög á
árinu, en það hefði valdið vöru-
skorti í nokkrum borgum. Verð-
hækkanir eru Kínveijum tiltölu-
lega nýtt fyrirbæri, því
verðstöðvun var á helstu nauð-
synjavörum allt frá byltingunni
1949 fram á þennan dag. Á móti
kom að vöruskortur var landlægur
og hungursneyðir tíðar. Sam-
kvæmt endurbótatillögum Deng
Xiaoping voru verð- og launa-
hækkanir leyfðar til þess að hvetja
til aukinnar framleiðslu.
Þetta hefur aukið almenna hag-
sæld og verslana- og iðnaðar-
mannastéttir hafa hagnast mjög
að undanfömu sem og bændur.
Hins vegar hafa ríkisstarfsmenn
dregist mjög aftur úr, enda launa-
hækkanir til þeirra engar, og
hefur kaupmátturinn rýmað sem
því nemur.
Fram kom að gjaldeyristekjur
Kínverja hafa aukist gífurlega,
aðallega vegna hins vaxandi
ferðamannaiðnaðar. Þannig hefur
verið hægt að lækka óhagstæðan
vöruskiptajöfnuð talsvert. Hag-
vöxtur í iðnaði var meiri en áætlað
var, en hann var 15% í stað 10%.
Uppskeruhorfur era góðar.
Ekki era allar horfur jafngóðar,
því neysla og fjármagnskostnaður
var talinn hærri en góðu hófi
gegndi. OfQárfesting hefur enn-
fremur hækkað hráefniskostnað
og þannig valdið skorti á sumum
sviðum. Óhagkvæmni í ríkis-
rekstri mun ennfremur gjfurleg
og er því fyrirsjáanlegt að fjár-
lagahalli verði hærri en nokkra
sinni.
Vestrænir stjómarerindrekar
sögðu að vandamál þau sem
Zhang hefði talið upp væra síður
en svo ný af nálinni. Hins vegar
sögðu þeir hann hafa verið óvenju
opinskáan og töldu að nú væra
Austur-Þýskaland:
Víðtæk sakaruppgjöf
Dauðarefsing einnig aftiumin
Austur-Berlín, Reuter.
AUSTUR-þýsk yfirvöld til-
kynntu óvænt í gær að miklum
fiölda fanga i landinu yrði veitt
sakaruppgjöf og jafhframt yrði
dauðarefsing afhumin þegar i
stað. Var sagt að þetta væri
gert í tilefiú af 38 ára afinæli
alþýðulýðveldisins.
Byijað verður að láta fanga
lausa 12. október. Fólk, sem dæmt
hefur verið í lífstíðarfangelsi, fær
dóminn mildaðan niður í 15 ár.
Undanþegnir sakaruppgjöfmni
verða stríðsglæpamenn nazista.
njósnarar, morðingjar og fólk sem
dæmt hefur verið fyrir glæpi gegn
mannkyninu. Var sagt að störf
yrðu fundin handa fólkinu og hér-
aðsyfirvöld myndu aðstoða það
við að koma sér fyrir í samfélag-
inu á ný.
„Það er grundvallaratriði að
borgari, sem afplánað hefur refs-
ingu sína, geti hafið störf á ný
með fullum réttindum," sagði í
frétt austur-þýsku fréttastofunn-
ar ADN.
Yfírlýsing stjómvalda kom
tveim sólarhringum eftir að
stjómvöld beggja þýsku ríkjanna
tilkynntu að Erich Honecker, leið-
togi Austur-Þýskalands, færi í
fimm daga opinbera heimsókn til
Vestur-Þýskalands í september
en austur-þýskir leiðtogar hafa
ekki áður farið í opinberar heim-
sóknir þangað.
Talsmaður vestur-þýsku stjóm-
arinnar fagnaði yfírlýsingunni í
gær en sagði að erfítt væri að
meta áhrifin af þessum aðgerðum.
Hann bætti því við að hann von-
aði að sakaruppgjöfin yrði einnig
látin gilda um fólk sem fangelsað
hefði verið fyrir pólitískan mót-
þróa.
endurbótasinnamir að þrýsta á
harðlínumennina. „Þeir era að
gera grein fyrir vandanum og
benda á að lausnin sé fólgin í
meira efnahagslegu frelsi, ekki
minna."
Hollenska lögreglan:
Fann 40 kíló
afheróíni
Amsterdam, Reuter.
EFTIR mikinn eltingarleik á
götum Amsterdam handtók
lögreglan 27 ára gamlan
Kínverja á miðvikudagsmorg-
un. í gær var svo upplýst að
fundist hefðu 40 kiló af heróíni
í rúmi á heimili mannsins.
Lögreglan komst á spor manns-
ins er tveir aðrir Kinvetjar voru
handteknir á hóteli í borginni og
fundust 3 kfló af heróíni í fórum
þeirra.
Söluverðmæti heróínsins, sem
fannst í gær, er talið vera um 3,4
milljónir Bandaríkjadala.
Laklegur aðbúnaður
Miklar mótmælaaðgerðir hafa verið í frönskum fangelsum síðustu daga
og kvarta fangamir undan óheyrilegum þrengslum. Alls munu fangar í
Frakklandi vera um 60 þúsund en fangelsin aðeins byggð fyrir rúmlega
32 þúsund. Á myndinni sjást lök sem fangar láta lafa út um klefaglugga-
na til að minna á kröfur sínar.