Morgunblaðið - 18.07.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
37
SPINAT
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Imínu ungdæmi borðaði Skipper skræk spínat og varð sterkur af. Flest þekkjum við spínat, sem
var lengi talið hollasta grænmeti sem tii er. Bömin mín báðu mig oft um að rækta spínat, þau
ætluðu sér að verða mjög sterk og dugleg af því, en á þeim árum vom sýndar í Keflavíkursjón-
varpinu teiknimyndir með Stjána bláa, þar sem hann varð sterkur af að borða spínat. Einhvem
veginn varð það svo að þrátt fyrir þetta vom bömin ekki mjög dugleg við spínatið. Líklega vegna
þess að við höfðum ekki Kanasjónvarpið og þau heyrðu þetta bara af afspum, en sáu reyndar
stundum sjónvarpið hjá nágrönnum.
Víða um heim vora böm neydd til að borða spínat, en það er A- og C-vítamínríkt og jámauð-
ugt. Fyrir nokkmm ámm var mikið rætt um, að spínat væri ekki eins hollt og af væri látið, þar sem í því
væri oxalsýra, sem væri óholl. Þetta er að vísu að hluta til rétt, oxalsýra er í spínati, en fáir held ég að borði
svo mikið spínat að þeim verði meint af henni, og spínat er jafn vítamín- og jámauðugt og fyrr. Ein-
hvem veginn er það samt svo, að spínat er ekki eins vinsælt og það var. Spínat þarf ekki mjög heitt loftslag
til að vaxa vel, og þrífst því vel hér á landi. Talið er að það sé upprannið í Persíu, enda hefur það verið
kallað Persíugrænmeti. Farið var að rækta það í Kína árið 647 og Máramir komu með það til Spánar um
1100, en óvíst er hvort það kom til annarra hluta Evrópu frá Spáni eða Mið-Austurlöndum, þar sem það var
og er enn mikið ræktað. Um 1400 var spínat ræktað í mörgum klausturgörðum víða um Evrópu. Við ættum
að gera meira af því að borða þetta holla grænmeti, sem því miður sést sjaldan í verslunum en margir
rækta sem betur fer til heimilisnota.
V /á
Spínatmauk með
kartöflum og osti
‘Akg spínat, ferskt eða frosið,
1 meðalstór kartafla,
15 g smjör (1 smápakki),
1 msk. ijómaostur án bragðefna,
'Msk. múskat,
örlítið af nýmöluðum pipar,
■Msk. salt,
50 g rifinn óðalsostur eða annar
mjólkurostur,
*/2tsk. rifinn parmesanostur (má
sleppa).
1. Afhýðið kartöfluna, skerið í
sneiðar og sjóðið í örlitlu saltvatni
í nokkrar mínútur, eða þar til hún
er soðin.
2. Takið leggina úr spínatinu,
þvoið vel. Ef þið notið frosið
spínat, er það notað eins og það
kemur fyrir.
3. Setjið 1 lítra af vatni í pott.
Setjið spínatið í sjóðandi vatnið
og sjóðið í 3—5 mínútur. Helliið
á sigti að suðu iokinni. Þrýstið
ofan á spínatið í sigtinu og reynið
að láta sem mest af vatninu renna
af því.
4. Setjið kartöflur, spínat,
smjör, ijómaost, múskat, pipar og
salt í hrærivélarskál og hrærið vel
saman.
5. Setjið í pott og látið hitna
vel. Gætið þess að þetta brenni
ekki við.
6. Setjið maukið í smurða skál,
stráið ostinum yfir.
7. Hitð glóðarrist eða setjið
bakaraofninn á 220 gráður C.
Setjið þetta í ofninn og látið brún-
ast örlítið að ofan.
9. Berið fram sem sjálfstæðan
rétt með heitu brauði eða með
físki eða kjöti.
Spínat með lauk
°S jógúrt
(eins konar sósa)
1 meðalstór laukur,
50 g smjör,
'/2kg spínat, ferskt eða frosið,
1 hvítlauksgeiri,
1 sléttfull tsk. kanill,
'Msk. salt,
Vstsk. pipar,
’Atsk. sykur.
1. Afhýðið laukinn og saxið fínt.
2. Takið grófus'.u leggina úr
spfnatinu og saxið. Saxið lfka frosið
spínat, ef þið notið það.
3. Hitið smjörið í potti, setjið
laukinn út í og sjóðið við vægan
hita í smjörinu í 5 mínútur. Þetta
á ekki að brúnast.
4. Setjið spínatið út í og sjóðið
enn við vægan hita í 7—10 mínút-
ur. Gætið sem fyrr að þetta brúnist
ekki.
5. Setjið jógúrtina í skál, meijið
hvítlauksgeirann og setjið út í, setj-
ið kanil, salt, pipar og sykur út í.
6. Kælið spínat/laukmaukið örlít-
ið, setjið síðan út í jógúrtina með
kryddinu. Kælið.
Athugið: þetta er mjög gott með-
læti með kjöti og físki.
Pönnukökur
með spínati
Pönnukökurnar:
2 egg,
V2tsk. salt,
’/stsk. pipar,
l'Adl hveiti,
a/idl mjólk,
2 msk. matarolía.
1. Þeytið eggin með salti og pip-
ar. Setjið síðan mjólk og hveiti út
í. Hrærið vel saman.
2. Setjið matarolíuna út í.
3. Hitið pönnukökupönnu og bak-
ið u.þ.b. 10 pönnukökur úr deiginu.
Milli pönnukakanna:
V* kg. s'pínat, ferskt eða frosið
1 lítri saltvatn
1 msk. smjör eða smjörlíki
1 msk. hveiti
1 dl mjólk
150 g óðals- eða mariboostur
V2 dós sýrður ijómi
1 dl jógúrt án bragðefna eða súr-
mjólk
4. Setjið saltvatn í pott. Þvoið
spínatið. Takið úr því grófar æðar,
en sjóðið hitt í vatninu í 5—7 mfnút-
ur. Takið þá spinatið úr vatninu,
setjið á sigti og þrýstið sleif á það,
svo að vatnið renni af því eða kreis-
tið í lófanum. Setjið síðan spínatið
í hrærivélarskál og hrærið sundur
eða setjið í kvöm (mixara).
5. Setjið smjör í pott og bræðið,
hrærið hveitið út í. Þynnið með
mjólkinni. Setjið spínatið út í jafn-
inginn.
6. Smyijið spínatjafning á fyrstu
pönnukökuna, stráið síðan hluta af
ostinum yfír. Leggið pönnukökum-
ar þannig hveija ofan á aðra með
jafningi og osti á milli. Látið ekki
jafning á efstu pönnukökuna, en
setjið aftur á móti ríflega af osti
ofan á hana.
7. Hrærið sýrða ijómann út með
jógúrtinni eða súrmjólkinni. Hellið
yfír pönnukökuhlaðann.
8. Hitið bakaraofn í 190 gráður
C, blástursofn í 170. Setjið pönnu-
kökumar í ofninn og bakið þar til
þetta fer að brúnast að ofan.
Spínatfrauð (soufflé)
V2 kg spínat, ferskt eða frosið
1 lítri saltvatn
60 g smjör eða smjörlfki
30 g hveiti
1 peli kaffíijómi
V» tsk. salt
nýmalaður pipar
'/8 tsk. múskat
100 g óðals- eða mariboostur
4 egg
1. Takið grófar æðar úr spínat-
inu, sjóðið það síðan í saltvatni í 7
mínútur. Kælið örlítið, hellið á sigti
og þrýstið á með sleif eða kreistið
með lófanum, svo að allur vökvi
renni af.því. Saxið spínatið.
2. setjið smjörið í pott og bræð-
ið, hrærið hveitið út í. Hrærið síðan
ijómann smám saman út í.
3. Setjið salt, pipar og múskat
saman við.
4. Minnkið hitann. Rífið ostinn,
setjið hann ásamt söxuðu spínati
út í. Sjóðið þar til osturinn er bráðn-
aður. Kælið að mestu.
5. Þeytið eggjarauðumar þar til
þær em orðnar ljósar og þykkar.
Hrærið síðan út í jafninginn.
6. Þeytið hvítumar og blandið
varlega saman við.
7. Smyijið skál með beinum
börmum, stráið raspi síðan inn í
hana.
8. Hellið jafningnum í skálina.
9. Hitið bakaraofnninn í 180
gráður C, blástursofn í 160 gráður
C. Setjið skálina í miðjan ofninn
og bakið í 30—40 mínútur.
10. Berið strax á borð, annars
fellur frauðið.
Spínathrásalat
3 egg
250 g fersk, lítil spínatblöð
3 sellerístönglar
1 meðalstór gulrót
4 meðalstórir þéttir tómatar
12 svartar eða grænar ólífur
V2 dl matarolía
safi úr 1 sítrónu
2 tsk. hunang
kanill milli fíngurgómanna
5 dropar tabaskósósa
salt milli fingurgómanna
100 g salthnetur (peanuts)
1. Sjóðið eggin í 10 mínútur.
Kælið og takið af þeim skumina.
Skerið síðan í báta.
2. Rífíð spínatblöðin örlítið í
sundur, setjið í skál.
3. Þvoið sellerístönglana, skerið
þvert í litla bita og setjið með í
skálina.
4. Skafið gulrótina, skerið í ör-
þunnar sneiðar og setjið með í
skálina.
5. Skerið tómatana í litla bita
og setjið með í skálina.
6. Takið steinana úr ólífunum ef
þeir em í, skerið síðan ólífumar í
sneiðar og setjið í skálina.
7. Setjið sítrónusafa, hunang,
matarolíu, tabaskósósu, kanil og
salt í skál. Þeytið saman með þeyt-
ara. Setjið yfír grænmetið. Blandið
saman með tveimur göfflum. Setjið
lok á skálina og látið standa í kæli-
skáp í 1 klst.
8. Stráið salthnetum yfír og rað
ið eggjabátunum ofan á.